Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Síða 13
Fréttir | 13Miðvikudagur 19. janúar 2011
Þá var hann líka listakokkur í
matargerð og gilti þá einu hvort um
heimilismat eða veislurétti var að
ræða. Faðir hans er matreiðslumað-
ur og á skólaárunum starfaði Sigur-
jón með honum. Eiginlega stóð til
að hann færi í kokkinn, því hann var
alinn upp með annan fótinn í eld-
húsinu. En tónlistin varð ofan á.
Að undanförnu hafði Sigur-
jón leikið hlutverk Ritchie Valens í
söngleiknum Buddy Holly og söng
þar hið ógleymanlega La Bamba.
Þá á hann einnig lag á nýútkominni
dúettaplötu Björgvins Halldórsson-
ar, Okkar ástarvor, sem hefur not-
ið mikilla vinsælda á öldum ljós-
vakans.
Kveðjustund með vinum
Þar sem Sigurjón var einstaklega
vinmargur maður og fráfallið bar
brátt að var ákveðið að halda bæna-
stund í Vídalínskirkju strax í gær-
kvöldi. Þar gafst vinum hans og
vandamönnum færi á að kveðja
hann í friði og ró, koma saman í
sorginni og hugreysta hver ann-
an. Var þetta ákveðið í samráði við
prest sem var einnig til staðar fyrir
þá sem þurftu á huggun að halda.
„Virkilega hlýr og góður vinur“
„Það er óskaplega erfitt að horfa
á eftir honum svona skyndilega,“
segir Jóhannes Ásbjörnsson, góð-
ur vinur Sigurjóns, eða Sjonna eins
og hann var svo oft kallaður. Eins og
fyrr segir settu þeir félagar saman
upp tónleikinn Bítl.
„Hann var mikill húmoristi og
það var gott að vera í kringum hann.
Hann var virkilega hlýr og góður
vinur og mikil gleði alltaf í kring-
um hann,“ segir Jóhannes um fé-
laga sinn.
Hann segist hafa kynnst Sigur-
jóni í kringum aldamótin og urðu
þeir fljótt góðir vinir. Þeir byrj-
uðu með tónleikinn Bítl árið 2005
og segir Jóhannes að Sigurjón hafi
verið mikill fagmaður. „Hann var
virkilega fær og mjög vaxandi tón-
listarmaður. Hann var einn af okk-
ar bestu söngvurum að mínu mati.
Það eru margir sorgmæddir yfir
fráfalli hans en hugur manns er
hjá fjölskyldu hans, konunni hans
og börnum. Þau eru það sem máli
skipta.“
„Glaðlyndur og með góða
nærveru“
Jón Ólafsson tónlistarmaður minn-
ist Sigurjóns Brink með hlýju en
þeir unnu saman í margs konar tón-
listarverkefnum í gegnum árin.
„Það var virkilega gott og
skemmtilegt að vinna með Sigur-
jóni. Hann lífgaði upp á vinnuum-
hverfi sitt enda var hann glaðlynd-
ur og með góða nærveru,“ segir Jón
en hann segist enn vera hálforðlaus
eftir þessi sorgartíðindi.
Jón kynntist Sigurjóni fyrir
nokkrum árum þegar hann setti
upp tónleika með tónlist John
Lennon með rokkhljómsveit og
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þeir
hafi síðar spilað nokkrum sinnum
saman á Bítlakvöldum sem Jón stóð
fyrir.
„Þegar við vorum að setja sam-
an hlutverkalista fyrir Buddy
Holly- söngleikinn, þá datt okkur
hann í hug í hlutverk Ritchie Valens.
Hann stökk á það og það kom mér
skemmtilega á óvart hversu auðvelt
hann átti með að leika.“
„Það var alltaf bjart yfir
honum“
Heiða Ólafsdóttir, söng- og leik-
kona, minnist Sigurjóns einnig með
hlýhug: „Þetta var einn af frábærari
mönnum sem ég hef kynnst. Það
var alltaf bjart yfir honum og hann
smitaði út frá sér gleði og jákvæðni.
Gull af manni, það finnst mér lýsa
Sigurjóni best.“ Heiða kynntist Sig-
urjóni í gegnum Eurovision, en hún
segir tónlistarbransann á Íslandi
lítinn og að allir þekki alla og vinni
saman. „Þetta er eining og Sjonni
var áberandi af því að hann var svo
frábær. Maður er bara í losti og hug-
urinn er hjá Þórunni og börnun-
um. Maður biður góðan Guð um að
veita þeim styrk.“
„Hæfileikaríkur
tónlistarmaður“
Gunnar Helgason leikstjóri kynntist
Sigurjóni ekki fyrr en í vetur en hef-
ur bara gott eitt um hann að segja:
„Hann mætti alltaf fullur áhuga og
gaf sig allan í verkefnið. Hann var
hæfileikaríkur tónlistarmaður og
mér fannst eins og allir vegir væru
að opnast fyrir honum núna. Ég hef
ekki þekkt hann lengi en ég hafði
það á tilfinningunni að það væri allt
að fara að gerast hjá honum. Mér
finnst eins og margir hafi verið að
átta sig á því hversu hæfileikaríkur
hann var í raun og veru.“
„Eðalmaður í alla staði“
Hilmir Snær Guðnason leikari var
góðvinur Sigurjóns en þeir kynnt-
ust þegar Sigurjón og Þórunn Erna
kona hans voru öll með hesta sína í
sama hesthúsi. Með þeim varð góð-
ur vinskapur sem dafnaði í gegnum
hestamennskuna sem þau stund-
uðu öll af kappi.
Hilmir lýsir Sigurjóni sem traust-
um og góðum vini: „Hann var eð-
almaður í alla staði. Hann var allt-
af brosandi, alltaf heiðskír. Það eru
fáir menn sem eru aldrei þungir og
ef maður var það sjálfur, þá var sól-
in fljót að skína þegar maður var ná-
lægt honum.“
Hilmir segir að glaðværð Sigur-
jóns hafi skinið í gegnum tónlistina
og að tónlist hafi verið hans líf og
yndi. „Hann fékk aldrei nóg af spila-
mennskunni og spilaði á hverju
kvöldi lá við. Það var eins og hann
yrði aldrei þreyttur.“
Sigurjón sendi inn lag í Euro-
vision-keppnina í ár og Hilmir segir
hann hafa verið mjög spenntan fyr-
ir því. „Þetta er mjög gott lag sem
hann var stoltur af og hlakkaði mik-
ið til að flytja.“
„Lífsglaður og hreinn og beinn“
Pálmi Sigurhjartarson, vinur og
samstarfsfélagi Sigurjóns til níu ára,
segist vera harmi sleginn yfir fráfalli
hans. Þeir voru meðal annars sam-
an í hljómsveitinni Rokk en spiluðu
líka tveir saman ásamt því að vinna
saman að margvíslegum verkefn-
um. Hljómsveitin Rokk gaf út lag
síðastliðið haust og stefnan var að
fara aftur af stað með hljómsveit-
ina í vor. „Við unnum saman í tón-
listinni, en fyrst og fremst vorum við
vinir,“ segir Pálmi
Eins og allir sem hafa talað við
DV um Sigurjón lýsir Pálmi hon-
um sem einstaklega glaðlyndum
manni. „Hann var lífsglaður og
hreinn og beinn strákur. Hann var
virkilega góður tónlistarmaður og
var í blóma bæði í sínu einkalífi og
í tónlistinni.“
SIGURJÓN BRINK
2 9 . á g ú s t 1 9 7 4 – 1 7 . j a n ú a r 2 0 1 1
Heiða Ólafsdóttir Lýsti Sigurjóni sem
gulli af manni.
Jón Ólafsson Hann var enn hálforðlaus
eftir sorgartíðindin en sagði Sigurjón hafa
verið mikinn hæfileikamann.
Jóhannes Ásbjörnsson Kvaddi góðan
vin í Sigurjóni og sagði óskaplega erfitt að
horfa á eftir honum.
Gunnar Helgason Kynntist Sigurjóni í
Buddy Holly og taldi að nú væri Sigurjón að
blómstra.
Pálmi Sigurhjartarson Syrgir góðan vin
og samstarfsfélaga.
Hilmir Snær Guðnason Sagði að Sigurjón
hefði verið svo glaðlyndur að þegar Hilmir
Snær var þungur hafi sólin strax tekið að
skína þegar Sigurjón birtist.
„Ég hafði það á til-
finningunni að það
væri allt að fara að gerast
hjá honum. Mér finnst eins
og margir hafi verið að átta
sig á því hversu hæfileika-
ríkur hann var í raun og veru.
Sigurjón Brink
Var bráðkvaddur á
heimili sínu aðeins
36 ára að aldri. Hans
er sárt saknað.