Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Síða 29
MÁNUDAGUR 29. nóvember 2010 SVIÐSLJÓS 29
Afklædd með
tölvutækni
Irina Shayk Segist
hafa verið háttuð
með tölvutækni.
CHRISTINA
OG KÆRÓ
Christina Aguilera og Matthew Rutler:
Aðeins tæpum tveimur mánuðum eftir að Christina Agui- lera skildi við eiginmann sinn, Jordan Bratman, er hún komin með nýjan kærasta. Sá heitir Matthew Rutler og hafa þau verið saman í um mánuð. Parið skellti sér út
á lífið í síðustu viku. Þau fóru hinn fræga stað The Abbey í Holly-
wood. Þau leiddust og Christina hélt á rauðri rós sem Matthew
hafði fært henni.
Christina leikur aðalhlutverkið í væntanlegri söngvamynd sem
heitir Burlesque. Í myndinni leika einnig Cher, Kristen Bell, Juli-
anne Hough, Stanley Tucci og Cam Gigandet.
Christina og Matthew
Á leiðinni á The Abbey.
Bikiní-
bombur
í Mexíkó
Jennifer Aniston og Chelsea Handler:
Vinkonurnar Jennifer Aniston og Chelsea Handler fögnuðu þakk-argjörðardeginum sam-
an með því að skella sér til Mex-
íkó. Þær skelltu sér til Los Babos
þar sem þær böðuðu sig í sólinni
við sundlaugarbakkann og gæddu
sér á litríkum kokteilum.
Chelsea Handler er rísandi
stjarna í Bandaríkjunum en hún
er grínisti og spjallþáttarstjórn-
andi. Hún setti inn Twitter-færslu
af sundlaugarbakkanum í Mexíkó
þar sem hún sagði: „Í dag er þakk-
argjörðardagurinn og ég er þakk-
lát fyrir hundinn minn, tútturnar
mín og líf mitt. Gleðilegan þakk-
argjörðardag fyrir þig og tútturn-
ar þínar.“
Allur að
hressast
Leikarinn Michael Douglas er óðum að jafna sig eftir að hafa fengið krabbamein í háls. Doug-
las leit vel út þegar hann heimsótti
Disney World í Flórída með fjölskyld-
unni í síðustu viku en áður en lyfja-
meðferðin hófst var Douglas orðinn
mjög veikur og var það farið að sjást á
útliti hans.
Dougals, sem er 66 ára, var þar
ásamt eiginkonu sinni, Catherine
Zeta-Jones, sem er 41 árs, og börnun-
um þeirra tveimur. Þeim Dylan sem er
tíu ára og Carys sem er sjö ára.
Kirk Douglas, faðir leikarans, lét
hafa eftir sér nýlega að sonur sinn væri
allur að hressast.
Michael Douglas og fjölskylda
Michael er allur að hressast að sögn
föður hans.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.