Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 4
4 | Fréttir 9. maí 2011 Mánudagur Almennir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins hunsuðu fundarboð leiðtoganna: Erindi fyrir tómum sal Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf­ stæðisflokksins, og Ólöf Nordal, varaformaður flokksins, hafa undan­ farið farið fyrir fundarherferð um landið til þess að fara yfir flokksmál­ in með almennum flokksmönnum. Heimildir DV herma að þátttakan á fundum þeirra á Ísafirði og Borgar­ nesi hafi verið afar dræm. Dræmust var þó mætingin á fund leiðtoganna sem haldinn var í Sjálf­ stæðishúsinu á Selfossi síðastliðið fimmtudagskvöld. Herma heimildir blaðsins að af þeim 800 flokksmönn­ um sem boðaðir voru á fundinn, hafi einungis fimm mætt. Á meðal þeirra sem mættu, samkvæmt heimildum DV, voru formaður Sjálfstæðisflokks­ ins í Árborg, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Árborg, einn fyrrverandi þingmaður flokksins og tveir óbreyttir flokksmenn. Þrátt fyrir þessa dræmu mætingu fluttu leið­ togarnir erindi sín á fundinum enda er slíkt alltaf gert. Ólafur H Jónsson, formaður full­ trúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ár­ borg, sat fundinn. Hann segir í samtali við DV að ástæðu þessarar dræmu þátttöku megi rekja til þess að fundurinn hafi ekki verið form­ lega auglýstur. Hann segir hið rétta vera að sex flokksmenn hafi mætt á fundinn en ekki fimm eins og heim­ ildir DV herma. Þá segir hann það vera rétt að fundarboð hafi verið sent á alla flokksmenn, en telur dræma mætingu ekki endilega vera til marks um litla trú flokksmanna á eigin flokki. Aðspurður um samanburð á mætingunni nú og áður segir Ólaf­ ur erfitt að bera slíkt saman: „Það er voðalega misjafnt hversu margir mæta þegar fundir eru boðaðir með þessum hætti. Það þarf náttúrulega að auglýsa þá en það var ekki gert í þetta skipti. Þetta var nú bara óform­ legt spjall í rauninni, ekki beinn fundur.“ jonbjarki@dv.is Betra loft betri líðan Airfree lofthreinsitækið • Eyðir frjókornum og svifryki • Vinnur gegn myglusveppi og ólykt • Eyðir bakteríum og gæludýraflösu • Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi Hæð aðeins 27 cm Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Móðir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Kristínar Jóhannesdóttur, Ása K. Ás­ geirsdóttir, hefur fallið frá tæplega 180 milljóna króna kröfu sem hún átti á hendur eignarhaldsfélaginu KJ eign­ arhaldi sem er í eigu hennar og Krist­ ínar. Þetta kemur fram í gögnum frá embætti ríkisskattstjóra um KJ eign­ arhald sem DV hefur undir höndum. Tilgangur KJ eignarhalds er að halda utan um nærri tíu prósenta hlut í fjármálafyrirtækinu Auði Capi­ tal. Kristín, sem meðal annars var framkvæmdastjóri fjárfestingarfélags Gaums á árunum fyrir hrun, á 86 pró­ senta hlut í félaginu og Ása á 14 pró­ senta hlut. Á sínum tíma sat Kristín í stjórn Auðar Capital vegna þessa eignarhlutar síns í fyrirtækinu. Af ársreikningum félagsins að dæma lánaði Ása félaginu 180 millj­ ónir króna fyrir hlutnum í Auði Capi­ tal árið 2007. Um var að ræða skamm­ tímalán samkvæmt ársreikningi KJ eignarhalds fyrir árið 2007 en þá átti Kristín félagið ein. Frá því að þetta gerðist hefur Ása eignast 14 prósenta hlut í félaginu og er því einn hluthafa þess í dag eins og áður segir. 180 milljóna aukning Í ágúst 2009 var hlutafé KJ eignarhalds aukið um nærri 180 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu sem send var til ríkisskattstjóra í september 2009. Á sama tíma færðist heimilisfang félagsins á heimili Ásu. Þessi hluta­ fjáraukning var fjármögnuð með þeim hætti að Ása féll frá 180 millj­ óna kröfum sínum á hendur félaginu en sú krafa var upphaflega tilkomin vegna kaupanna á hlutabréfunum í Auði Capital árið 2009. „Nýir hlut­ ir verða greiddir á þann hátt að Ása Karen Ásgeirsdóttir, 031242­3989, fellur frá kröfum sínum á hendur fé­ laginu.“ Þessi niðurfærsla gerði það að verkum að skammtímaskuldir KJ eignarhalds fóru frá því að vera tæp­ lega 180 milljónir króna í árslok 2008 og yfir í að vera engar í árslok 2008. Félagið skilaði nærri 3 milljóna króna hagnaði á árinu 2009 og var sá hagnaður tilkominn vegna arð­ greiðslu sem félagið fékk vegna hlutabréfaeignarinnar í Auði Capi­ tal. 2,5 milljónir króna voru greidd­ ar út úr félaginu og til hluthafa þess vegna þessa hagnaðar. Auður Capi­ tal borgaði út 28 milljóna króna arð til hluthafa fyrirtækisins árið 2009 samkvæmt ársreikningi 2009 og fékk KJ eignarhald tæp tíu prósent af þeirri upphæð. Einn stærsti skuldarinn Kristín Jóhannesdóttir hefur oft verið til umfjöllunar í íslenskum fjölmiðlum, meðal annars vegna fjárfestingarfélagsins Gaums og að­ komu sinnar að Baugsmálinu, en öðru máli gegnir um móður henn­ ar. Ása hefur ekki oft komið til tals í fréttaflutningi af Baugsfjölskyldunni í gegnum árin. Þetta breyttist þó í fyrra þegar nafn hennar var á lista í skýrslu rann­ sóknarnefndar Alþingis yfir stærstu skuldarana í íslenska bankakerf­ inu. Ása var þar sögð bera ábyrgð á nærri 63 milljarða króna skuldum. Vera Ásu á þessum lista var þann­ ig tilkomin að hún var hluthafi í fé­ lögum Baugsfjölskyldunnar og voru skuldir hvers og eins þeirra reikn­ aðar út frá hlutfallslegu eignarhaldi þeirra í þessum skuldugu félögum. Ása stofnaði því alls ekki til þessara skulda persónulega. Hjálpaði líka Jóni Ásgeiri Ása komst svo aftur í fréttirnar í lok árs í fyrra þegar greint var frá því í fjölmiðlum að hún hefði keypt hús Jóns Ásgeirs sonar síns á Laufásvegi 69 fyrir 107 milljónir króna. Jón Ásgeir sagði þá, í viðtali við Fréttatímann, að ástæða sölunnar væri sú að hann þyrfti á peningum að halda til að greiða lögfræðikostn­ að í New York í Bandaríkjunum en slitastjórn Glitnis höfðaði skaða­ bótamál gegn Jóni og fleiri aðilum tengdum Glitni vegna meintrar mis­ notkunar þeirra á Glitni fyrir efna­ hagshrunið 2008. n Kristín Jóhannesdóttir og Ása Ásgeirsdóttir hluthafar í Auði Capital n Ása fjár- magnaði kaupin með 180 milljóna króna láni n Keypti hús af Jóni Ásgeiri í fyrra Móðir Jóns Ásgeirs gaf eftir 180 milljónir „Nýir hlutir verða greiddir á þann hátt að Ása Karen Ás- geirsdóttir, 031242-3989 fellur frá kröfum sínum á hendur félaginu. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Einn eigenda Auðar Kristín Jóhannes- dóttir er einn stærsti eigandi fjármálafyrir- tækisins Auðar Capital. Hún sést hér með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni í dómsal í Baugsmálinu. Dræm þátttaka Afar dræm þátttaka var á fundi leiðtoga Sjálfstæðisflokksins á Selfossi síðastliðið fimmtudagskvöld. Slysagildra á Snorrabraut: „Þetta er hryllingur“ „Þetta er hryllingur,“ segir Ingunn Þóra Magnúsdóttir, sem býr í fjöl­ býlishúsi á Snorrabraut 35, en hún segir klæðningu hússins vera í vægast sagt slæmu ásigkomulagi. Ingunn hafði samband við DV á laugardag til þess að vara gangandi vegfarendur við vegna klæðningarinnar sem hryn­ ur á gangstéttina. Hún sagði stóra hnullunga hafa hrunið á gangstéttina og ekkert var búið að eiga við þá á sunnudag. „Og glugginn uppi. Ég er bara hrædd um að hann fari að hrynja úr,“ segir Ing­ unn. Ingunn sagðist hafa sett upp var­ úðarmerki við húsið á laugardag til þess að vara fólk við en hún segir að klæðningin sé mikið skemmd. „Hluti af þessu er vegna mikillar umferðar hérna. Húsið er að morkna. Hugs­ aðu þér ef einhver hefði verið þarna undir í gær (laugardag). Þetta er alveg hryllilegt,“ segir Ingunn Þóra. Ingunn Þóra segir að lögreglu hafi verið gert viðvart vegna ástandsins á laugardag. Ekki náðist samband við lögreglu vegna vinnslu þessarar fréttar en á laugardag reyndi lög­ reglan að hafa upp á eiganda hússins. Lögregla sagði að ef það tækist ekki yrði haft samband við Reykjarvíkur­ borg til þess að eiga við húsið. Árás gerð á heimili ráðherra Árás var gerð á heimili Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að­ faranótt laugardags og tvær rúður brotnar. Ekki er vitað hverjir voru að verki en talið er að fleiri en einn hafi verið á ferð þar sem mörgum steinum var kastað í einu. Atvikið átti sér stað um þrjúleyt­ ið, aðfaranótt laugardags. Grjóti var kastað í húsið og brotnuðu tvær rúður. Glerbrotum rigndi yfir ráðherrann og eiginkonu hans þar sem þau sátu í stofunni en þau sakaði þó ekki. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum og telur að með árásinni hafi verið reynt að koma skilaboðum á fram­ færi við ráðherrann og að í þeim felist hótun en lögreglan ákvað í kjölfarið, í samráði við ráðherra, að herða eftirlit við heimili hans að því er fram kom í fréttum Ríkisút­ varpsins. Þegar DV hafði samband við Ögmund vildi hann ekki tjá sig um málið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.