Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 26
Íslandi ekki spáð vel- gengni „Það er ekki mikið um þetta lag að segja. Ég veit ekki hvort það á eftir að komast í lokakeppnina. Lagið er gamaldags en það má vel vera að fólk, sem heyrir söguna um Sjonna, muni kjósa lagið áfram í samúðarskyni,“ skrifar Chris á vefsíðuna eurovisionlemurs.wordpress. com. Þar eru öll lögin í keppninni dæmd af einlægum Eurovision-aðdáendum. Það er ekki beinlínis upplífgandi að fara yfir vefsíður sem fjalla um líkur laganna í Eurovision þetta árið. Þannig eru líkurnar á sigri Íslands á eurovisionodds. co.uk sagðar 1 á móti 201. Áðurnefndum Chris líst þó ágætlega á einn af íslensku keppendunum. „Segið mér að Matti Matt verði ekki sá sem mun springa út í þessari keppni. Ég myndi gjarnan vilja sjá hann í aðalhlutverki í Eurovision bráðlega. Svo lengi sem hann syngur ekki um eldfjöll,“ skrifar hann og skír- skotar til rokklags sem Matti flutti í undankeppninni. 26 | Fólk 9. maí 2011 Mánudagur Sverrir Stormsker skýst fram á ritvöllinn með látum: Tónlistarmaðurinn og rithöfundur­ inn Sverrir Stormsker virðist, eins og birnirnir, vakna með hækkandi sól. Hann hefur legið í híði frá því í jan­ úar en hefur nú skriðið úr fylgsni sínu og er byrjaður að blogga á nýjan leik, aðdáendum sínum til ómældr­ ar gleði. Ósmekkleg skopmynd af Siv Friðleifsdóttur virðist hafa hreyft við Sverri því fyrstu skrif hans í langan tíma birtust í DV og síðan á bloggsíðu hans um mánaðamótin, undir fyrir­ sögninni Gleðihúsið við Austurvöll.“ Dauði Osama bin Laden varð síðan til þess að hann stakk niður penna á nýj­ an leik. Úr verður óborganleg minn­ ingargrein um hryðjuverkaleiðtogann herskáa. Hún hefst á þesum orðum: „Ástkær eiginmaður okkar, faðir, bróð­ ir, sonur, bróðursonur, mágur og kvið­ mágur, Osama bin Laden andaðist á heimili sínu árla morguns mánudag­ inn 2. maí. Dánarorsökin var blýeitrun. Hann var 54 ára að aldri þegar hann safnaðist til feðra sinna.“ Óhætt er að segja að Sverrir fari á kostum í skrifum sínum, sem bera kímnigáfu hans og djörfung vitni: „Osama var ekki allra. Óvinir hans sprungu yfirleitt úr ein­ hverju öðru en hlátri. Hann var frekar umdeildur maður og þeir voru jafnvel til sem voru ekki alveg á eitt sáttir um aðferðir hans og framferði á alþjóða­ vettvangi,“ skrifar Sverrir og heldur áfram: „Hefði hann náðst lifandi og verið dreginn fyrir dómstóla þá hefði hann líklega verið dæmdur á líkum. Mjög mörgum líkum [...] Osama bin Latex, eins og hann gjarnan var kall­ aður, fór ekki troðnar slóðir í lífinu og batt ekki gísla sína sömu hnútum og samferðarmennirnir. Hann stytti fólki stundir með ýmsum óvæntum upp­ átækjum og stytti fólki jafnvel aldur þegar vel lá á honum. Shit happens. Þýðir ekki að velta sér uppúr smáatrið­ um,“ skrifar Sverrir sem er ekki óvanur að dansa á línunni. Stundum fer hann yfir línuna: „Hans draumur var að geta sparað fólki tíma og skutlað því beint á skrifstofuna. Þann 11. september 2001 lét hann þennan draum sinn verða að veruleika. Lendingin hefði kannski getað heppnast betur, en flugið sem slíkt var mjög gott og fólkið komst hratt og beint á skrifstofuna. Enginn farþeg­ anna hefur allavega kvartað hingað til.“ Sverrir Stormsker er mættur til leiks á ný og það með látum. baldur@dv.is Þ að var uppselt 30. apríl og við Stebbi vorum sam­ mála um að þetta væru með skemmtilegri tón­ leikum sem við höfum tekið þátt í. Það var alveg gífurlega góð stemn­ ing,“ segir tónlistarmaðurinn Eyj­ ólfur Kristjánsson um afmælistón­ leika lagsins Nínu sem þeir Stefán Hilmarsson héldu þann 30. apríl í Salnum í Kópavogi. Aðrir tón­ leikar verða á fimmtudaginn og á þá voru, þegar þetta var skrifað, örfá sæti laus. Eyjólfur segir að þeir hafi ákveðið, vegna mikillar eftir­ spurnar, að halda þriðju afmælis­ tónleikana. „Við ætlum að skella á öðrum tónleikum miðvikudaginn 25. maí.“ „Okkar stimpill“ Þann 4. maí voru hvorki meira né minna en 20 ár síðan þeir félagar fluttu lag Eyjólfs, Nína, á sviðinu í CineCitta­kvikmyndaverinu í Róm. Lagið hefur allar götur síðan verið eitt allra vinsælasta dægurlagið á Ís­ landi. Aðspurður hvort Nína eldist jafn vel og þeir sjálfir hlær hann og segir: „Nína eldist ekki neitt. Hún er dáin í laginu og hefur verið það í 20 ár.“ Spurður hvað hafi orðið til þess að þeir ákváðu að halda upp á þessi tímamót segir Eyjólfur að þetta lag spili svo stóran sess í ferli þeirra Stef­ áns að ekki hafi verið annað hægt en að gera eitthvað skemmtilegt. „Þetta er búið að skila okkur svo mörgu og er eiginlega okkar stimpill. Við vild­ um heiðra þetta lag.“ Eurovision-þema Eyjólfur segir að á tónleikunum verði svolítið Eurovision­þema. „Við flytj­ um uppáhalds Eurovision­lögin okkar, bæði erlend og innlend, í bland við lög sem við höfum gefið út áður, til dæmis af disknum Nokkrar notalegar ábreið­ ur,“ segir hann en sú plata kom út árið 2006. Dagskráin verði því blönduð en Eurovision komi þar mjög við sögu. Þeir verða ekki einir á sviðinu, frekar en 30. apríl, því Friðrik Sturlu­ son leikur á bassa og Þórir Úlfarsson á píanó. „Svo verður Guðrún Gunnars­ dóttir gestasöngkona núna á fimmtu­ daginn,“ segir Eyjólfur. Nína á Facebook Hann segir að þeir hafi fengið virki­ lega góðar viðtökur við þessum tón­ leikum. „Í hléi var ég að árita nýjustu plötuna mína fyrir fólk og ég fann að fólk var ofboðslega ánægt og hrif­ ið. Það var virkilega gaman að finna stemninguna sem skapaðist,“ segir hann. Gaman er að geta þess að „Nína Eyjólfsdóttir“ hefur hreiðrað um sig á Facebook þar sem aðdáendur geta gerst vinir hennar. 125 manns höfðu gerst vinir hennar þegar þetta var skrifað en þeir eiga vafalítið eftir að verða margfalt fleiri. Miða á tónleikana er hægt að nálg­ ast á vefsíðunni midi.is. baldur@dv.is Stebbi og Eyfi skipuleggja þriðju afmælistónleika Nínu: „NíNa eldist ekki Neitt“ „Þetta er búið að skila okkur svo mörgu og er eiginlega okkar stimpill. Kveður bin Laden Óhætt er að segja að kátt hafi verið á hjalla þegar FH varð Íslandsmeistari í handbolta karla á dögunum, eftir að hafa unnið úrslitaeinvígið við Akureyri 3–1. Á Facebook-síðu félagsins, FH Hafnarfjörður, má skoða margar skemmtilegar myndir frá síðasta leiknum og þeim fagnaðarlátum sem brutust út í kjölfar hans. Ein þeirra er þó harla óvenjuleg. Þar sitja FH-ingarnir Ólafur Guðmundsson, Ólafur Gústafsson, Baldvin Þorsteinsson og Logi Geirsson inni í búnigs- klefa, með bikarinn sín á milli. Ólafur Guð- mundsson er aðeins með handklæði til að hylja það allra helgasta en þeir Ólafur Gúst- afsson og Baldvin eru aðeins í stuttbuxum og berir að ofan. Logi situr á endanum, enn í keppninsbúningnum, kvenþjóðinni líklega til armæðu. Berir Íslandsmeistarar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.