Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Blaðsíða 26
26 FÓLKIÐ 29. nóvember 2010 MÁNUDAGUR Kemst Vala inn? Vala Grand bíður þessa dagana niðurstöðu dómnefndar fegurðar- samkeppninnar Ungfrú Ísland. Vala fór í prufur fyrir helgi en frá því er sýnt í nýjasta þættinum af Veröld Völu Grand í netsjónvarpi mbl.is. Vala sýnir meðal annars í þættinum brot úr spjalli sínu við dómnefndina en hún segir það alltaf hafa verið draum sinn að taka þátt en að hún hafi aldrei trúað því að hún myndi fá tækifæri til þess. Þá kom Vala fram á baðfötum líkt og aðrar stúlkur sem reyna fyrir sér í keppninni. Gillz og Sigga Kling á rúm- stokknum Gillz sat fyrir á rúmstokknum með Sigríði Klingenberg og birtir myndina á heimasíðu sinni. www.gillz.com. „Ákvað að lífga upp á póstinn með einni rándýrri mynd af mér og snillingnum henni Siggu Kling,“ segir hann á síðunni. Egill hefur verið önnum kafinn undanfarnar vikur en á milli þess sem hann situr fyrir með góðum konum hefur hann unnið sleitulaust í tökum á nýjum þáttum sem verða frumsýndir á Stöð 2 á næstunni. Þá fylgir hann eftir útgáfu nýrrar bókar sinnar. T ískubloggið www.tisku-blogg.blogspot.com hef-ur vakið mikla athygli og umtal vegna óvæginn- ar gagnrýni á fyrirbærið tískublogg og hnyttinna skrifa um neyslugræðgi og bleikar áherslur fjölmiðla. Það er Hildur Knútsdóttir sem stendur á bak við tískubloggið. Hildur tók upp á því að blogga vegna þess hversu mikið henni leiðast tískublogg. „Það var ákveðið tómarúm í lífi mínu þegar ég byrjaði að blogga, ég hafði nýverið lokið námi í ritlist og sent inn handrit að skáldsögu. Tísku- blogg er fyrirbæri sem ég hreinlega skil ekki. Þetta eru neyslublogg þar sem stelpur taka myndir af sér í nýj- um fatnaði, ræða snyrtivörur og fleira. Mér leiðast þau og þykja þau innan- tóm og einsleit. Ég held að konur vilji lesa eitthvað gáfulegra. Þegar um er að ræða framboð á efni fyrir konur í fjölmiðlum þá held ég að framboð á þessu efni sé töluvert meira en eftir- spurnin.“ Hildur gefur út sína fyrstu skáld- sögu hjá Forlaginu næsta vor og vinn- ur á Pipar/TBW auglýsingastofu við textaskrif. „Alter egóinu“, tískublogg- aranum,H sinnir hún í frítíma sínum. „Alter egóið“ hefur reyndar staðið í miklum ritdeilum upp á síðkastið. „Tískubloggarinn H er duglegur að senda öðrum tískubloggurum póst, þá helst Hlín Einarsdóttur á bleikt. is, Pjattrófunum á Eyjunni og Mörtu Maríu á Pressunni. Flestar þeirra taka hæðninni illa og eru viðkvæmar fyrir gagnrýni. Til að mynda þá eyða Pjattrófurnar út öllum neikvæðum athugasemdum og meinuðu H að- gang að athugasemdakerfi þeirra um tíma. En þær tóku mig svo aftur í sátt.“ kristjana@dv.is Hildur Knútsdóttir heldur úti tískubloggi til höfuðs öðrum tískubloggum: TÍSKUBLOGG ERU LEIÐINLEG GUÐMUNDUR OG ÁSA NINNA: Parið Guðmundur Hall-grímsson og Ása Ninna Pétursdóttir eru nýir eigendur GK sem rekur fataverslun á Laugavegi í Reykja- vík og eigin hönnun og framleiðslu undir merkinu Collection Reykja- vík. Ása Ninna tekur við hönnun línunnar en hún vakti mikla athygli fyrir nýjustu fatalínu sína, Pardus í sumar. Fötin eru litrík og fjörleg og hönnuð bæði á börn og fullorðna. Ása Ninna og Guðmundur eru nýlega flutt heim frá Danmörku. Áður en Ása Ninna flutti út hafði hún stundað nám í Listaháskóla Íslands og í Kaupmannahöfn nam hún meðal annars hjá hönnuðin- um Helle Mardahl. Eftir að hún kom heim byrjaði hún á því að gera litla barnafata- línu og gekk hún framar vonum. Í framhaldinu sýndi Ása Ninna línu sem samanstóð af peysum, bolum, kjólum og klútum. Guð- mundur segir að þótt að Ása Ninna hafi fjörlegan götustíl þá standi til að halda í þá klassík sem einkennt hefur línu GK Coll- ection. Í versluninni megi síð- an seinna meir greina ákveðn- ar breytingar en þau ætli sér að fara rólega í þær. „Litlar breyting- ar geta haft mikið að segja,“ seg- ir Guðmundur. „Við ætlum að auka úrvalið og fríska aðeins upp á andrúmsloftið án þess að tapa gamla andanum. Að sjálfsögðu verður síðan hönnun Ásu Ninnu seld í versluninni eftir einhvern tíma.“ kristjana@dv.is GK hefur náð undraverðum árangri með merkinu Collection Reykjavík og náði meðal annars að selja hönnun sína til hátt í hundrað verslana á Norðurlöndunum. Nú hafa nýir aðilar tekið við rekstrinum. KOMIN HEIM OG KEYPTU GK Nýir eigendur GK-Reykjavík Guðmundur og Ása Ninna festu kaup á GK nýverið. Pardus Fallegur kjóll úr Pardus-línu Ásu Ninnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.