Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Side 10
10 fréttir 24. nóvember 2010 miðvikudagur
Rekstrarfélag Dominos fékk milljarð króna lánaðan út á viðskiptavild félagsins árið 2005. Lánið, sem var upphaf-
lega fengið hjá Straumi en var endurfjármagnað af Landsbankanum, stendur eftir í dag og er komið upp í um tvo
milljarða. Viðskiptavildin var tilkomin út af ætlaðri útrás til Norðurlandanna sem lítið varð úr. Landsbankinn
hefur enn ekki formlega tekið yfir Dominos vegna samninga við móðurfyrirtæki Dominos í Bandaríkjunum.
Móðurfélag Dominos á Íslandi, Pizza-
Pizza, sem þá hét Futura ehf., fékk
lánaðan tæpan einn milljarð króna
frá Straumi-Burðarási út á aukna við-
skiptavild árið 2005. Viðskiptavild fyr-
irtækisins nam þá nærri 1,3 milljörð-
um króna en hafði numið 0 krónum
árið áður. Skuldir félagsins við lána-
stofnanir numu nærri milljarði króna
en höfðu numið rúmlega 74 millj-
ónum árið áður. Heildarskuldirnar
hækkuðu um rúman milljarð á milli
ára. Þetta kemur fram í ársreikningi
félagsins fyrir árið 2005.
Líkt og DV greindi frá á mánu-
daginn er þessi skuld Pizza-Pizza nú
komin upp í nærri tvo milljarða króna
eftir endurfjármögnun í Landsbank-
anum og breytingu úr íslenskum
krónum yfir í erlenda mynt. 800 millj-
óna króna viðskiptavild félagsins var
sömuleiðis færð niður í 0 krónur í árs-
reikningi ársins 2009.
Viðskiptavild félagsins er því ekki
metin á neitt í dag en eftir sitja skuld-
irnar upp á nærri tvo milljarða sem
líklega þarf að afskrifa að mestu.
Viðskiptavild vegna
Skandinavíu-markaðar
Í ársreikningi Pizza-Pizza frá árinu
2005 kemur fram að fyrirtækið Trað-
arkot ehf., sem var skráð í höfuðstöðv-
um Baugs á Túngötu 6, hafi runnið
inn í félagið árið 2005. Það félag var í
eigu Baugs, Birgis Þór Bieltvedt, stofn-
anda og eiganda Dominos á Íslandi,
og Magnúsar Kristinssonar, útgerð-
armanns í Vestmannaeyjum. En með
viðskiptunum urðu Baugur og Magn-
ús hluthafar í Dominos á Íslandi.
Við þessa færslu Traðarkots inn
í félagið urðu 90 prósent hlutafjár í
danska félaginu The Scandinavian
Pizza Company að eign Pizza-
Pizza. Birgir Þór Bieltvedt hafði
verið forvígismaður þess félags. The
Scandi navian Pizza Company átti og
rak Dominos í Danmörku. Við færsl-
una á Traðarkoti in í Pizza-Pizza yf-
irtók síðarnefnda félagið skuldir þess
fyrrnefnda. Viðskiptavild og skuldir
Pizza-Pizza voru upphaflega inni í
Traðarkoti og færðust þaðan yfir í
rekstrarfélag Dominos. Í ársreikn-
ingnum segir um þetta: „Traðarkot
ehf. var eigandi alls hlutafjár Futura
ehf. frá 9. júní 2005 og yfirtók Futura
ehf. við samrunann langtímaskuld-
ir sem tengdust þeirri fjárfestingu.“
Einnig segir í ársreikningnum: „Við-
skiptavildin myndast upphaflega við
kaup Traðarkots ehf. á dótturfélög-
um og vegna kaupa á verslun í Dan-
mörku.“
Birgir ræddi um aðdraganda
þessara viðskipta í viðtali við Við-
skiptablaðið sumarið 2005: „Ég er
ekki búinn að selja neitt en er búinn
að fá með mér inn í þetta nýja hlut-
hafa,“ en á þessum tíma var Dominos
með um 60 prósenta markaðshlut-
deild á Íslandi.
Eignastaðan svipuð og skulda-
staðan
Viðskiptavildin var því tilkomin út
af því að The Scandinavian Pizza
Company ætlaði sér að opna fleiri
pítsustaði á miklu stærra mark-
aðssvæði en Íslandi. Traðarkot var
brottfellt úr fyrirtækjaskrá skömmu
eftir þessa færslu á eignum þess og
skuldum inn í Pizza-Pizza. Traðarkot
skilaði aldrei ársreikningi áður en fé-
laginu var slitið.
Viðskiptavildin var svo bókfærð
sem eign í ársreikningnum sem gerði
það að verkum að skulda- og eigna-
staða félagsins var nokkurn veginn sú
sama þetta árið. Þess skal þó getið að
hvorki eigna- né skuldahliðin snerti
starfsemi Dominos að neinu leyti á
þessum tíma en rekstrarhagnaður fé-
lagsins nam 135 milljónum þetta ár
og tap var á rekstrinum upp á 15 millj-
ónir. Skuldbindingarnar vegna láns-
ins frá Straumi voru því miklu meiri
en rekstrarfélagið á Íslandi hefði
nokkru sinni getað staðið undir. Sókn
íslenska félagsins á hinum Norður-
löndunum gekk svo ekki eftir eins og
ráðgert var.
Pizza-Pizza seldi tæplega 90 pró-
senta eignarhlut sinn í The Scandi-
navian Pizza Company á fyrri hluta
árs 2007 aftur til Birgis Þórs með 70
milljóna króna tapi, samkvæmt árs-
reikningi ársins 2006. Fyrirtækið sem
hafði gert Pizza-Pizza kleift að keyra
upp viðskiptavild sína og fá lánað út á
hana hjá Straumi var þar með komið
út úr félaginu.
Lánið varð eftir
Ekkert í ársreikningnum bendir til að
fjármunirnir frá Straumi sem voru
inni í Traðarkoti hafi runnið með við-
skiptavildinni og skuldunum inn í
Pizza-Pizza með samrunanum árið
2006. Skuldin fór hins vegar með og
stendur nú eftir inni í rekstrarfélagi
Dominos. Hún verður afskrifuð án
nokkurs vafa. Enn liggur ekkert fyr-
ir um í hvað peningarnir frá Straumi
voru notaðir en núverandi stjórnar-
formaður Pizza-Pizza, Úlfar Stein-
dórsson, segir fjármunina ekki hafa
verið notaða í rekstur Dominos hér á
landi.
Birgir Bieltvedt er einn núverandi
eigenda olíufélagsins Skeljungs. Fyrr
á árinu var jafnframt greint frá því að
hann væri að opna Dominos-staði í
Þýskalandi. Út frá því sem vitað er um
umrædda skuldsetningu á rekstrar-
félagi Dominos virðist afar líklegt að
fjármagnið frá Straumi hafi verið not-
að í aðrar fjárfestingar.
Einkennileg staða
Staða Dominos á Íslandi er nokkuð
sérstök um þessar mundir. Móðurfé-
lagið er mjög skuldsett og Landsbank-
inn á veð í eignum félagsins. Dominos
á Íslandi er hins vegar ekki eins mik-
ils virði ef móðurfyrirtækið Dominos
International í Bandaríkjunum mun
rifta samningum við íslenska rekstr-
arfélagið í kjölfar yfirtöku bankans á
fyrirtækinu. Dominos International
vill hafa puttana í því hver það verður
sem fær að eignast og reka Dominos
hér á landi. Fyrirtækið hefur því það
tromp á hendi að geta rift samning-
um við Pizza-Pizza ef svo ber undir.
Þá stendur ekkert eftir inni í félaginu
annað en eignir eins og fasteignir og
tæki og tól sem eru í eigu rekstrarfé-
lagsins hér á Íslandi. Landsbankinn
væri því að selja rekstrareiningu sem
væri hentug til pítusrekstrar ef Dom-
inos International rifti samningum
við íslenska félagið en ekki Dominos
á Íslandi.
Afleiðingin af þessari stöðu er sú
að Landsbankinn á í nokkrum erfið-
leikum með að selja félagið vegna
þess að bankinn þarf að hafa Dom-
inos International með í ráðum þegar
félagið hér heima verður selt. Á sama
tíma er alls ekkert víst að Dominos
International kæri sig um að eignar-
haldið á Dominos á Íslandi breyt-
ist því nú er það ríkisbanki á Íslandi,
Landsbankinn, sem í raun ábyrgist
greiðslur til fyrirtækisins í Bandaríkj-
unum fyrir leyfinu á Dominos-vöru-
merkinu. Því má búast við því að
umræðum um eignarhaldið á Dom-
inos á Íslandi sé hvergi nærri lokið. Í
millitíðinni er núverandi stjórnarfor-
maður Pizza-Pizza skráður eigandi
félagsins en heimildir DV herma að
hann sé jafnframt einn af þeim sem
vilji tryggja sér það í framtíðinni með
samningum við Dominos í Bandaríkj-
unum.
FÉKK MILLJARÐ LÁNAÐAN
ÚT Á VIÐSKIPTAVILDINA
ingi f. ViLhjáLmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Traðarkot ehf. var eigandi alls hluta-
fjár Futura ehf. frá 9. júní
2005 og yfirtók Futura
ehf. við samrunann lang-
tímaskuldir sem tengd-
ust þeirri fjárfestingu.
„ÁKaupmannahafnarflugvellihefur
BjörgólfurThorhnepptniðurskyrtunni,
heldurábindinuíhendinniogræðirvið
BirgiÞórBieltvedtvinsinnogviðskiptafé-
laga.Einaástæðanfyrirþvíaðhannheldur
ekkiásímanumersúaðsíminnvarðeftirí
Kaupmannahöfnogeráleiðinnimeðbíl.
SvovísarBjörgólfurThorframvegabréfi
íbrúnuleðri,semtelstvarlaóvenjulegt
þegarhafteríhugaaðfólklæturgjarnan
bindainnþærbækursemþaðflettiroftast.“
Úr viðtali við Morgunblaðið 2006:
Erfið staða StaðaDominosáÍslandier
nokkuðerfiðídagenviðskiptabankiveit-
ingastaðarins,Landsbankinn,geturekkitekið
félagiðogseltþaðhæstbjóðandavegnaþess
aðþágætusamningarviðmóðurfyrirtækið
DominosInternationalkomistíuppnám.
Einkennileg viðskipti Viðskiptiníkring-
umDominosáÍslandisíðastliðinfimmár
erunokkuðeinkennileg.Svovirðistsem
byrjaðhafiaðsígaáógæfuhliðinaárið
2005þegarskuldirrekstrarfélagsDominos
jukustummilljarð.BirgirÞórBieltvedtvar
einieigandiDominosfyrirþettaogseldi
sigendanlegaútúrfélaginuárið2007.