Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 25
HAFNARFJARÐARSLAGUR NÚMER TVÖ Annar slagur risanna úr Hafnarfirði, FH og Hauka, í N1- deild karla í handbolta fer fram á þriðjudagskvöldið klukkan 19.45 í Kaplakrika. FH-ingar fóru illa með erkifjendur sína í fyrsta leik liðanna að Ásvöllum í byrjun október en þá höfðu þeir hvít- klæddu sigur, 28–19. Það er því ljóst að Haukar vilja hefna ófar- anna en bæði lið hafa valdið nokkrum vonbrigðum á tímabilinu, þá sérstaklega Íslands- og bikarmeistarar Hauka. Leikurinn verð- ur í beinni útsendingu á RÚV. JÓN ARNÓR MEÐ 14 STIG Körfuknatt- leiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í sínu liði, CB Granada, þegar það tapaði naumlega fyrir Bizkaia Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær, 77–75. Jón Arnór skoraði fjórtán stig á þeim tuttugu og sex mínútum sem hann spilaði og gaf þess utan fimm stoðsendingar og tók eitt frákast. Granada er sem stend- ur í sextánda og þriðja neðsta sæti úrvalsdeildarinnar spænsku með fjögur stig. MÁNUDAGUR 29. nóvember 2010 SPORT 25 Martraðarnóvember mánuði Chel- sea í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær með jafntefli á St. James‘s Park gegn Newcastle, 1–1. Andy Carroll skoraði einu sinni sem oftar fyr- ir heimamenn en Salomon Kalou jafnaði metin fyrir Chelsea á loka- mínútu fyrri hálfleiks. Í seinni hálf- leik fór Chelsea svo afar illa að ráði sínu en framherjum liðsins virtist fyrirmunað að koma boltanum í netið. Chelsea missti því toppsætið í ensku úrvalsdeildinni sem það hefur haldið allt frá því flautað var til leiks í ágúst. Herfilegt gengi þess í nóvember hefur hjálpað Manchester United að klifra í topp- sætið en 7–1 sigur United á Black- burn um helgina kom United á toppinn og hefur það tveggja stiga forskot á Chelsea og Arsenal. Í nóvember spilaði Chelsea fimm deildarleiki. Það hóf mán- uðinn með tapi gegn Liverpool, 2–0, á Anfield en vann síðan sinn eina leik í mánuðinum á heima- velli gegn Fulham. Eftir það tap- aði Chelsea tveimur leikjum í röð, gegn Sunderland og Birmingham. Gegn Sunderland átti liðið ekkert meira skilið enda tapaði það 3–0 en gegn Birmingham átti liðið 27 skot að marki sem Ben Foster varði öll. Fjórða stigið af fimmtán mögu- legum í nóvember var svo innbyrt með jafntefli gegn Newcastle í gær. Til að bæta gráu ofan á svart náði Manchester United að jafna hina ótrúlegu markatölu Chelsea með stórsigrinum á Blackburn en liðin eru nú með sama markamun en Manchester United hefur skorað fleiri mörk. tomas@dv.is Fjögur stig af fimmtán mögulegum í nóvember: Chelsea fallið af toppnum Hvað á ég að gera? Carlo Ancelotti þarf að berja sjálfstraust í Chelsea. MYND REUTERS Tottenham vann frábæran sigur á Liverpool, 2–1, þegar liðin mættust í lokaleik fimmtándu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Martin Skrtel skor- aði bæði fyrir Liverpool og Tottenham áður en hinn eldfljóti Aaron Lennon tryggði Tottenham sigurinn með marki á annarri mínútu í uppbótartíma. Með jöfnunarmarki Tottenham varð ljóst að öll liðin í ensku úrvalsdeildinni skor- uðu í einni og sömu umferðinni en það hefur aldrei áður gerst. „Þetta var erfitt en við gerðum vel. Við þurftum að hafa mikið fyrir sigrinum,“ sagði William Gallas, fyrirliði Tottenham eftir leikinn. „Það er alltaf erfitt að spila gegn Liver- pool en við sýndum öllum í dag hversu megnugir við erum,“ sagði Gallas. Enginn meistaradeildar- hausverkur Tottenham hefur oftar en stuðnings- mönnum þess líkar farið illa út úr leikj- um í ensku úrvalsdeildinni hafi því gengið vel í Evrópukeppni í sömu vik- unni. Öruggur sigur Tottenham á Wer- der Bremen í vikunni hafði þó engin áhrif á liðið sem spilaði frábæran fót- bolta á móti fínu Liverpool-liði. Buðu bæði lið upp á mikla skemmtun og ótrúlegt að fleiri mörk hafi ekki verið skoruð. Tottenham lét tvívegis verja frá sér á línu og þá brenndi Jermaine Defoe af sjöttu vítaspyrnunni á sínum úrvals- deildarferli. Átta mörk voru skor- uð og sex klúður af vítapunktinum, hreint skelfileg töl- fræði hjá Defoe. Martin Skrtel skoraði mark Liverpool en hann varð einnig svo ólánsamur að setja boltann í eigið net. Það var síðan Aaron Lennon sem tryggði Tottenham stigin þrjú sem lyftu Tottenham upp í fimmta sætið þegar hann skoraði á 92. mínútu. Frábær leikur Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var eðlilega kampakátur eftir sigur- inn en hann var orðinn vel pirraður á hliðarlínunni vegna þess hversu illa liði hans gekk að skora. „Þvílíkur léttir. Liverpool spilaði vel og var hættulegt. Þetta var alveg frábær leikur. Liverpool átti mikið í leiknum og gat skorað fleiri mörk, sérstaklega þegar við fórum að fara út úr stöðum. Við spiluðum samt mjög vel líka. Þeir vörðu frá okkur skot og við klúðruðum víti. Sem betur fer tókst okkur að skora,“ sagði Redknapp en kollega hans, Roy Hodgson var öllu fúlari. Hann var mest svekktur með að Jamie Carragher verði líklega lengi frá þar sem hann fór úr axlarlið í leiknum. „Þetta er mjög slæmt. Hann fór úr axl- arlið. Það er virkilega svekkjandi fyr- ir hann, sérstaklega þar sem þetta var hans 450. leikur fyrir Liverpool í úrvals- deildinni. Nú verðum við án hans og Gerrards í einhvern tíma. Þessir menn eru lífæð liðsins,“ sagði Hodgson. LENNON HETJAN Á ANFIELD TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Tottenham vann góðan sigur á Liverpool, 2–1, í lokaleik helgarinnar í ensku úrvals- deildinni. Aaron Lennon varð hetja Tot- tenham þegar hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Slóvakinn Martin Skrtel skoraði fyrir bæði lið. Kátir piltar Tottenham-menn fögnuðu sigrinum vel. MYND REUTERS Tvö mörk Martin Skrtel skoraði fyrir bæði liðin. MYND REUTERS ÚRSLIT ENSKA ÚRVALSDEILDIN Aston Villa - Arsenal 2-4 0-1 Andrey Arshavin (9.), 0-2 Samir Nasri (45.), 1-2 Ciaran Clark (52.), 1-3 Marouane Chamakh (56.), 2-3 Ciaran Clark (70.), 2-4 Jack Wilshere (93.). Stoke - Man. City 1-1 0-1 Micah Richards (81.), 1-1 Matthew Ethrington (90.). Bolton - Blackpool 2-2 0-1 Ian Evatt (28.), 0-2 Luke Varney (57.), 1-2 Martin Petrov (76.), 2-2 Mark Davies (89.). Fulham - Birmingham 1-1 0-1 Sebastian Larsson (20.), 1-1 Clint Dempsey (53.). West Ham - Wigan 3-1 1-0 Valon Behrami (34.), 2-0 Victor Obinna (56.), 3-0 Scott Parker (75.), 3-1 Tom Cleverly (86.). Wolves - Sunderland 3-2 1-0 Kevin Foley (50.), 1-1 Darren Bent (67.), 1-2 Danny Welbeck (77.), 2-2 Stephen Hunt (81.), 3-2 Sylvan Ebanks-Blake (89.). Man. United - Blackburn 7-1 1-0 Dimitar Berbatov (2.), 2-0 Ji Sung Park (23.), 3-0 Dimitar Berbatov (27.), 4-0 Dimitar Berbatov (47.), 5-0 Nani (48.), 6-0 Dimitar Berbatov (62.), 7-0 Dimitar Berbatov (70.), 7-1 Christopher Samba (83.). Everton - West Brom 1-4 0-1 Paul Scharner (16.), 0-2 Chris Brunt (27.), 1-2 Tim Cahill (42.), 1-3 Somen Tchoyi (76.), 1-4 Youssuf Mulumbu (87.). n Mikel Arteta, Everton (58.), Youssuf Mulumbu, WBA (87.). Newcastle - Chelsea 1-1 1-0 Andy Carroll (6.), 1-1 Salomon Kalou (45.). Liverpool - Tottenham 1-2 1-0 Martin Skrtel (41.), 1-1 Martin Skrtel (65. sm), 1-2 Aaron Lennon (90.+2). STAÐAN Lið L U J T M St 1. Man. Utd 15 8 7 0 35:16 31 2. Chelsea 15 9 2 4 29:10 29 3. Arsenal 15 9 2 4 32:17 29 4. Man. City 15 7 5 3 20:12 26 5. Tottenham 15 7 4 4 23:20 25 6. Bolton 15 5 8 2 28:22 23 7. Sunderland 15 4 8 3 19:18 20 8. Stoke City 15 6 2 7 19:19 20 9. Newcastle 15 5 4 6 23:22 19 10. Liverpool 15 5 4 6 17:19 19 11. Blackpool 15 5 4 6 23:29 19 12. WBA 15 5 4 6 20:26 19 13. Blackburn 15 5 3 7 18:25 18 14. Birmingham 15 3 8 4 16:18 17 15. Aston Villa 15 4 5 6 17:24 17 16. Everton 15 3 7 5 17:19 16 17. Fulham 15 2 9 4 15:18 15 18. Wigan 15 3 5 7 11:26 14 19. Wolves 15 3 3 9 17:27 12 20. West Ham 15 2 6 7 14:26 12 ENSKA B-DEILDIN Barnsley - Watford 0-0 Bristol C. - Sheff. Wed 3-0 Crystal Palace - Doncaster 1-0 Midlesbrough - Hull 2-2 Preston - Millwall 0-0 QPR - Cardiff 2-1 Heiðar Helguson er kominn aftur í leikmannahóp QPR eftir meiðsli en hann sat allan tímann á bekknum að þessu sinni. Reading - Leeds 0-0 Bæði Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru enn fjarverandi vegna meiðsla. Scunthorpe - Coventry 0-2 Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry og var tekinn af velli í uppbótartíma. Burnley - Derby 2-1 Norwich - Ipswich 4-1 STAÐAN Lið L U J T M St 1. QPR 19 11 8 0 35:9 41 2. Cardiff 19 11 3 5 34:20 36 3. Swansea 19 10 3 6 24:16 33 4. Derby 19 9 3 7 33:23 30 5. Norwich 19 8 6 5 31:26 30 6. Coventry 19 9 3 7 27:23 30 7. Burnley 19 7 8 4 30:23 29 8. Leeds 19 8 5 6 32:32 29 9. Nottingham F. 18 6 9 3 21:16 27 10. Doncaster 19 7 6 6 30:29 27 11. Reading 19 6 8 5 28:22 26 12. Barnsley 19 7 5 7 24:29 26 13. Portsmouth 19 7 4 8 26:27 25 14. Watford 19 6 6 7 32:30 24 15. Millwall 19 6 6 7 21:21 24 16. Ipswich 19 7 3 9 21:26 24 17. Bristol City 19 6 5 8 22:28 23 18. Hull 19 5 7 7 17:23 22 19. Leicester 18 6 4 8 23:31 22 20. Sheffield Utd 19 6 4 9 16:27 22 21. Scunthorpe 19 6 2 11 23:32 20 22. Cr. Palace 19 6 2 11 23:35 20 23. Middlesbro 19 5 3 11 19:29 18 24. Preston 19 4 3 12 23:38 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.