Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 16
16 erlent 29. nóvember 2010 mánudagur Tina Nedergaard, menntamálaráð- herra Danmerkur, vill sjá meiri aga í skólastofum grunnskóla. Í viðtali við Jótlandspóstinn segir hún að foreldrar muni brátt neyðast til að sækja börn sín í skólann, hagi þau sér of illa. „Það þarf að ríkja meiri agi í skólunum. Eins og staðan er núna virðumst við hafa snúið við líkamlegri refsingu, á þann hátt að nú nota börnin líkamlegt ofbeldi gegn kennurum sínum. Það geng- ur ekki.“ Að mati Nedergaard hefur sam- félagið þróast í þá átt að börnin hafa nú meira vald en þeim sé hollt. Nú sé kominn tími til að gera eitthvað í málunum. „Fyrir 30 eða 40 árum heyrði maður aldrei á það minnst að kennarar þyrftu sérmenntun í því að leysa úr deilum. Í þá daga litu börnin á kennara sem ímynd valds. Nú verða foreldrar að haga upp- eldi barna sinna þannig að þau beri nauðsynlega virðingu fyrir kennur- um sínum.“ Talið er að agamál verði innifal- in í nýju frumvarpi um menntamál í Danmörku, en fjölmiðlar þar í landi telja að miklar breytingar séu í vænd- um í menntakerfinu. Hvað sem því líður eru skólastjórar í Danmörku í það minnsta ánægðir með áherslu á agamál. „Það er ekkert nema gott um það að segja að foreldrar þurfi að vera meðvitaðir um hvernig mennt- un barna þeirra miðar,“ segir Anders Balle, forstöðumaður félags skóla- stjóra í Danmörku. Samtök foreldra grunnskólabarna, Skole og forældre, eru hins vegar ekki jafn ánægð með ummæli Nedergaard. Talsmaður samtakanna sagði þau vera „vand- ræðalega tilraun til að sýna ákveðni.“ Menntamálaráðherra Danmerkur er orðinn leiður á því að börn geti beitt kennara sína ofbeldi: Vill meiri aga í skólastofur Friðrik prins og María prinsessa Ræða við dönsk skólabörn. „HNEYKSLANLEG“ MÆTING MUGABES Robert Mugabe, forseti Simbabve, hef- ur tilkynnt komu sína á ráðstefnu leið- toga Afríkuríkja með Evrópusamband- inu – en ráðstefnan hefst í borginni Trípolí í Líbíu í dag. Ekki eru allir á eitt sáttir við komu einræðisherrans á ráð- stefnuna og hafa embættis menn frá Evrópusambandinu látið hafa eftir sér að það sé „hneykslanlegt“ að Mugabe ætli sér að mæta. Meðal þeirra sem verða viðstaddir fyrir hönd Evrópu- sambandsins eru Herman Van Rom- puy, forseti ráðherraráðsins, og José Manuel Barroso, forseti framkvæmda- stjórnarinnar. Á ráðstefnunni stendur til að ræða framtíðarhorfur í Afríku og reynt verður að svara því með hvaða hætti Evrópusambandið geti lagt hönd á plóginn við að vænka horfur í álfunni. Aðaláhersluatriðin sem rædd verða eru meðal annars hagvöxtur, er- lendar fjárfestingar, atvinnusköpun og, síðast en ekki síst, „góðir stjórn- arhættir“. Það verður óneitanlega for- vitnilegt að heyra skoðun Mugabes á þeim. Bannaður í ESB Mugabe lætur vandlætingu Evrópu- sambandsins ekki hafa áhrif á sig. Einræðisherranum, sem fagnaði 86 ára afmæli á árinu, er til að mynda bannað að ferðast til Evrópusam- bandslanda og þar eru allar eign- ir hans frystar. Síðan árið 2002 hefur sambandið beitt markvissum refsiað- gerðum gegn Simbabve en auk ferða- bannsins hefur viðskiptahöftum verið beitt og algert bann ríkir við að selja landinu vopn. Ástæðan eru slæm- ir stjórnarhættir Mugabes, sem hef- ur stýrt landi sínu með harðri hendi síðan árið 1980. Hann lætur sig ekki muna um að þagga niður í gagnrýn- endum sínum og eru mannréttindi lít- ils metin undir hans stjórn. Hann sigr- aði í forsetakosningum gegn Morgan Tsvangi rai árið 2008 eftir að hafa tapað fyrri umferð kosninganna, en fyrir þær seinni urðu miklar blóðsúthellingar í Simbabve – Mugabe beitti skipulögðu ofbeldi til að fá sínu framgengt. Gagnrýndi Mugabe og var bannaður í kjölfarið Einn háværasti gagnrýnandi Muga- bes í Brussel er breski Evrópuþing- maðurinn Geoffrey Van Orden. Fyrir gagnrýni sína hefur honum reyndar verið meinað að ferðast til Simbabve, hann hefur fengið stimpilinn „persona non grata“ þar í landi. Hann segir að Evrópusambandið hefði átt að beita þrýstingi til að banna Mugabe að vera viðstaddur ráðstefnuna. „Mugabe heldur áfram að traðka á mannréttind- um Simbabve búa, hann hefur svívirt pólitískt samkomulag sitt við Morgan Robert Mugabe, forseti Simbabve, ætlar að mæta á ráðstefnu ESB og leiðtoga Afríkuríkja. Það gerir hann þrátt fyrir mótmæli embættismanna ESB. Hefði átt að banna honum að mæta, segir Evrópu- þingmaður. BjöRn tEitSSon blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Robert Mugabe Lætur engan segja sér fyrir verkum. Wikileaks ógni mannslífum Lögfræðingur hjá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, Harold Koh, segir að ný skjöl sem Wikileaks ætlar sér að birta geti stefnt fjölmörgum manns- lífum í hættu. Þetta sagði hann í bréfi sem hann hefur sent Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Bréfið er svar til Assange, sem hafði ásamt lögfræðingi sínum, spurst fyrir um öryggi þess fólks sem kynni að koma fyrir í þeim leyniskjölum sem stend- ur til að birta. Koh sagði einnig, að bandarísk stjórnvöld myndu hvorki semja við, né starfa með Wikileaks, hvorki nú né síðar. Mótmæli á Írlandi Á laugardaginn mótmæltu Írar lán- töku ríkisstjórnarinnar hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og Evrópusam- bandinu. Í Dyflinni safnaðist fólk saman á götum úti, en talið er að rúmlega 100 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum þar. Lán- ið, sem Írland tekur, mun nema 85 milljörðum evra, sem jafngildir rúm- lega 13 þúsund milljörðum íslenskra króna. Ekki hefur verið gefið upp hverjir vextirnir af láninu verða, en sérfræðingar telja að þeir verði 6,7 prósent. Til samanburðar greiða Grikkir aðeins 5,2 prósent vexti af 140 milljarða evra láninu sem þeir neyddust til að taka í maí. Karl verður kóngur Vilhjálmur Bretaprins hefur látið hafa eftir sér að það sé „engin spurn- ing“ hver verði næsti konungur í Bretlandi. Á undanförnum árum hefur verið rætt um það hvort ganga eigi fram hjá Karli Bretaprinsi, föður Vilhjálms. Karl hefur hlotið talsverða gagnrýni fyrir vafasamt einkalíf og hefur samband hans við núver- andi eiginkonu sína, Camillu Par- ker-Bowles, löngum verið umdeilt. Margir Bretar hafa ekki fyrirgefið Karli skilnaðinn við Díönu prins- essu, en breska þjóðin vildi ólm sjá hana sem drottningu – enda var hún vinsæl með eindæmum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.