Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 10
„Við erum búin með fyrstu prentun en allir skólarnir í Garðabæ hafa keypt af okkur spilið. Við eigum eftir að halda kynningar fyrir önn- ur sveitarfélög en við höfum fengið rosalega góð viðbrögð hjá þeim sem hafa séð spilið. Fyrir utan allt þetta erum við á fullu í prófum svo það er nóg að gera hjá okkur,“ segir einn fjórmenninganna sem unnu frum- kvöðlaverðlaun Fyrirtækjasmiðj- unnar fyrir spilið sitt Trabb. Í haust taka þau þátt í frumkvöðlakeppni í Noregi en þar etja þau kappi við lið frá 35 löndum. Fjórmenningarn- ir stunda nám við Fjölbrautaskól- ann í Garðabæ en þeir heita Harpa María Guðmundsdóttir, María Björk Ágústsdóttir, Alína Vilhjálmsdóttir og Þorvarður Bergmann Kjartans- son. Einelti og forvarnir Spilið hefur vakið athygli þar sem tilgangurinn með því er að vekja börn til umhugsunar um einelti og afleiðingar þess. Töluverð umfjöll- un hefur verið um einelti undanfar- ið og segir Harpa María að þau hafi fengið hugmyndina í kjölfar hennar. „Spilið er lokaverkefni í áfanga sem kallast frumkvöðlafræði en þar átt- um við að búa til vöru, koma henni á framfæri og selja. Við vorum sam- mála um að gera eitthvað sem teng- ist forvörnum og kennir börnum eitthvað. Þegar við sáum alla um- ræðuna um einelti ákváðum við að gera þetta spil.“ Sækja um styrki Hópurinn tekur þátt í evrópskri frumkvöðlakeppni í Osló í haust og þarf að fjármagna ferðina sjálf- ur. „Þetta leggst mjög vel í okkur en þetta er mikil vinna. Við mun- um sækja um styrki hjá fyrirtækjum og jafnvel halda fjáröflun. Auk þess fer ágóðinn af sölu spilsins í að fjár- magna ferðina,“ segja þau og bæta við að þetta sé að verða „áfanginn endalausi“. Önnin sé í raun búin en þau haldi áfram að vinna að verk- efni sínu og sjái ekki fyrir endann á því. Þurfa að selja dómurum vöruna Í Osló þurfa þau að kynna vöruna fyrir dómurum og öðrum kepp- endum. „Þetta snýst í rauninni ekki bara um vöruna heldur allt sem að henni snýr, svo sem skipulagningu, viðskiptaáætlun og framtíðarsýn. Það er svolítið stressandi að hugsa til þess að kynna þetta og verja fyrir dómurum en það lagast örugglega þegar nær dregur og við verðum komin með þetta allt á hreint.“ Einskorðast ekki við skólann Áður en þau fara út er þó ætlunin að breyta spilinu. „Við ætlum að hafa meira að gerast á spjaldinu sjálfu. Okkur finnst það svolítið flatt eins og það er og viljum hafa það líflegra,“ segir María Björk. Eins munu þau hafa spjaldið þykkara í næstu prent- un. Grunnhugmyndin á spjaldinu mun þó halda sér en hún gengur út á að hafa myndir af heimili, skóla, leikvelli, sundlaug og ísbúð. Ástæðan fyrir því er að einelti gerist alls staðar, ekki bara í skólanum. „Á vina-/ein- eltisspilunum komum við einnig inn á einelti á netinu og gagnvart innflytj- endum. Við reyndum að finna eins marga fleti og mögulegt er,“ segja þau. Vilja ná breiðari markaði Fjórmenningarnir eru með metn- aðarfullar framtíðarhugmyndir um spilið sitt og ætla að láta þýða það á dönsku, norsku, sænsku og ensku. „Við viljum ná breiðari markaði og þekkjum til dæmis mann sem býr í Danmörku sem ætlar að koma því áfram. Eins hefur íslensk kona búsett þar boðist til að þýða það fyrir okkur,“ segir Alína og bætir við að með því að fara til Osló með spilið muni það von- andi koma því á kortið. „Okkur datt aldrei í hug þegar önnin hófst að við yrðum komin með fyrirtæki og á leið til útlanda með vör- una okkar í haust. Þetta stækkar og stækkar og við erum pínu smeyk við það en þetta er spennandi,“ segja þau að lokum. 10 | Fréttir 9. maí 2011 Mánudagur Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun Nemar í útrás „Þetta snýst í rauninni ekki bara um vöruna heldur allt sem að henni snýr, svo sem skipulagningu, viðskiptaáætlun og framtíðarsýn. n Fjórir nemendur í FG keppa fyrir Íslands hönd í evrópskri frumkvöðlakeppni n Hönnuðu spil sem tekur á einelti n Ætla að þýða spilið á önnur tungumál Hentugt spil fyrir kennara Trabb er borðspil þar sem leikmaður dregur spjald og annaðhvort fær hann vinaspil eða eineltisspil. Ef það síðarnefnda er dregið þarf leikmaður að fara aftur á bak. „Á spilunum er mikið af heilræðum um hvernig við eigum að koma fram við hvert annað. Það sem við erum ánægð með er að spilið er skemmtilegt og létt en þótt það sé einfalt þá er mikill boðskapur í því. Við vildum ekki þvinga upplýsingar upp á börnin heldur vonandi fer þetta inn í undirmeðvitund barnanna,“ segja þau. Eins benda þau á að spilið sé hentugt fyrir kennara þar sem gaman sé og fræðandi að skoða spilin með börnunum og ræða um einelti. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Frumkvöðlarnir ungu Harpa María Guðmundsdóttir, María Björk Ágústsdóttir og Alína Vilhjálms- dóttir, Á myndina vantar Þorvarð Bergmann Kjartansson. Mynd SiGtryGGur Ari JóHAnnSSon Ferðaþjónusta glæðist: Íslendingum á hótelum fjölgar Gistinætur á hótelum í mars síðast- liðnum voru 96.900 en voru 95.400 í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan birti fyrir helgi. Gistinætur erlendra gesta voru um 71 prósent af heildarfjölda gisti- nótta á hótelum í mars en gistinóttum þeirra fækkar um 1 prósent á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgar um 10 prósent samanborið við mars í fyrra. Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suður- landi og á Norðurlandi. Á höfuðborg- arsvæðinu voru 72.600 gistinætur í mars sem er 4 prósenta aukning frá fyrra ári. Gistinætur á Suðurnesjum voru 4.400 í mars sem er 25 prósenta aukning frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölg- aði gistinóttum úr 1.800 í 2.100 eða um 17 prósent samanborið við mars í fyrra. Á Austurlandi var fjöldi gisti- nótta svipaður milli ára eða um 1.900. Gistinætur á Norðurlandi voru 5.300 í mars og fækkaði um 5 prósent milli ára. Á Suðurlandi voru gistinætur 10.600 og fækkaði þeim um 17 pró- sent milli ára. Gistinætur fyrstu þrjá mánuði ársins voru 232.400 en voru 228.000 á sama tímabili í fyrra. Fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgar gistinóttum Ís- lendinga sem og erlendra gesta um 2 prósent samanborið við fyrsta árs- fjórðung 2010. Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótel- um, það er hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem ein- göngu eru opin yfir sumartímann.  Kveikt í bekk í Elliðaárdal Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað í Elliðaárdal aðfaranótt sunnudags en þar stóð bekkur í ljósum logum þegar slökkvilið bar að. Greiðlega gekk að ráða niðurlög- um eldsins en brennuvargarnir eru ófundnir. Aðfaranótt sunnudags var nokkuð róleg í umdæmi lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að talsverður fjöldi fólks hafi verið í bænum. Talsverð ölvun var og eitt- hvað um áflog, en þess utan fór skemmtanahald vel fram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.