Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Síða 16
16 | Erlent 19. janúar 2011 Miðvikudagur Eftir 25 ára útlegð í Frakklandi sneri Jean-Claude Duvalier, sem hefur löngum gengið undir gælunafninu Baby Doc, aftur til Haítí aðfaranótt mánudags. Baby Doc var á sínum tíma yngsti forseti í heimi, en hann var aðeins 19 ára gamall þegar hann varð forseti Haítí árið 1971. Hann tók við völdum í kjölfar andláts föður síns, Francois Duvalier, sem var betur þekktur sem Papa Doc. Ógnarstjórn þeirra feðga lauk árið 1986 þegar Baby Doc tókst að flýja til Frakklands með bandarískri herflugvél, en þá hafði um nokkurt skeið ríkt mikil ólga á Haítí þar sem þjóðin krafðist breytinga. Þegar Baby Doc lenti á flugvellin- um í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, voru um 200 stuðningsmenn hans mættir til að fagna endurkomu for- setans fyrrverandi. Baby Doc segist vera kominn aftur til heimalands síns til þess að „hjálpa til við endurbygg- ingu“ eftir jarðskjálftann sem skók landið fyrir réttu ári, en í honum létust um 230 þúsund manns. Hann lýsti því einnig að hann væri ekki kominn aftur til að snúa sér að stjórnmálum. Ótrúleg harmsaga þjóðar Allt síðan Kristófer Kólumbus nam land á eyjunni Hispaniola árið 1492 hafa íbúar eyjunnar þurft að þola ótrú- leg harðindi. Á innan við 100 árum höfðu spænskir landnemar svo að segja útrýmt innfæddum íbúum eyj- unnar með morðum og sjúkdómum. Árið 1597 sömdu Frakkar og Spán- verjar um að deila eyjunni með sér. Tóku Spánverjar austurhluta eyjunn- ar, sem í dag heitir Dóminíska lýðveld- ið. Frakkar stunduðu nýlenduverslun af miklum móð og fluttu inn þúsundir þræla frá vesturströnd Afríku á 17. öld. Er talið að aðstæður hafi hvergi verið verri í heiminum en á Haítí á þessum tíma, og talið að rúmlega þriðjung- ur þeirra sem fluttir voru nauðugir til karabísku eyjunnar hafi látist sökum ofreynslu eða barsmíða aðeins nokkr- um árum eftir að þeir komu. Í kjölfar frönsku byltingarinn- ar 1789 leiddi frelsishetjan Toussant l‘Ouverture byltingu á Haítí þar sem þrælar kröfðust frelsis. Tókst l‘Ouvert- ure að ná fram ákveðnum stöðugleika um tíma, eða uns honum var rænt af hershöfðingja Napóleons og hann færður sem fangi til Parísar. Hann lést þar árið 1803. Ári síðar var lýst yfir sjálfstæði á vesturhluta Haítí og fékk landið þá núverandi nafn sitt. En það þýddi síður en svo að friður ætti eftir að ríkja í landinu. Stjórnmálaspilling, þjóðernisátök, ágangur nýlenduveldanna, afskipta- semi Bandaríkjanna og deilur við spænskumælandi nágranna í vestri eru aðeins nokkur atriði sem hægt er að nefna sem ollu því að blóðug átök geisuðu áfram á Haítí langt fram eftir 20. öldinni. Vonarneisti Francois Duvalier var læknismennt- aður og starfaði sem slíkur frá árinu 1934. Honum gramdist ofríki og spill- ing stjórnmálaelítunnar á Haítí, en þeir sem henni tilheyrðu voru svokall- aðir „múlattar,“ einungis þeir sem voru ljósir á hörund gátu vænst þess að ná langt í stjórnmálum. Andúð Duv- aliers á múlöttum gerði hann vinsæl- an meðal hins þeldökka meirihluta þjóðarinnar, en hann varði starfsævi sinni sem læknir í að hjálpa þeim sem minna máttu sín og þaðan fékk hann gælunafnið Papa Doc. Vinsældir hans minnkuðu ekki vegna áhuga hans á vúdú-trúnni, sem hefur lengi vel ver- ið helsta trú alþýðunnar á Haítí, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir yfirvalda til að halda henni niðri. Duvalier var orðinn heilbrigðisráð- herra árið 1946 í ríkisstjórn Dumarsais Estimé en þurfti að fara í felur þegar hershöfðinginn Paul Magloire gerði valdarán árið 1949. Eftir að Magloire hrökklaðist frá völdum undir lok árs- ins 1956 myndaðist tómarúm í stjórn- málum á Haítí. Boðað var til forseta- kosninga um haustið 1957 sem Papa Doc sigraði í með miklum yfirburð- um. Bjartsýni ríkti í landinu en ekki leið á löngu þangað til dró aftur fyrir sólu í hitabeltislandinu. Haldinn ofsóknarkennd Ári eftir að Papa Doc tók við forseta- embættinu gerði herinn tilraun til að koma honum frá völdum. Þessi tilraun mistókst, en í kjölfarið varð Papa Doc einstaklega var um sig. Hann skipti út öllum helstu yfirmönnum í hernum fyrir sína eigin skjólstæðinga og lét myrða þá sem hann treysti ekki. Hann stofnaði sínar eigin öryggissveitir, þar á meðal sveit úrvalshermanna sem störfuðu sem sérstakir lífverðir hans. Hann stofnaði einnig öryggissveitir sjálfboðaliða, sem gengu undir nafn- inu „Tonton Macoutes“. Macoutes-lið- ar fengu það hlutverk að halda þjóð- inni í skefjum, þá sérstaklega þeim hluta þjóðarinnar sem bjó utan þétt- býlis. Hélt aðstoðarmann sinn vera hund Árið 1959 fékk Papa Doc alvarlegt hjartaáfall og töldu læknar víst að hann hefði hlotið varanlegan heila- skaða í kjölfarið. Á meðan Papa Doc var að jafna sig tók einn nánasti sam- starfsmaður hans, Clement Barbot, við stjórnartaumunum á meðan. Þeg- ar Papa Doc tók hins vegar að ranka við sér fór hann skyndilega að gruna Barbot um græsku og lét skella hon- um í fangelsi. Barbot var látinn laus árið 1963 og ætlaði að hefna sín á Papa Doc. Barbot hafði áður verið leiðtogi Macoutes-liðanna, og var því valdamikill eftir því. Hann ætlaði sér að ræna börnum Papa Docs, og kúga hann þannig til að gefa eftir forseta- embættið. Ætlunarverk Barbots fór út um þúfur og var hann í kjölfarið hundelt- ur af útsendurum Papa Docs, og það bókstaflega. Eftir að erfiðlega hafði gengið að hafa hendur í hári Bar- bots, grunaði Papa Doc að fyrrverandi samstarfsmaður sinn hefði beitt vú- dú-göldrum til að breyta sér í svart- an hund. Í kjölfarið voru allir svartir hundar á eyjunni drepnir. Barbot var að lokum handsamaður og háls- höggvinn. Papa Doc bað um að fá höf- uð hans til að geta átt samskipti við anda Barbots með vúdú-göldrum. Ógnarstjórn feðga Af þessari sögu má leiða líkur að því n Jean-Marie Duvalier, betur þekktur sem Baby Doc, er snúinn aftur til Haítí n Tók við af föður sínum árið 1971 aðeins 19 ára n Faðir hans, Papa Doc, var vitstola harðstjóri sem lét myrða and- stæðinga sína og óbreytta borgara n Óljóst hvað Baby Doc ætlar sér núna„Grunaði Papa Doc að fyrrum sam- starfsmaður sinn hefði beitt vúdú-göldrum til að breyta sér í svartan hund. Í kjölfarið voru allir svartir hundar á eyjunni drepnir. BABY DOC SNÝR AFTUR TIL HAÍTÍ Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Kominn aftur Baby Doc á svölum fimm stjörnu hótelsins þar sem hann dvelur um þessar mundir. Forseti fyrir lífstíð Í sjónvarpsávarpi árið 1971 þar sem hann, 19 ára gamall, tjáði þjóð sinni að hann væri forseti fyrir lífstíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.