Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Page 2
2 | Fréttir 19. janúar 2011 Miðvikudagur
n 200 stofnfjáreigendur í Húnaþingi sitja uppi með um 2 milljarða skuldir n Stofnfé
sparisjóðs sveitarinnar var þúsundfaldað 2007 n Kista er tæknilega gjaldþrota með
12 milljarða skuldir n Stofnfjáreigendur kalla eftir rannsókn á sparisjóðakerfinu
Um 200 stofnfjáreigendur á Hvamms-
tanga og í nærliggjandi sveitum á
Norðurlandi vestra skulda Sparisjóði
Keflavíkur um tvo milljarða króna
vegna tveggja stofnfjáraukninga sem
farið var í árið 2007. Þá rann Sparisjóð-
ur Húnaþings og Stranda inn í Spari-
sjóðinn í Keflavík. Stofnfé sparisjóðs-
ins var þúsundfaldað í samrunanum,
aukið úr 1,9 milljónum króna upp í
1,9 milljarða króna. Sparisjóðurinn í
Keflavík fjármagnaði fyrri stofnfjár-
aukninguna og Landsbankinn þá síð-
ari.
Stjórn Sparisjóðsins í Keflavík hef-
ur samþykkt skilmálabreytingar á lán-
unum sem fela í sér lægri greiðslu-
byrði fyrir skuldara sem tóku lán fyrir
stofnfjárbréfum hjá sjóðnum. Skil-
málabreytingarnar voru kynntar á vef
sjóðsins í síðustu viku og ná yfir alla
stofnfjáreigendur í sjóðnum sem fjár-
mögnuðu stofnfjárbréfakaup með lán-
um frá sjóðnum.
Ýmsir þeirra íbúa á Hvammstanga
og í nærliggjandi sveitum sem tóku
lán fyrir stofnfjáraukningunni eru
ekki sáttir við að þurfa að greiða lán-
in til baka og hyggjast leita réttar síns.
Margir stofnfjáreigendur á svæðinu
hafa ekkert greitt af lánunum, hvorki
vexti né af höfuðstól, frá hruninu um
haustið 2008.
Mál stofnfjáreigenda í Húnaþingi
er sambærilegt málum stofnfjáreig-
enda í nokkrum öðrum sparisjóðum
víða um landið, til dæmis í Sparisjóði
Svarfdæla á Dalvík og í Byr. Mynstr-
ið er yfirleitt það sama: Stofnfjáreig-
endur tóku lán fyrir kaupunum þegar
stofnfé sjóðanna var aukið og sitja nú
eftir með milljóna króna skuldir þar
sem stofnféð er lítils eða jafnvel einskis
virði. Peningarnir sem fengust í stofn-
fjáraukningunum voru svo oft á tíðum
notaðir til að fjármagna aðrar áhættu-
fjárfestingar, meðal annars hlutabréfa-
kaup í íslenskum eignarhaldsfélögum.
Frá 200 þúsundum í 20 milljónir
Reimar Marteinsson, þrítugur formað-
ur félags fyrrverandi stofnfjáreigenda í
Sparisjóði Húnaþings og Stranda og
kaupfélagsstjóri á Hvammstanga, segir
að ekki sé óalgengt að stofnfjáreigend-
ur hafi átt á bilinu 160 til 190 þúsund
krónur í sparisjóðnum fyrir stofnfjár-
aukninguna. Eignarhlutur þeirra sem
áttu stofnfé fyrir 160 til 190 þúsund fór
upp í 16 til tæplega 20 milljónir króna
með þátttöku í stofnfjáraukningunni
og voru þessir fjármunir teknir að láni í
flestum tilfellum – í einhverjum tilfell-
um var borgað fyrir bréfin með reiðu-
fé. „Þannig að það eru nokkrir sem
skulda í dag eitthvað yfir 20 milljónir.
Ef um hjón er að ræða geta skuldirnar
verið komnar upp í 40 til 60 milljónir
króna,“ segir Reimar.
Staðan er því sú að fólk sem átti
lítinn eignarhluta í litlum sparisjóði
á Norðurlandi vestra, eignarhlut sem
var kannski virði hálfra mánaðarlauna,
stendur uppi í dag með skuldir sem
nema margföldum árstekjum þess.
Samkvæmt tilmælunum frá Sparisjóði
Keflavíkur stendur til að innheimta
þessar skuldir þó að sjóðurinn ætli sér
að koma umtalsvert til móts við stofn-
fjáreigendurna.
Reimar segist sjálfur sitja uppi með
talsverðar skuldir vegna stofnfjáraukn-
ingarinnar. Hann segir að skuldirnar
séu það miklar að hann geti ekki greitt
af þeim. „Þær eru umfram greiðslu-
getu,“ segir hann.
Reimar segir að til að setja skuld-
ir þessara tvö hundruð einstaklinga
í samhengi hafi heildartekjur allra
1.300 íbúa í Húnaþingi vestra og Bæj-
arhreppi verið um tveir milljarðar
króna árið 2009. „Þessi skuldsetning
liggur því gríðarlega þungt á samfélag-
inu. Hver niðurstaðan verður varðandi
meðhöndlunina á þessum skuldum
mun hafa gríðarleg áhrif á búsetuskil-
yrði í þessu bæjarfélagi í framtíðinni,“
segir Reimar.
Vita ekki í hvað peningarnir fóru
Reimar segir aðspurður að hann viti
ekki í hvað peningarnir fóru sem
Sparisjóðurinn í Keflavík fékk með
stofnfjáraukningunni. Spurður hvort
það geti verið að peningarnir hafi
runnið inn í fjárfestingarfélagið Kistu,
sem Sparisjóðurinn í Keflavík átti tæp-
lega þriðjungshlut í, segir hann að það
sé einn möguleikinn.
Kista fjárfesti nær eingöngu í
hlutabréfum Exista, eignarhaldsfé-
lags Bakkabræðra og stærsta hluthafa
Kaupþings. „Það er það sem við höld-
um. Það eru ýmsar kenningar á lofti
en við náttúrulega vitum ekki neitt um
það fyrir víst. Annað sem ég hef heyrt
er að sparisjóðurinn hafi verið með
stór erlend lán á gjalddaga í ársbyrj-
un 2008 og að sjóðurinn hafi þurft að
endurfjármagna þau,“ segir Reimar og
bætir því við að á þessu stigi séu pæl-
ingar um tilganginn með stofnfjár-
aukningunni ekki annað en getgátur.
Kista skuldar nærri 12 milljarða
Ársreikningi Kistu fyrir árið 2009 var
nýlega skilað til ársreikningaskrár rík-
isskattstjóra. Í ársreikningnum kem-
ur fram að Kista hafi tapað rúmlega
tveimur milljörðum króna árið 2009
og að eigið fé sjóðsins sé neikvætt um
rúmlega tíu milljarða króna. Félagið er
því tæknilega gjaldþrota og skilur eft-
ir sig skuldir upp á tæpa 12 milljarða,
meðal annars við Arion banka og Ís-
landsbanka samkvæmt ársreikningn-
um. Níu milljarðar af skuldum félags-
ins eru gjaldfallnir.
Í ársreikningnum kemur fram að
engin starfsemi hafi verið í Kistu árið
2009 og að unnið sé að slitum á félag-
inu í samvinnu við kröfuhafa. Eignum
félagsins, rúmum 1.300 milljónum
króna, verður þá skipt upp á milli
kröfuhafa félagsins.
Kista reyndist mörgum sparisjóð-
um dýrkeypt því auk Sparisjóðsins í
Keflavík áttu Sparisjóður Reykjavíkur,
Mýrarsýslu og Svarfdæla stóra eignar-
hluti í honum.
Rannsókn mikilvæg
Af þessum sökum segir Reimar að
mikilvægt sé að það fari fram rann-
sókn á starfsemi sparisjóðanna á
árunum fyrir hrunið. „En við vitum
eiginlega ekki neitt og munum ekki
vita neitt fyrir víst fyrr en það fer af stað
einhver rannsóknarnefnd sem skoðar
málefni sparisjóðanna. Okkur langar
líka að vita hver staða Sparisjóðsins í
Keflavík var á þessum tíma, hvort hún
hafi verið eins góð og okkur var sagt.
Ég held að útlánasafn þeirra hafi verið
talsvert verra en okkur var sagt, lán til
hlutabréfakaupa með veði í bréfunum
og annað slíkt,“ segir Reimar.
Svik, segir stofnfjáreigandi
Karl Sigurgeirsson, 67 ára skrifstofu-
maður á Hvammstanga og stofnfjár-
eigandi, segist hafa keypt stofnfé í
sparisjóðnum fyrir nokkrar milljónir
króna árið 2007 og fengið lán til þess
frá Sparisjóði Keflavíkur og einnig
frá Landsbanka Íslands. „Okkur var
sagt að arðgreiðslurnar af bréfunum
myndu borga lánin upp… Þú verður
að athuga það að sparisjóðurinn er
100 ára fjármálastofnun í samfélaginu
okkar og fólk hefur alltaf treyst hon-
um fyrir sínu eins og maður segir… Ég
skulda um 30 milljónir króna í dag,“
segir Karl en samkvæmt því sem hann
segir var fjárfestingin kynnt fyrir stofn-
fjáreigendunum á þeim forsendum að
þeir gætu ekki tapað á henni. Karl segir
að einnig hafi verið sagt við stofnfjár-
eigendurna að eign þeirra í sjóðnum
yrði að engu ef þeir tækju ekki þátt í
stofnfjáraukningunni.
„FINNST ÉG HAFA
VERIÐ BLEKKTUR“
Hluthafar í Kistu
SPRON HF. 48,5%
Sparisjóðurinn í Keflavík 31,5%
Sparisjóðurinn í Mýrarsýslu 10,3%
Sparisjóður Svarfdæla 7,1%
Eyrareldi ehf. 1,6%
Þrælsfell ehf. 1,2%
Kista flokkað með Exista í
rannsóknarskýrslunni:
„Þriðji stærsti aðilinn var svo
Kista-fjárfestingarfélag ehf, sem var
fjárfestingarfélag sparisjóðanna utan
um eignarhlut þeirra í Exista. Kista átti
nær eingöngu hlutabréf í Exista, og jók
hlut sinn talsvert árið 2007 með lánum
frá Kaupþingi, Glitni og Straumi. Kista
fellur því undir Existahópinn hér þar
sem eignir þess eru alveg háðar Exista
og útlán til félagsins þar með einnig.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Fjárfesti í Exista Sparisjóðurinn í Keflavík fjárfesti í mikl-
um mæli í Exista í gegnum fjárfestingarfélagið Kistu. Hér er
mynd frá aðalfundi félagsins árið 2007. Forstjórar félagsins,
Erlendur Hjaltason og Sigurður Valtýsson, sjást á myndinni
ásamt Bakkabræðrum, Lýð og Ágústi Guðmundssonum.
Milljarða skuldir Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Húnaþings og Stranda eru stórskuldugir.