Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Side 21
Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðingur og rithöfundur
Friðrik fæddist í Ólafsfirði og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MA, lauk BA-prófi í sagnfræði
og ensku frá HÍ 1977, prófi í upp-
eldis- og kennslufræðum 1981 og
cand.mag.-prófi í sagnfræði frá HÍ
1989.
Friðrik var kennari við Lang-
holtsskóla í Reykjavík 1975–97
og við Menntaskólann við Sund
1988–96. Samhliða kennslu lagði
hann stund á sagnfræðistörf og
hefur verið sjálfstætt starfandi
sagnfræðingur, rithöfundur og
þýðandi frá árinu 1997.
Meðal rita eftir Friðrik má
nefna: Hundrað ár í Horninu. Saga
Ólafsfjarðar 1–3 á árunum 1984,
1988 og 1991; Sparisjóður í 80 ár –
saga Sparisjóðs Ólafsfjarðar 1914–
1994 sem út kom árið 1994; Bygg-
ingameistari í stein og stál – saga
Sveinbjarnar Jónssonar í Ofna-
smiðjunni 1896–1982 (meðhöf-
undur) sem út kom 1996; Lang-
nesingasaga I sem út kom árið
1998 og Langnesingasaga II sem
kom út árið 2000; Saga Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, útg. 2001;
Á leið til upplýsingar, saga bóka-
safnsfræðinga, útg. 2004; Snert
hörpu mína, ævisaga Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi, útg. 2007;
Sáðmenn sandanna – saga land-
græðslu á Íslandi 1907–2007, útg.
2007; BHM – Saga Bandalags há-
skólamanna, útg. 2008; Rækt-
un fólks og foldar – ævisaga Val-
gerðar Halldórsdóttur og Runólfs
Sveinssonar sandgræðslustjóra,
útg. 2009; Saga Félags járniðnað-
armanna 1920–2006, útg. 2010.
Árið 1993 var Friðrik styrkþegi
Vísindaráðs Íslands við að rann-
saka þéttbýlismyndun í Eyjafirði
á 19. og 20. öld. Afrakstur þeirrar
vinnu birtist í Sögu, tímariti Sögu-
félags, árið 1997: „Breytingar á at-
vinnulífi og búsetu við Eyjafjörð
1850–1910. Auk þessara ritverka
hefur Friðrik samið fjölda ritgerða
og greina sem birst hafa í blöðum
og tímaritum, og sagnfræðilega
þætti fyrir útvarp. Friðrik vinnur
nú að sögu Öryrkjabandalags Ís-
lands.
Friðrik var um árabil ritari
Sögufélags Kjalarnesþings, vara-
formaður Sagnfræðingafélags Ís-
lands 1990–91 og gjaldkeri félags-
ins 1991–92.
Fjölskylda
Friðrik kvæntist 22.2. 1975 Guð-
rúnu Þorsteinsdóttur, f. 8.10. 1948,
yfirmanni launadeildar Mosfells-
bæjar. Hún er dóttir Þorsteins
Þorsteinssonar, viðskiptafræð-
ings, stangasmiðs og kaupmanns
í Ármótum, og Helgu Hansdótt-
ur, fyrrv. póstafgreiðslumanns og
húsmóður.
Börn Friðriks og Guðrúnar eru
Sturla Geir, f. 31.8. 1975, tölvunar-
fræðingur, búsettur í Mosfellsbæ
en kona hans er Auður Þórðardótt-
ir grunnskólakennari og eiga þau
tvö börn; Helga, f. 6.2. 1980, stjórn-
málafræðingur, búsett í Ástralíu en
maður hennar er Benjamin Lloyd
Roseman verkfræðingur og eiga
þau einn son; Þorsteinn Gunnar, f.
15.10. 1990, nemi.
Systkini Friðriks eru Sigríð-
ur, f. 14.1. 1954, sjúkraliði á Ak-
ureyri, var gift Steinþóri Ósland
Sigurjónssyni en hann lést 1989,
en maður hennar er Björn Gunn-
arsson nuddari; Snorri Þorsteinn,
f. 16.10. 1963, tæknifræðingur í
Reykjavík en kona hans er Rósa
Einarsdóttir hjúkrunarnemi.
Foreldrar Friðriks eru Olgeir
Gottliebsson, f. 24.8. 1921. d. 9.11.
2010, fyrrv. hitaveitustjóri í Ólafs-
firði og k.h., Unnur Lovísa Frið-
riksdóttir, f. 30.11. 1932, húsmóðir.
Ætt
Olgeir var sonur Gottliebs Hall-
dórssonar, bónda í Burstabrekku
í Ólafsfirði og k.h., Guðrúnar Frí-
mannsdóttur. Halldór var son-
ur Guðmundar b. Ásgrímssonar
í Skeggjabrekku Ásgrímssonar, b.
á sama stað Jónssonar, frá Dæli í
Skíðadal en hans fólk kom frá inn-
sveitum Eyjafjarðar.
Guðrún var dóttir Frímanns
Steinssonar, b. á Deplum í Fljótum
og víðar, og Sigurbjargar Friðriks-
dóttur. Steinn var b. í Tungu í Stíflu
en forfeður Sigurbjargar voru að-
allega úr innsveitum Eyjafjarðar
og Þingeyjarsýslu.
Lovísa er dóttir Friðriks Gunn-
ars Magnússonar, sjómanns í Ól-
afsfirði, og Sigríðar Þorsteins-
dóttur. Friðrik Gunnar var sonur
Magnúsar Sigurðssonar, b. í Nes-
koti, og Valgerðar Friðriksdóttur.
Foreldrar Sigríðar voru Þor-
steinn Þorkelsson, b. í Ósbrekku
í Ólafsfirði, hreppstjóri og odd-
viti, og Guðrún Ólöf Jónsdóttir, b.
í Hringverskoti Jónssonar. Móðir
hans var Guðrún, dóttir séra Jóns
Oddssonar, pr. á Kvíabekk en frá
klerki eru komnar miklar ættir í
Ólafsfirði og víðar um landið.
30 ára
Ligita Ligeikyte Lyngmóum 6, Garðabæ
Dagrún Ísabella Leifsdóttir Nýlendugötu 22,
Reykjavík
Jóhanna Sigurðardóttir Álfkonuhvarfi 35,
Kópavogi
Svavar Þór Svavarsson Austurvegi 16,
Grindavík
Ingimar Atli Arnarson Sólheimum 30,
Reykjavík
Dýrleif Júlía Guðlaugsdóttir Hraunbraut 34,
Kópavogi
Anna Sakina Abdelaziz Hofteigi 22, Reykjavík
Emilía Birna Harðardóttir Keilusíðu 9c,
Akureyri
Andri Ólafsson Grettisgötu 46, Reykjavík
Svala Ástríðardóttir Laufengi 2, Reykjavík
Hjörtur Snær Steingrímsson Álfkonuhvarfi
33, Kópavogi
Ómar Özcan Hofakri 1, Garðabæ
40 ára
Laila Druzjaka Hátúni 6, Reykjavík
Stefán Axel Stefánsson Perlukór 10, Kópavogi
Kristín Gígja Einarsdóttir Arnarhrauni 44,
Hafnarfirði
Margrét Guðrún Jónsdóttir Kirkjustétt 10,
Reykjavík
50 ára
Vignir Baldur Almarsson Goðatúni 21,
Garðabæ
Lydía Rafnsdóttir Háarifi 85 Rifi, Hellissandi
Birna Guðrún Jennadóttir Böðvarsgötu 8,
Borgarnesi
Ágústa Ragnars Laufásvegi 6, Reykjavík
Guðlaug Kristín Benediktsdóttir Klukkurima
6, Reykjavík
Júníus Guðjónsson Reykjabyggð 49, Mos-
fellsbæ
Kristín Þórsdóttir Kjalarlandi 2, Reykjavík
Magnús Arinbjarnarson Aðallandi 8,
Reykjavík
Ólöf Jónsdóttir Heimavöllum 13, Reykjanesbæ
Friðbjörn R Georgsson Norðurvangi 14,
Hafnarfirði
Ragnheiður Sigurkarlsdóttir Hásteinsvegi
45, Vestmannaeyjum
Ómar Hjaltason Eikjuvogi 14, Reykjavík
Osi Carvalho Vatnsdalsgerði, Vopnafirði
Ólöf Guðrún Björnsdóttir Borgarhrauni 26,
Hveragerði
Auðbjörg Sigurþórsdóttir Litlagerði 5, Vest-
mannaeyjum
Sólveig S Kristjánsdóttir Þinghólsbraut 13,
Kópavogi
Bragi Þór Sigurðsson Kleppsvegi 20, Reykjavík
60 ára
Þór S. Hauksson Valsmýri 4, Neskaupstað
Jóna Jakobsdóttir Miðhúsum 46, Reykjavík
Svana Ingólfsdóttir Klébergi 13, Þorlákshöfn
Rúnar Eiríksson Túngötu 35, Eyrarbakka
Þórdís Svavarsdóttir Keldulandi 19, Reykjavík
Haukur Ólafsson Álftamýri 17, Reykjavík
Svanur Guðmundsson Dalsmynni 2, Borg-
arnesi
Friðrik Jóhannsson Hlíðargötu 8, Akureyri
Kristján Ingólfsson Lautasmára 31, Kópavogi
Alfreð Alfreðsson Tröllateigi 47, Mosfellsbæ
70 ára
Jón Rúnar Gunnarsson Hjarðarhaga 48,
Reykjavík
Vilhjálmur Vilhjálmsson Vogatungu 89,
Kópavogi
Erla Sigurdís Jónsdóttir Suðurvangi 14,
Hafnarfirði
Hilmar Árnason Holtabyggð 1, Hafnarfirði
Anna I Sigtryggsdóttir Skildinganesi 38,
Reykjavík
Þorsteinn Grétar Sigurbergsson Silfurbraut
10, Höfn í Hornafirði
Hallgrímur G. Jónsson Löngulínu 34, Garðabæ
Jörn Andersen Kvist Engihjalla 17, Kópavogi
80 ára
Agnar Ólafsson Krókavaði 1, Reykjavík
Óli D. Friðbjörnsson Hjallalundi 20, Akureyri
Magna Ásmundsdóttir Urðarteigi 11, Nes-
kaupstað
Elsa Herborg Þórarinsdóttir Kópavogsbraut
1a, Kópavogi
85 ára
Frieda M. Oddgeirsson Kjalarlandi 27,
Reykjavík
Elín Friðriksdóttir Kjarnalundi dvalarh,
Akureyri
Guðrún Hannesdóttir Hringbraut 50,
Reykjavík
Jóhanna Hrafnfjörð Hringbraut 50, Reykjavík
Hlöðver Jóhannsson Núpalind 8, Kópavogi
Þorkell Indriðason Njarðarvöllum 6, Reykja-
nesbæ
Ragnar Haraldsson Langagerði 58, Reykjavík
Þórdís Guðrún Sæþórsdóttir Prestastíg 8,
Reykjavík
95 ára
Sigursteinn Árnason Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi
30 ára
Darius Tomasevskis Daggarvöllum 6b, Hafn-
arfirði
Andrzej Robert Studzinski Auðbrekku 8,
Kópavogi
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir Úthlíð 13,
Reykjavík
Guðmundur Þór Gíslason Suðurengi 16,
Selfossi
Eiríkur Jónsson Bakkahlíð 27, Akureyri
Sigurður Samík Davidsen Smáragötu 9a,
Reykjavík
Eiríkur Steinn Búason Fífuhvammi 37,
Kópavogi
Halla Sigurðardóttir Hafnarbraut 19, Höfn í
Hornafirði
Sigurlaug Marta Kristjánsdóttir Iðufelli 10,
Reykjavík
Ásgeir Rúnar Harðarson Gilsbakka 7, Nes-
kaupstað
Alexander Jóhönnuson Hringbraut 90,
Reykjanesbæ
Anna María Cornette Greniteigi 18, Reykja-
nesbæ
40 ára
Skúli Bergmann Skúlason Spóarima 13,
Selfossi
Guðlín Kristinsdóttir Dvergholti 9, Hafnarfirði
Hafliði Jónsson Heiðardal 12, Vogum
Berglind Elín Davíðsdóttir Öldugötu 54,
Reykjavík
Marta Wium Hermannsdóttir Árskógum 22b,
Egilsstöðum
Kristín Björg Ásmundsdóttir Fífuseli 10,
Reykjavík
50 ára
Steinunn Hauksdóttir Tungusíðu 21, Akureyri
Jóhanna Guðmundsdóttir Reynivöllum 2,
Akureyri
Halldóra Halldórsdóttir Jöklafold 41, Reykjavík
Dagbjört Hrönn Jónsdóttir Sökku, Dalvík
Hólmfríður Sigurðardóttir Brekkugötu 20,
Hafnarfirði
Árni Björn Skaftason Dalalandi 2, Reykjavík
Þorvarður Jónsson Vallarbraut 7, Hafnarfirði
Ásbjörn Jónsson Vallarbraut 7, Hafnarfirði
Helena Katrín Alfreðsdóttir Lækjamótum 69,
Sandgerði
Sigrún Alfreðsdóttir Digranesheiði 37,
Kópavogi
60 ára
Bjarney Sigurlaugsdóttir Vallholti 35, Selfossi
Júlíana Sigr. Sigurlaugsdóttir Jörundarholti
138, Akranesi
Erna Björk Antonsdóttir Reykási 39, Reykjavík
Jósep Zophoníasson Ljómatúni 8, Akureyri
Sigurrós Þ. Stefánsdóttir Furugrund 2,
Kópavogi
Kolbrún Þórðardóttir Álfhólsvegi 6a, Kópavogi
Jón Valdemar Björnsson Smáraflöt 2, Akranesi
Víðir Már Pétursson Fífuseli 35, Reykjavík
Elinór Hörður Mar Eyjabakka 10, Reykjavík
Helgi Jensson Miðtúni 88, Reykjavík
Ingibjörg Arnkelsdóttir Garðarsbraut 41,
Húsavík
70 ára
Carl Bjarni Rasmusson Álftahólum 4, Reykjavík
Brynhildur Sigurðardóttir Þórufelli 16,
Reykjavík
Áslaug Sverrisdóttir Valhúsabraut 2, Sel-
tjarnarnesi
Anna Kristín Jóhannsdóttir Túngötu 8,
Seyðisfirði
Áslaug Kjartansdóttir Mýrarbraut 1, Vík
Margrét Jakobsdóttir Suðurhlíð 38c, Reykjavík
Marta A. Þórðardóttir Sóltúni 9, Reykjavík
Guðjón Óskarsson Suðurgötu 16, Sandgerði
75 ára
Margrét Leósdóttir Sléttuvegi 15, Reykjavík
Gunnar Dyrset Efstalandi 18, Reykjavík
Margrét Sigurðardóttir Þórkötlustaðavegi
11, Grindavík
Kristján Baldvinsson Prestastíg 6, Reykjavík
Hrefna Ingibjörg Ormsdóttir Heiðarholti 34e,
Reykjanesbæ
80 ára
Ingi Einars Árnason Álftamýri 52, Reykjavík
Margrét Guðmundsdóttir Flyðrugranda 18,
Reykjavík
Örn Sigurgeirsson Sóltúni 18, Reykjavík
Marta J. Guðnadóttir Bólstaðarhlíð 68,
Reykjavík
Kjartan Guðjónsson Stillholti 19, Akranesi
Þorgerður Ólafsdóttir Heiðarbraut 57,
Akranesi
85 ára
Ingólfur Björnsson Drangshlíðardal, Hvolsvelli
Guðlaug Halldóra Guðmundsdóttir Sléttu-
vegi 19, Reykjavík
Fanney Jónsdóttir Lindasíðu 4, Akureyri
Magnús S. Oddsson Valshólum 4, Reykjavík
90 ára
Sólveig Magnúsdóttir Efstasundi 76, Reykjavík
Árni H. Árnason Dalbraut 21, Reykjavík
til hamingju hamingju
afmæli 29. nóvember
Bjarney fæddist í Keflavík og ólst þar
upp. Hún var í barnaskóla í Keflavík
og lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur.
Bjarney byrjaði ung að sendast
og selja Vísi og Suðurnesjatíðindi,
fór ellefu ára á handfæri með afa sín-
um í Færeyjum, hóf tólf ára að vinna
í frystihúsum á sumrin, og starfaði
við frystihús í Garðinum í þrjú ár.
Bjarney var bóndakona að Kletti
í Gufudalshreppi í sex ár og í Botni
í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp í fjögur
ár en flutti síðan til Reykjavíkur þar
sem hún var strætisvagnstjóri í þrjú
ár. Hún var kranastjóri á byggingar-
krana hjá Ístaki eitt sumar, starfaði
hjá Loftorku í Borgarnesi í nokkra
mánuði, starfaði hjá Vegagerð ríkis-
ins í Borgarnesi, starfaði við álverið
í Sraumsvík um skeið en hef-
ur verið bóndi í Bakkakoti frá
2004.
Fjölskylda
Bjarney giftist 1.8. 1982 Torfa
Guðmundi Jónssyni, f. 8.4.
1963, bónda og búfræði-
kandidat. Hann er sonur
Jóns Halldórs Björnssonar,
verkamanns í Keflavík, og Áslaugar
Torfadóttur, verkakonu í Sandgerði.
Börn Bjarneyjar og Torfa Guð-
mundar eru Áslaug Torfadóttir, f.
2.6. 1982, en dætur hennar eru
Agnes Rut Kristjánsdóttir og Elísa-
bet Marta Jónasdóttir; Jóhanna Val-
dís Torfadóttir, f. 27.4. 1983, og eru
dætur hennar Emilía Rós Hauks-
dóttir og Anita Ósk Böðvarsdóttir;
Anna María Torfadóttir,
f. 13.6. 1987; Ólöf Birna
Torfadóttir, f. 13.9. 1990:
Jón Halldór Torfason, f.
17.9. 1992.
Systkini Bjarneyjar
eru María Lovísa Sig-
valdadóttir, f. 13.6. 1964,
húsmóðir í Reykjavík; Jó-
hannes Arnar Sigvalda-
son, f. 4.4. 1970, verkamaður í Kefla-
vík; Ólafur Ágúst Sigvaldason, f. 1.8.
1972, rafvirki, búsettur í Keflavík.
Foreldrar Bjarneyjar eru Sigvaldi
Arnoddsson, f. 13.1. 1940, skipa- og
húsasmiður í Keflavík, og Jóhanna
Sofía Jóhannesdóttir, f. 19.7. 1942,
verkakona. Sigvaldi er frá Keflavík
en Jóhanna Sofía er frá Skopun í
Sandey í Færeyjum.
Bjarney Elsebeth Sigvaldadóttir
bóndi í bakkakoti í Meðallandi í skaftárhreppi
til hamingju
afmæli 30. nóvember
mánudagur 29. nóvember 2010 umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is ættfræði 21
60 ára á þriðjudag
50 ára á mánudag