Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Page 17
Vinningsbjórinn tekinn úr hillum Viking Jóla Bock, bjórinn sem varð hlutskarpastur í árlegri jólabjórsmökkun DV, var óvænt tekinn úr hillum vínbúða ÁTVR fyrir helgi. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR kom upp vandamál með umbúðir á vörunni. Viðskiptavini, sem DV ræddi við, var sagt af starfsmanni að borið hafi á því að glerið hefði molnað. Samkvæmt upplýsing- um frá ÁTVR leiddi nánari eftirgrennslan í ljós að um tilviljun hafi verið að ræða og að flöskurnar væru á engan hátt varasamar. Bjórnum var því raðað aftur upp í hillu um leið og þetta lá ljóst fyrir. Bjórþyrstir neytendur geta því nálgast sigur- bjórinn í næstu vínbúð en hann þótti bera af í bragðkönnun DV. lopapeysan jólagjöfin í ár Rannsóknarsetur verslunarinnar segir að neyslumynstur Íslendinga hafi breyst í þá átt að meiri hagkvæmni og ráðdeild ríki í innkaupum heimilanna en fyrir hrun efnahagskerfisins. Þess vegna megi gera ráð fyrir að fólk versli frekar ódýrari vörur fyrir þessi jól og að heimagerðar vörur verði al- gengari en áður. Að þessu sinni varð íslenska lopapeysan fyrir valinu sem jólagjöf árs- ins 2010. Rökstuðningur dómnefndarinnar er að lopapeysa sé vara sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga og sé í raun orðin meiri tískuvara en nokkru sinni fyrr. „Lopapeysa er ekki aðeins algeng hversdagsflík heldur er sífellt algengara að fólk mæti í lopapeysum á mannamótum. Lopi og lopapeysur seljast sem aldrei fyrr,“ segir í rökstuðningnum. miðvikudagur 24. nóvember 2010 neytendur 17 Hjón sem hyggjast réttlæta jólainn- kaupaferð til London með því að þar sé verðlag mikið lægra en á Íslandi þurfa að eyða meira en 900 þúsund krónum í gjafir og annan jólavarning. Að öðrum kosti borgar það sig fyrir þau að gera jólainnkaupin á Íslandi. DV reiknaði út verðlag í Kaupmanna- höfn og London miðað við núver- andi gengi krónunnar. Einstaklingur þyrfti að eyða 450 þúsund krónum til að ferðin beinlínis borgaði sig. Enginn verðmunur Algengt er að Íslendingar fari í helg- arferðir til London eða Kaupmanna- hafnar í aðdraganda jólanna – til að kaupa jólagjafir og annan varning fyrir jólin. DV kannaði hvað flugfar til þessara borga og til baka kostar, ef farið er um eða fyrir miðjan desem- ber. Nánast enginn verðmunur er milli flugfélaga á flugfari til Kaup- mannahafnar og London – ef ódýr- asti kostur er valinn. Ferð fyrir tvo til og frá Kaupmannahöfn kostar yfir- leitt 75 til 80 þúsund krónur með Iceland Express og Icelandair. Þetta miðast við að ferðast sé dagana 10.– 14. desember. Heldur meira kostar að fljúga til og frá London, eða rétt um eða yfir 80 þúsund krónur. Aftur er nánast enginn verðmunur á milli flugfélaga ef ódýrasti kostur er val- inn. Bara miðað við flugfarið DV gefur sér þær forsendur að sá sem ferðast til þessara borga eigi ættingja eða vini til að gista hjá – þó vitanlega séu ekki allir ferðalangar í þeirri stöðu. Kostnaðurinn við flug- ið sé einu útgjöldin sem leggja þarf út aukalega; maturinn sé álíka dýr og á Íslandi og að ferðir innan borg- anna kosti ekki meira en ferðir á Ís- landi. DV studdist við gögn frá Hag- stofu Íslands sem sýna verðlag á milli landa. Eftir að tekið hefur ver- ið tillit til gengis krónunnar gagnvart dönsku krónunni og breska pundinu kemur í ljós að Danmörk er dýrari en Ísland en Bretland er aftur heldur ódýrara. Þetta miðast við flokkana „föt og skór“, „húsgögn og heimil- isbúnaður“ og svo „aðrar vörur og þjónusta“. Þessir flokkar eru vald- ir vegna þess að líklegt er að flestar jólagjafir falli undir þá. 11 prósentum ódýrara í London Sá sem eyðir 10.000 krónum á Íslandi sparar sér 890 krónur ef hann kaupir sömu vöru í Bretlandi. Þar er verðlag- ið 11 prósentum lægra en á Íslandi en ekki eru til tölur yfir London eða Reykjavík sérstaklega. Til þess að það borgi sig fjárhagslega að gera inn- kaup í London fyrir jólin – það er að segja að 80 þúsund króna kostnaður við flugið borgi sig upp – þurfa hjónin að kaupa vörur fyrir um 900 þúsund krónur. Þess má til gamans geta að Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst spáir því að hver Íslendingur verji að meðaltali 39.500 krónum til innkaupa sem rekja megi til jólahalds fyrir þessi jól. Þeir sem hafa hugsað sér gott til glóðarinnar að ferðast til Danmerk- ur fyrir jólin ættu ekki að gera það fjárhagsins vegna. Föt, skór, hús- gögn og heimilisbúnaður er nefni- lega nokkuð dýrari í Danmörku en á Íslandi. Sá sem eyðir 10.000 krón- um á Íslandi þarf að leggja út 13.443 krónur ef hann kaupir sömu vörur í Danmörku. Tiltölulega lágt gengi krónunnar gerir þetta að verkum. Að lokum má benda á að vitan- lega má ætla að þeir sem fara í inn- kaupaferðir til útlanda fyrir jólin hafi ánægju af því að veita sér slíkan munað. Erfitt er að meta slíkan mun- að til fjár. Ferð fyrir tvo til og frá Kaup- mannahöfn kostar yf- irleitt 75 til 80 þúsund krónur með Iceland Ex- press og Icelandair. Þyrftu að eyða 900 Þúsundum Þó að verðlag á jólagjöfum í Bretlandi sé 11 prósentum lægra en á Íslandi lætur nærri að hjón þyrftu að eyða milljón krónum til að vinna upp flugfargjöldin. Það borgar sig ekki að fara í verslunarferð til Danmerkur. BaLdur guðmundsson blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Tóm gleði? Afar hæpið er að fólk geti sparað með því að skreppa í helgarferð til London til að gera „ódýr“ innkaup. mynd PhoTos.com að frumur líkamans starfi rétt. Nýr- un nota hárfína blöndu af kalíum og sódíum (matarsóda) til að sía vökva úr blóðfrumunum. Saltneysla eykur magn sódíum og riðlar jafnvæginu á milli þessara efna að því er fram kem- ur á vef bresku blóðþrýstingssam- takanna. „Með því að borða meira af ávöxtum og grænmeti færðu meira kalíum í líkamann og það hjálpar nýr unum að ná jafnvæginu upp aft- ur. Við það lækkar blóðþrýstingur- inn og heilsan batnar,“ segir þar. Þó er fólki bent á að fara ekki offari og að forðast fæðubótarefni. „Hæfilegt magn af ávöxtum eða grænmeti eru fimm hnefastórir skammtar á dag. Það mun ekki bara lækka blóðþrýst- inginn heldur getur einnig komið í veg fyrir krabbamein, ristilvanda- mál og jafnvel hjartaáföll,“ segir enn fremur. Bent er á að bananar, sætar kartöflur, tómatsósa, ávaxtasafar, túnfiskur, kartöflur, fitusnauð mjólk og jógúrt séu á meðal þeirra afurða sem séu ríkar af sódíum. sannleikurinn um saltið Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir að gagnrýni félagsins á tilhæfu- lausar eldsneytishækkanir í síðustu viku hafi gert það að verkum að olíu- félögin lækkuðu verðið aftur um þær tvær krónur sem hækkunin nam. FÍB hafði gagnrýnt hækkanirnar og sagt að þær væru algerlega úr takti við þróun á heimsmarkaðsverði á eldsneyti og gengi dollars gagnvart krónunni. „Sú gagnrýni sem félögin með réttu fengu á sig fyrir þessar tilefnislausu hækk- anir hefur greinilega náð eyrum ráða- manna félaganna því þau hófu eitt af öðru að draga hækkanirnar til baka upp úr kl. 15.00 í dag,“ sagði á heima- síðu FÍB á föstudaginn. Fram kemur að Orkan hafi riðið á vaðið og lækkað verðið hjá sér niður í 198,30 krónur. Rifja má upp að í kjölfar hækk- unarinnar ræddi DV við Hermann Guðmundsson, forstjóra N1. Hann vísaði því á bug að hækkunin væri tilefnislaus. Hann sagði að þó hráol- íuverð lækkaði einn daginn þá kæmi sú lækkun ekki strax fram í verði á því fullunna bensíni og dísilolíu sem N1 keypti af olíuhreinsistöðvum. Verð- lagið fylgdist að til lengri tíma en ekki frá degi til dags. Hann spáði því enn fremur að bensínið myndi kosta meira en 200 krónur á komandi misserum. „Ef ég ætti að leggja pening undir þá myndi ég veðja á hækkanir. Til lengri tíma miklar hækkanir en til skemmri tíma minni,“ sagði hann en hann vonaðist þó til að heimsmarkaðsverðin héld- ust í jafnvægi fram eftir vetri. Hann benti á að ríkisstjórnin ætlaði enn að auka álögur á eldsneyti um ára- mótin. „Ég minni á að hlutur ríkis- sjóðs í útsöluverðinu er 52 prósent, 38 prósent fara til þeirra olíuhreinsi- stöðva sem við verslum við og 10 til 11 prósentur eru okkar hlutur af út- söluverðinu,“ sagði hann. Bensín- og dísilverðið hjá N1 lækkaði á fimmtu- daginn niður í 196,8 krónur á lítra. baldur@dv.is FÍB segir gagnrýni á verðhækkanir hafa virkað: hækkanir dregnar til baka Lækkuðu verðið FÍB segir hækkanirnar hafa verið tilefnislausar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.