Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Page 17
Erlent | 17Miðvikudagur 19. janúar 2011
BABY DOC SNÝR AFTUR TIL HAÍTÍ
Papa Doc hafi verið búinn að missa
vitið. Hann hélt þó völdum með ógn-
arstjórn og beitti Macoutes-liðum
óspart til að taka þá miskunnarlaust
af lífi sem hann taldi líklega til að vera
með uppsteyt. Hann stjórnaði und-
ir verndarvæng Bandaríkjanna, þrátt
fyrir að hafa einu sinni sagt að John
F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna,
hafi verið myrtur vegna vúdú-álaga
sem hann hefði lagt á hann. Vegna
yfirlýstrar andúðar á kommúnisma
og Fidel Kastró, var hann samþykkt-
ur af bandarískum stjórnvöldum sem
studdu stjórn hans með veglegum
fjárstyrkjum. Þessa styrki átti að nota
til að styrkja innviði samfélagsins, en
fóru að mestu leyti inn á svissneska
bankareikninga Papa, og síðar Baby
Docs.
Eftir andlát Papa tók sonur hans,
Jean-Marie Duvalier, við völdum.
Hann lýsti sig forseta fyrir lífstíð
skömmu eftir að hann varð forseti en
flestum var þó ljóst að hann stjórnaði
aðeins að nafninu til. Fámenn klíka
valdamanna sem hafði verið föð-
ur hans hliðholl fór í raun með völd-
in. Ógnarstjórnin hélt áfram og Mac-
outes-sveitunum var enn beitt til að
þurrka út mótmælendur. Á meðan
lifði Baby Doc sannkölluðu glaum-
gosalífi og hrifsaði til sín ómælt fé úr
ríkissjóði.
Brúðkaupið kveikti í fólki
Árið 1980 gekk Baby Doc að eiga
Mich ele Pasquet, dóttur auðugs við-
skiptajöfurs. Fór mjög fyrir brjóstið á
þjóðinni að Michele var ljós á hörund,
en eins og áður sagði hafði Papa Doc
tryggt vinsældir sínar vegna andúðar
sinnar á múlöttum. Þrátt fyrir að Baby
Doc væri í raun ljós á hörund sjálfur,
þótti þjóðinni sem hann væri að rjúfa
það traust sem ríkt hafði milli hins
þeldökka meirihluta þjóðarinnar og
Duvalier-feðga. Sú staðreynd að brúð-
kaupið eitt kostaði rúmlega 3 milljónir
Bandaríkjadala var sem olía á eldinn.
Á næstu árum hurfu nánustu sam-
starfsmenn Baby Docs á braut, einn
af öðrum. Alþjóðasamfélagið fór að
gefa Haítí meiri gaum eftir að Jóhann-
es Páll páfi sagði eftir opinbera heim-
sókn að þar „þyrfti eitthvað til bragðs
að taka.“ Alnæmi varð útbreitt á Haítí
strax í byrjun 9. áratugarins og hafði
hræðilegar afleiðingar í för með sér
fyrir ferðamannaiðnaðinn í landinu.
Um haustið 1986 fóru mótmæli að
breytast í byltingu, sem fór eins og
eldur í sinu um strjálbýl héruð Haítí
og bárust að lokum til borganna. Baby
Doc biðlaði til Ronalds Reagans, for-
seta Bandaríkjanna, um aðstoð en án
árangurs. Reagan féllst hins vegar á
að hjálpa Baby Doc að flýja land, sem
hann og gerði í janúar 1986 – fyrir rétt-
um 25 árum.
Hvað gerist nú?
Baby Doc hefur búið í Frakklandi í
vellystingum síðan hann flúði Ha-
ítí. Reyndar minnkaði auður hans
umtalsvert þegar Michele skildi
við hann árið 1993. Hann hefur
þó ekki haft yfir neinu að kvarta,
en fyrsti áfangastaður hans eftir
heimkomuna var eitt af fáum eft-
irstandandi fimm stjörnu hótelum
sem er að finna í Port-au-Prince.
Á meðan Baby Doc og faðir hans
héldu um stjórnartaumana á Haítí
er talið að allt að 30 þúsund manns
hafi verið tekin af lífi án dóms og
laga.
Fæstir hefðu því getað séð fyr-
ir endurkomu Baby Docs til Haítí,
þrátt fyrir að hann segist ekki ætla
að skipta sér af stjórnmálum – að
minnsta kosti um sinn. Ómögulegt
er því að segja til um hvað fram-
tíðin ber í skauti sér, þó fátt virðist
koma á óvart lengur þegar kemur
að harmi – eða martröð – Haíta.
KVIKMYNDATÓNLISTARVEISLA
Nú, annað árið í röð, gefst unnendum góðrar
tónlistar tækifæri til að hlýða á fræg kvikmynda-
tónverk leikin af fullskipaðri sinfóníuhljómsveit,
en tónleikarnir í fyrra voru gríðarlega vinsælir.
Að þessu sinni verður meðal annars flutt hljóm-
sveitarsvíta úr Psycho ásamt þáttum úr Cinema
Paradiso og Guðföðurnum. Þá mun hljómsveitin
einnig leika tónverk eftir Jonny Greenwood í
Radiohead, úr óskarsverðlaunamyndinni There
Will Be Blood frá árinu 2007.
Miðasala á www.sinfonia.is og 545 2500
Beint í hjartað!
Fim. 20.01.11 » 19:30
„Við verðum öll svolítið brjáluð
af og til, ekki satt?“
Norman Bates
Bernard Herrmann
Ennio Morricone
Nino Rota
Jonny Greenwood
Benjamin Shwartz hljómsveitarstjóri
ÖRFÁ SÆTI L AUS
Túnisar mótmæla enn á götum úti
þrátt fyrir að Zine al-Abidine Ben
Ali, sem hafði verið forseti Túnis síð-
an árið 1987, sé flúinn land. Nú hef-
ur þjóðstjórn verið mynduð und-
ir forystu Mohamed Ghannouchi,
en hann er einnig forsætisráðherra
og var náinn samstarfsmaður Bens
Alis. Blossandi reiði ríkir ennþá í
garð Bens Alis, ekki síst eftir að frétt-
ist af afreki hans rétt áður en hann
var endanlega á bak og burt. Afrekið
var reyndar framkvæmt af eiginkonu
Bens Alis, Leilu Trabelsi. Að undir-
lagi Bens Alis tókst Trabelsi að kom-
ast úr landi með allan gullforða Tún-
is, eða um eitt og hálft tonn.
Gekk beint inn í seðlabankann
Það var fjármálaráðherra Frakklands,
Christine Lagarde, sem ljóstraði upp
um þjófnaðinn. Franska leyniþjón-
ustan hafði haft veður af þjófnað-
inum og hefur Lagarde sagt að allir
flutningar fjár frá Túnis til Frakklands
verði undir eftirliti á næstunni. Mála-
vextir munu hafa verið þeir að Leila
Trabelsi gekk á fund seðlabanka-
stjóra Túnis síðastliðinn föstudag og
krafðist þess að fá afhentan gullforða
landsins – sem er metinn á jafnvirði
um sjö milljarða íslenskra króna.
Trabelsi færði þau rök fyrir máli sínu,
að vegna vaxandi ólgu og mótmæla á
götum úti væri ekki óhætt að geyma
gullforðann í Túnis-borg, nauðsyn-
legt væri að flytja hann úr landi.
Seðlabankastjórinn mótmælti, en
eftir að hafa fengið símtal frá Ben Ali
sjálfum, sem þá var enn forseti, lét
hann undan.
Trabelsi gekk út ásamt aðstoðar-
mönnum sínum með góssið og hitti
því næst eiginmann sinn á flugvelli,
þar sem förinni var heitið til Frakk-
lands. Eftir að Nicolas Sarkozy, for-
seti Frakklands, hafði veður af ferða-
áætlunum Bens Alis bannaði hann
flugvélinni að lenda og lýsti því yfir
að Ben Ali væri ekki velkominn til
Frakklands.
Farinn til Sádi-Arabíu
Eftir að Ben Ali og Leilu var bannað
að lenda í Frakklandi var flugvélinni
snúið við og stefnan sett á Jeddah í
Sádi-Arabíu. Dvelja þau nú í sama
hverfi og Idi Amin, fyrrverandi ein-
ræðisherra Úganda, dvaldi í þegar
hann var í útlegð í Jeddah. Þá höfðu
dætur Bens Alis leitað til franskra
stjórnvalda um pólitískt hæli og
dvöldust á hóteli í Disney-skemmti-
garðinum í úthverfi Parísar, á með-
an þau biðu ákvörðunar franskra yf-
irvalda. Þær hafa nú yfirgefið hótelið
eftir að þær fengu þau skilaboð að
þær eru ekki velkomnar í Frakklandi.
n Forsetahjónin flúðu með gullforða Túnis til Sádi-Arabíu
Stakk af með gullið
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Zine al-Abidine
Ben Ali Er flúinn
land og komst undan
með gullforða Túnis.