Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Síða 6
6 fréttir 24. nóvember 2010 miðvikudagur
Á fundi með Má Guðmundssyni
seðlabankastjóra og nokkrum af
starfsmönnum bankans í október
var lagt að Heiðari Má Guðjónssyni,
fjárfesti og eins þeirra sem lagt hafði
fram tilboð í tryggingafélagið Sjóvá,
að draga sig út úr kaupendahópnum,
samkvæmt heimildum DV. Már mun
hafa lagt fram gögn á fundinum sem
sýndu fram á viðskipti Heiðars með
um hálfan milljarð af aflandskrónum
síðastliðið sumar en þær tók hann til
landsins í gegnum eignarhaldsfélag
sitt Ursus, líkt og DV greindi frá í síð-
asta mánuði. Aflandskrónurnar voru
notaðar til að kaupa skuldabréf sem
útgefin voru af Ursus. Seðlabankinn
hefur verið með það til skoðunar síð-
an í sumar hvort viðskipti Heiðars
Más hafi verið brot á gjaldeyrishafta-
lögum Seðlabankans.
Heiðar Már vildi ekki verða við
þessari beiðni en tilgangur fund-
arins af hans hálfu var að ganga frá
sölunni. Ástæðan fyrir þeirri tregðu
Seðlabankans að selja Heiðari og
viðskiptafélögum hans Sjóva, en
með honum að tilboðinu stóðu með-
al annars Frjálsi lífeyrissjóðurinn,
Stefnir, eignastýringarfyrirtæki Ar-
ion banka, Ársæll Valfells og systkin-
in Guðmundur Jónsson og Berglind
Jónsdóttir sem kennd eru við út-
gerðarfyrirtækið Sjóla í Hafnarfirði,
var líklega sú athugun á viðskiptum
Heiðars Más með aflandskrónur sem
farið hafði fram í bankanum.
Seðlabanki Íslands á 73 prósenta
hlut í Sjóvá í gegnum eignarhalds-
félag sitt, Eignasafn Seðlabanka Ís-
lands, og þurfti Már að skrifa undir
söluna á Sjóvá fyrir hönd bankans.
Líklegt þykir að Heiðar Már hafi ætl-
að að nota aflandskrónurnar til að
greiða fyrir hlut sinn í Sjóvá.
Efnahagsbrotadeildin gæti haft
áhuga
Heiðar Már og meðfjárfestar hans
hafa nú gefið það út að þeir hafi hætt
við kaupin á tryggingafélaginu. Í til-
kynningu frá Seðlabanka Íslands á
mánudaginn kom fram að ekki hafi
verið mögulegt að taka afstöðu til
tilboðs fjárfestahóps Heiðars Más
fyrir 22. október síðastliðinn en það
var fresturinn sem kaupendahóp-
ur Heiðars Más hafði gefið Seðla-
bankanum. Í tilkynningunni stað-
festi Seðlabankinn að fundur Más og
Heiðars Más hefði átt sér stað: „Áður
en fresturinn rann út voru lögmaður
kaupendahópsins og einn meðlima
hans upplýstir um þessa niðurstöðu
og ástæðu hennar á fundi í Seðla-
banka Íslands.“
Í tilkynningunni kom jafnframt
fram að Seðlabankinn gæti ekki
greint frá því af hverju bankinn gat
ekki gefið fjárfestahópi Heiðars Más
svör um söluna á Sjóvá fyrir um-
ræddan tímafrest. Hins vegar má
nánast fullyrða að ástæðan fyrir því
hafi verið viðskipti Heiðars Más með
aflandskrónur.
Eftir því sem DV kemst næst kom
það meðal annars fram á fundinum,
sem var dramatískur í meira lagi þar
sem Heiðar Már ætlaði að ganga frá
viðskiptunum en án árangurs, að
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra kynni að hafa áhuga á viðskipt-
um Heiðars Más og Ursus.
Heiðar bakkaði ekki
Þrátt fyrir þennan átakafund, og
það sem fór á milli Heiðars Más og
seðlabankamanna, bakkaði Heiðar
ekki út úr hópnum. Enda er alls óvíst
að Heiðar Már hefði getað það þar
sem ráðgert var að hann ætti nokk-
uð stóran hlut í Sjóvá. Hugsanlegt
er að brottför Heiðars Más úr fjár-
festahópnum hefði því sett kaupin í
uppnám hvort sem var. Ljóst er hins
vegar að áframhaldandi vera Heið-
ars Más í hlutahafahópnum gerði
það hugsanlega að verkum að tefja
ákvarðanatöku Seðlabankans vegna
skoðunar bankans á aflandskrónu-
viðskiptum Heiðars Más. Seðlabank-
inn hefur einfaldlega ekki talið sig
geta gengið að kauptilboði hóps sem
Heiðar Már fór fyrir.
Íslandsbanki hefur séð um sölu-
ferli Sjóvár og er alls ekki ljóst hver
næstu skref verða í söluferli fyrir-
tækisins. Þó er ljóst að nokkur bið
mun verða að því að Sjóvá verði selt
til nýrra eigenda þar sem söluferli
tryggingafélagsins, sem leiddi það af
sér að Heiðar Már og viðskiptafélag-
ar hans stóðu einir eftir, hefur tekið
meira en ár. Sjóvá verður þó væntan-
lega boðið út aftur með tíð og tíma.
LAGT AÐ HEIÐARI
AÐ HÆTTA VIÐ
Á fundi með Heiðari Má Guðjónssyni í Seðlabanka Íslands í síðasta mánuði var lagt
til að hann myndi draga sig út úr fjárfestahópnum sem falaðist eftir Sjóvá. Heiðari Má
voru sýnd gögn um viðskipti hans með aflandskrónur. Sagt var að efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra kynni að hafa áhuga á viðskiptum hans.
inGi f. vilHjálMsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Efnahagsbrotadeildin nefnd Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóravarnefndánafnáfundisemHeiðar
MárGuðjónssonáttimeðstjórnendumSeðlabanka
Íslandsísíðastamánuði.Taliðvarhugsanlegtaðhún
gætihaftáhugaáaflandskrónuviðskiptumHeiðars.
nUndanþágavaríreglunumumgjaldeyrismál,semsettar
voruíkjölfarefnahagshrunsins2008,semgerðierlendum
fjármálafyrirtækjumheimiltaðkaupaskuldabréfíslenskra
fyrirtækjameðaflandskrónumsemteknarvoruútaf
reikningumsemkallastVostro.Íslenskiraðilar,semerumeð
starfsemierlendis,byrjuðuhinsvegaraðnotfærasérþessa
undanþáguíauknummælimeðþvíaðkaupaskuldabréf
innlendrafyrirtækjameðaflandskrónum.Seðlabankinn
fékkveðurafþessuoghertireglurnarumgjaldeyrismálí
kjölfariðþarsemslíkviðskiptifaragegnandareglnanna.
ViðskiptieignarhaldsfélagsHeiðarsMásmeðkrónurvoru
afþessummeiði.Seðlabankinnhefurveriðaðskoðaþessi
viðskiptiÚrsusar,ogannarraeignarhaldsfélaga,fráþvíþauáttusérstaðfyrrá
árinu.MeðalþesssemörugglegaereittafaðalatriðumrannsóknarSeðlabankans
eraðathugahvortaflandskrónurnarsemHeiðarMárnotaðitilaðkaupaskulda-
bréfUrsushafiveriðlöglegareðaólöglegar.Löglegaraflandskrónureruþærsem
keyptarvorufyrirsetningugjaldeyrishaftalagannaíkjölfarefnahagshrunsins2008
ámeðanólöglegaraflandskrónureruþærsemkeyptarvorueftirþennantíma.
viðskipti með aflandskrónur
Már Guðmundsson
Salmonella
greindist
Salmonellusýking greindist ný-
lega í kjúklingi frá Reykjagarði.
Fyrirtækið hefur nú þegar inn-
kallað afurðir merktar 002, 10,
41, 3 og 05. Þeir sem hafa keypt
kjúklinga með þessari merkingu
eru beðnir um að skila þeim í
verslanirnar þar sem þeir voru
keyptir eða til Reykjagarðs að
Fosshálsi 1 í Reykjavík.
Í tilkynningu frá Reykjagarði
segir að salmonellusýkingin hafi
fundist við reglubundið eftirlit
við slátrun. Kjúklingarnir voru
einnig rannsakaðir áður en þeim
var slátrað en þá voru þeir ekki
sýktir. Sýni úr kjúklingunum eru
til greiningar hjá Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði
að Keldum. Sýnin verða einnig
send til staðfestingar á sýkladeild
Landspítalans.
storMur sEafood:
Kínverjar
kaupi
Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur
skilað ráðherra áliti vegna kaupa
Nautilus Fisheries Ltd. á 43,75 pró-
senta hlut í Stormi Seafood ehf. sem
nefndin hefur haft til umfjöllun-
ar. Mat nefndarinnar er að kaupin
gangi ekki gegn ákvæðum laga um
erlenda fjárfestingu.
Í tilkynningu frá efnahags- og
viðskiptaráðuneytinu er vísað í að í
lögum númer 34 frá 1991 komi fram
að skilyrði fyrir erlendu eignarhaldi
í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækj-
um séu að slíkt fyrirtæki sé und-
ir íslenskum yfirráðum og beint og
óbeint eignarhald erlends aðila megi
vera uppsafnað allt að 49 prósent.
„Einnig er skilyrði að meirihluti
stjórnar fyrirtækisins sé búsettur á
Íslandi svo og framkvæmdastjóri
þess. Þessum skilyrðum er fullnægt
varðandi hið erlenda eignarhald í
Stormi Seafood ehf.,“ segir í tilkynn-
ingunni en Nautilus er í eigu kín-
verskra aðila.
„Já, þetta er klárlega fótanuddtæki árs-
ins,“ segir Hilmar Már Aðalsteinsson,
rekstrarstjóri Rammagerðarinnar, um
það hvort hann telji að lopapeysan
verði algeng jólagjöf í ár. Rannsókn-
arsetur verslunarinnar spáir fyrir hver
jól hvaða vara muni verða algengust í
jólapökkum landsmanna og í ár varð
íslenska lopapeysan hlutskörpust.
Hilmar segir að þessi árlega spá
Rannsóknarseturs verslunarinnar hitti
oft ágætlega í mark en hann veit ekki til
þess að íslenska lopapeysan hafi áður
fengið þennan titil.
Hann hefur fundið fyrir mikilli
aukningu í sölu lopapeysunnar eft-
ir hrun og ekki síst hjá Íslendingum.
Lopa peysan hafi alltaf verið mikil
ferðamannavara en það hafi breyst.
„Ég held að fólki líti sér nær og það er
eitt af því jákvæða við hrunið,“ segir
Hilmar. Til marks um hugarfarsbreyt-
inguna frá hruni var jólagjöfin árið
2007 GPS-staðsetningartæki en hrun-
árið 2008 var það íslensk hönnun.
Mörgum getur reynst erfitt að finna
hina réttu gjöf handa sínum nánustu
og ætla má að spá þessi geti dregið úr
þeim hausverk. Einnig geta hundaeig-
endur glaðst því fjölmargar verslanir
og einstaklingar hafa handprjónaðar
lopapeysur á þá ferfættu til sölu.
Samkvæmt spá Rannsóknarseturs
verslunarinnar verður jólaverslunin
svipuð að raunvirði og fyrir síðustu jól.
Veltan verður fjórum prósentum meiri
í krónum talið vegna verðhækkana
sem orðið hafa frá síðasta ári.
gunnhildur@dv.is
Íslenska lopapeysan er jólagjöfin í ár:
Einsogfótanuddtækið
jákvæð breyting Hilmar
Márbýstviðgóðrisöluá
lopapeysumfyrirjólin.
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
skór í miklu úrvali í
s tærðum 35 -36
www.xena.is
Áður en frestur-inn rann út var
lögmaður kaupenda-
hópsins og einn með-
lima hans upplýstir um
þessa niðurstöðu og
ástæðu hennar á fundi í
Seðlabanka Íslands.