Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 19. janúar 2011 Miðvikudagur Sigurjón Brink, tónlistarmaður og þáttarstjórnandi á Bylgjunni, varð bráðkvaddur á heimili sínu á mánu- dagskvöldið, aðeins 36 ára gamall. Sigurjón kenndi sér einskis meins og enginn merkjanlegur aðdragandi var að andláti hans. Var hann einn heima með tveimur yngstu sonum sínum og hringdi fimm ára gamall sonur hans í Neyðarlínuna. Brugð- ust lögregla og sjúkralið skjótt við en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Líklega mun það ekki koma í ljós fyrr en við krufningu hvað gerðist ná- kvæmlega. Lætur eftir sig konu og fjögur börn Eiginkona Sigurjóns er Þórunn Erna Clausen. Börn þeirra eru Hauk- ur Örn, fimm ára, og Róbert Hrafn, tveggja ár. Fyrir átti Sigurjón tvö börn úr fyrra sambandi, þau Aron Brink, fimmtán ára, og Kristínu Maríu Brink, tíu ára. Listrænn og skapandi Sigurjón fæddist í Reykjavík 29. ág- úst 1974. Hann lauk gagnfræðanámi í Hvassaleitisskóla og þaðan lá leið- in í Fjölbrautaskólann í Breiðholti þar sem hann var á listabraut. Sigur- jón var bæði listrænn og skapandi. Áhugi hans á myndlist og grafískri hönnun dró hann í margmiðlunar- nám í alhliða grafískri hönnun og auglýsingagerð. Tónlistin átti þó hug hans allan og var hann þekktur tón- listarmaður. Hvers manns hugljúfi „Hann var hvers manns hugljúfi, vinmargur og elskaður af samferða- fólki sínu alla tíð,“ eru orðin sem fjöskylda hans notar til þess að lýsa honum. Þá segir hún að hann hafi haft ástríðu fyrir og atvinnu af tónlist. Áhuginn á tónlist kviknaði snemma og var Sigurjón aðeins tólf ára þegar hann fór að fitla við gítarinn. Hann fór fljótlega að semja lög og stofnaði ásamt vinum sínum hljómsveitina In Bloom þar sem hann sló taktinn á trommurnar. Hljómsveitin varð þokkalega vinsæl og fór meðal ann- ars til Bandaríkjanna og átti titillag sjónvarpsmyndarinnar Missing Brendan. Farsæll tónlistarmaður Á ferlinum var hann í fjölda hljóm- sveita, þar á meðal í Rokk og Flavors sem gaf út breiðskífu 2003. Sigurjón samdi öll lögin á plötunni og einnig flesta textana. Var hann aðalsöngv- ari hljómsveitarinnar og gítarleikari. Fyrsta sólóplata hans kom út fyrir jólin 2009, Sjonni Brink. Á plötunni eru lög eftir hann sjálfan og Guð- mund Jónsson í Sálinni, meðal ann- ars Brosið þitt lýsir mér leið. Sjálfur samdi Sigurjón oft tónlist fyrir aðra listamenn, eins og Skítamóral. Var hann einnig fastasöngvari á stór- tónleikum, hvort sem þeir voru til- einkaðir John Lennon, Eagles eða Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Auk þess túraði hann um landið með Gunnari Ólasyni úr Skítamóral þar sem þeir sungu fyrir landann með kassagítar- inn sér við hönd. Bítlið sló í gegn Hann var einnig í „bítlinu“, eins og hann kallaði það sjálfur á Hverfis- barnum í fjögur ár með Jóhannesi Ásbjörnssyni, vini sínum. Þeir settu meira að segja upp tónleikinn Bítl, þar sem þeir spiluðu lög Bítlanna. Að tónleiknum komu fleiri góðvin- ir Sigurjóns, Hilmir Snær Guðna- son leikstýrði verkinu og Pálmi Sig- urhjartarson var tónlistarstjóri þess. Tónleikurinn fékk góða dóma og áhorfendur sungu með, klöppuðu og stöppuðu af gleði eftir frábæra sýningu þar sem áhorfendur tóku virkan þátt. Tónleikurinn gekk fyrir fullu húsi 25 sýningar. Sigurjón var einnig einn af stofn- endum Vesturports. Tók hann til að mynda þátt í að semja tónlistina við leikritið Brim í uppsetningu leik- hópsins. Þá tók hann þátt í uppsetn- ingu fjölmargra leikverka, eins og Le Sing á Broadway, Cuckoos Cabaret, Footloose og Woychek í Borgarleik- húsinu. Vildi hjálpa ungum tónlistarmönnum Sigurjón tók einnig þátt í stofnun hljóðversins Iceland Music Product- ion, sem var 150 fermetrar að stærð og útbúið fullkomnum græjum. Markmiðið var ekki að leigja hljóð- verið út og græða peninga heldur að taka þátt í sköpuninni og hjálpa ungum tónlistarmönnum af stað. Þar var einnig boðið upp á námskeið fyrir þá sem vildu læra að taka upp á tölvuna heima. Vildi hann nýta þau sambönd sem hann hafði sjálfur skapað sér til þess að aðstoða ungt hæfileikafólk við að komast áfram hér heima sem og erlendis. Landsþekktur í Eurovision Hann varð landsþekktur fyrir þátt- töku sína í Söngvakeppni Sjónvarps- ins en árið 2005 söng hann lagið Hjartaþrá eftir Bryndísi Sunnu. Ári síðar sömdu þau Bryndís Sunna saman lagið Áfram en bæði lögin kepptu í úrslitum. Tók hann einn- ig þátt árið 2010 með lagið Water- slide sem hann samdi sjálfur. Sjonni átti að keppa í forkeppni Eurovision þann 29. janúar með lagið Aftur heim, sem hann samdi við texta Þór- unnar, eiginkonu sinnar. Hann ætl- aði að flytja lagið sjálfur. Stofnaði vefverslun með systkinum sínum Sigurjón var alla tíð afar drífandi maður og kom víða við. Auk þess að starfa við tónlist og þáttargerð í út- varpi starfaði hann meðal annars í IKEA og Hagkaupum. Hann sinnti verslunarstörfum og veisluþjónustu og stofnaði vefverslun með eigin- konu sinni og systkinum, Árna Fil- ippussyni og Nínu Dögg Filippus- dóttur leikkonu. Hugmyndin var að selja útlendingum íslenska hönnun, tónlist og jafnvel bíómyndir. Hug- myndin kom frá fósturföður hans, Filippusi, sem vildi gjarna sjá fjöl- skylduna vinna saman. Fjölskyldan átti hug hans allan Áhugamál Sigurjóns voru reynd- ar margvísleg. Auk tónlistarinn- ar hafði hann áhuga á íþróttum og stundaði þær af kappi. Bjó hann eitt sinn á Akureyri um tveggja ára skeið og stundaði þá skíði af full- um krafti. Hann var virkur í hesta- mennsku og golfari í golfklúbbnum Setbergi. Fótbolti þótti honum líka skemmtilegur og reyndi hann að spila og horfa á leiki þegar hann gat. Fjölskyldan átti þó hug hans allan. Sagði hann eitt sinn frá því í viðtali að börnin væru ekki bara með pabba í fótbolta heldur væru þau farin að syngja og leika líka. Fjölskyldan væri mikil tónlistarfjöl- skylda og göngutúrarnir væru ekki bara labb heldur heilmikill söngur og leikur að auki. Rómantískur listakokkur Þórunn Erna sagði líka í viðtali fyr- ir nokkrum árum að Sigurjón væri rómantískur og lýsti meðal annars skemmtilegustu gjöf sem hún hefði fengið. Gjöfin var frá Sigurjóni en hann söng ofsalega fallegt lag inn á disk fyrir hana. n Sigurjón Brink varð bráðkvaddur á mánudagskvöld n Var einn heima með tveimur sonum sínum, fimm ára og tveggja ára n Fimm ára sonur hans hringdi í Neyðarlínuna n Vinir hans og fjölskylda kveðja hann Hvers manns hug- ljúfi, vinmargur og elskaður Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Hann var allt- af brosandi, allt- af heiðskír. Það eru fáir menn sem eru aldrei þungir og ef maður var það sjálfur, þá var sólin fljót að skína þegar mað- ur var nálægt honum. Minningarathöfn Vinir og aðstandendur komu saman í Vídalínskirkju á þriðjudagskvöldið til þess að minnast Sigurjóns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.