Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Síða 20
Böðvar Steingrímsson (Ólaf-ur Darri) er fluttur aftur heim á Krókinn eftir námsdvöl í Þýska-
landi. Hann er nýbyrjaður að kenna
í framhaldsskólanum þegar hann er
rekinn fyrir hafa stefnt nemendum
sínum í stórhættu í vettvangsferð í
Drangey. Böðvar, eða Böddi, býr hjá
móður sinni og er með allt á horn-
um sér. Honum blöskrar efnishyggjan
sem honum þykir tröllríða samfélag-
inu og fær útrás fyrir reiði sína á blogg-
síðunni sinni.
Rokland er önnur kvikmynd Mart-
eins Þórssonar leikstjóra í fullri lengd,
en árið 2004 var mynd hans og Jeffs
Renfroe, One Point O, valin í aðal-
keppnina á Sundance-kvikmynda-
hátíðinni. Marteinn skrifar einnig
handritið sem er byggt á skáldsögu
Hallgríms Helgasonar sem kom út
árið 2005 og vakti mikla athygli.
Helsti galli Roklands er handrit-
ið, en forsaga Bödda er nokkuð óljós
í myndinni og vita áhorfendur í raun
mjög lítið um hvaðan þessi brjálæð-
ingur kemur eiginlega og hvers vegna
hann varð svona. Maður lærir þó að
meta Bödda þegar líður á myndina,
en það er helst að þakka frábærri túlk-
un Ólafs Darra sem sýnir fleiri en eina
hlið á Bödda. Hann er ekki einungis
bitri og fúli námsmaðurinn sem las
yfir sig af Nietzsche heldur er hann
einnig ljúfur ungur maður sem þrá-
ir fátt heitar en að vera elskaður eins
og hann er. Hefði bloggsíða Bödda,
sem nafn myndarinnar vísar til, leik-
ið stærra hlutverk í myndinni hefðu
áhorfendur líklega getað gægst meira
inn í hugarheim hans og kynnst hon-
um betur.
Myndin hefur þrátt fyrir allt tölu-
vert skemmtanagildi. Ýmsir leikarar
fara á kostum í aukahlutverkum og
ber þar helst að nefna Þorstein Bach-
mann sem er góður sem auðmaður-
inn Toni Group. Þorsteinn hefur stolið
senunni í tveimur myndum á stutt-
um tíma en hann var stórskemmti-
legur sem leikfimikennarinn Gummi
Gumm í Gauragangi. Stefán Hallur
Stefánsson er sömuleiðis skemmti-
legur í hlutverki bróður Bödda. Per-
sónan er gjörsamlega óþolandi og
stendur í raun fyrir allt sem Böddi
hatar. Elma Lísa Gunnarsdóttir fer
með hlutverk bæjardræsunnar sem
Böddi barnar eitt djammkvöldið og
stendur sig ágætlega. Hún hafði á orði
í viðtali á dögunum að kynlífssenurn-
ar hefðu verið erfiðar viðfangs, en þær
voru margar hverjar óþarfar og mjög
dæmigerðar fyrir íslenskar kvikmynd-
ir. Lára Jóhanna Jónsdóttir er svo
prýðisgóð í hlutverki ungu stúlkunnar
sem Böddi girnist.
Tónlistin er í höndum Sigtryggs
Baldursson og er stórgóð. Þar er
blandað saman frumsaminni tón-
list og Brahms, Schumann og að
sjálfsögðu Richard Wagner. Stef úr
kvennakór Brahms, Es tönt ein voll-
er Harfenklang, hljómar hér og þar
í myndinni og er gullfallegt og gefur
myndinni draumkenndan blæ.
Heilt yfir er Rokland mjög
skemmtileg og frekar vel heppn-
uð kvikmynd. Þó svo að áhorfendur
hefðu mátt kynnast forsögu Bödda
töluvert betur er karakterinn í heildina
ágætlega mótaður og ekki síst frábær-
lega túlkaður af Ólafi Darra Ólafssyni.
joningi@dv.is
20 | Fókus 19. janúar 2011 Miðvikudagur
Ekki er það nú amalegt að geta skot-ist inn í Kringlubíóið á hrollköld-um óveðursdegi í janúar og dembt
sér ofan í sjóðheitan pott af afrísk-
um tónum og dönsum í ævintýralegu
litaskrúði ljósa, mynda og búninga,
allt í beinni útsendingu frá Nation-
al Theatre í London. Á fimmtudaginn
bauð breska þjóðleikhúsið sem sé upp
á nýlegt bandarískt músíkal, Fela!, sem
fjallar um nígeríska tónlistarmanninn
Fela Kuti. Hann var uppi á síðustu öld
og olli straumhvörfum með sérstæðum
tónlistarstíl sínum, afróbíti, sem hann
nefndi svo og var sett saman úr hefð-
bundinni afrískri tónlist, jazzi, funki
og jafnvel rokki, að mér skilst. Kuti var
pólitískur róttæklingur, harðskeyttur
og ótrauður gagnrýnandi herforingj-
anna sem hafa sífellt verið að berjast
um valdataumana í þessu marghrjáða
og sundurleita ríki allt frá því það hlaut
fullt sjálfstæði árið 1960. Hann stofn-
aði kommúnu í Lagos sem hann lýsti
sjálfstæða, en það líkaði stjórnvöld-
um að vonum ekki og fóru að lokum
með óvígan her á hendur honum og
brenndu allt til grunna. Skömmu áður
hafði Kuti samið frægan söng þar sem
hann líkti hermönnum við „zombia“;
söngurinn fór sem eldur í sinu um Afr-
íku, þar sem fleiri hafa átt við siðspillta
og ofbeldisfulla stjórnarherra að stríða
en Nígeríumenn.
Í söngleiknum, sem er að mestu
verk bandaríska kóreógrafsins Bill T. Jo-
nes, erum við kynnt fyrir þessari skraut-
legu persónu, lífi hans og baráttu. Kuti
birtist þarna sem sambland af popp-
stjörnu og karismatískri byltingarhetju
í meðförum Sahr Ngaujah sem fór fyr-
ir stórum hópi blakkra söngvara og
dansara með eggjandi og æsilegum
limaburði; hann talaði við áhorfend-
ur, dansaði, söng og spilaði á hljóðfæri,
eins og hann væri Dionýsos endurbor-
inn, goð leiklistarinnar hjá Forn-Grikkj-
um sem kannski var ættað úr Afríku
eftir allt saman; já, stemningin var raf-
mögnuð í Olivier-sal Þjóðleikhúss-
ins undir flöktandi jólatrésseríum sem
fylltu salinn líflegri og hlýlegri birtu
ásamt öðrum ljósgjöfum. Sýningin var
svolítið sein af stað, en náði sér brátt
vel á strik: fyrir hlé var fjörið að mestu
ráðandi, en eftir hlé þyngdi yfir, þegar
valdhafar taka að sýna klærnar, og Kuti
leitar á náðir andanna til að fá svör við
ýmsum erfiðum spurningum lífsins.
Kannski var sú mynd, sem þarna var
sýnd af honum, eitthvað rómantíseruð;
svona gúrúar hafa oftast sínar skugga-
hliðar, sem þarna var rétt tæpt á, eins
þótt hinn pólitíski og mannlegi mál-
staður þeirra sé allrar virðingar verður;
en um það er ég ekki dómbær. Sjálfur
lést Kuti fyrir þrettán árum úr eyðni, þá
um sextugt; það les ég á Wikipediu og
varla segir hún ósatt.
Þetta var í einu orði sagt „dúndur-
show“ með sárum og ljóðrænum
strengjum inn á milli og ugglaust satt
sem hinn ágæti krítíker Michael Billing-
ton segir í stuttum dómi á vef Guard ian:
að svona nokkuð hafi aldrei sést fyrr í
National Theatre. Hann gefur sjóinu
fjórar stjörnur og það geri ég líka.
Afrískt dúndur
Rokland
Leikstjóri: Marteinn Þórsson.
Handrit: Marteinn Þórsson eftir skáldsögu
Hallgríms Helgasonar.
Leikarar: Ólafur Darri Ólafsson, Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson,
Lára Jóhanna Jónsdóttir.
110 mínútur
Bíómynd
Jón Ingi
Stefánsson
Böddi Byltir
Böddi Steingríms Ólafur Darri túlkar
Bödda snilldarvel. MyndIr SkJáSkot
Fela!
National Theatre í London
Höfundur: Bill T. Jones.
Byggt á tónlist Fela Kuti.
Sýnt beint í Sambíóunum þann 13. janúar
Söngleikur
Jón Viðar
Jónsson
dúndur-show „Þetta var í einu orði sagt
dúndur-show með sárum og ljóðrænum
strengjum inn á milli.“
Hvað ertu að gera?
Hvaða bók ert þú að lesa núna? „Ég er
alltaf með svo margar í takinu. Núna eru það
Sonja Zorrilla, Spádómar Nostradamusar og
Holl er hugarró. „I‘m on a mission...““
áttu þér uppáhaldsbók – hverja og af-
hverju? „Óvinurinn eftir Emmanuel Carrère –
Ég hef alltaf verið hrifnari af sannsögulegum
bókum en skáldskáp og þessi er þannig bók
– stórkostleg saga um hvað einstaklingur
getur valdið miklum skaða með einni lélegri
ákvörðun … hef lesið hana margoft.“
Hvað sástu síðast í bíó? Hvað fannst
þér? „Sá síðast Hereafter – mikil vonbrigði.
Ég bjóst við að útkoman yrði hraðari og
meiri spennandi miðað við þann góða hóp
sem stendur að myndinni. En félagsskap-
urinn í bíóferðinni var alveg topp og bætti
vonbrigðin upp.“
Hvaða kaffihús ferðu á? „Ég reyni að
taka ekki þátt í að borga hátt í 500 kall
fyrir kaffibolla – en ef ég geri það þá er það
yfirleitt sá/sú sem ég er að fara að hitta
sem fær að ákveða hvaða kaffihús er valið.
Besta kaffið er þó pottþétt á Kaffi Haiti og á
hárgreiðslustofunni Hárhönnun.“
Hvaða tímarit gluggar þú í? „Ég glugga í
mörg tímarit – yfirleitt dönsku tískublöðin,
Variety og öll þau blöð þar sem Angelina
Jolie prýðir forsíðuna. Svo á ég svo marga
fræga vini að ég reyni að fylgjast með þeim
í Séð og heyrt. En það blað sem ég les mest í
er Lifandi vísindi.“
rakel Garðarsdóttir framleiðandi
les helst
lifandi vísindi
leynileikhúsið
tekur til starfa
Leynileikhúsið er lítið sjálfstætt
hugsjónafyrirtæki sem hefur starfað
síðan 2004 og heldur leiklistarnám-
skeið fyrir börn
í 2.–10. bekk um
allt höfuðborg-
arsvæðið. Öll
leiklistarnám-
skeið Leynileik-
hússins byggjast
fyrst og fremst
upp á mottóinu
„GLEÐI“ og á
síðustu önn voru hjá þeim 297 nem-
endur í 8 mismunandi skólum.
Allir kennarar Leynileikhússins
eru fagmenntaðir leikarar og/eða
leikstjórar sem hafa góða reynslu
af leiklistarkennslu. Skráning er nú
í fullum gangi á leiklistarnámskeið
Leynileikhússins vorið 2011 en önn-
in endar á uppsetningu á leikriti þar
sem allir fá að taka þátt í að skapa
leikverk frá grunni.
Menningarafurðastöðin Havarí
hættir starfsemi í Austurstræti 6
í lok mánaðar. Mikil hreyfing er í
uppbyggingu í miðborginni um
þessar mundir en í Austurstræti
6 stendur til að opna nýtt hótel á
næstunni og á móti opnar Friðrik
Weisshappel, Laundromat, stað í
anda hans farsæla staðar í Kaup-
mannahöfn.
Havaríliðar héldu nærri því tvö-
hundruð viðburði í menningar-
stöðinni og þeirra verður því lík-
lega sárt saknað meðan þeir eru í
fríi. Þarna var vinsæl sýning Ísaks
Óla, einhverfs listamanns sem hef-
ur slegið í gegn á Íslandi (isakoli.
is) og þarna voru bakaðar bleikar
pönnukökur, rokkað og haldnar
ræður.
Allsherjarkveðjuhátíð verð-
ur haldin frá 17. janúar til lokun-
ardags sem er 29. janúar og þar
ætla Havaríliðar og vinir þeirra að
skemmta gestum. Auk þess verður
haldin lokaútsala á plötum, mynd-
list, bókum og öðrum varningi.
Aðdáendur menningarmið-
stöðvarinnar geta hlakkað til
vorsins en þá setja aðstandend-
ur Havarí upp nýjar höfuðstöðvar
einhvers staðar í miðborginni.
Menningarmiðstöðin Havarí leitar að nýjum stað í miðborginni:
Havarí komin í frí
kveðjuhátíð í Havarí Havaríliðar
blása til hátíðar, en þeir þurfa að færa
sig vegna nýs hótels.