Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Page 2
hafði hún hætt störfum hjá FL Gro-
up. Starfslok hennar vöktu mikla
athygli og umtal og tók Hannes
Smárason við af henni.
Í stað Ragnhildar er talað um að
Jakob Sigurðsson, aðstoðarforstjóri
hjá deCode og fyrrverandi landsliðs-
maður í handknattleik, komi til starfa
hjá plastframleiðandanum en Jakob
er stjórnarmaður í félaginu í dag.
„Ragnhildur Geirsdóttir hefur ósk-
að eftir að láta af störfum forstjóra en
býður sig fram í stjórn félagsins. Höf-
um rætt við Jakob Sigurðsson vegna
forstjórastarfsins – hann er að hugsa
málið en er nokkuð spenntur.“
2 | Fréttir 21. mars 2011 Mánudagur
Fjárfestingarfélagið Horn, sem er í
eigu Landsbankans, hefur skrifað
undir samning þess efnis við eign-
arhaldsfélgagið Atorku að Horn
eignist alla hluti þess í plastfram-
leiðslufyrirtækinu Promens. Fyrir
átti Horn 12 prósenta hlut í félaginu
á móti 74 prósenta hlut Atorku. Í
stað hlutabréfanna í Promens af-
salar Horn sér hlutabréfum sínum
í Atorku. Kröfuhafar Atorku, með-
al annars Nýi-Landsbankinn og Ís-
landsbanki, samþykktu nauða-
samninga félagsins í árslok 2009. Í
nauðasamningunum fólst meðal
annars að kröfum lánardrottnanna
var breytt í hlutafé í Atorku. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
fundargerð frá stjórn Horns frá því
lok febrúar síðastliðinn. Höfund-
ur fundargerðarinnar er Hermann
Már Þórisson, framkvæmdastjóri
Horns.
Með kaupunum verður Horn
ráðandi hluthafi Promens, verð-
mætustu eignar Atorku. Promens er
alþjóðlegt íslenskt fyrirtæki á sviði
plastframleiðslu og starfrækir 47
starfstöðvar í Evrópu, Norður-Am-
eríku, Afríku og Asíu. Hjá fyrirtæk-
inu starfa rúmlega 4.000 þúsund
manns. Ragnhildur Geirsdóttir,
sem áður var forstjóri FL Group, er
forstjóri Promens. Eignir Promens
voru metnar á tæplega 118 milljónir
evra í árslok 2009, eða sem svarar
rúmum 20 milljörðum króna.
Beðið eftir Samkeppniseftir-
litinu
Í fundargerð Horns kemur fram að
búið sé að skrifa undir kaupsamn-
inginn, svokallaðan makaskipta-
samning við Atorku, en að beðið sé
eftir svari frá Samkeppniseftirlitinu
um hvort stofnunin heimili kaupin.
„Höfum skrifað undir makaskipta-
samning við Atorku vegna kaupa
okkar á Promens og tengdum eign-
um. Búnir að senda til samkeppnis-
eftirlitsins. Erum að bíða eftir svari
lánveitenda Promens. Stjórn Horns
þarf að samþykkja samninginn til
að hann taki gildi.“ Kaup Horns á fé-
laginu eru því háð ákveðnum fyrir-
vörum.
Af fundargerðinni að dæma telja
forsvarsmenn Horns hins vegar að
Samkeppniseftirlitið heimili kaupin
á Promens. „Þurfum að athuga með
samsetningu nýrrar stjórnar um
leið og samkeppniseftirlitið heim-
ilar kaupin.“
Vilja skipta stjórnarformann-
inum út
Í fundargerðinni kemur fram að
Horn vilji breyta stjórn Promens
þar sem stjórnin sé ekki mjög virk.
„Núverandi stjórn Promens er ekki
mjög virk þar sem stjórnarformað-
ur félagsins gefur sér engan tíma í
verkefnið.“ Núverandi stjórnarfor-
maður Promens er Steinþór Ólafs-
son, fyrrverandi forstjóri plastfram-
leiðands Sæplasts á Dalvík sem var
fyrirrennari Promens. Um hann
segir í fundargerðinni: „Hefur ekki
mætt á fundi undanfarið og misst af
nokkrum mikilvægum fundum.“
Segir Hermann að ekki sé heppi-
legt fyrir Promens að stjórnarfor-
maður félagsins sé ekki mjög virk-
ur. „Óheppilegt fyrir félagið að vera
með áhugalítinn stjórnarformann.
Legg til að við óskum eftir að ég taki
við hlutverki stjórnarformanns þar
sem mjög aðkallandi verkefni eru
á borði stjórnar þessa dagana sem
þarf að fylgja vel eftir.“
Ragnhildur hættir – tekur
Jakob við?
Þá kemur fram að Ragnhildur
Geirsdóttir ætli sér að hætta störf-
um sem forstjóri Promens en hún
hefur stýrt félaginu frá því í janú-
ar 2006. Nokkrum mánuðum áður
„Óheppilegt fyrir
félagið að vera
með áhugalítinn
stjórnarformann.
Legg til að „ég
taki við hlutverki
stjórnarformanns“
n Horn ætlar að kaupa Promens
af Atorku n Á fyrir 12 prósent í
félaginu n Promens er alþjóð-
legt plastframleiðslufyrirtæki
n Framkvæmdastjóri Horns
vill verða stjórnarformaður
Promens n Ragnhildur Geirs-
dóttir hættir hjá Promens
Ragnhildur hættir Ragnhildur Geirsdóttir mun hætta hjá Promens. Horn hefur skrifað
undir samning við Atorku um yfirtöku á plastframleiðandanum.
Framleiðir alls kyns plastvörur Promens
framleiðir alls kyns plastvörur, meðal annars
fiskikör. Rúmlega 4.000 manns starfa hjá fyrir-
tækinu sem var stærsta eign Atorku.
Samningurinn
við Atorku
Makaskiptasamningurinn við Atorku
gengur út á það að Horn eignist hluta-
bréf Atorku í Promens, skuldabréf sem
Atorka á í Promens og fasteign á Dalvík
sem notuð er í starfsemi Promens. Í
staðinn eignast Atorka hlutabréf Horns,
Nýja-Landsbankans, í Atorku að fjárhæð
1,5 milljarðar króna að nafnverði.
Skuldabréf sem Nýi-Landsbankinn á á
hendur Atorku að fjárhæð tæplega 1,7
milljarðar króna er sömuleiðis framselt
til Atorku auk skuldabréfs upp á tæpar
30 milljónir króna. Eftir þessi viðskipti
eiga Landsbanki Íslands eða Horn engar
frekari kröfur á hendur Atorku sam-
kvæmt kaupsamningnum sem DV hefur
undir höndum. Hlutabréfin í Promens,
sem eru mikils virði, fara hins vegar yfir
til Horns upp í skuldir Atorku við Lands-
bankann.
Kröfur í bú Atorku námu 56 milljörðum
króna og þurftu kröfuhafar að afskrifa
um 35 milljarða af kröfum sínum á
hendur félaginu.