Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Qupperneq 26
26 | Fólk 19. janúar 2011 Miðvikudagur
María Birta Bjarnadóttir og Þorvaldur Davíð Kristjáns-son fara með burðarhlutverk
í myndinni Svartur á Leik, byggðri
á samnefndri glæpasögu Stefáns
Mána.
Framleiðslufyrirtækin ZikZak og
Filmus standa að gerð myndarinn-
ar en leikstjóri er Óskar Axel Ósk-
arsson. Hann skrifaði handritið að
myndinni ásamt Stefáni Mána en nú
líður að því að tökuvélarnar fari að
rúlla og María Birta er farin að und-
irbúa sig fyrir hlutverkið. „Prufurn-
ar fyrir hlutverkið gengu vel og ég
hef ákveðið að taka því og hlakka til
að takast á við það. Það er verulega
krefjandi, mikil nekt, kynlíf og gróft
ofbeldi. Vegna þess hversu erfitt
hlutverkið er fékk ég handritið með
mér heim í prufuferlinu og fékk að
kanna það vel áður en ég samþykkti
að taka það að mér. Ég velti því fyrir
mér á yfirvegaðan máta hvort þetta
gengi fram af mér. En ég held ekki,
ég held ég hafi styrk í þetta.“
Undirbýr sig með hugleiðslu
María Birta segist nú í fyrsta skipti
taka risastökk úr áhugamennsku í
bransann. „Í Óróa var ég óreynd og
lék á móti óreyndum áhugaleikur-
um. Nú kem ég rétt örlítið reynsl-
unni ríkari og leik á móti alvönu fag-
fólki. Það verður mér líklegast afar
lærdómsríkt. Ég er ögn kvíðin og
ætla að reyna að undirbúa mig með
því að hugleiða. Það kemur mér í
jafnvægi og gefur mér frekari styrk.“
Henni líst afar vel á mótleikara
sína en áður var búið að tilkynna að
leikararnir Damon Younger og Jó-
hannes Haukur Jóhannesson fara
með hlutverk í myndinni og raðirn-
ar því að þéttast. „Þetta verður gríð-
arlega spennandi allt saman og ég
vona að þetta gangi allt að óskum.“
kristjana@dv.is
nakin
ásamt
þorvaldi
davíð
María Birta Bjarnadóttir:
Leikur á móti Maríu Birtu Þor-
valdur Davíð er við nám í Juilliard en
kemur heim til landsins í tökur.
Stundar hugleiðslu
María Birta segir hlutverk
sitt í myndinni Svartur á leik
vera krefjandi. Mikil nekt og
ofbeldi.
n Leikur eitt aðalhlutverkanna í Svartur á leik n Í opinskáum nektarsenum með
Þorvaldi Davíð n Vakti gríðarlega athygli fyrir leik sinn í Óróa n Þykir ekkert til-
töku mál að leika í nektarsenum n Undirbýr sig fyrir erfiðar senur með hugleiðslu
Helgi Björnsson fer með hlutverk samkynhneigðs markaðsstjóra sem er kallaður karaktersubban
í sjónvarpsþáttaröð Tobbu Marinós,
byggðri á bókinni Makalaus, og Þor-
grímur Þráinsson leikur sjálfan sig.
Tobba segir æfingatökur standa
yfir þessa vikuna og að fyrsti þáttur-
inn fari í loftið 17. janúar. „Helgi leik-
ur yfirmann aðalpersónunnar sem í
þáttunum er að vinna hjá ja.is. Hann
stuðar hana rosalega og hún sér hann
fyrir sér allt öðruvísi en hann er í raun
og veru. Henni finnst bara allt að
honum, finnst hann vera perri í alltof
stuttum buxum og bara yfirhöfuð al-
ger pest. Seinna kemur fram að hann
er ekkert annað en 100% ljúflingur og
þá tekst á milli þeirra vinasamband.
Hann er eiginlega tákngervingur
þess hve við hleypum okkur oft langt
í gagnrýni á annað fólk án þess að vita
nokkuð um það.“
Þorgrímur leikur sjálfan sig
Helgi segir hlutverkið áhugavert að
mörgu leyti. „Jú, þarna leik ég prýðis-
mann sem er kallaður karaktersubb-
an af ósanngjörnum ástæðum má
rekja til aðalsöguhetjunnar. Hún hef-
ur svona heldur afdráttarlausa skoð-
un á honum og samskipti þeirra þess
vegna skrautleg.“
Tobba segir Þorgrím Þráinsson
einnig birtast í þáttunum. „Ýmsar
frægar týpur poppa upp, eins og Þor-
grímur Þráinsson sem leikur sjálfan
sig. Aðalsöguhetjan er með hann á
heilanum og eltir hann
í matvöruverslunum.
En annars er líka lögð
sérstök áhersla á
að finna ungt, en
óreynt hæfileika-
fólk. Við erum til
dæmis búin að
finna þemalag
þáttanna og
það verður
lagið Þú varst
ævintýri, með
ungu stelp-
unum í Pas-
cal Pinon.“
Helgi Björnsson fer með hlutverk samkynhneigðs markaðsstjóra í Makalaus og Þorgrímur Þráinsson leikur sjálfan sig:
Frægir og óreyndir í bland
Helgi Björns til liðs við Makalaus Helgi leikur
karaktersubbuna, misskilda týpu sem aðalsöguhetjan
hefur megna andstyggð á og Þorgrímur Þráinsson leikur
sjálfan sig.Frægir og óreyndir í bland Þorgrímur Þráinsson og
Gillzenegger sjást í bland við óreynt hæfileikafólki.
Með treFil
Frá Munda
Sigurður G. Guðjónsson lögfræð-
ingur var ekki aðeins spurður út í hagi
skjólstæðinga sinna þar sem hann stóð
fyrir svörum fyrir utan embætti sérstaks
saksóknara á dögunum heldur líka hvar
hann hefði fengið þennan smarta trefil
sem hann bar. Hann sagðist hafa fengið
trefilinn hjá Munda: „Mundi er ungur og
upprennandi hönnuður,“ sagði Sigurður
G. hæstánægður með kaupin.
borgarstjóri í
andófi á netinu
Jón Gnarr borgarstjóri sendi aðdáendum
sínum á Facebook-síðu sinni tengil á síðuna
animals.change.org, þar sem undirskriftum
er safnað gegn illri meðferð á ísbjörnum.
Það er Besti flokkurinn sem stendur að
söfnun undirskriftanna og er þeim beint að
forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Með átakinu er ráðamönnum landsins bent
á að önnur ríki hafi í gildi úrræði til verndar
ísbjarnarstofninum en hingað til hafi ekki
verið látið reyna á neinar aðrar leiðir en að
drepa ísbirnina. Á síðunni má sjá undirskrift-
ir meðlima Besta flokksins en markmiðið er
að safna 10.000 undirskriftum.