Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR 29. nóvember 2010 MÁNUDAGUR TÓLF ÁRA STÚLKA BERST FYRIR LÍFINU „Það er kannski ekki stór séns en hann er til staðar. Ég margspurði læknana hvort þeir væru að fara með hana til Svíþjóðar ef það væri ekki séns og þeir sögðu að það myndu þeir ekki gera. Mað- ur huggar sig við það,“ segir María Egilsdóttir, móðir Helgu Sigríðar Sigurðardóttur, 12 ára stúlku sem hneig niður í sundtíma á Akur- eyri á miðvikudaginn. Hún berst nú fyrir lífi sínu á Sahlgrenska-há- skólasjúkrahúsinu í Gautaborg en þangað var hún flutt með sjúkra- flugi frá Reykjavík í gær, sunnudag. Þar er hún í hjarta- og lungnavél. Var í sundi Lítill sem enginn aðdragandi var að því að Helga hneig niður. Hún var í sundi á skólatíma en eft- ir að hafa synt tvær ferðir í sund- lauginni bað hún um leyfi til að fara upp úr lauginni. Inni í bún- ingsklefanum kastaði hún upp og missti í kjölfarið meðvitund. Þetta var á miðvikudaginn. Hún fékk aðhlynningu fljótt og var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri áður en hún var flutt suður til Reykjavíkur þar sem hún dvaldist fram á sunnudag. Þá var hún var flutt með sérút búinni gjörgæslu- vél frá Reykjavík til Gautaborgar. Foreldrar hennar, þau María Eg- ilsdóttir hjúkrunarfræðingur og Sigurður Bjarnason svæðisstjóri fóru í gær með áætlunarflugi til Kaupmannahafnar þaðan sem þau héldu til Svíþjóðar til að vera með dóttur sinni. DV náði tali af Maríu þar sem þau biðu á Kastrup-flugvellinum í Danmörku eftir flugi til Svíþjóð- ar. Þá höfðu þau fengið þær upp- lýsingar að flutningurinn á Helgu hefði gengið vel og að hún væri á leið í aðgerð. Hún var þá ekki alveg viss um hvort í aðgerðinni ætti að tengja gervihjarta við dóttur sína eða hvort einhvers konar æð væri komið fyrir til bráðabirgða. „En það verður að drífa í þessu skilst mér, til þess að hægt sé að hvíla hjartað og lungun,“ segir hún. „Getur ekki orðið veikari“ María, sem er hjúkrunarfræð- ingur að mennt, segir engan vita enn hvað orsakaði rofið sem varð í stórri æð við hjartað. „Hún fékk ekki tappa eða hefðbundið hjarta- áfall. Það kom rof á æðina þannig að hjartað fékk ekki blóð frá henni og það kom drep. Það er ekki vit- að hvað orsakar það; hvort það er áverki, sjaldgæfur galli eða eitthvað annað,“ segir María sem segir að Helga hafi aldurinn með sér auk þess sem hún sé fílhraust og sterk. „Hún getur ekki orðið veikari, er okkur sagt,“ segir María. Hún segir aðspurð að reynt verði til þrautar að fá líffæri henn- ar; hjartað og lungun, til að starfa eðlilega áður en hjartaígræðsla verður reynd. Eins og staðan sé núna séu lungu svo illa farin vegna bólgumyndunar og vökva að ekki dugi að fá nýtt hjarta. „Að fá gjafa- hjarta er síðasta hálmstráið,“ seg- ir hún og bætir við að lungun hafi fyllst af vökva og auk þess líklegt að hluti af magainnihaldinu hafi komist í lungun líka – þegar hún kastaði upp áður en yfir hana leið. María segir enn fremur að síðasta lungnamyndin sem tekin hafi ver- ið í gær, sunnudag, hafi verið betri en sú sem tekin var á undan. „Það er ákveðinn sigur, þó hann sé lítill,“ segir hún af aðdáunarverðu æðru- leysi. Þess má geta að fram kom í fjöl- miðlum í gær að allt benti til þess að önnur líffæri Helgu, svo sem heilinn, starfi eðlilega. Þannig hafi hún á einum tímapunkti kinkað kolli til pabba síns þegar hann spurði hvort hún heyrði til sín. Kraftmikil stelpa Vinafólk fjölskyldunnar; hjónin Hans Rúnar Snorrason og Málfríð- ur Þórðardóttir, hefur hrundið af stað söfnun handa fjölskyldunni. Þar segir að fyrir liggi að fjölskyld- an verði lengi frá vinnu og að slíkt feli í sér mikinn tekjumissi. „Þess vegna viljum við sýna hug okkar í verki og koma af stað söfnun. Það síðasta sem fjölskyldan þarf er að hafa áhyggjur af fjármálum. Það skiptir engu máli hve lítið þið gef- ið, margt smátt gerir eitt stórt,“ seg- ir á síðunni. „Sýnum þessari góðu fjölskyldu að hún búi á Íslandi þar sem ríkir samkennd og samhug- ur, þar sem hjálpast er að á erfið- um tímum,“ segir þar enn fremur. Þeim sem vilja leggja fjölskyldunni lið er bent á upplýsingar um reikn- inginn hér neðar á síðunni. María og Málfríður eru nánar vinkon- ur og samstarfskonur en dæt- ur þeirra eru vinkonur. Hún seg- ir að heilarit Helgu séu eðlileg og því séu blessunarlega engar heila- skemmdir. „Hún er ofsalega kraft- mikil stelpa, algjör sólargeisli; já- kvæð, skemmtileg og alltaf fjör og líf í kringum hana, hvar sem hún er. Hún er mikil íþróttastelpa og stundaði fimleika með Fimleikafé- lagi Akureyrar árum saman,“ segir hún um Helgu. Rússíbanareið María segist aðspurð slegin yfir þeim stuðningi sem þeim hafi verið sýndur, meðal annars fram- taki Hans og Málfríðar. „Við eig- um góða að og þetta hjálpar okkur. Maður veit ekkert út í hvað maður er að fara, hvort maður sé kominn til að vera hér í vikur eða mánuði. Okkur er sagt að þetta geti tekið margar vikur að jafna sig,“ segir hún og bætir við að þolinmæði sé það eina sem gildi nú. Aðspurð hvernig þeim hjón- um gangi að takast á við þess- ar breyttu aðstæður segir hún að það sé engu líkt. „Þetta er rússí- banareið og maður þorir ekki að gleðjast yfir litlum áfangasigrum. En við höfum gott fólk allt í kring- um okkur,“ segir hún. Þegar hún er beðin að lýsa dóttur sinni stendur ekki á svör- um. „Hún er fyrst og fremst ákaf- lega félagslynd og umhugað um alla í kringum sig. Hún er ofboðs- lega skapandi, hugmyndarík og frjó. Hún er listatýpan í fjölskyld- unni og ofboðslega góðhjörtuð. Hún er opin en rosalega mikil fjöl- skyldumanneskja,“ segir María en þau hjónin eiga tvö önnur börn: Herdísi Maríu 20 ára og Sigmar Bjarna 17 ára. „Þau eru heima hjá ömmu sinni og afa sem ætla að halda heimili fyrir þau á með- an við erum úti. Þau eru í góðum höndum,“ segir hún að lokum. Helga Sigríður Sigurðardóttir, 12 ára stúlka frá Akureyri, hneig niður í sundtíma í skólanum á mið- vikudaginn vegna rofs á æð við hjartað. María Egilsdóttir, móðir hennar, segir engan vita hvað orsakaði rofið. Hún segist ekki vita hvort eða hversu lengi dóttir sín verði að ná sér. Vinafólk þeirra hefur hafið söfnun fyrir Helgu og fjölskyldu hennar. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Hún getur ekki orðið veikari, er okkur sagt. Yfirmaður hjartaígræðsludeild- ar Sahlgrenska-sjúkrahússins í Gautaborg er Íslendingurinn Vil- borg Þórunn Sigurðardóttir. Í við- tali við DV segist Vilborg þekkja mál íslensku stúlkunnar í gegnum fjölmiðla en vegna aldurs stúlk- unnar munu læknar barnadeildar Sahlgrenska-sjúkrahússins annast hana. „Hjartaskipti eru eiginlega ekki bráðaaðgerðir. Það sem gerist í tilfelli eins og ungu stúlkunnar, er að sjúklingur er settur í hjarta- og lungnavél. Hugsanlegt er að hjartað lagist án frekari aðgerða. Hjarta- og lungnavélin er notuð til þess að vinna tíma og ákveða um frekara framhald með hjálp- arhjarta sem er eins konar brú til hjartaskipta,” segir hún. Að sögn Vilborgar er tíminn sem fólk er í hjarta- og lungna- vél alla jafna um tvær vikur 2 vik- ur. „Eftir það fá sjúklingar hjálpar- hjarta sem gerir þeim kleift að vera vakandi og hreyfa sig um og lifa nokkuð eðlilegu lífi á meðan beðið eftir hjartaígræðslu”, segir hún. baldur@dv.is Hjartavél til að vinna tíma Yfirmaður hjartaígræðsludeildar í Gautaborg: Þeir sem vilja styrkja fjölskyldu Helgu Sigríðar geta lagt inn á eftir- farandi reikning: 0565-26-110378 Kennitala 180470-3449 Yfirmaður hjartaígræðsludeildar VilborgÞórunnSigurðardóttirsegir hugsanlegtaðhjartaðlagistánfrekari aðgerða. Kraftmikil og hraust Helgu Sigríðierlýstsemjákvæðriog skemmtilegristúlku. Samheldin fjölskylda MaríaogSigurðureigaþrjúbörn,Helgu,Herdísiog Sigmar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.