Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 2
Skiptar skoðanir hafa verið um kosn-
ingar til stjórnlagaþings og menn deilt
um hvort önnur mikilvægari verkefni
ættu að ganga fyrir. Kosningafyrir-
komulagið var umdeilt sem og und-
irbúningur kosninganna. Afleiðingar
þessa má sjá á fyrstu tölum um kjör-
sókn í kosningunum sem fram fóru
um helgina, en hún er sú dræmasta á
Íslandi síðan kosningaréttur varð al-
mennur. Alls lögðu 36,7 prósent kosn-
ingabærra manna leið sína á kjörstað
um helgina en kjörsókn á landsvísu
hefur einungis einu sinni mælst lægri
síðustu áratugina en það var í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um Icesave, fyrr á
þessu ári.
Einkennileg kosningabarátta
„Það mátti nú alveg búast við lítilli
kjörsókn þó að maður renni nú oft
blint í sjóinn með það,“ segir Gunn-
ar Helgi Kristinsson, prófessor við
Stjórnmálafræðideild Háskóla Ís-
lands, og bætir við að ýmsar ástæð-
ur séu fyrir því. Stjórnlagaþingið hafi
verið umdeilt fyrirbæri og einhverjir
hafi einfaldlega ekki haft áhuga á því.
Kosningaaðferðin hafi einnig verið
þannig að fólk þurfti að hafa mikið fyr-
ir því að kjósa og það hafi verið flókið.
Eins hafi hún ekki boðið upp á mark-
vissa kosningabaráttu. „Þetta er ein-
kennilegasta kosningabarátta sem ég
hef séð. Hluti af því að fá fólk á kjör-
stað er að frambjóðendur nái í gegn
með sinn málstað. Í þessari baráttu
voru hvorki málefnin skýr né náðu
persónur frambjóðendanna almenni-
lega í geng. Þeir voru of margir og eng-
in tök á því að gera þeim skil sem vert
hefði verið,“ segir Gunnar Helgi.
Engar hliðstæður
Hann bendir á að fara þurfi aftur á 19.
öld til að fá hliðstæður við þessa þátt-
töku. Einungis í atkvæðagreiðslum í
sveitarfélögum á borð við kosningu
um hundahald og Reykjavíkurflugvöll
má sjá lægri tölur en á landsvísu sé
ekkert hliðstætt þessu.
Aðspurður um áhrif kjörsóknar-
innar segir hann að þetta veiki stöðu
Stjórnlagaþings að einhverju leyti.
„Það má gera ráð fyrir að inn komi
fólk sem er með fá atkvæði á bak-
inu en það þarf ekki að vera neikvætt
með öllu,“ segir hann. Þetta fólk hafi
eftir sem áður það hlutverk að semja
stjórnarskrána og þarf að því að sann-
færa Alþingi og þjóðina um að það
geti samið góða stjórnarskrá.
Sjálfstæðismenn stór hluti af
þeim sem sátu heima
Sögusagnir hafa gengið um að
ákveðnir stjórnmálaflokkar hafi
ákveðið að sniðganga kosningarn-
ar og hvatt sína menn til að gera hið
sama. „Ef við erum að tala um sjálf-
stæðismenn þá held ég að það hafi
verið beggja blands. Einhverjir sjálf-
stæðismenn auglýstu, að manni
sýndist, tillögur að lista en mér finnst
líklegt að stór hluti þeirra hafi set-
ið heima. Það má ætla að þeir eigi
alla vega hlutfallslega stóran hluta
af þeim sem kusu ekki. Það var ljóst
að sjálfstæðismenn höfðu ekki mik-
inn áhuga á þessu fyrirbæri,“ bætir
hann við.
Kjörsókn í öðrum löndum
Kjörsókn á Íslandi hefur verið oft-
ast verið yfir 80 prósent sem telst
gott ef litið er á kjörsókn annarra
landa. Í Bretlandi hefur kosninga-
þátttaka verið að meðaltali um
sjötíu af hundraði síðustu þrjátíu
árin. Í Bandaríkjunum hefur al-
mennt um helmingur kosninga-
bærra manna kosið en í Sviss hefur
kjörsókn ekki farið upp fyrir fimm-
tíu prósent. Á Norðurlöndunum
er kjörsóknin mest í Danmörku og
Svíþjóð. Í Noregi hefur hún verið í
kringum 70 prósent en lægst er hún
í Finnlandi eða rúm 60 prósent að
meðaltali.
2 fréttir 29. nóvember 2010 mánudagur
VEIKIR ÞINGIÐ
Kosning til stjórnlagaþings fór fram um helgina en kjörsóknin var frekar dræm. Gunnar Helgi Kristinsson
prófessor segir að það þurfi að fara aftur til 19. aldar til að finna hliðstæður og hann gerir ráð fyrir að þetta
veiki stöðu stjórnlagaþings. Það þurfi þó ekki að vera neikvætt með öllu.
GunnHildur StEinarSdóttir
blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is
Bretland
76
%
72
,7
%
75
,3
%
77
,7
%
71
,4
%
59
,4
%
61
,4
%
65
,1
%
19
79
19
83
19
87
19
92
19
97
20
01
20
05
20
10
Sviss
48
,3
%
48
,9
%
46
,5
%
46
%
42
,2
%
43
,3
%
45
,2
%
48
,3
%
19
79
19
83
19
87
19
91
19
95
19
99
20
03
20
07
danmörk
19
79
19
81
19
84
19
88
19
90
19
94
19
98
20
01
20
05
20
07
85
,6
%
83
,3
%
88
,4
%
85
,7
%
82
,2
%
84
,3
%
85
.9
%
87
,1
%
84
,5
%
86
,6
%
Bandaríkin
19
80
19
84
19
88
19
92
19
96
20
00
20
04
20
08
52
,6
%
53
,1
%
50
,1
%
55
,1
%
49
%
51
,2
%
56
,7
%
57
,4
%
1980 F 1983 Þ 1987 Þ 1988 F 1991 Þ 1995 Þ 1996 F 1999 Þ 2003 Þ 2004 F 2007 Þ 2009 Þ 2010 Þa 2010 S
90
,5
%
88
,3
%
90
,1%
72
,8
%
87
,6
%
87
,4
%
85
,9
%
84
,1%
87
,7
%
62
,9
%
83
,6
%
85
,1%
62
,7
%
36
,7
%
FForsetakosningarÞAlþingiskosningarÞaÞjóðaratkvæðagreiðslaSStjórnlagaþing
kosningaþátttaka á íslandi í 30 ár
kosningaþátttaka víða um heim
Gunnar Helgi Kristinsson Gunnar
Helgisegirþettaveraeinkennilegustu
kosningabaráttusemhannhafiséð.
Á kjörstað Dræmþátttakavar
íkosningunumumhelgina.
Mynd róBErt rEyniSSon