Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 24
KOLBEINN BJARGAÐI AZ Íslenski landsliðs- framherjinn Kolbeinn Sigþórsson bjargaði stigi fyrir AZ Alkmaar um helgina þegar liðið gerði jafntefli við Heerenveen á heima- velli, 2–2. Gestirnir héldu að þeir hefðu tryggt sér sigur með marki níu mínútum fyrir leikslok en Kolbeinn jafnaði metin af mikilli yfirvegun á lokamínútu leiksins. AZ hefur heldur betur tekið sig saman í andlitinu síðustu vikur og er búið að lyfta sér upp í fjórða sæti hollensku deildarinnar og er nú aðeins fimm stigum á eftir toppliði PSV Eindhoven. GYLFI MEÐ FIMMTA MARKIÐ Gullfóturinn Gylfi Sigurðsson skoraði sitt fimmta mark í þýsku Bundesligunni um helgina. Honum var treyst til að fara á vítapunktinn í uppbótartíma þeg- ar liðið var undir gegn Bayern Leverkusen, 2–1. Gylfa brást hvergi bogalistin og tryggði hann liði sínu stig fyrir framan rétt tæplega 30.000 manns á heimavelli Hoffenheim. Hoffenheim er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar með 22 stig. MOLAR LEIKJUM FRESTAÐ VEGNA VEÐURS n Veðurfar á Bretlandseyjum um helgina varð til þess að nokkr- um leikjum var frestað. Mikið vetrarríki er í Bretlandi, snjór og hálka. Með herkjum tókst að bjarga leikj- unum í ensku úrvalsdeildinni en báðum leikjunum sem áttu að fara fram í Skotlandi – viðureignum Dundee og Rangers og svo Motherwell og Hearts – var frestað. Óttast Bretar nú að vetur eins og í fyrra gangi í garð en þá þurfti að fresta á annað hundrað leikjum á tveggja mánaða tímabili sem olli gífurlegum röskunum varðandi leikdaga og þurftu mörg lið að spila sex til átta leiki í sama mánuðinum þegar snjórinn fór. VAN DER SAR HLÝTUR AÐ HÆTTA n Sir Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, þykist handviss um að hollenski markvörðurinn Edwin Van der Sar leggi skóna á hilluna eftir tímabilið en hann er orðinn fertugur. „Ég er búinn að sætta mig við að þetta sé síðasta tímabilið hans Edwins. Það er sorglegt að segja það en það verður erfitt að vera markvörður á fimm- tugsaldrinum. Það er eitthvað sem kom fyrir Peter Shilton, allt í einu, vegna aldurs síns, gat hann lítið. Ég held að Edwin sé of stoltur til þess að láta það gerast,“ segir Ferguson. UPP UM SEX SÆTI n Þýski kylfingurinn Martin Kaym- er kláraði tímabilið á Evrópu- mótaröðinni með því að klifra upp í efsta sæti Evrópulistans. Hann vann lokamót ársins í Dúbaí um helgina og varð því yngsti maðurinn í tuttugu og eitt ár til að enda tímabilið efstur. Hann er aðeins 25 ára. Fyrir efsta sætið fékk Kaymer rétt tæpa milljón punda í bónus en 4,6 milljóna punda potti var skipt á milli fimmtán stigahæstu kylfinga Evrópu. LOEB HEIMSMEISTARI SJÖUNDA ÁRIÐ Í RÖÐ n Frakkinn Sebastian Loeb, sem vann á dögunum sinn sjöunda heimsmeistaratitil í röð í rallakstri, er handviss um að eina tækifæri hans til að aka Formúlubíl hafi runnið honum úr greipum. Loeb bauðst að aka fyrir Toro Rosso í loka- mótinu í fyrra en tókst ekki að fá ofurbílprófið sem ökuþórar í Formúlunni verða að hafa. „Þetta var bara hugmynd hjá Red Bull í fyrra en því miður tókst þetta ekki. Nú er þetta gleymt og grafið. Ef ég fæ tækifæri til að aka Formúlubíl mér til skemmtunar mun ég taka því en ég mun ekki keppa á einum slíkum,“ segir Loeb. 24 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 29. nóvember 2010 MÁNUDAGUR Einn af stærstu knattspyrnuleikjum ársins, El Clasico, viðureign erki- fjendanna Barcelona og Real Madr- id, fer fram í kvöld á Nou Camp í Bar- celona. Ástæða þess að leikurinn fer fram á mánudegi sem þekkist ann- ars ekki á Spáni eru kosningar þar í landi. Börsungar fá í kvöld frábært tækifæri til að vinna Real Madrid í fimmta skiptið í röð en það myndi stuðningsmönnum Katalóníuliðsins ekki þykja miður. Barcelona hefur haft ótrúlega yf- irburði gagnvart erkifjendum sín- um síðustu tvö árin og hefur unnið Real fjórum sinnum í röð. Á hundr- að og áttatíu mínútum af fótbolta á milli liðanna í fyrra tókst Real ekki einu sinni að skora mark. Barca vann heimaleikinn 1–0 með marki Zlatan Ibrahimovic og seinni leikinn 2–0 með mörkum Messis og Pedros. Fyr- ir tveimur árum fóru leikirnir 2–0 á Nou Camp og 6–2 á Bernabeu. „Þetta verður auðvitað frábær leikur. Við vitum vel hversu sterkt lið Real er og það hefur ekki verið betra í mörg ár. Stuðningsmenn okkar þrá fimmta sigurinn í röð en við megum ekki hugsa of mikið um það. Ef við spilum okkar leik þá vinnum við Real eins og í síðustu leikjum. Það verður samt ótrúlega erfitt. Þetta ætti þó að verða sýning,“ segir Sergio Busquets, miðjumaður Barcelona. tomas@dv.is Stórleikur Barcelona og Real Madrid: Fimm í röð hjá Barca? Tveir bestu? Það ætti að verða veisla að sjá líklega tvo bestu knattspyrnumenn heims inni á sama vellinum. MYND REUTERS „Þetta var svo sem ágætur leikur,“ segir Júlíus Jónasson, landsliðsþjálf- ari kvenna í handbolta, um tapið gegn Serbíu í gær á fjögurra landa móti sem fór fram í Noregi. Ísland tapaði leiknum, 30–28, en á laugar- daginn tapaði Ísland með sex mörk- um gegn Dönum og með tuttugu og eins marks mun gegn Noregi í fyrsta leiknum á föstudaginn. „Serb- ía er með mjög sterkt lið en við vor- um búin að fara yfir málin og ræða hvernig við ætluðum að stöðva skytt- urnar þeirra og leikkerfin. Við fórum aðeins framar í vörninni en vaninn er og það gekk fínt. Það var þó eins í þessum leik og gegn Danmörku að við nýttum færin okkar ekki nægilega vel til að byrja með,“ segir Júlíus. Áhætta að fara á mótið Ísland hefur leik á EM á þriðjudag eftir viku og var því þetta sterka mót í Noregi lokaundirbúningur liðsins fyrir EM. Það á þó eftir einn lokað- an æfingaleik næsta sunnudag gegn Spáni. „Við tókum áhættu með því að fara á þetta mót. Við hefðum get- að staðið uppi með þrjú slæm töp sem hefði ekki haft góð áhrif á liðið andlega,“ segir Júlíus sem segist hafa gagnrýnt stelpurnar eftir stóra tapið gegn Noregi. „Eftir leikinn á föstudaginn gagn- rýndum við stelpurnar og þær gagn- rýndu sig sjálfar. Þær svöruðu svo þeirri gagnrýni mjög vel og hlustuðu greinilega á hana. Þær komu sterk- ar til baka í leikjunum gegn Dönum og Serbum sem skipti auðvitað öllu máli upp á sálartetrið. Ég hef ver- ið að sjá mikið af því sem ég hef lagt upp með á þessu móti og ég held að við séum bara í ágætis málum,“ seg- ir Júlíus. Framfarir í öllum leikjum Gegn Dönum var Ísland með nítján tæknileg mistök sem er ekki væn- legt til árangurs. „Hluti af þessum tæknifeilum var tilkominn vegna þess hversu mikið við vorum að flýta okkur í sókninni. Gegn Dönum vor- um við að keyra hratt í sóknirnar og leita að möguleikum of lengi. Gegn Serbum drógum við úr hraðanum og stilltum upp þegar við sáum að þetta var ekki að ganga. Það var verið að flýta sér of mikið gegn Danmörku,“ segir Júlíus sem er bara nokkuð bjartsýnn fyrir stóru stundina þann 7. desember. „Ég er alla vega talsvert bjart- sýnni núna en á föstudaginn. Það var framför frá leik til leikjar og það er auðvitað það sem þjálfarar horfa til. Gegn Serbíu sá ég mikla gleði og stemningu í liðinu og bar- áttu. Það var mikill karkater í stelp- unum, fannst mér, að vilja gera svona vel eftir tvö erfið töp. Ég vil samt ekki hljóma eins og einhver sigurvegari því við töpuðum auð- vitað öllum leikjunum. Þær bættu sig þó alltaf á milli leikja og á því verð ég að byggja,“ segir Júlíus Jón- asson. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta lauk í gær keppni á sterku fjögurra liða móti í Noregi með tapi gegn Serbíu, 30–28. Íslenska liðið tapaði öllum leikjunum á mótinu en bætti sig mikið milli leikja. Fyrsti leikurinn tapaðist með 21 marks mun gegn Noregi. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is „BJARTSÝNNI EN Á FÖSTUDAGINN“ Nokkuð sáttur Júlíus Jónasson var ánægður með hversu mikið liðið bætti sig á milli leikja. MYND EGGERT JÓHANNESSON Góður leikur Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst gegn Serbíu. MYND EGGERT JÓHANNESSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.