Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Qupperneq 20
20 | Fókus 6. júní 2011 Mánudagur Frambærilegt og fínlega skrifað verk Sláttur er fyrsta höfundarverk Hildar Knútsdóttur. Bókin fjallar um Eddu, unga konu á þrítugsaldri sem fór í hjartaskipti og glímir við sálræn- ar afleiðingar þess. Hún finnur fyrir áður ókunnum tilfinningum og rek- ur slóðina til nýja hjartans og verður forvitin um fyrri eiganda þess. Bók Hildar hefur fengið misjafna dóma, í Fréttablaðinu birtist heldur óvæginn dómur og þar skotið föstum skotum að Forlaginu fyrir að gefa út bókina og grípa ekki inn í það sem gagnrýnanda fannst hálfkarað verk. Það var ómaklegt. „Það er auðvelt að berja niður ungt fólk og það er oft gert,“ þetta sagði Guðbergur Bergs- son í viðtali við DV í síðasta helgar- blaði og ég tek undir orð hans. Skoð- un gagnrýnenda á því hvort bók eigi rétt á sér á heima hjá honum sjálf- um. Á engan máta er það uppbyggi- leg gagnrýni. Það er líka undarlegt að sjá þessa kröfu gagnrýnenda um að hinni og þessari bókinni sé betur ritstýrt. Hvenær gerðist það að gagn- rýnendur fengu þriðja augað og fóru að rýna í hvað sé handbragð rithöf- undar og hvað sé handbragð rit- stjóra? Mér finnst það kjánaleg iðja að rýna í þetta. Aðrir dómar sem Hildur hefur fengið eru með ágætum. Sláttur er enda frambærilegt og fínlega skrifað verk. Frásögnin minnir mig á sögur japanska höfundarins Banana Yohsi- moto þar sem hið dulmagnaða slæð- ist með í kvenlegri frásögn, og jafn- vel á Guðmund Andra Thorsson þótt hann sé öllu betri stílisti. Ég hef einn- ig gaman af umkomuleysi og þeim broslegu aðstæðum sem aðalsögu- hetjan, Edda, finnur sig í á fasteigna- sölunni þar sem hún vinnur. Sagan er skrifuð af nokkurri skyn- semi og það er ef til vill það sem ég finn að henni. Í málefnum hjartans á skynsemin hvergi heima og Hildur hefði mátt gefa meira af sér. Hún fer alla leið í húmor en í drama er hún skynsöm. Lagi hún þetta, slær hjart- að af krafti. Fræ ársins 2011: Börnin í undralandi tölvuleikjanna „Okkar hugmynd er sú að við viljum hefja kennslu í forritun á fyrstu stig- um grunnskólans,“ segir Laufey Dís Ragnarsdóttir, annar sigurvegara nýsköpunarkeppninnar Fræ ársins 2011. Hún, ásamt Rakel Sölvadótt- ur, átti bestu hugmynd keppninn- ar að mati dómnefndar. Hugmynd- in ber nafnið „Börnin í undralandi tölvuleikjanna“ og snýr að því að koma kennslu í forritun inn í grunn- skólana. „Við teljum vera bæði sam- félagslegan ávinning af því sem og jákvæðan ávinning fyrir börnin. Það vantar fólk inn í tæknigeirann. Tölv- ur eru nauðsynlegar í öllu sem þú gerir í dag.“ Þær stöllur sitja ekki aðgerða- lausar og hafa nú þegar komið hug- myndinni í framkvæmd. „Við ætlum að fara af stað í sumar með sumar- námskeið í forritun fyrir börn. Svo er það hugmyndin að fara með þetta inn í grunnskólana í kjölfar þess. Jafnvel að við myndum veita kennur- unum kennslu í þessu og þeir þann- ig miðla þessu áfram. Það er komið svo flott umhverfi í dag. Ef maður kæmi kennurunum af stað þá væru krakkarnir klárir að fikra sig áfram,“ segir Laufey, en hún og Rakel vinna að því að gera kennsluefni í forritun fyrir kennara og nemendur á bæði íslensku og ensku. Þær eru einnig komnar með Facebook-síðu undir nafninu Skema þar sem birtast upp- lýsingar um námskeiðin. Fræ ársins er útnefnt árlega. Markmið keppninnar er að styðja við nýsköpun. Sigurvegarar fá að laun- um eina milljón króna, auk þess að fá niðurfelld skólagjöld. Sláttur Höfundur: Hildur Knútsdóttir Útgefandi: Forlagið Bækur Kristjana Guðbrandsdóttir Fengið misjafna dóma Sláttur, fyrsta verk Hildar er frambærilegt og hún er aug- ljóslega efni í rithöfund. Ómar heiðurs- gestur Heimildamyndahátíðin Skjaldborg verður haldin í fimmta sinn um hvítasunnuhelgina 10.–12. júní. Yfir 20 nýjar íslenskar heimildamynd- ir verða frumsýndar á hátíðinni og spennandi verkefni í vinnslu verða kynnt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Skjaldborg. Heiðurs- gestur Skjaldborgar í ár er Ómar Ragnars- son en stiklur úr áður óbirtum Kára- hnjúkamyndum Ómars verða meðal annars frumsýndar á hátíðinni. Sjónskertur og lesblindur rithöfundur Beate Grimsrud er í heimsókn á Ís- landi og er gestur á höfundakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. júní kl. 20.00. Beate var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda- ráðs fyrir skáldsögu sína En dåre fri. Sú skáldsaga er sjálfsævisöguleg og Beate greinir í henni frá erfiðleikum sínum en hún er sjónskert, lesblind og hefur glímt við eiturlyfjavanda og geðsýki. Háskóli unga fólksins um land allt Háskóli unga fólksins hefur hafið starfsemi sína í sumar en námskeiðin sem hafa verið haldin skipta nú tugum og brautskráð ungmenni orðin hátt í tvö þúsund. Háskóli unga fólksins er opinn grunnskólanemendum sem eru fæddir á árunum 1995–1999 (í 6.–10. bekk grunnskóla) og er starfsemin afar fjölbreytt, nemendur geta lagt stund á japönsku, stjörnufræði og læknisfræði og margt annað sem vekur áhuga ungs fólks. Nemendur raða stundaskrá sinni sjálfir saman og í ár ferðast háskólinn um landið í samstarfi við grunnskóla á landsbyggðinni. O ft þegar ég var að taka nokkra spretti í Dirt 2, löngu búinn að klára allt en samt ekki orðinn leiður á honum hugs- aði ég með mér: Hvernig í ósköpun- um ætla krakkarnir hjá Codemast- ers að toppa þennan ótrúlega leik. Það kom svo að því að tilkynnt var að Dirt 3 væri á leiðinni og hef ég beðið spenntur síðan. Á dögunum fékk ég svo þennan grip í hendurnar og þótt ég væri búinn að sjá óteljandi mynd- bönd úr leiknum sem heilluðu mig var ég samt smeykur við útkomuna, enda erfitt að toppa leik á borð við Dirt 2. En hvað haldiði? Dirt 3, eins ótrú- legt og það hljómar, er betri en Dirt 2. Besti bílaleikur sem ég hef nokkurn tíma prófað, eflaust besti bílaleikur heims. Það er ekki nóg með að Code- masters hafi tekist að bæta stjórnun bílanna sjálfra heldur er leikurinn orðinn fjölbreyttari og skemmtilegri. Það er farið aftur í Grid-element- ið, það er að segja maður fer frá tíma- bili til tímabils og þarf að vinna sér inn virðingu til að opna nýjar braut- ir og bíla. Alls ekkert flókið, það ger- ist í raun af sjálfu sér. Það er kannski aðeins of mikið mas í byrjuninni frá „umboðsmanninum“ þínum og „tæknistjóranum“ en maður lætur það ekkert aftra sér. Dirt 3 er ótrúlega fjölbreyttur. Brautirnar eru allt frá Aspen til Kenía og allt þar á milli. Keppt er á alls kyns undirlagi og getur ein braut saman- staðið af möl, mold, sandi og mal- biki. Grafíkin er hreint út sagt lygileg en leikurinn er betur byggður en Dirt 2 þannig hann höktir sama og ekki neitt. Maður keppir á alls kyns bíl- um: Venjulegum rallíbílum í rallíinu auðvitað, buggí-bílum, pallbílum og ofurbílum. Á öllum þessum bílum keppir maður á mismunandi braut- um á mismunandi tíma dags í mis- munandi veðrum. Það nýja í Dirt 3 er svo „Gym- khana“ en það er eins konar „free- style“-akstur þar sem takmarkið er að leika listir sínar og safna stigum. Ég er enginn sérstakur aðdáandi svoleiðis stæla en Dirt 3 leysir þetta vel eins og allt annað. Dirt 3 er leikur sem lætur þig hafa fyrir hlutunum. Þú þarft að vera raun- verulega góður til að komast í gegnum brautirnar á sem skemmstum tíma. Vilji menn bara njóta grafíkurinnar er hægt að stilla bílinn þannig hann keyri allt að því sjálfur en þá er enginn til- gangur með að kaupa leikinn. Að taka eina vinkilbeygju í rallíi í Dirt 3 svo fullkomlega að þú missir engan hraða er í raun upplifun út af fyrir sig þegar kemur að tölvuleikjaspilun. Þá er eins og tíminn standi í stað og tölvuleikja- guðirnir brosi. Sértu gaurinn sem fílar drasl á borð við Motorstorm Apocalypse eða álíka bílaleiki þar sem bílarnir keyra nánast sjálfir mæli ég ekkert sérstaklega með því að þú fáir þér Dirt 3. Í raun vil ég þá ekki að þú kaupir leikinn. En sértu áhugamaður um alvörubílaleiki, leiki sem láta þig hafa fyrir hlutunum, verð- urðu að fá þér Dirt 3. Ef þú gerir það ekki ...þá er eitthvað að. Tölvuleikur Tómas Þór Þórðarson Dirt 3 Tegund: Bílaleikur Spilast á: PS3 og Xbox Live ...þá er eitthvað að MúsMos í Álafossi Hinir árlegu MúsMos-útitónleikar verða haldnir á Álafossi í Mosfellsbæ þann 11. júní næstkomandi. Þetta er í fjórða sinn sem tónleikarnir eru haldnir. Í ár munu eftirtaldar hljómsveitir koma fram á MúsMos. Það eru hljómsveitirnar Legend, Vintage Caravan, Moy, Gummster, Elín Ey, Sleeps like an angry bear, Rökkuró, Murrk og Trust the lies. Tónleikarnir byrja klukkan 15 og standa til 19.30. Ókeypis er inn á tónleikana og munu hjólabretta- og BMX-kappar á vegum LEX-Games leika listir sínar meðan á tón- leikunum stendur. Sigurvegarar Laufey Dís Ragnarsdóttir og Rakel Ósk Sölvadóttir áttu bestu hugmynd keppninnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.