Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Síða 8
8 | Fréttir 21. mars 2011 Mánudagur
Dæmdur í árs fangelsi:
Greip í læri
bílstjórans
Héraðsdómur Austurlands dæmdi
fyrir helgi karlmann á fimmtugs-
aldri í tólf mánaða fangelsi. Mað-
urinn var meðal annars ákærður
fyrir að grípa um innanvert læri
ökumanns bifreiðar á Norðfjarð-
arvegi og slökkva aðalljós hennar
í nóvember árið 2009. Afleiðing-
arnar voru þær að ökumaður-
inn missti stjórn á bifreiðinni sem
rann yfir á rangan vegarhelm-
ing. Hann var svo ákærður fyrir
að leggja hníf að andliti farþega í
bílnum. Sá náði að kasta sér aftur
og segja höndina fyrir sig þannig
að hnífurinn lenti á handarbaki
hægri handar. Hlaut farþeginn sjö
sentímetra langan skurð á handar-
bakið fyrir vikið. Maðurinn var
einnig ákærður fyrir að skera ann-
an farþega bifreiðarinnar í fram-
handlegg. Loks var hann ákærður
fyrir ölvunarakstur og í kjölfarið
fyrir að hóta lögregluþjónum of-
beldi.
Maðurinn sagði fyrir dómi að
hann hefði sofnað í bifreiðinni
umrætt kvöld en vaknað þeg-
ar búið var að koma strigapoka
yfir andlit hans. Hann hafi heyrt
farþegana í bílnum segja að það
ætti að drepa hann og hann ætti
að enda í höfninni. Dómara þótti
framburður mannsins ótrúverð-
ugur og var hann því dæmdur í tólf
mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir brotin. Hann rauf skilorð
dóms sem hann hlaut árið 2009
fyrir fjórar líkamsárásir. Auk þess
að sæta tólf mánaða fangelsi var
manninum gert að greiða 140 þús-
und krónur í sekt og sæta ökuleyf-
issviptingu í eitt ár. Þá var honum
gert að greiða rúmar 580 þúsund
krónur í sakarkostnað.
Afmælistilboð Domo
BBQ svínarif, franskar eða bökuð kartafla og hrásalat 1.490 kr.
Þingholtsstræti 5 - Sími 552 5588
domo.is
„Til grundvallar ákvörðuninni lá
ennfremur fyrri samskiptasaga
viðskiptavinarins gagnvart þessum
starfsmanni heilsuræktarstöðvar-
innar,“ segja stjórnendur Hreyfing-
ar sem hafna því alfarið að ástæð-
ur þess að séra Pálma Matthíassyni
var meinað að koma aftur í stöð-
ina, eftir að hafa stundað þar lík-
amsrækt í 23 ár, hafi verið jafn sak-
leysisleg og séra Pálmi gaf til kynna
í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér
á föstudag.
„Algjört óviljaverk“
Þar segir séra Pálmi: „Í tíman-
um var þjálfað Body Combat, sem
byggir m.a. á spörkum og kýling-
um út í loftið, án snertingar, í átt
að ímynduðum andstæðingi. Ég
var staðsettur fremst í hópnum
næst kennaranum. Í hléi milli laga
var ég að huga að þessari þjálfun
og sparkaði í gáleysi út í loftið. Ég
gætti ekki nægilega að umhverfi
mínu, og hitti með ristinni á utan-
og ofanverðan afturhluta kennar-
ans. Þetta var algjört óviljaverk og
enginn ásetningur til staðar. Að
sjálfsögðu bað ég hlutaðeigandi
strax velvirðingar og afsökunar og
tíminn hélt áfram.“
Brotnaði niður
Eins og DV greindi frá á föstu-
daginn taldi umræddur starfs-
maður þetta ekki fyrsta skipti sem
séra Pálmi hefði farið yfir mörkin
í þeirra samskiptum. Samkvæmt
heimildum DV brotnaði konan
niður eftir tímann og grét sáran,
en séra Pálmi fermdi hana á sínum
tíma. Eftir þetta atvik ætlaði hún að
láta af störfum hjá stöðinni til að
komast hjá frekari samskiptum við
hann. Í samtali við DV sagðist hún
hafa ákveðið að tala ekki um þetta
við neinn og vildi því ekki tjá sig
um málið.
Mið tekið af fyrri
samskiptasögu
Ágústa Johnson, framkvæmda-
stjóri Hreyfingar, vildi heldur ekki
tjá sig um málið en stjórn Hreyf-
ingar sendi frá sér yfirlýsingu. Þar
var tekið fram að Hreyfing tjái sig
ekki um málefni einstakra við-
skiptavina, en vegna yfirlýsingar
séra Pálma væri óhjákvæmilegt að
eftirfarandi kæmi fram: „Ekki var
verið að iðka sparkæfingar í hóp-
tímanum þegar viðskiptavinur-
inn sparkaði í rass starfsmannsins
sem var að leiðbeina í tímanum.
Starfsmaðurinn, sem er kona, var
að útskýra næstu æfingalotu, nán-
ar tiltekið armbeygjur og spretti
á staðnum þegar hann sparkaði í
hana.“
Þá segir einnig að séra Pálmi
hafi ekki beðist afsökunar á fram-
ferði sínu líkt og hann sagði á
föstudag. „Ákvörðun um lokun að-
gangskortsins var tekin að vel at-
huguðu máli eftir að farið hafði
verið yfir atburðarás með starfs-
manninum og þátttakendum í um-
ræddum hóptíma, sem urðu vitni
að þessu atferli viðskiptavinar-
ins. Til grundvallar ákvörðuninni
lá ennfremur fyrri samskiptasaga
viðskiptavinarins gagnvart þessum
starfsmanni heilsuræktarstöðvar-
innar.“
Heldur nöturlegt
Atvikið átti sér stað í Body Com-
bat-tíma sem hófst klukkan sex að
morgni fimmtudags þann 10. mars.
Í kjölfarið var séra Pálma sent bréf
þess efnis að hann væri ekki vel-
kominn aftur í stöðina. Undir það
skrifuðu þau Ágústa og Grímur
Sæmundsen, stjórnarformaður
Hreyfingar.
Sagði séra Pálmi að enginn frá
Hreyfingu hefði rætt við sig vegna
málsins og gagnrýndi hann þau
vinnubrögð. „Þykir mér það held-
ur nöturlegt eftir að hafa verið
samfellt í 23 ár í viðskiptum hjá
þessari líkamsræktarstöð og for-
verum hennar.“
Í yfirlýsingu frá stjórnendum
Hreyfingar segir aftur á móti að
það hafi verið reynt: „Reynt var
ítrekað að ná í viðskiptavininn í
síma til að upplýsa hann um þá
ákvörðun sem óumflýjanlega hlaut
að leiða af framkomu hans í garð
starfsmannsins, en án árangurs.
Þegar það tókst ekki var honum
sendur tölvupóstur, þar sem hann
var upplýstur um ákvörðunina og
ástæður hennar.“
Algjört undantekningartilvik
Pálmi lauk yfirlýsingunni sem
hann sendi frá sér á föstudag með
þeim orðum að hann óskaði bæði
starfsfólki Hreyfingar og þeim sem
þar æfa alls hins besta í framtíð-
inni: „Ég harma þetta atvik og er
sorgmæddur ef ég hef valdið góð-
um og dugmiklum kennara sárs-
auka með gáleysislegri framkomu
og árétta hér með afsökun mína til
hlutaðeigandi.“
Í yfirlýsingunni frá Hreyfingu er
það hins vegar tekið fram að við-
skiptavini sé ekki vísað úr heilsu-
ræktarstöðinni „nema í algerum
undantekningatilvikum og þá að-
eins ef aðrar lausnir eru ekki taldar
færar.“ Lýkur henni svo með þeim
orðum að yfirlýsing séra Pálma sé
„ekki í nokkru samræmi við upplif-
un viðkomandi starfsmanns, vitna
eða annarra starfsmanna heilsu-
ræktarstöðvarinnar.“
Málinu ekki vísað áfram
Málinu hefur hvorki verið vísað
til Biskupsstofu né fagráðs kirkj-
unnar. Í siðareglum Prestafélags
Íslands segir meðal annars að
prestur sé fulltrúi kirkju sinnar og
stéttar: „Hann gætir þess í starfi og
einkalífi að hafa virðingu kirkjunn-
ar og sóma stéttarinnar í heiðri.“
Biskups stofa telur þó ekki ástæðu
til þess að bregðast við samkvæmt
Árna Svan Daníelssyni: „Þetta ger-
ist í frítíma hans og hefur ekki borist
með formlegum hætti til Biskups-
stofu þannig að okkur finnst ekki
rétt að tjá okkur um það. Ef einhver
málsaðila myndi leita til Biskups-
stofu þá myndum við skoða það.“
„Yfirlýsing séra
Pálma sé „ekki í
nokkru samræmi við upp-
lifun viðkomandi starfs-
manns, vitna eða annarra
starfsmanna heilsurækt-
arstöðvarinnar.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
n Séra Pálma Matthíassyni vísað úr Hreyfingu
n Sparkaði í rassinn á kennara n „Óviljaverk,“
segir séra Pálmi n Starfsmaðurinn fékk nóg
n Undantekning að viðskiptavini sé vísað frá
BROTNAÐI
NIÐUR
OG GRÉT
Séra Pálmi Matthíasson Sagði
atvikið óviljaverk, hann hafi ekki gætt
nægilega vel að umhverfi sínu og hitt
með ristinni á utan- og ofanverðan
afturhluta kennarans.
Ágústa Johnson Stjórnendur Hreyfingar
segja það algjört undantekningartilvik að
viðskiptavini sé vísað frá. Það sé aðeins gert
ef aðrar leiðir séu ekki taldar færar. Ákvörð-
unin hafi verið tekin að vel athuguðu máli.
Vísað frá eftir 23 ára viðskipti Atvikið átti sér stað að
morgni fimmtudagsins 10. mars. Í kjölfarið fékk starfsmað-
urinn nóg og ætlaði að láta af störfum til þess að komast
hjá frekari samskiptum við séra Pálma. Hann var því beðinn
um að koma ekki aftur, eftir að hafa stundað líkamsrækt
þarna í 23 ár. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
Árétting
Í myndatexta um lokun bókasafna á
Landspítalanum í helgarblaði DV urðu
þau mistök að vitlaust nafn var skrifað
við myndina. Myndin var af Oddrúnu
Kristjánsdóttur en ekki Hrafnhildi
Hreinsdóttur.