Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Síða 4
4 | Fréttir 6. júní 2011 Mánudagur Ólína Þorvarðardóttir um andstöðu við breytingar á kvótakerfinu: „Andstaðan er hagsmunatengd“ „Þetta eru ályktanir sem eru ekki réttar og ganga allt of langt. Þetta eru einfaldlega oftúlkanir á afleiðingum frumvarpsins,“ segir Ólína Þorvarð- ardóttir alþingismaður um yfirlýs- ingu Útvegsmannafélags Vestfjarða um áhrif nýrra laga um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu. Í yfirlýsingunni segir að það séu kaldar kveðjur og nístandi óvissa sem komi frá stjórnarráðinu í til- efni sjómannadagsins. Með því fylgi einnig loforð um að lögfesta bæði fækkun starfsfólks og kjaraskerðingu í sjávarútvegi. Þar segir jafnframt að aflaheimildir á Vestfjörðum muni skerðast um 3.700 þorskígildistonn og að um 100 störf muni tapast við veiðar og vinnslu verði lögin sam- þykkt á Alþingi. Ólína segir að skynsamlegast væri fyrir menn að bíða eftir raunveru- legri hagfræðilegri úttekt sem vænt- anleg er í vikunni. „Þá er hægt að ræða málin með skynsemi á grund- velli fyrirliggjandi gagna,“ segir hún. Aðspurð segir Ólína andstöðu við breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu alltaf hafa verið til staðar. „Útvegs- menn ætla ekki að samþykkja nein- ar breytingar á kvótakerfinu og þeir hafa verið í stríði við stjórnvöld vegna þessara mála alveg frá því að farið var að tala um breytingar. Andstað- an er náttúrulega hagsmunatengd,“ segir Ólína og bendir á að það verði tími fyrir útvegsmenn til að koma með málefnalegum hætti inn í um- ræðuna þegar málið komi til umfjöll- unar í þinginu og í þingnefnd. Hún segir að þetta sé heilmikið ferli og að málið verði sent út til formlegrar umsagnar frá sjávarútvegs- og land- búnaðarnefnd. Það komi svo til ann- arrar umræðu í þinginu áður en það verði afgreitt. „Menn eiga því ekki að hlaupa svona á undan sér með vill- andi yfirlýsingar.“ gunnhildur@dv.is Vart hefur það farið fram hjá mörgum að sumarkoman nú hefur ekki verið í líkingu við það sem við höfum van- ist síðustu ár. Liggur nærri að gróður sé mjög víða mánuði á eftir því sem við hefðum mátt búast við sé tekið mið af síðustu vortímabilum. Ekkert óeðlilegt er í sjálfu sér við þessa nið- ursveiflu hitans, enda einmunatíð búin að vera á landinu á þessari öld, á heildina litið, þótt vissulega megi segja að íbúar á Austurlandi hafi átt betri veðráttu að venjast en verið hefur síðustu ár. Hefur verið að hlýna Alla þessa öld hefur í grófum drátt- um verið að hlýna svo um munar. Þar ræður náttúruleg sveifla og til viðbót- ar sveifla af mannavöldum. Það er strax athyglisvert að sjá að sé aðeins miðað við fyrsta dag hvers júnímán- aðar, hefur viðleitnin verið hækkun (beina línan) hitastigs á öldinni. Kólnar Nú bendir margt til þess að náttúru- lega sveiflan sé á undanhaldi þótt ekki sé hægt að fullyrða að það sé komið til að vera. Og þótt erfitt sé að skilja að fullu hvað veldur má velta upp mögulegum skýringum. Dug- ir þar að nefna El Nino og El Nano – fyrirbærið þegar sjávarstraumar í Kyrrahafi umsnúast. Ennfremur er stundum nefnd 11 ára sveifla sem tengist virkni sólar og svona mætti áfram telja. Mjög afdráttarlaust há- þrýstisvæði við austurströnd Græn- lands með köldum norðlægum loft- straumi blæs nú yfir landið og mun gera það, að því er virðist, lengst af í júní ef marka má líkön. Ekki er það til að hjálpa til við að hækka hitann við yfirborð. Veðurkerfin sem upp að landinu koma eiga í erfiðleikum með að hrekja þennan loftstraum burtu og frá landinu og hleypa þannig að hlýju suðrænu lofti. Stærstu veðurreiknimiðstöðv- ar heims kappkosta að gefa út svo- kallaðar veðurlagsspár (Forecast of Seasonal Climate). Þær sýna nokkr- ar breytingar á júnímánuði nú frá því sem fyrri slíkar spár hafa gefið til kynna. Þessar spár gera nú almennt ráð fyrir því að um 50 prósent líkur séu á að júní verði kaldari en gild- andi mánaðarmeðaltal. Líkur á blautum júní Veðurlagsspárnar gera síðan einn- ig ráð fyrir að 35 prósent líkur séu á því að júní verði úrkomusamari en í meðalári. Ef við drögum þetta saman þá verður júnímánuður kaldari og blautari og vindasamari en við höf- um átt að venjast um nokkurt skeið. Sem sagt lélegur sumarmánuður hvað varðar veðrið. Í júlí snýst þetta algjörlega við. Hann verður bæði þurrari og hlýrri en í meðalári, sérstaklega bendir margt til þess að Norðurlandið muni hafa vinninginn. Þann þurrk sem veðurlagsspár gera ráð fyrir má túlka á þann veg að júlí kunni að verða sól- ríkur og hægviðrasamur. Ágúst í meðaltali Júlí verður því sumarmánuðurinn í ár. Það má því kannski segja að sum- arið hefjist fyrir alvöru í júlí. Ágústmánuður virðist síðan ætla að vera nokkurs konar meðaltals- ágúst. Það þýðir almennt góður. Það má kannski segja að hann stefni í að verða þurr og hlýr og jafnvel sólríkur og ágætur ferðalagamánuður innan- lands þótt rökkrið muni setja svip sinn á ferðalögin. Vert er að hafa í huga að þessar veðurlagsspár hafa reynst misvel. Þegar árangur er metinn af þess- um spám síðustu ár, er ástæða til að horfa til þeirra, en auðvitað er það svo að þótt júní verði lélegur sumar- mánuður heilt yfir séð, þá munu að sjálfsögðu koma prýðis veðurdagar inn á milli. En spár eru spár og verða alltaf spár en ekki hinn eini sanni raunveruleiki. Vonum því það besta. Sumar Við þurfum að bíða eftir almennilegu sumri þar til í júlí. n Þurfum enn að bíða eftir alvöru sumarveðri n Líkur á blautum júní Sumarið byrjar í júlí „Nú bendir margt til þess að náttúru- lega sveiflan sé á undan- haldi þótt ekki sé hægt að fullyrða að það sé komið til að vera. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur skrifar birgir@dv.is 1997 19971999 19992001 20012003 20032005 20052007 20072009 20092011 Hiti á hádegi 1. júní síðustu 15 ár Þegar skoðaður er hádegishiti 1. júní síðustu 15 árin hefur stöðugt verið að hlýna. Meðalhámarkshiti í júní (2011 ekki með) Hámarks- hiti í júní hefur verið að hækka síðustu 15 ár. 16° celsíus 12° 8° 4° 0° 16° celsíus 12° 8° 4° 0° Stórir á skulda- bréfamarkaði Íslandsbanki var með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði í maí, með 27 prósenta hlutdeild eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Alls nam veltan 216,4 milljörðum króna sem er rúmlega 20 milljörðum meira en meðaltal þessa árs. Heildarveltan á skuldabréfa- markaði í Kauphöllinni það sem af er þessu ári nemur tæplega eitt þús- und milljörðum króna. Heildarvelt- an á hlutabréfamarkaði á sama tíma var um 24 sinnum lægri eða rúmir fjörutíu milljarðar króna. Ólína Þorvarðardóttir Telur að skyn- samlegast væri fyrir menn að bíða eftir raunverulegri hagfræðilegri úttekt sem væntanleg er í vikunni. Vopnaðir á veitingastað Fimm til sex manna hópur manna réðst inn á veitingastaðinn Uno í miðborginni á laugardagskvöld. Þetta staðfesti Unnar Már Ástþórs- son varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það voru allir farnir þegar lögreglan kom,“ segir Unnar en í bókun lögreglu kemur fram að mennirnir hafi verið vopn- aðir. Þar segir einnig að mennirnir hafi komið inn á staðinn og veist að einum manni á veitingastaðnum. Samkvæmt heimildum DV var gest- um staðarins brugðið enda réðust mennirnir inn á staðinn með látum. Eigendur staðarins þverneita að málavextir hafi verið með þessum hætti. Samkvæmt þeim var um að ræða hóp ungra manna á aldrinum 18 til 20 ára sem voru óvopnaðir. Þeir hafi verið í leit að einum ein- staklingi sem ekki var á staðnum. Leiðrétting Því var ranglega haldið fram í miðvikudagsútgáfu DV að Sigmar Eðvarðsson væri eigandi Húsa- gerðarinnar hf. Þetta kom fram í töflu í umfjöllun blaðsins um Sparisjóð Keflavíkur og lánveit- ingar hans. Sigmar var ranglega nefndur til sögu. Eigendur félags- ins eru þau Jórunn Jónasdóttir og Áskell Agnarsson. DV biður Sig- mar afsökunar á rangfærslunni. • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Margviðurkenndur stóll Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.