Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Side 17
mánudagur 29. nóvember 2010 erlent 17 Menntamálaráðherra Danmerkur er orðinn leiður á því að börn geti beitt kennara sína ofbeldi: Vill meiri aga í skólastofur Bílasmiðurinn hf, Bídshöfða 16, 110 R. S-5672330 www.bilasmidurinn.is Nýtt Nýr Recaro Young Sport 9–36 kg Friðrik prins og María prinsessa Ræða við dönsk skólabörn. „HNEYKSLANLEG“ MÆTING MUGABES Tsvangirai og haldið áfram að ferðast um allan heim. Það kemur ekki á óvart hve illa gengur að ná fram breytingum í Simbabve þegar ríki Afríku fá svona misvísandi skilaboð frá Brussel.“ Mugabe hefur löngum sakað Evr- ópusambandið um að reyna að hrekja hann frá völdum með því að skipta sér af innanríkismálum Simbabve og með beinum stuðningi við helsta keppi- naut hans, Morgan Tsvangirai. Það kemur ekki á óvart hve illa gengur að ná fram breyt- ingum í Simbabve þeg- ar ríki Afríku fá svona misvísandi skilaboð frá Brussel. Kínverjar hafa óskað eftir neyðar- fundi með leiðtogum Norður-Kór- eu vegna mögulegra átaka á Kór- euskaganum. Á þriðjudag í síðustu viku gerði norðurkóreski herinn stórskotaliðsárás á eyjuna Yeon- pyeong, sem tilheyrir Suður-Kóreu. Í árásinni féllu fjórir og 18 særðust alvarlega, auk þess sem fjölmörg hús á eyjunni eyðilögðust – en þar búa um 1.300 manns. Í kjölfarið hefur ríkt gífurleg spenna á Kór- euskaganum og hafa íbúar Suð- ur-Kóreu krafist harðari viðbragða af hálfu stjórnvalda. Hefur al- menningur fylkt liði á götum úti og brennt myndir af Kim Jong-Il, leið- toga Norður-Kóreu, og gengið um með skilti þar sem stjórnvöld eru hvött til að ráðast á Norður-Kóreu. Vonast eftir sex ríkja viðræð- um Undanfarin sjö ár hafi staðið yfir sex ríkja viðræður um ástand- ið á Kóreuskaga, þó aðallega um kjarnorkuáætlanir Norður-Kóreu. Þar hafa Kóreuríkin tvö hitt fyrir Bandaríkin, Rússland, Kína og Jap- an – en nú eru liðin tvö ár síðan síð- asti fundur var haldinn. Þá gengu Norður-Kóreumenn á dyr þar sem þeir voru ekki sáttir við gang við- ræðna. Nú hefur Wu Dawei, að- stoðarutanríkisráðherra Kína, ósk- að eftir því að þessar viðræður verði teknar upp að nýju, en því hafa Suð- ur-Kóreumenn hafnað. Sagði í yfir- lýsingu frá skrifstofu forseta Suður- Kóreu að slíkar viðræður væru ekki tímabærar að svo stöddu. Hittast á þriðjudag Þrátt fyrir að ólíklegt verði að telj- ast að sex ríkja viðræðurnar verði teknar upp á næstunni er ljóst að fulltrúar frá Norður-Kóreu muni funda með Kínverjum. Á þriðjudag er væntanlegur til Beijing Che Thae Bok, en hann gegnir stöðu forseta norðurkóreska þingsins. Mun hann þar hljóta áheyrn æðstu embættis- manna í Kína, meðal annars forseta Kína – Hu Jintao. Stjórnmálaskýr- endur telja viðræðurnar mikilvægt skref til að róa öldurnar, en Kína hefur löngum verið talinn eini bandamaður Norður-Kóreu og eina ríkið sem getur haft áhrif á leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-Il. Heræfingar og gífuryrði Í gær hófust sameiginlegar her- æfingar suðurkóreska hersins og Bandaríkjahers á Gulahafi, um 150 kílómetrum fyrir sunnan Yeonpyeong. Stjórnvöld í Norður- Kóreu hafa fordæmt heræfingarnar og segja þær vera greinilegt merki um ögrun af hálfu Suður-Kóreu- manna, að þeir séu „að reyna að hefja stríð, hvað sem það kosti.“ Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum í Norð- ur-Kóreu var því ennfremur hótað að „banvænum og skelfilegum eldi verði látið rigna yfir varnargarða óvinarins, vogi hann sér að troða virðingu og fullveldi Norður-Kóreu um tær, jafnvel hið minnsta.“ You Nak-jun, hershöfðingi í suðurkór- eska hernum var heldur ekki spar á stóru orðin, en hann hélt ræðu í minningarathöfn sem haldin var til heiðurs þeim sem létust á Yeon- pyeong. „Hermenn okkar munu svara fyrir sig hundraðfalt, þúsund- falt. Við munum taka tilfinningar okkar, reiði og hatur, alveg inn að beini og við munum hefna okkar á Norður-Kóreu.“ GífUrLEG SpENNA á KórEUSKAGA Gífurleg spenna ríkir um þessar mundir á Kóreuskaga. Bæði Norður- og Suður-Kóreu- menn hafa blásið í herlúðra en sameiginlegar heræfingar bandaríska og suðurkór- eska hersins hófust í gær. Kínverjar hafa nú óskað eftir viðræðum við Norður-Kóreu um friðsamlega leið úr deilunni. Við munum taka tilfinningar okk- ar, reiði og hatur, alveg inn að beini og við mun- um hefna okkar á Norð- ur-Kóreu. björn teitsson blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Heræfingar hafnar Bandaríska flugmóðurskipið USS George Washinton er nú á Gulahafi. Wu Dawei Aðstoðarutanríkisráðherra Kína og sérstakur erindreki í málefnum á Kóreuskaga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.