Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Blaðsíða 15
Sparnaður í kaffikaupum Í kreppu má hugsa upp hin ýmsu ráð til að spara krónur hér og þar. Eitt af þeim ráðum má finna á matarkarfan.is en þar er bent á að þótt kaffi sé ekki með dýrari drykkjum megi spara talsvert í kaffikaupum. Þar sem flestir geta ekki hugsað sér að sleppa kaffinu algjörlega má benda á að ef búið er að hella upp á og kaffið orðið volgt má skerpa á því í örbylgjunni í stað þess að hella upp á nýtt. Þar segir einnig að vel megi rökræða um hvort það sé betra að láta kaffið haldast heitt á hellunni og brenna smám saman eða bara hita það upp eftir þörfum í örbylgjunni. Samkaup-Úrval dýrast ASÍ kannaði verð í 4 lágvöruverðverslunum og 4 stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu mánudaginn 14. mars. Í niðurstöðum könnunar- innar kemur í ljós að Bónus var oftast með lægsta verðið en hæsta verðið var oftast að finna í Samkaupum-Úrvali. Af þeim 78 vörutegundum sem skoðaðar voru var Samkaup- Úrval með hæsta verðið í 38 tilvikum, Nóatún í 26 tilvikum og Hagkaup í 18 tilvikum. Hjá Bónus var verðið lægst á 31 vörutegund af þeim 78 sem skoðaðar voru. Kostur var með lægsta verðið í 20 tilvikum. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. Sjóðum sokkana í sítrónu Eftir nokkra þvotta hætta hvítir sokkar að vera eins skjannahvítir og þegar þeir voru nýkeyptir. Á heilsubankinn.is má finna ráð við því án þess að nota klór en til þess að fá þá hvíta aftur er hægt að sjóða þá í vatni með nokkrum sítrónusneiðum. Þá ættu þeir að verða skjannahvítir en sítrónan virkar sem náttúrulegt bleikiefni. Ódýrt og náttúruvænt húsráð sem allir geta tileinkað sér. Neytendur | 15Mánudagur 21. mars 2011 Hver Íslendingur borðar 18,5 kíló af sælgæti að meðaltali á ári: Óhollusta slæm fyrir náttúruna Við vitum að sælgæti, skyndibitar og gosdrykkir eru slæmir fyrir heils­ una. Nú sýnir hins vegar ný rann­ sókn að þessi matvæli eru einn­ ig skaðlegri en holl matvæli fyrir umhverfi okkar og hafa slík um­ hverfisáhrif aldrei verið skjalfest áður. Þessar upplýsingar má finna á heimasíðu Norrænu ráðherra­ nefndarinnar, norden.org. Í rannsóknarskýrslu ráðherra­ nefndarinnar kemur fram að eitt kíló af kartöfluflögum veldur tutt­ ugu sinnum meiri koltvísýrings­ losun en sama magn af nýjum kart­ öflum. Sælgæti hefur enn verri áhrif á umhverfið þó sætir drykkir valdi ekki eins miklum skaða. Umhverfis­ mengun er því ekki einungis háð því hvað framleiðslufyrirtækin og land­ búnaðurinn losar út í náttúruna. Það sem einstaklingar borða hefur einnig áhrif. Íslendingar borða langmest Norðurlandaþjóða af sælgæti og óhollri fæðu en að meðaltali inn­ byrðir hver Íslendingur 18,5 kíló af sælgæti og súkkulaði og 151 lítra af gosdrykkjum á ári. Danir eru í öðru sæti í sælgætisáti, þeir innbyrða 16,8 kíló af sælgæti og drekka 74 lítra af gosdrykkjum að jafnaði á ári. Þá borðar meðal Daninn 1,1 kíló af kartöfluflögum á ári. Svíar og Norð­ menn eiga hins vegar metið í kart­ öfluflöguáti; hver Svíi borðar 1,6 kíló yfir árið og hver Norðmaður hvorki meira né minna en 2,7 kíló. Ekki eru til tölur yfir kartöfluflöguát Íslendinga. Rannsóknin, sem er byggð á lífs­ ferlagreiningu ofangreindra fæðu­ hópa, sýnir að að meðaltali borð­ um við helmingi meira sælgæti nú en fyrir 50 árum og drekkum fjórum sinnum meira af gosdrykkjum. Það má því segja að þegar þú nýtur þess að borða helgarnammið eða færð þér poka af kartöfluflögum streymi gróðurhúsalofttegundir út í and­ rúmsloftið. gunnhildur@dv.is Koltvísýringslosun Umhverfismengun er ekki einungis háð því hvað framleiðslufyrir- tækin losa út í náttúruna. MYND PHOTOS.COM Hugsum málið í 20 daga Spara má umtalsverðar upphæðir nái maður tökum á svokallaðri 20 daga reglu. Matarkarfan.is fjallar um þessa reglu og þar segir að hún virki á þann veg að þegar óstjórnleg löngun til að kaupa einhvern hlut hellist yfir þig skuli merkja við á dagatalinu hvaða dag það var. Svo tekur við 20 daga bið. Að henni lokinni skaltu íhuga hvort þig langi enn í umræddan hlut. Ef svo er skaltu tvímælalaust kaupa hann. Hjá flestum hefur þó löngunin óstjórn­ lega hjaðnað það mikið að hægt er að spyrja sjálfan sig á skynsamlegum nótum: „Þarf ég þennan hlut eða ekki? Það er spurningin.“ Oftast er þá svarið nei. Engar innihalds- lýsingar við nammibari Reglum um innihaldslýsingar er sjaldan fylgt við nammibari í verslunum. Þetta kemur fram í nýútkomnu Neytendablaði en þar segir að nær undantekningalaust sé slíkum merkingum ábótavant við nammibari. Samtökin hafi því sent heilbrigðiseftirlitum sveitar­ félaga erindi þar sem óskað er eftir að ástandið verði kannað og bætt úr málum þar sem þess er þörf. BÖRN FÁ ÓHOLLAN MAT Í SKÓLANUM sé það orðið þannig að margir, ef ekki flestir, foreldrar fái heitan mat í hádeginu á sínum vinnustöðum og finnist gott að vita að börnin fái hið sama. Eins sé staðan í samfé­ laginu þannig að margir hafi ein­ faldlega ekki efni á heitum mat á hverju kvöldi. Því líst þeim illa á þá hugmynd að leggja niður eldhúsin og láta börnin koma með nesti að heiman. „Heitur matur í hádeginu í skólum landsins er því það síðasta sem ætti að skera niður. Það þarf þvert á móti að efla vegsemd hans og gera hann að mikilvægari þætti í skólastarfinu.“ Koma málinu í réttan farveg „Málaflokkar barna og gamalmenna eiga það til að gleymast dálítið í um­ ræðunni sem okkur finnst sorglegt. Kannski er það af því að raddir þess­ ara hópa eru ekki háværar. Er ekki okkar, sem erum þarna mitt á milli þessara hópa í aldri, að hugsa um slík mál fyrir þessa hópa? Hvernig væri þá að sameinast um að koma þessu eina máli í réttan farveg og fara svo að vinna í hinum?“ spyrja þær og benda á að þetta sé í raun óskiljanlegt þar sem við vorum öll einu sinni börn, eigum flest börn og verðum vonandi öll gamalmenni. Lítil viðbrögð frá borgaryfirvöldum Þær stöllur hafa kynnt mál sitt með­ al annars fyrir borgarstjóranum og boðið fram aðstoð sína en segjast ekki hafa fengið nein viðbrögð að ráði. Þær ræddu einnig við mennta­ ráð og hafa átt skoðanaskipti þar við ýmsa. „Við vitum ekki alveg hve mik­ ill vilji er fyrir hendi að taka á málum þar. Helsti misskilningurinn þar, að okkar mati, er að þau gera sér ekki grein fyrir alvarleika málsins heldur reiða sig um of á sömu aðilana sér til ráðleggingar. Þessir aðilar hafa verið þar í mörg ár og ákveðin stöðnun er því í gangi. Stundum tekur það fólk svolítinn tíma að átta sig á hlutun­ um og við vonum að svo sé í þessu tilfelli.“ Auðvelt að laga ástandið Sigurveig, Margrét og Sigurrós eru sannfærðar um að það sé ekki flókið að laga ástandið og tryggja að börnin okkar fái góðan og hollan mat í skól­ unum. Þær segja þetta of miðstýrt og því lítið hægt að gera í hverjum og einum skóla. Undarlegt sé að skóla­ maturinn sé ekki í höndum skólanna sjálfra. „Það eru allir skólar með sína menntastefnu. Af hverju geta þeir ekki verið með sína matarstefnu og borið ábyrgð á henni?“ segja þær og nefna sem dæmi að á haustin þegar skólar hefjast sé haldinn fundur með kenn­ urum. Þar er vetrarstarfið kynnt og spurningum svarað. Að þeirra mati gæti verið svipað fyrirkomulag með kokkana og matreiðslufólkið. Starfs­ fólk mötuneytanna gæti kynnt sitt vetrarstarf og hver stefnan verði í mat­ armálum barnanna þann veturinn. Rammasamningarnir slæmir Þær hafa fengið heilmikil við­ brögð við skrifum sínum og um­ mælum, bæði frá foreldrum al­ mennt en einnig frá starfsmönnum skólamötu neyta sem hafa tekið þessu eins og árás á þá. „Við viljum taka það fram að við erum alls ekki að gagnrýna kokkana og matreiðslu­ mennina sjálfa. Það er allt kerfið sem þarf að laga og breyta. Til dæmis eru rammasamningarnir um innkaup á hráefnum slæmir og skrýtið að kokkarnir fái ekki að ráða hvað þeir kaupa.“ Þeim hafa borist hvatningar­ póstar frá fólki sem þakkar þeim fyrir að hafa komið umræðunni af stað og foreldrar eru farnir að vera meðvit­ aðri, spyrja spurninga og gera kröf­ ur. Þær hvetja foreldra til að gera það í skólunum. „Það virðist ekki vera hægt að fara í málin fyrr en þrýst­ ingurinn er orðinn óþægilega mikill fyrir þá sem eiga að taka á málunum. Kannski verður þessu eitthvað farið að miða áfram þegar líður að næstu kosningum.“ Þetta er á boðstólum Nú eru matseðlar skólanna venjulega á heimasíðum þeirra og auðvelt að skoða þá. Hins vegar verður að segjast eins og er að fyrir foreldra getur verið erfitt að gera sér grein fyrir hvað stendur á bak við hvern rétt. Sigurveig, Margrét og Sigurrós taka sem dæmi matseðil sem fenginn var úr grunnskóla í Reykjavík en þær vilja taka fram að hann er hvorki verri né betri en aðrir sem þær hafa skoðað. Fyrir aftan hvern rétt eru athugasemdir eða spurningar sem vöknuðu hjá þeim þegar þær sáu matseðilinn. Þær segja þetta spurningar sem foreldrar ættu að einnig að spyrja: n Steiktar fiskbollur - Hvaðan? Úr hverju? Hvað er með þeim annað en hrísgrjón og hvernig hrísgrjón eru þetta? n Plokkfiskur - Í lagi ef hann lagaður á staðnum. n Steiktur fiskur með kartöflum og remúlaði - Er fiskurinn panneraður á staðnum eða kemur hann tilbúinn í raspinu og jafnvel forsteiktur? n Gufusoðinn lax með spínatsósu - Fínn matur. Hljómar ekkert ótrúlega girnilega en er hollari en margt annað þarna. n Nætursaltaður fiskur með kartöflum - Nætursaltaður er bara annað nafn yfir fisk sem er ekki nógu góður til að selja ferkan. Alltof mikið salt í honum. Eru kartöflurnar forskrældar og næringarlausar? n Djúpsteiktur fiskur með kokteilsósu og hrísgrjónum - Djúpsteiktur! Kokteilsósa! n Kjúklinga cordon bleu - Kemur liklegast tilbúið, foreldað og blandað alls kyns aukadrasli. n Kjötfarsbollur - Kjötfars! Segir allt sem þarf. n Sænskar kjötbollur - Þær eru yfirleitt einu kjötbollurnar sem eru úr hakki. En hvernig hakki? Yfirleitt koma þær tilbúnar og forsteiktar. n Blómkálssúpa - Er hún gerð frá grunni? Er hún bökuð upp og blómkál notað í hana eða er hún úr pakka með aukaefnum og salti? n Pastaréttir - Hvað? Hvernig? Ansi oft er um að ræða beikonpasta eða skinkupasta á matseðlum. Erum við að tala um það? n Salatbar - Þetta er hið besta mál en það strokar ekki út hina óhollustuna. Hljómar vel en eru öll börnin að fá sér? n Kakósúpa n Grillaðar pylsur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.