Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Blaðsíða 21
Hafsteinn fæddist í Reykjavík en ólst upp á Patreksfirði. Hann var í Barna- skóla Patreksfjarðar, stundaði nám við Iðnskólann á Patreksfirði og síðan við Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þaðan 1. stigs stýrimannaprófi. Hafsteinn var messagutti á Mæli- fellinu sextán ára, var síðan háseti á bátum frá Patreksfirði, síðan á vertíð- um á Hornafirði og í Sandgerði. Hann var m.a. fimm sumur á síld í Norður- sjónum, var háseti hjá Hafskip á árun- um 1980–84 og síðan á bátum og tog- urum til 1995. Hafsteinn var búsettur í Reykjavík 1976–80, í Hveragerði 1980–85, síðan í Reykjavík í eitt ár en þá flutti hann í Bolungarvík. Hann hóf búskap með konu sinni í Súðavík 1986 og voru þau þar búsett til 1995. Þau hjónin misstu börnin sín þrjú í snjóflóðinu í Súðavík 1995 og fluttu þá suður. Þau voru bú- sett í Mosfellsbænum 1995–2000 en hafa síðan verið búsett á Kjalarnesi. Hafsteinn ók sendibíl á árunum 1995–97 og hefur síðan verið leigubif- reiðastjóri. Hafsteinn var formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Álftfirðinga í þrjú ár, var formaður Trausta – fé- lags sendibílstjóra, sat í stjórn íbúa- samtaka Kjalarness og er varamaður í hverfaráði Reykjavíkurborgar fyrir Kjalarnes. Fjölskylda Dætur Hafsteins frá fyrra hjónabandi: Jóhanna Helga Hafsteinsdóttir, f. 21.11. 1976, d. 1.5. 2006, nemi við Há- skóla Íslands, var gift Gustav Péturs- syni og er dóttir þeirra Katrín Valgerð- ur; Valgerður Björg Hafsteinsdóttir, f. 29.9. 1980, hönnuður frá Listaháskóla Íslands, en maður hennar er Ólafur Brynjar Bjarkason, starfsmaður hjá ÍTR og eru börn þeirra Matthildur Agla og Nói Hrafn. Eiginkona Hafsteins er Berglind María Kristjánsdóttir, f. 12.2. 1963, húsmóðir. Börn Hafsteins og Berglindar Maríu: Hrefna Björg Hafsteinsdótt- ir, f. 10.8. 1987, d. 16.1. 1995; Krist- ján Númi Hafsteinsson, f. 7.10. 1990, d. 16.1. 1995; Aðalsteinn Rafn Haf- steinsson, f. 29.9. 1992, d. 16.1. 1995; Íris Hrefna Hafsteinsdóttir, f. 13.12. 1996; Birta Hlín Hafsteinsdóttir, f. 25.6. 1998. Hálfsystkini Hafsteins, sam- mæðra, eru Sigurður Lárusson, f. 10.4. 1944, verslunarmaður, búsett- ur í Reykjanesbæ; Guðrún Hafdís Ei- ríksdóttir, f. 7.6. 1957, meinatækn- ir og kennari í Reykjavík; Guðlaugur Eiríksson, f. 16.4. 1959, sendibílstjóri í Garðabæ; Ásta Ellen Eiríksdóttir, f. 14.9. 1963, húsmóðir í Danmörku. Hálfsystir Hafsteins, samfeðra, er Sigrún Aðalsteinsdóttir, f. 26.4. 1961, bókhaldari, búsett í Hafnarfirði. Foreldar Hafsteins voru Aðal- steinn Kjartansson, f. 11.5. 1925, d. 27.1. 1991, sjómaður í Reykjavík, og Aðalheiður Halldórsdóttir, f. 20.5. 1927, d. 17.9. 2005, húsmóðir í Garð- inum en síðustu árin í Reykjavík. Kjörforeldrar Hafsteins voru Númi Björgvin Einarsson, f. 1.11. 1915, d. í mars 1990, verkamaður og sjómað- ur á Patreksfirði, og Valgerður Har- aldsdóttir, f. 23.8. 1909, d. 6.11. 2002, verkakona og húsmóðir á Patreksfirði. Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Mánudagur 21. mars 2011 Til hamingju! Afmæli 21. mars Til hamingju! Afmæli 22. mars 30 ára „ Sandra Maertha Elfride Lyngdorf Sjávargötu 6, Álftanesi „ Oleksandr Kolesnyk Austurströnd 6, Sel- tjarnarnesi „ Ottó Gunnarsson Njálsgötu 58, Reykjavík „ Ólöf Ólafsdóttir Flatahrauni 1, Hafnarfirði „ Veiga Eyfjörð Hreggviðsdóttir Borgarvegi 11, Reykjanesbæ „ Sveinn Blöndal Meistaravöllum 33, Reykjavík „ Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir Birkimel 8, Reykjavík „ Ari Bjarnason Vesturgötu 22, Reykjavík „ Berglind Prunner Lambastaðabraut 2, Sel- tjarnarnesi „ Harpa Hrund Berndsen Frakkastíg 12a, Reykjavík „ Lorena Vanesa Re Sambyggð 16, Þorlákshöfn „ Jenný Friðjónsdóttir Litlakrika 1, Mosfellsbæ „ Hildur Árnadóttir Bræðraborgarstíg 24, Reykjavík „ Berglind Klara Daníelsdóttir Kristnibraut 93, Reykjavík „ Sigurdór Jónsson Eskivöllum 9a, Hafnarfirði 40 ára „ Alona Mendiolla Nueva Njálsgötu 86, Reykjavík „ Penphan Bamrungta Logafold 31, Reykjavík „ Milan Chang Guðjónsson Víðimel 42, Reykjavík „ Antonio Fulignoli Efstasundi 97, Reykjavík „ Ólöf Einarsdóttir Krókamýri 80a, Garðabæ „ Daníel Snorri Jónsson Kleppsvegi 98, Reykjavík „ Þorkell Már Hreinsson Hlíðarhjalla 62, Kópavogi „ Guðný Sigurjónsdóttir Kópavogsbarði 11, Kópavogi „ Helga Heiða Helgadóttir Álakvísl 20, Reykjavík „ Valgarður Bragason Bárugötu 8, Reykjavík „ Vilborg Helgadóttir Hólmaflöt 8, Akranesi „ Þorfinnur Skúlason Neshaga 12, Reykjavík 50 ára „ Auður Sigríður Magnúsdóttir Langholtsvegi 164, Reykjavík „ Þorsteinn Hansen Arnarheiði 14, Hveragerði „ Svanfríður H. Ástvaldsdóttir Melaheiði 9, Kópavogi „ Hafdís Erlingsdóttir Mávahrauni 19, Hafnarfirði „ Greta Sigríður Guðmundsdóttir Bólstaðar- hlíð 8, Reykjavík „ Hafdís Arnardóttir Helluvaði 1, Reykjavík „ Jón Benóný Reynisson Esjugrund 14a, Reykjavík „ Sigurður Þ. Steingrímsson Reyrengi 59, Reykjavík „ Alex Montazeri Ljárskógum 14, Reykjavík 60 ára „ Edward Wiktor Gaj Kleppsvegi 52, Reykjavík „ Guðjón Þór Ragnarsson Hátúni 10a, Reykjavík „ Svava Guðmundsdóttir Baugstjörn 8, Selfossi „ Jórunn Marinósdóttir Einholti 16a, Akureyri „ Halldóra Haraldsdóttir Ásvegi 16, Akureyri „ Margrét Jónsdóttir Hjarðarhaga 48, Reykjavík „ Jóhann Arngrímur Kristjánsson Birkihlíð 38, Reykjavík „ Gunnar Örn Pétursson Markarvegi 6, Reykjavík „ Lína Guðmundsdóttir Grandavegi 1, Reykjavík 70 ára „ Sólveig Helgadóttir Rjúpufelli 48, Reykjavík „ Gunnlaugur Jóhannsson Kleppsvegi 144, Reykjavík 75 ára „ Ásdís Guðbjörg Konráðsdóttir Linnetsstíg 2, Hafnarfirði „ Unnur Elísdóttir Lækjasmára 58, Kópavogi „ Guðmundur Stefán Jónsson Móabarði 14b, Hafnarfirði „ Guðný Sigurðardóttir Miðgarði 7, Neskaupstað „ Þóra Ingimarsdóttir Grófargili, Varmahlíð „ Friðbjörn Jónsson Hlégerði 18, Kópavogi „ Ragnheiður Hjartardóttir Suðurbraut 16, Hafnarfirði „ Guðmunda Rósa Helgadóttir Lágholti 12, Stykkishólmi 80 ára „ Ragnar Elísson Völvufelli 8, Reykjavík „ Jóhanna Ólafsdóttir Ofanleiti 3, Reykjavík „ Kristín Kristjánsdóttir Seljavegi 21, Reykjavík 85 ára „ Sigurður Marteinsson Hrafnagilsstræti 25, Akureyri „ Erna Elíasdóttir Vogatungu 71, Kópavogi „ Svanfríður Stefánsdóttir Laugarvegi 37, Siglufirði 90 ára „ Sigríður Jónsdóttir Lindargötu 66, Reykjavík 95 ára „ Kjartan Guðmundsson Grundargerði 28, Reykjavík 102 ára „ Gissur Ólafur Erlingsson Hjallaseli 55, Reykjavík 30 ára „ Laura Zubyte Borgarholtsbraut 42, Kópavogi „ Zbigniew Sulewski Langholtsvegi 19, Reykjavík „ Rakel Logadóttir Hjallavegi 46, Reykjavík „ Andri Jóhannesson Dvergholti 25, Hafnarfirði „ Ása Vala Þórisdóttir Baugakór 20, Kópavogi „ Gerður Guðmundsdóttir Löngulínu 12, Garðabæ „ Ragnheiður Titia Guðmundsdóttir Mel- gerði 29, Reykjavík „ Petra Sigrún Jósepsdóttir Lönguhlíð 9c, Akureyri „ Hildur Sigurðardóttir Flyðrugranda 2, Reykjavík „ Halldóra Ingvadóttir Lindasíðu 47, Akureyri „ Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir Grettisgötu 78, Reykjavík 40 ára „ Sigurjón Halldór Birgisson Austurvegi 30, Selfossi „ Agnar Trausti Júlíusson Lindartúni 19, Garði „ Karvel Lindberg Karvelsson Hýrumel 4, Reykholt í Borgarfirði „ Ólafur Sigurður Einarsson Galtalind 15, Kópavogi „ Þórarinn Jónsson Hálsi 1, Mosfellsbæ „ Guðrún Halldórsdóttir Hamragerði 6, Akur- eyri „ Sigríður Helga Hjartardóttir Andarhvarfi 4, Kópavogi „ Katrín Rós Gýmisdóttir Selbrekku 30, Kópavogi „ Kristján Orri Ágústsson Dísaborgum 2, Reykjavík „ Halldóra Íris Ingvarsdóttir Hólmatúni 54, Álftanesi 50 ára „ Kirsten Godsk Björk, Akureyri „ Guðmundur Elías Ingþórsson Hlíðarbraut 11, Blönduósi „ Grettir Sigurjónsson Vesturbergi 15, Reykjavík „ Þóra Jóhannesdóttir Barónsstíg 11, Reykjavík „ Selma Helga S Einarsdóttir Baughúsum 15, Reykjavík „ Ágúst Hafsteinsson Eyrarvegi 4, Akureyri „ Smári Hauksson Þverárseli 22, Reykjavík „ Bergþór Björnsson Veisu, Akureyri „ Sævar Egilsson Borg, Mjóafirði „ Sigurður Sigurðsson Sleitustöðum 1, Sauðár- króki 60 ára „ Dóra Ólafsdóttir Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavík „ Páll Hersteinsson Blesugróf 3, Reykjavík „ Benedikt V. Warén Selási 13, Egilsstöðum „ Árni Sigurðsson Hjarðarholti 9, Akranesi „ Sigríður Kristín Óladóttir Jörundarholti 15, Akranesi „ Rósa Jónsdóttir Mjóanesi, Selfossi „ Tryggvi Jónasson Stóragerði 27, Reykjavík „ Katrín Svala Jensdóttir Lyngbergi 15, Hafnarfirði 70 ára „ Magnús Magnússon Laufrima 18, Reykjavík „ Hafsteinn Þór Rósinkarsson Drekavöllum 22, Hafnarfirði „ Agnar Traustason Gilsbakka 11, Hvamms- tanga „ Guðmundur Reynir Guðmundsson Kveld- úlfsgötu 21, Borgarnesi 75 ára „ Oddný Sigurbjörg Óskarsdóttir Lyngholti 9, Akureyri „ Ragnar Imsland Miðtúni 7, Höfn í Hornafirði „ Óttar Geirsson Eyrarholti 6, Hafnarfirði 80 ára „ Hulda Eiríksdóttir Laufási 6, Garðabæ „ Þórný Þórarinsdóttir Karfavogi 32, Reykjavík „ Svava Sigurðardóttir Háaleitisbraut 115, Reykjavík 85 ára „ Dómhildur Jónsdóttir Flúðabakka 3, Blönduósi „ Jóna Sturludóttir Hraunvangi 1, Hafnarfirði 95 ára „ Agða Vilhelmsdóttir Mávahlíð 19, Reykjavík Árni fæddist í Eystri-Pétursey í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp í föðurgarði við öll venjuleg sveitastörf þess tíma. Hann hleypti heimdraganum átján ára og réðst í vinnu hjá Kaupfélagi Skaftfellinga við bifreiðaviðgerðir og afgreiðslustörf. Árni var bifreiðastjóri óslitið 1946–64. Hann keyrði m.a. vöru- flutninga- og mjólkurbíla hjá Kaup- félagi Skaftfellinga í Vík og einnig var hann við farþegaflutninga hjá Brandi Stefánssyni í Vík og hjá Leiðólfi sem Klausturs bræður ráku. Árni ók vor og haust í Öræfin með vörur fram til 1968. Þetta var áður en Jökulsá á Breiðamerkursandi var brú- uð. Fram að þeim tíma versluðu Öræf- ingar við Kaupfélag Skaftfellinga í Vík og þurfti þá að fara yfir vötnin á Skeið- arársandi óbrúuð en það gat stundum verið slarksamt. Árni sá um að gera tundurdufl óvirk sem rak á fjörur frá Kúðafljóti að Ölfusárósum á árunum 1946–48, áður en Landhelgisgæslan tók við þessu starfi. Veturinn 1951 sá Árni um að flytja póst á hestum frá Vík að Kirkjubæj- arklaustri. Hann mun því líkega vera síðasti landpósturinn á hestum yfir Mýrdalssand. Fjölskylda Árni kvæntist 9.11. 1950 Ástu Her- mannsdóttur, f. 6.3. 1930, d. 26.8. 1993, húsmóður. Hún var dóttir Her- manns Friðriks Hjálmarssonar, vél- fræðings í Reykjavík, og k.h., Dóró- theu Högnadóttur húsmóður. Sambýliskona Árna frá 1995 var Friðbjörg Guðmundsdóttir, f. 10.3. 1926, d. 30.7. 1997. Börn Árna og Ástu eru Þorsteinn, f. 4.7. 1951, vélfræðingur á Selfossi, kvæntur Arndísi Ástu Gestsdóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú börn; Sigríður Dóróthea, f. 11.7. 1952, bankastarfsmaður í Vík, gift Gunn- ari Braga Jónssyni verkamanni og eiga þau þrjú börn; Sigurjón, f. 9.7. 1957, húsasmíðameistari í Reykjavík, kvæntur Margréti Jónsdóttur skrif- stofustjóra og eiga þau þrjú börn; Her- mann, f. 4.10. 1958, frjótæknir, bú- settur á Hvolsvelli, kvæntur Sigríði Magnúsdóttur bankastarfsmanni og eiga þau þrjú börn; Elín, f. 22.7. 1961, d. 11.10. 1997, bankastarfsmaður á Selfossi en eftirlifandi maður hennar er Brynjar Jón Stefánsson tamninga- maður og eru börn þeirra tvö; Odd- ur, f. 6.5. 1965, verksmiðjustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli, búsettur að Miðkrika II í Hvolhreppi, kvæntur Ingibjörgu Ólafsdóttur bók- ara og eiga þau þrjú börn. Þá var systurdóttir Ástu, Hrafn- hildur Oddný Sturludóttir, f. 13.5. 1949, d. 28.10. 2003, til heimilis á Há- eyri frá unglingsárum og upp frá því talin eitt af börnunum. Hún var þjón- ustustúlka, búsett í Garðabæ, gift Gunnari Snorrasyni, rafeindavirkja hjá Sláturfélagi Suðurlands. Systkini Árna: Elín Sigurjóns- dóttir, f. 12.1. 1922, d. 26.8. 2008, var húsmóðir á Steinum undir Austur- Eyjafjöllum; Þórarinn Sigurjónsson, f. 26.7. 1923, fyrrv. alþm. að Laugar- dælum. Hálfbræður Árna, samfeðra: Eyjólfur Sigurjónsson, f. 15.6. 1947, bifreiðastjóri, búsettur að Eystri- Pétursey; Sigurður Sigurjónsson, f. 17.12. 1949, d. 8.6. 2000, bifreiðastjóri í Eystri-Pétursey. Þá ólust upp í Eystri-Pétursey Bergur Örn Eyjólfs, f. 28.10. 1938, d. 30.12. 1996, vélvirkjameistari í Vík, en hann var sammæðra Eyjólfi og Sigurði; Þórhallur Friðrikson, f. 4.11. 1913, d. 29.1. 1999, staðarsmiður og ökukennari á Skógum; Sigurbjart- ur Jóhannesson, f. 9.11. 1929, bygg- inga- og skipulagsfræðingur, búsett- ur í Kópavogi. Foreldrar Árna voru Sigurjón Árnason, f. 17.4. 1891, d. 27.7. 1986, bóndi að Eystri-Pétursey í Mýrdal, og Sigríður Kristjánsdóttir, f. 13.5. 1884, d. 16.2. 1941, húsfreyja. Ætt Sigurjón var sonur Árna, b. í Péturs- ey, bróður Högna, föður Sveinbjörns alþm., föður Sváfnis prófasts. Árni var sonur Jóns, b. í Pétursey Ólafssonar, af ætt Presta-Högna. Móðir Sigurjóns var Þórunn, syst- ir Ragnhildar, móður Sveinbjörns Högnasonar alþm. Þórunn var dóttir Sigurðar í Pétursey Eyjólfssonar. Sigríður var dóttir Kristjáns, b. á Hvoli í Mýrdal Þorsteinssonar, b. á Hvoli Magnússonar. Móðir Þorsteins var Sigríður, systir Þorsteins á Hvoli og Bjarna amtmanns, föður Stein- gríms Thorsteinssonar skálds. Móðir Sigríðar var Elín Jónsdóttir, b. í Eystri-Sólheimum Þorsteinsson- ar og Ingibjargar, systur Ísleifs, lang- afa Einars Ágústssonar ráðherra. Ingi- björg var dóttir Magnúsar, hreppstjóra á Kanastöðum, bróður Þorsteins, afa Eggerts alþm. í Laugardælum. Hafsteinn Númason leigubifreiðastjóri í Reykjavík 85 ára á mánudag 60 ára á þriðjudag Árni Sigurjónsson fyrrv. bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.