Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 26
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra: 26 fólkið 24. nóvember 2010 miðvikudagur SterkaSta kona ÍSlandS: Biggi veira 15 ára GusGus fagnar 15 ára afmæli sínu um þessar mundir. Hljómsveitin hefur selt yfir hálfa milljón eintaka af plötum sínum á alþjóðavísu og er vel þekkt nafn í elektrónískri tónlist. Þessum áfanga sveitarinnar er fagnað með safnplötu. Plötuumslagið hefur vakið mikla athygli en það prýðir einn stofnanda hljómsveitarinnar, Bigga veiru. Það er hönnuðurinn Linda Loeskow sem hannaði um- slagið en það prýða myndir af Bigga veiru 15 ára gömlum á ferðalagi með fjöldskyldu sinni í Þýskalandi árið 1983. GusGus hefur gengið í gegnum margar mannabreytingar, en í dag eru hljómsveitarmeðlimirnir þrír; Biggi veira (Birgir Þórarinsson), President Bongo (Stephan Stephen- sen) og Daníel Ágúst. Þeir eru allir meðal stofnenda sveitarinnar.  Vinsælt fall Myndband af íslenskum strák að detta af hjóli hefur heldur betur slegið í gegn á YouTube. Frá því að myndbandið var sett inn þann 15. nóvember hefur rúmlega ein milljón manns horft á það. Í myndbandinu, sem er tekið upp á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 2008, sést ungur maður ætla að stökkva á hjóli. Það tekst ekki betur til en svo að hann fellur kylliflatur á andlitið, enda eflaust töluvert ölvaður. Eins og segir er myndbandið nokkuð gamalt en þegar það var sett á vefsíðuna failblog.com sló það í gegn með fyrrgreindum hætti. Í nýrri bók sinni, Ástin & stjörnu- merkin, miðlar Ellý Ármanns boð- skap um samskipti kynjanna út frá fræðum stjörnumerkjanna. Í bók- inni geta áhugasamar konur lært allt um það hvernig þær geta parað sig saman við karla í hinum ýmsu stjörnumerkjum, hver er líkleg- astur til þess að uppfylla fantasíur þeirra og lesið stuttar reynslusögur íslenskra kvenna um stjörnumerki og sambönd. Nokkrar konur mæla með bók- inni aftan á kápu hennar. Þeirra á meðal er Katrín Júlíusdóttir iðn- aðaráðherra sem segir: „Stjörn- urit ástarinnar fyrir hina ungu og einhleypu... og okkur hin líka því ástin er síung. Frábær bók frá sannri stjörnu.“ Katrín segist vera stjörnuspeki- nörd. „Mér fannst stjörnuspekin afar heillandi á unglingsárunum. Ég grúskaði mikið í þessari speki og hélt mikið upp á bók sem þá var afar vinsæl eftir Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking og dundaði mér við að gera stjörnu- kort. Ég er mjög fegin að Ellý sér bara um þetta núna. Henni tekst verkið vel og er svo jákvæð og glett- in.“ Aðspurð hvaða stjörnumerki hún sé í kemur hún blaðamanni á óvart: „Ég á afmæli í dag [þriðju- dag]! Þannig að ég er bogmaður en rísandi sporðdreki. Það er víst al- veg snúin blanda.“ t il þess að ná góðum árangri við æfing-ar breytti Þóra Þor-steinsdóttir, sterkasta kona Íslands, stof- unni heima hjá sér í æfingasal. Tæk- in pantaði hún á netinu og maður- inn hennar hjálpaði henni að smíða hnépressu. Heimilishaldið síðustu mánuði hefur því litast af áhuga- málum heimilismóðurinnar en hún segir það ekki koma að sök. Börnin hennar fjögur stundi júdóíþróttina grimmt og því hafi þau einfaldlega gaman af þessu og hvetji hana óspart til dáða. Aðspurð hvað drífi hana áfram segist hún ávallt klára það sem hún tekur sér fyrir hendur. „Ég klára allt sem ég byrja á og geri það eins vel og ég get. Ég tók ákvörðun um að taka þátt í þessari keppni fyrir 10 mánuð- um með vinkonu minni Rósu. Síðan þá höfum við æft stíft saman heima í stofu. Hún náði fjórða sætinu svo við getum báðar verið stoltar af ár- angrinum.“ Þóra segist borða venjulegan heimilismat og mikið af honum. „Ég tek vítamín en engin fæðubótar- efni eða drykki. Ég læt mér einfaldlega duga venjuleg- an heimilismat og borða ógurlega mikið af hon- um. Ég vildi fara sem eðlilegasta leið að settu marki.“ Samkeppnin var hörð og náði Þóra að sigra með minnstum mun, eða einu stigi. Hún segist ætla að halda áfram að bæta sig. „Næst á döfinni er að halda áfram að styrkja mig. Ég er auðvitað stolt af árangrinum og á örugglega mikið inni enda búin að æfa í tiltölu- lega stuttan tíma.“ Aðspurð hvort hún eigi sér ein- hverjar fyrirmyndir segir hún það helst vera móður sína. „Það má kom- ast langt á góða skapinu og því að vera hress. Þannig er mamma og vonandi ég líka.“ Hún segist sjálf vilja vera góð fyrirmynd. „Við vinkonurn- ar teljumst þéttar og mig langar til að hvetja þéttar og feitar konur áfram til afreka. Feitar konur eru líka íþrótta- menn. Þær geta allt!“ kristjana@dv.is Þóra Þorsteinsdóttir er sterkasta kona Íslands. Þessi kraftmikla kona er óhemju metnaðargjörn en hún byrjaði að æfa fyrir aðeins 10 mánuðum og hefur stundað æfingarnar heima í stofu sinni á Stokks- eyri þar sem hún býr ásamt manni sínum og fjórum börnum. Hún segir feitar konur líka íþróttamenn. feitar konur geta allt! Frábær árangur heima í stofu Þóra Þorsteinsdóttir æfði í aðeins 10 mánuði og hreppti titilinn sterkasta kona Íslands. Á kafi í stjörnuspeki Á kafi í stjörnuspeki Katrín Júlíusdóttir er forfallin áhuga- kona um stjörnuspeki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.