Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 24. nóvember 2010 miðvikudagur
Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleig-
andi útgerðarfélagsins Ísfélag Vest-
mannaeyja, keypti samtals 30,72
prósenta hlut í Morgunblaðinu
á síðasta ári þegar fjárfestahóp-
ur undir forystu Óskars Magnús-
sonar keypti útgáfufélag blaðsins.
Þetta kemur fram í ársreikningi fé-
lagsins Hlynur A ehf., sem virðist
hafa verið stofnað utan um kaup
hennar á Morgunblaðinu. Eignar-
hlutur Guðbjargar í Morgunblað-
inu er í gegnum eignarhaldsfélagið
Fram ehf., en það á svo Hlyn A ehf.,
sem aftur á tæpan þriðjungshlut
í félaginu Þórsmörk, sem keypti
allt hlutafé í Árvakri – útgáfufélagi
Morgunblaðsins.
200 milljónir út
Í ársreikningi kemur fram að Guð-
björg hafi borgað 200 milljónir
króna fyrir sinn hlut í Morgunblað-
inu. Eignarhaldsfélagið Hlynur A,
sem stofnað var í fyrra, fékk til þess
200 milljóna króna lán frá öðru fyr-
irtæki í eigu Guðbjargar. Ekki kem-
ur fram hver veitti lánið, aðeins að
það sé frá tengdu fyrirtæki. Líklega
er því um að ræða Fram ehf. Í gegn-
um það félag á Guðbjörg einnig
hlut sinn í Ísfélagi Vestmannaeyja.
Hingað til hefur ekki
verið gefið upp
hversu
mikið hver hluthafi á í Morgun-
blaðinu. Óskar Magnússon, sem
titlaður er útgefandi Morgunblaðs-
ins, er framkvæmdastjóri og eini
stjórnarmaður Þórsmerkur. Hann
hefur komið fram fyrir hönd eig-
enda blaðsins, en legið hefur fyrir
að Guðbjörg hafi keypt hlut í blað-
inu, en ekki hversu stóran. Aðrir
hluthafar eru meðal annars Þor-
steinn Már Baldvinsson í útgerðar-
félaginu Samherja og Óskar Magn-
ússon.
Forríkur fjárfestir
Enn er óljóst hvort fjárfesting
Guðbjargar í Morgunblaðinu skili
henni einhverju til baka, en rekst-
ur félagsins var mjög erfiður í fyrra.
1,3 milljarða tap var á útgáfunni
og tekjur lækkuðu um milljarð á
milli ára. Guðbjörg ætti hins vegar
að geta lagt blaðinu til aukið fé, en
hún var skattadrottning landsins í
fyrra, en hún greiddi 343 milljónir
króna í opinber. Guðbjörg er stór-
eignakona því hún er sem fyrr segir
aðaleigandi Ísfélags Vestmanneyja,
sem er eitt stærsta útgerðarfélag
landsins, með um 4.460 þorsk-
ígildistonna aflaheimildir, eða sem
svarar um 1,65 prósentum af fisk-
inum í sjónum umhverfis Ísland.
Ísfélagið er metið á milljarða, en
samkvæmt ársreikningi félags-
ins frá 2008 eru aflaheimildirnar
metnar á 6,3 milljarða og fiskiskip
félagsins eru metin á 3,5 milljarða
króna.
Guðbjörg Matthíasdóttir keypti samtals 30,72 prósenta hlut í Morgunblaðinu í fyrra.
Utan um kaupin var stofnað eignarhaldsfélagið Hlynur A ehf., en í ársreikningi þess
kemur fram að félagið lagði út 200 milljónir króna til kaupanna, sem það fékk að láni
frá öðru fyrirtæki í eigu Guðbjargar. Mikið tap var á útgáfu Morgunblaðsins í fyrra.
Svona á Guðbjörg í Mogganum
Fram
ehf.
Hlynur
A ehf.
Þórsmörk
ÁrvakurMorgunblaðið
valGeir örn raGnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Í ársreikningi kemur fram að
Guðbjörg hafi borgað 200
milljónir króna fyrir sinn
hlut í Morgunblaðinu.
Guðbjörg
Matthíasdóttir
Setti200milljónir
krónaíMorgun-
blaðiðogkeypti
um30prósenta
hlutíblaðinu.
REIDDI FRAM
200 MILLJÓNIR
Niðurskurður á Landspítalanum er
farinn að bitna á gæðum hjúkrun-
unarvara sem keyptar eru til spítal-
ans. Þetta fullyrða tveir starfsmenn
í heilbrigðisgeiranum sem unn-
ið hafa á Landspítalanum. Þeir vilja
ekki koma fram undir nafni starfs
síns vegna. Fyrir vikið þurfi að nota
meira magn af hjúkrunarvörum og
þannig náist alls ekki sá sparnaður
sem stefnt var að. Annar þeirra seg-
ir að í sumum tilfellum séu nálar svo
lélegar eða gallaðar að þær stingi
varla í gegnum húð og stundum þurfi
að henda tveimur til þremur nálum
fyrir hverja eina sem er í lagi. Starfs-
maðurinn segir einnig að umbúðir
utan um vörur sem eigi að vera sótt-
hreinsaðar séu í mörgum tilfellum
það lélegar að þær rifni við minnsta
hnjask. Hann segir að ekki sé hægt
að taka neina áhættu með slíkt og
því sé nauðsynlegt að henda vör-
um í rifnum umbúðum. Hann getur
ekki ímyndað sér að af þessu hljótist
mikill sparnaður þegar upp er stað-
ið. Landspítalanum hefur verið gert
að skera niður um 6 milljarða króna
síðastliðin tvö ár.
Sjúkraliði sem starfað hefur
á Landspítalanum með hléum í
nokkur ár staðfestir þetta. Þegar
sjúkraliðinn, sem vill heldur ekki
koma fram undir nafni, hóf aftur
störf á Landspítalanum í sumar eft-
ir nokkurt hlé, segist hann hafa orð-
ið þess greinilega var að aðrar og
töluvert lakari hjúkrunavörur voru
komnar í notkun. „Ég fann greini-
legan mun á sprautum, nálum og
slíkum vörum. Við erum bara að
nota ódýrustu vörurnar og margt
af þessu er bara drasl sem þarf að
nota meira af.“
Anna Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar á Land-
spítalanum vildi þó ekki kannast
við þessi vandamál og sagðist ekki
hafa heyrt af þeim.
solrun@dv.is
Starfsmenn Landspítalans ósáttir við niðurskurðaraðgerðir:
Óánægjameðhjúkrunarvörur
Mikill niðurskurður Skoriðhefur
veriðniðurumrúma6milljarðaá
Landspítalanumsíðastliðintvöár.
Morgunverðar-
fundur UNIFEM
Árlegur morgunverðarfundur
UNIFEM á Íslandi verður haldinn
fimmtudaginn 25. nóvember á Hót-
el Loftleiðum. Á fundindum verður
nýtt alþjóðlegt átak UNIFEM og UN
Global Compact kynnt, sem nefn-
ist Jafnréttissáttmálinn. Búið er að
samþykkja og staðfesta marga sátt-
mála hvað varðar jafnrétti og stöðu
kvenna og hafa frjáls félagasamtök,
ríkisstjórnir og alþjóðlegar stofnan-
ir unnið hörðum höndum að því að
bæta líf kvenna um heim allan, að
því er fram kemur í tilkynningu frá
UNIFEM á Íslandi.
Jólatréð ekki sent Frá HaMborG:
Kveikt á Ham-
borgartrénu
Ljósin á jólatrénu á Miðbakka
Reykjavíkurhafnar verða tendruð á
laugardaginn klukkan 17. Í tilkynn-
ingu frá Faxaflóahöfnum segir að
jólatréð á Miðbakkanum eigi sér
langa og merka sögu því félagsskap-
urinn Wikingerrunde í Hamborg í
Þýskalandi hafi í 44 ár sent jólatré
til Reykjavíkurhafnar. Trénu hafa
fylgt góðir gestir frá Hamborg en
tilefni þessarar gjafar er táknrænn
þakklætisvottur til íslenskra togara-
sjómanna sem gáfu svöngu fólki
mat við höfnina í Hamborg á fyrstu
árunum eftir seinni heimsstyrjöld-
ina. Félagið Wikingerrunde hefur
nú að mestu hætt starfsemi enda
fækkað í hópnum og því var afráðið
að senda ekki tré til Reykjavíkur að
þessu sinni.
Þrátt fyrir þessa breytingu hafa
stjórnendur Faxaflóahafna ákveð-
ið að halda áfram þeirri venju að
tendra ljósin á Hamborgartrénu á
Miðbakka og bjóða viðskiptavin-
um og velunnurum að taka þátt í
athöfninni.
Ólafur í Abu Dhabi
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, var heiðursgestur við vígslu
Masdar-tækniháskólans í Abu Dhabi
á þriðjudaginn. Byggingin er teikn-
uð af arkitektinum Norman Foster
og í tilkynningu frá embætti forseta
Íslands kemur fram að byggingin sé
talin sjálfbærasta bygging veraldar
þar sem mengun og úrgangur eru
komin niður að núllmarkinu.
Krónprins Abu Dhabi, Moham-
med bin Zayed Al Nahyan, bauð
forsetanum til athafnarinnar vegna
stuðnings hans frá upphafi við þá
framtíðarsýn sem Masdar endur-
speglar. Tækniháskólinn er fyrsta
byggingin sem vígð er í Masdar-borg
en henni er ætlað að varða veginn til
sjálfbærrar framtíðar og sýna fram á
hvernig hægt sé að nota tæknina til
að koma í veg fyrir koltvísýringsút-
blástur og mengun um leið og allur
úrgangur er endurnýttur.