Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Page 17
Erlent | 17Mánudagur 21. mars 2011 Ísbjörninn Knútur hneig niður á laugardag og drapst: Knútur var þunglyndur Ísbjörninn Knútur, sem er án vafa frægasti ísbjörn í heimi, drapst á laug- ardag. Knútur, sem varð fjögurra ára í desember, hneig niður í dýragarðinum í Berlín fyrir framan augu fjölmargra gesta. Ekki er enn vitað hvað olli dauða Knúts en vonast er til að krufning geti varpað ljósi á hinn dularfulla dauð- daga bjarnarins. Knútur var staddur einn á ísbjarna- svæði dýragarðsins en hinir birnirn- ir, Katyusha, Nancy og Tosca, sem er jafnframt móðir Knúts, höfðu þá þegar verið lokaðir af í búrum sínum. Starfs- fólk dýragarðsins, sem og gestir, voru í miklu uppnámi eftir skyndilegan dauða Knúts. Klaus Wovereit, hinn lit- ríki borgarstjóri Berlínar, gat ekki leynt sorg sinni í viðtali við Berliner Zeitung. „Þetta er hræðilegt. Hann átti sérstak- an stað í hjörtum okkar allra. Hann var stjarnan í dýragarðinum í Berlín.“ Knútur öðlaðist heimsfrægð sem lítill krúttlegur ísbjarnarhúnn sem varð eftirlæti allra í dýragarðinum í Berlín. Móðir hans hafnaði honum þegar hann var nýkominn í heiminn og var Knútur því alinn upp af starfs- fólki dýragarðsins. Þar fór fremstur Thomas nokkur Dörflein sem gekk Knúti í móðurstað. Hann gaf honum reglulega mjólk úr pela sem þótti ein- staklega krúttlegt sjónarspil. Skyndi- lega voru stofnaðir aðdáendaklúbbar fyrir ísbjarnarhúninn um víða veröld, meðal annars í Japan og í Bandaríkj- unum. Dörflein lést árið 2008 á dular- fullan hátt, en hann var aðeins 44 ára að aldri. Talið er víst að fráfall Dörfleins hafi haft mikil áhrif á Knút, en heilsu hans fór talsvert að hraka í kjölfar and- láts Dörfleins. Knútur var talinn þjást af þunglyndi og einnig var greinilegt að hinir birnirnir lögðu hann í einelti. Einelti Þekkir þú einhvern sem hefur orðið fyrir einelti í grunnskóla? Fullum trúnaði heitið. Hvort sem er í nútíð eða fortíð? Leggðu baráttunni gegn einelti lið með því að taka þátt í stuttri könnun. Sendu tölvupóst á : eineltiumalltland@gmail.com og óskaðu eftir þátttöku. „Við lofum ykkur löngu stríði,“ sagði Muammar al-Gaddafi, leiðtogi Líbíu, í sjónvarpsávarpi til líbísku þjóðar- innar á laugardag. Tilefni ávarpsins var sprengjuárásir bandamanna sem hófust á laugardag þegar franskar herþotur vörpuðu sprengjum á val- in skotmörk nálægt hafnarborginni Bengasi sem hefur verið höfuðvígi uppreisnarmanna í Líbíu. Frönsku herþoturnar eyðilögðu skriðdreka og brynvarðar bifreiðar stjórnarsinna sem höfðu verið að færa sig nær Beng asi með hverjum degi. Frétta- stofan AP sagði frá því að uppreisn- armenn hefðu verið þakklátir og að frönsku herþoturnar hefðu komið á síðustu stundu. Á sunnudagsmorgun hófust síð- an sprengjuárásir Bandaríkjamanna og Breta, en markmið þeirra var að eyðileggja loftvarnakerfi líbíska hers- ins. Flugvellir sem og líbískar herþot- ur voru sprengdar á jörðu niðri. Mike Mullen, aðmíráll í bandaríska sjó- hernum, sagði við fréttastöðina NBC á sunnudag, að sprengjuárásin hefði skilað árangri og að nú væri enga líb- íska herþotu að sjá. Ályktun 1973 Árás bandamanna kemur í kjölfar fundar öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna á fimmtudag þar sem ályktun númer 1973 var samþykkt. Ályktunin kvað á um að koma þyrfti á flugbanni yfir Líbíu og jafnframt að hlutaðeig- andi ríki myndu „beita öllum mögu- legum úrræðum, fyrir utan hernám, til að vernda almenning í Líbíu.“ Það voru 10 ríki af 15 sem samþykktu ályktunina en fimm ríki sátu hjá. Þar á meðal voru Þjóðverjar sem hafa ítrekað að þeir ætli ekki að senda herlið til Líbíu. Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði að þrátt fyrir að Þjóðverjar hefðu setið hjá í atkvæðagreiðslunni væru þeir hlynntir íhlutun bandamanna svo lengi sem Gaddafi hyrfi frá völd- um. Hann tilkynnti einnig að Þýska- land myndi leggja fram fimm millj- ónir evra til enduruppbyggingar og til aðstoðar líbískum flóttamönn- um. Ríkin sem taka þátt í aðgerðum bandamanna eru Bandaríkin, Bret- land, Kanada, Frakkland og Ítalía. Gaddafi gefst ekki upp Í sjónvarpsávarpi sínu á laugardag var Gaddafi ekki á þeim buxunum að gefast upp. „Við munum berjast, tommu fyrir tommu,“ sagði hinn sjóaði leiðtogi. Strax eftir að álykt- un 1973 var samþykkt á fimmtudag sendi Gaddafi öryggissveitum sínum opinbera skipun um að leggja nið- ur vopn sín. Uppreisnarmenn tjáðu hins vegar fjölmiðlamönnum í Beng- asi að þetta hefði bara verið yfirskin, menn Gaddafis notuðu vopn sín ennþá óspart. Sprengjuárás Bandaríkjamanna á sunnudag var mjög umfangsmik- il. Kafbátar og herskip skutu alls 110 stýriflaugum af gerðinni Tomahawk á valin skotmörk nálægt höfuðborg- inni Trípólí, Bengasi og einnig borg- inni Misrata í vesturhluta landsins. Yfirvöld í Líbíu sögðu að 64 hefðu fallið í árásinni og að minnsta kosti 150 væru alvarlega særðir. Þessar töl- ur fengust þó ekki staðfestar. n Sameiginlegt herlið vesturvelda hóf sprengjuregn á Líbíu á laugardag n Upp- reisnarmenn segja að hjálpin hafi borist á síðustu stundu n Gaddafi ætlar að berjast til síðasta manns Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is „Við lofum ykkur löngu stríði. SPRENGJUM RIGNIR Í LÍBÍU Sprengjur á loft Bandaríska her- skipið USS Preble skýtur Tomahawk- eldflaug á loft á sunnudag. Sorg í Berlín Gestir dýragarðsins í Berlín keppast við að leggja blóm hjá ísbjarna- svæðinu þar sem Knútur bjó. De Niro ber vitni Bandaríski stórleikarinn Robert De Niro þurfti að mæta í dómsal í síð- ustu viku til að bera vitni gegn konu sem er sökuð um að hafa dregið sér háar upphæðir sem fengust við sölu á listaverkum Roberts De Niro eldri, föður leikarans geðþekka. Leigh Morse heitir konan og er henni gefið að sök að hafa stungið um 50 þúsund dölum undan þegar hún seldi tvö verk De Niro. Robert De Niro eldri átti velgengni að fagna sem málari. Listasafn Íslands sýndi nokkur verk kappans sumarið 2009, í samfloti við verk Nínu Tryggvadótt- ur og Louisu Matthíasdóttur. Þau voru miklir vinir og lærðu tökin hjá listmálaranum Hans Hoffmann. Evrópuþingmaður segir af sér Ernst Strasser, fyrrverandi innan- ríkisráðherra Austurríkis, hefur sagt af sér þingmennsku í Evr- ópuþinginu. Afsögn hans kemur í kjölfar blaðagreinar þar sem komst upp um stórfellda spill- ingu af hálfu Strassers. Blaða- maður fékk hann til að ljóstra upp um tekjur sínar sem nema um 80 milljónum króna og eru tilkomnar vegna lagafrumvarpa sem voru skrifuð upp af fjármálafyrirtækj- um og bönkum. Flest voru sam- þykkt og sneru að því að minnka eftirlit með fjármálastarfsemi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.