Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Side 18
18 | Umræða 6. júní 2011 Mánudagur
„Búið ykkur undir frum-
stæðan fótbolta“
n Danir óttuðust mjög að slæmt ástand
Laugardalsvallar yrði til þess að skemma
fyrir þeim leikinn. Danskir fjölmiðlar líktu
vellinum við plægðan akur. – Extra Bladet
„Við getum sagt að við
séum að upplifa svona
Ísland sem var“
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur
segir að alvöruhlýindi verði ekki í bráð á
Íslandi. Júní verði „la la“. – DV.is
„Ég var að því kominn að
eignast heilan flugvöll. Ég
hef ekkert að gera við
flugvöllinn í Alicante,
þangað flýgur Iceland
Express“
Guðbergur Bergsson ætlar að afsala sér
hluta þeirra eigna sem hann fékk í arf eftir
spænskan vin sinn og sambýlismann. – DV
„Teinarnir stungust inn í
höndina á honum og hann
hangir bara á henni og
tætir hana alla upp.“
Eva Dís Björgvinsdóttir, móðir hins 14
ára gamla Ómars Smára Óttarssonar, lýsti
því þegar Ómar slasaðist vegna teins á
girðingu við Ásvelli í Hafnarfirði. – DV
„Hér er gætt mjög vand-
aðs meðalhófs“
Jón Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra um frumvarp um
heildarlög um fiskveiðar. – Alþingi
„Nei, ég held að sá kafli sé
búinn. Ég er búinn að
prófa það. Þetta er ekkert
draumadjobb fyrir
marga.“
Eyjólfur Sverrisson um það
hvort honum hugnist að taka aftur
við A-landsliðinu. – Fréttatíminn
Við áttum aldrei London
G
uðbergur Bergsson rithöf-
undur er maður sem margir
Íslendingar mættu taka sér
til fyrirmyndar. Guðberg-
ur er í dag auðugur maður eftir að
spænskur vinur hans arfleiddi hann
að eigum sínum. Eftir að hafa alla
tíð lifað við knappan kost á rithöf-
undurinn allt í einu meiri eignir en
meðalútrásarvíkingur. En honum er
sama. Hann lætur ekki gullið glepja
sig en heldur sínu striki og lifir áfram
sínu lífi. Fram kom í helgarviðtali
DV við rithöfundinn að á meðal þess
sem hann erfði hafi verið alþjóða-
flugvöllur á Alicante sem hann ætlar
að afsala sér því það er svo ,,flókið“
að eiga slíkt. „En ég held að ég sé svo
heppinn að geta afsalað mér þessu,“
sagði rithöfundurinn.
Fyrir hrun og sumpart allt fram
á þennan dag hefur íslenskt sam-
félag verið rekið áfram af græðgi.
Þeir sem fengu banka á silfurfati frá
stjórnvöldum fóru fram af stjórn-
lausri græðgi og vildu eignast sem
flesta viðskiptavini líka. Afleiðing-
arnar voru síðan hrunið haust-
ið 2008. Smám saman hefur síðan
komið í ljós hvernig græðgin leiddi
til þess að eigendur bankanna reistu
spilaborg gríðarlegra eigna og him-
inhárra skulda sem hrundi á auga-
bragði.
Guðbergur er andstæðan við út-
rásarvíkingana. Græðgin er fjarri
honum. Í stað þess að gleypa flug-
völlinn og reyna að komast yfir fleiri
þá segir hann pass og vill helst losna
við verðmætin. Og hann hefur alla
tíð verið sjálfum sér trúr. Hann sér
enga ástæðu til að ferðast heims-
horna á milli í leit að fegurðinni.
„Íslendingar eru haldnir svo mik-
illi þrá eftir einhverju stórkostlegu,
þess vegna sjá þeir ekki fegurðina
sem er allt í kring,“ segir Guðbergur.
Hann bendir á að Íslendingar, í
gullmóðu útrásarinnar, hafi hald-
ið að þeir ættu Kaupmannahöfn og
London en gleymt því sem var á Ís-
landi. Í því samhengi líkir hann þjóð-
inni við drykkjumann sem stöðugt
þarf að fara í meðferð.
„Það gengu allir með þessa
drauma um að verða ríkir og héldu
að þeir gætu eignast heiminn. Það
var þjóðarlygi,“ segir rithöfundurinn.
Lífsviðhorf Guðbergs eru
mannbætandi fyrir þá sem ná að
feta sömu slóð. Lykillinn að lækn-
ingu einstaklinganna kann að vera
sá að hlusta grannt eftir eigin sam-
visku og taka mark á því sem þeir
skynja.
„Ég er einfaldlega hlýðinn við
sjálfan mig,“ segir Guðbergur. Í
þeim orðum liggur kjarni málsins.
Leiðari
Gekk þetta
allt upp?
„Já, það er
heldur betur
hægt að segja
það. Þetta gekk
alla vega framar
okkar björtustu
vonum,“ segir
Hrafnhildur
Ósk Skúladóttir, landsliðskona í
handbolta, en íslenska liðið vann
stórsigur á Úkraínu á sunnudaginn.
Leikurinn fór 37-18 og vann Ísland
því með 19 marka mun.
Spurningin
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar:„Það var þjóðarlygi.
Dómsdagsspá
n Egill Helgason, bloggari og álits-
gjafi, fjallaði um það á dögunum
hve greiða leið stórútgerðarmenn
ættu inn í fjöl-
miðla með mál-
flutning sinn.
Vísaði hann
þar til heima-
tilbúinnar dóms-
dagspár Vest-
mannaeyinga
og fleiri um að
þeir myndu tapa
hundruðum starfa ef frumvörp Jóns
Bjarnasonar næðu fram að ganga.
Margir fjölmiðlar gleyptu spunann.
Egill benti á að sjónarmið strand-
veiðimanna ættu ekki eins greiða
leið í fjölmiðla og hlekkjaði á færslu
Níelsar Ársælssonar skipstjóra sem
fjallað hefur um þá landauðn sem
orðið hefur vegna hinna stóru.
Áhugalaus um auð
n Guðbergur Bergsson rithöfundur
er orðinn einn auðugasti Íslend-
ingurinn eftir að vinur hans á Spáni
arfleiddi hann að
alþjóðaflugvelli
og fleiru. Víst er
að Guðbergur
hefur sáralítinn
áhuga á auðnum
og hefur gjarnan
fundið lífsfyll-
ingu í öðru en
peningum. Guð-
bergur var í einstaklega einlægu
viðtali við DV um helgina þar sem
hann sagði frá lífi sínu og lýsti skoð-
unum sínum. Sem dæmi um hrein-
skilni Guðbergs má nefna þegar
hann steig í pontu hjá norrænum
rithöfundum sem komu saman í
Reykjavík og sagði þeim að drulla
sér heim.
Rosabaugi hælt
n Björn Bjarnason, ráðherra á
eftirlaunum, er heldur kátur þessa
dagana eftir að bók hans, Rosa-
baugur, mældist sú mest selda hjá
Eymundsson. Bókin þykir skemmti-
leg aflestrar en lítt afgerandi. Þó
fékk hún mikil meðmæli í leiðara
Morgunblaðsins en höfundurinn
taldi hana merka og vakti athygli á
því að ekki væri staðfest í bókinni
að Baugsmálið hefði átt sér upp-
haf hjá Davíð Oddssyni, þáverandi
forsætisráðherra, og innvígðum og
innmúruðum vinum hans, eins og
haldið hefur verið fram.
Klámhögg lögmanns
n Gunnar Smári Egilsson, formaður
SÁÁ, hefur gjarnan verið á milli
tannanna á fólki. Hann á að baki
mislukkaðar fjárfestingar sem lagt
var út í með peningum Baugs. Þar
var samstarfsmaður hans um tíma
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og
fór vel á með þeim. Síðan skákaði
Gunnar Smári honum út af Baugs-
borðinu. Augljóst er að Sigurður
hefur engu gleymt ef marka má
Facebook-færslu, sem nefna mætti
klámhögg, þar sem hann varar
samtökin við Gunnari Smára. „...
Best er þó fyrir þá sem leggja SÁÁ
lið fjárhagslega að halda í féð svo
Smárinn noti það ekki til að kaupa
prentsmiðju eða stofna blað í Las
Vegas.“
Sandkorn
tryGGVaGötu 11, 101 reykjaVÍk
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Ný rannsókn sýnir að 84 prósent íslenskra kvenna trúa á Guð, en aðeins helmingur karl-
manna. Í rannsókninni birtist gríð-
arlegur munur á kynjunum. Þessi
munur segir meira en virðist í fyrstu.
karl Marx sagði að trúin væri ópíum fólksins. Þannig beittu herrastéttirnar trúarbrögðum
til að halda almenningi niðri. Sælir
eru fátækir, því þeir munu Guðs ríki
erfa, sagði í bókinni um Guð. Þessi
skilaboð sannfærðu almúgann um
að sætta sig við hlutskipti sitt. Lífið
yrði ömurlegt, en það væri í lagi,
því gull og grænir skógar biðu eftir
dauðann. Margir trúðu því að það
væri í lagi að þeir væru arðrændir af
yfirstéttunum, vegna þess að betri
tilvist biði þeirra – svo lengi sem
þeir væru ofboðslega þægir. Og
konur trúa þessu enn.
Á Íslandi fá konur minna borgað en karlmenn fyrir sömu vinnu. Munurinn á launum konu og
karls, þegar tekið hefur verið tillit
til háskólamenntunar, vinnutíma,
starfsreynslu og alls annars sem
ætti að hafa áhrif á laun, er tæp átta
prósent. Sem betur fer bíður þeirra
vist í himnaríki þar sem launamuni
kynjanna hefur verið útrýmt.
Meira en þriðja hver stelpa undir 18 ára
aldri segist hafa
orðið fyrir kyn-
ferðisofbeldi,
tvöfalt hærra hlut-
fall en hjá strák-
um. 129 konur
leituðu til Neyðarmóttöku nauðg-
ana árið 2009, en einn karlmaður.
Heyrst hefur að engar nauðganir
séu í himnaríki og ef konur eru svo
heppnar að fara í íslamska himna-
ríkið verða þær aftur hreinar meyjar
og fá að giftast sjálfsmorðssprengju-
manni!
81 prósent framkvæmdastjóra í íslenskum fyrirtækjum eru karlar, en lukkuleg 19% eru
konur. Heyrst hefur að forstjórinn í
himnaríki sé kona.
3 prósent stjórnarformanna í stærstu fyrirtækjum lands-ins eru konur. Þær verða þá
bara þess meiri stjórnarformenn á
himnum!
Leiðin liggur bara upp á við hjá konum. Samkvæmt bókinni um Guð var konan búin til úr
rifbeini karlmannsins. „Mikla mun
ég gjöra þjáningu þína, er þú verður
barnshafandi. Með þraut skalt þú
börn fæða, og þó hafa löngun
til manns þíns, en hann skal
drottna yfir þér,“ sagði Guð
við konuna. Hann varaði
síðan karlmanninn við því
að hlusta á konuna: „Af því
að þú hlýddir röddu konu
þinnar ... þá sé jörðin bölv-
uð þín vegna.“
Það er líka eins gott fyrir konur að trúa á Guð. Í Hóseabók Biblíunnar
segir frá því hvað kemur
fyrir þá sem andmæla Guði.
„Þungaðar konur þeirra ristar
verða á kvið.“ Best er að vera með
Guði í liði á efsta degi, þegar hann
lætur verða af hótunum sínum og
hertekur Jer ús alem, eins og segir
í ritningunni: „Og borgin mun
verða tekin, húsin rænd og kon-
urnar smánaðar.“ Aðalatriðið er hins
vegar að konur bíði hægar þar til
að himnaríkisvistinni komi og fylgi
reglum Guðs. Líkt og segir í Biblí-
unni, í fyrra Kórintubréfi: „Eins og
í öllum söfnuðum hinna heilögu
skulu konur þegja á safnaðarsam-
komunum, því að ekki er þeim leyft
að tala, heldur skulu þær vera undir-
gefnar, eins og líka lögmálið segir.
En ef þær vilja fræðast um eitthvað,
þá skulu þær spyrja eiginmenn sína
heima. Því að það er ósæmilegt fyrir
konu að tala á safnaðarsamkomu.“
Það er því til mikils að vinna fyrir konur að trúa á Guð, því jafn-réttið kemur eftir dauðann.
Svarthöfði
Konur trúa á Guð