Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Side 21
Hulda Hrönn fæddist við Lang-holtsveginn í Reykjavík og ólst þar upp til níu ára aldurs en síð- an við Sunnuveginn þar sem hún átti heima til 1987. Hún flutti þá í Hrísey og hefur átt þar heima síðan. Hulda Hrönn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1981 og embættisprófi í guðfræði við Há- skóla Íslands 1987. Þá stundaði hún MA-nám í kennimannlegri guðfræði með áherslu á sjúkrahúsprestþjón- ustu við Edinborgarháskóla frá 1995 og lauk þaðan M.Th.-prófi 1997. Með guðfræðináminu starfaði Hulda Hrönn hjá Rafmagnsveitum ríkisins, Rannsóknarlögreglu ríkis- ins, við Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar, Sumarbúðir í Kaldárseli og hjá söfn- uði Háteigskirkju. Hulda Hrönn hefur verið sókn- arprestur í Hríseyjarprestakalli frá 1987 en því tilheyra Stærra-Árskógs- sókn og Hríseyjarsókn. Þá hefur hún sinnt afleysingarþjónustu í Möðru- vallaklaustursprestakalli og Dalvík- urprestakalli og sinnt hlutastörfum á skrifstofu KEA í Hrísey, við Sparisjóð Hríseyjar, Grunnskóla Hríseyjar og Árskógsskóla og við Sumarbúðirnar á Hólavatni. Hulda Hrönn sat í nefnd á vegum Þjóðkirkjunnar 1988–98 um Kvenna- áratug Alkirkjuráðsins, sat í stjórn Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti hinu forna 1988–89, í nefnd til undirbúnings Kristnitökuafmælis í Eyjafjarðarprófastsdæmi 2000, 1988– 89, var fulltrúi íslensku Þjóðkirkj- unnar í Den nordiska ecumeniska kvennokommittén 1988–92, í Endur- skoðunarnefnd siðareglna Presta- félags Íslands 1991–94, sat í Héraðs- nefnd Eyjafjarðarprófastsdæmis 1990–2007, sat í stjórn Prestafélags Hólastiftis hins forna frá 1997, í vara- nefnd jafnréttisnefndar Þjóðkirkj- unnar frá 1999 og síðan formað- ur nefndarinnar 2006–2010 og sat í Kynningarnefnd Eyjafjarðarprófasts- dæmis. Hún er nú formaður Kvenfé- lags Hríseyjar. Fjölskylda Systkini Huldu Hrannar eru Guð- mundur Óli Helgason, f. 24.2. 1949, sálfræðingur í Reykjavík; Guðrún Lára Helgadóttir, f. 25.3. 1955, skjala- fræðingur í Svíþjóð, gift Christer All- anson; Þórólfur Örn Helgason, f. 31.8. 1959, BA í sagnfræði, búsettur í Reykjavík; Kjartan Orri Helgason, f. 19.11. 1967, viðskiptafræðingur í Reykjavík, kvæntur Guðlaugu Erlu Halldórsdóttur. Foreldrar Huldu Hrannar eru Helgi Ólafsson, f. 25.12. 1926, hag- fræðingur í Reykjavík, og Munda Kristbjörg Guðmundsdóttir, f. 27.9. 1926, d. 4.1. 2009, húsmóðir. Ætt Helgi er sonur Ólafs, trésmiðs í Reykjavík Auðunssonar, b. á Kíl- hrauni á Skeiðum Ólafssonar, b. á Núpi í Fljótshlíð Einarssonar. Móðir Ólafs Einarssonar var Ragnhildur, í Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum. Móð- ir Ragnhildar var Sigríður Jónsdóttir, eldprests á Prestbakka á Síðu Stein- grímssonar. Móðir Auðuns var Guð- rún Auðunsdóttir, pr. á Stóru-Völl- um á Landi Jónssonar, pr. á Mosfelli í Mosfellssveit Hannessonar. Móðir Ólafs var Þorbjörg Brynjólfsdóttir. Móðir Helga var Lára Guðmunds- dóttir, skútuskipstjóra og tómthús- manns í Charlottuhúsi í Stykkishólmi Halldórssonar. Móðir Láru var Kristín Indriðadóttir. Munda Kristbjörg var dóttir Guð- mundar, b. og skipasmiðs á Kleifum í Skötufirði Magnússonar, og Guðrúnar Jónsdóttur. Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21 Mánudagur 6. júní 2011 Til hamingju! Afmæli 6. júní Til hamingju! Afmæli 7. júní 30 ára „ Krystian Grzegorz Siwek Stillholti 19, Akranesi „ Þórður Viggó Guðjohnsen Ljárskógum 8, Reykjavík „ Kristján Björn Tryggvason Kríuási 47, Hafnarfirði „ Atli Ómarsson Bólstaðarhlíð 23, Reykjavík „ Freyr Finnbogason Unufelli 48, Reykjavík „ Tryggvi Sveinsson Nónhæð 4, Garðabæ „ Davíð Ingi Baldursson Birkimörk 2, Hveragerði 40 ára „ Ireneusz Aleksander Dowgier Urðarteigi 28, Neskaupstað „ Hulda Vilhjálmsdóttir Baldursgötu 22a, Reykjavík „ Guðrún Lilja Jóhannsdóttir Kambahrauni 42, Hveragerði „ Kristinn Leví Aðalbjörnsson Svarthömrum 70, Reykjavík „ Jóhanna Einarsdóttir Fléttuvöllum 33, Hafnarfirði „ Heiða Erlingsdóttir Vættagili 18, Akureyri „ Ótthar Edvardsson Háaleitisbraut 123, Reykjavík 50 ára „ Ólöf Jónsdóttir Smyrlahrauni 54, Hafnarfirði „ Ásdís Gústafsdóttir Miðstræti 18, Bolungarvík „ Elín Helgadóttir Litlakrika 35, Mosfellsbæ „ Ólafur Pétursson Keilufelli 2, Reykjavík „ Hjördís Sverrisdóttir Einarsstöðum 2, Húsavík „ Gunnar Magnússon Litlakrika 12, Mosfellsbæ „ Lárus Hrafn Lárusson Safamýri 52, Reykjavík „ Salóme Ásta Arnardóttir Tómasarhaga 49, Reykjavík „ Halldór Reinhardtsson Suðurgarði 8, Reykja- nesbæ „ Hrönn Bergþórsdóttir Suðurgötu 92, Hafnar- firði „ Jón Bjarnason Sólheimum 26, Reykjavík „ Sigríður Oddsdóttir Efstasundi 72, Reykjavík „ Sandra Magnúsdóttir Bjarnhólastíg 1, Kópavogi „ Gestur Áskelsson Knarrarbergi 9, Þorlákshöfn 60 ára „ József Vengrin Breiðvangi 18, Hafnarfirði „ Óli Þór Valgeirsson Svölutjörn 71, Reykjanesbæ „ Hörður Kristjánsson Stuðlaseli 8, Reykjavík „ Jóna Pálsdóttir Fellahvarfi 27, Kópavogi „ Guðbjörg Ragna Ragnarsdóttir Grettisgötu 6, Reykjavík „ Margrét Gunnarsdóttir Hjallabraut 76, Hafnarfirði „ Ástríður Sigurðardóttir Sóltún 8a Hvanneyri, Borgarnesi „ Indriði Guðmundsson Möðrufelli 5, Reykjavík „ Olga G. Snorradóttir Akurhvarfi 1, Kópavogi „ Baldur Þór Þorvaldsson Leiðhömrum 31, Reykjavík „ Edda Sigurðardóttir Aðalstræti 8, Reykjavík 70 ára „ Halldóra Jónsdóttir Álfaskeiði 72, Hafnarfirði „ Hrólfur Ingimundarson Norðurbraut 31, Hafnarfirði „ Jóhann Harðarson Hátúni 10a, Reykjavík „ Jóhann Landmark Guðbjartsson Esjubraut 8, Akranesi „ Guðmundur Sveinsson Bæjartúni 14, Kópavogi „ Erna Elínbjörg Árnadóttir Bogatúni 10, Hellu „ Grétar Jónsson Heiðarseli 15, Reykjavík „ Hallfríður Edda Lýðsdóttir Laufvangi 16, Hafnarfirði 75 ára „ Sigurveig G. Einarsdóttir Bjarkarlundi 3, Akureyri „ Jón Guðmundur Halldórsson Hraunbæ 176, Reykjavík „ Runólfur Sigurðsson Krókamýri 78, Garðabæ „ Guðríður Sveinsdóttir Vesturhólum 7, Reykjavík 80 ára „ Ástríður Magnúsdóttir Meistaravöllum 15, Reykjavík „ Anna Sigríður Hauksdóttir Glósölum 7, Kópavogi „ Sigurborg Jakobsdóttir Leirubakka 4, Reykjavík „ Jónína Ingibergsdóttir Herjólfsgötu 7, Vest- mannaeyjum 85 ára „ Gísli Guðmundsson Garðsstöðum 19, Reykjavík „ Margrét Katrín Valdimarsdóttir Ölduslóð 44, Hafnarfirði „ Hólmfríður Kristdórsdóttir Gunnarsstöðum 2, Þórshöfn 90 ára „ Stefán Jónsson Ærlækjarseli 1, Kópaskeri „ Geirfinnur Karlsson Kjarnalundi dvalarh., Akureyri 30 ára „ Slobodanka Sapina Túngötu 3, Grindavík „ Vyacneslav Yelysyuchenko Skipal. 25, H.f. „ Pawel Niescier Túngötu 5, Reykjavík „ Ko-Leen Berman Bogabraut 961, Reykjanesbæ „ Marcin Jachimowicz Grettisgötu 40b, Reykjavík „ Jacek Makowski Miðbraut 13, Hrísey „ Monika Agnieszka Staszek Furugrund 58, Kóp. „ Ingi Sævar Ingason Unufelli 48, Reykjavík „ Grétar Örn Jóhannsson Krókavaði 17, Reykjavík „ Erlingur R. Björnsson Starengi 20a, Reykjavík „ Friðrik S. Björnsson Hraunbæ 5, Hveragerði „ Þórólfur Nielsen Lyngmóum 7, Garðabæ „ Jón Bragi Guðjónsson Nýbýlavegi 22, Hvolsv. 40 ára „ Ellý R. Gunnlaugsdóttir Höfðavegi 20, Vestm. „ Ragnar Steinarsson Faxabraut 69, R.bæ „ Áslaug Kristjánsdóttir Snægili 16, Akureyri „ Ragna Björnsdóttir Smáratúni 17, Selfossi „ Sigurður Ingi Ingason Höfðavegi 21, Vestm. „ Steingrímur Waltersson Fálkahöfða 8, Mos. „ Renata Jasinska Hjarðarhaga 64, Reykjavík „ Halldóra G. Jónsdóttir Glitvöllum 2, Hafnarf. „ Kristján J. Svavarsson Hverfisgötu 63, Hafnarf. „ Magnús G. Sigmundsson Úthlíð 21, Hafnarfirði „ Heiða Björg Ingadóttir Goðheimum 6, Rvk 50 ára „ Hallgrímur Óskarsson Laufásvegi 6, Reykjavík „ Örn Harðarson Blásölum 24, Kópavogi „ Signý Þorkelsdóttir Traðarstíg 3, Bolungarvík „ Auður Árnadóttir Mosprýði 2, Garðabæ „ Amelia B. Mateeva Háaleitisbraut 16, Reykjavík „ Svetlana Pankratjeva Kársnesbraut 106, Kóp „ Shok Han Liu Strandgötu 8, Skagaströnd „ Þórleif V. Friðriksdóttir Torfufelli 19, Reykjavík „ Sandra J. Svavarsdóttir Gljúfraseli 6, Rvk „ Einar Örn Steinarsson Birkihlíð 44, Reykjavík „ Sigurlín Baldursdóttir Sólvallagötu 61, Rvk „ Hildur Vera Sæmundsdóttir Víðimel 19, Rvk „ Svala Stefánsdóttir Keilusíðu 2g, Akureyri „ Una Kristín Einarsdóttir Rósarima 2, Reykjavík „ Jón Karl Svavarsson Háholti 19, Akranesi 60 ára „ Sigrún Harðardóttir Baughóli 60, Húsavík „ Guðbrandur Sigurbergsson Suðurholti 12, H.f. „ Atli Árnason Hrólfsskálavör 9, Seltjarnarnesi „ Sesselja Fornadóttir Höfða 20, Húsavík „ Þorsteinn Sigurðsson Húsafelli 5, Reykh. Borg.f. „ Jón Skaptason Nesvegi 82, Reykjavík „ Finnur Þór Friðriksson Hólavegi 19, Sauðárkr. „ Guðfinna Sigurgeirsdóttir Sólheimum 25, Reykjavík „ Valgerður Hermannsdóttir Markholti 24, Mosfellsbæ „ Hrönn Heiðbjört Eggertsdóttir Hjarðarholti 10, Akranesi „ Þórunn Halldóra Matthíasdóttir Frostaskjóli 61, Reykjavík „ Gabríel V. Guðmundsson Arnarhrauni 24, Hafnarfirði „ Börkur Gunnarsson Vitastíg 12, Reykjavík 70 ára „ Magnús Ingvarsson Hlíðarhjalla 33, Kópavogi „ Vigfús Jónsson Boðaþingi 8, Kópavogi „ Gerður Ólafsdóttir Klapparhlíð 1, Mosfellsbæ „ Nanna Þórðardóttir Laufvangi 1, Hafnarfirði „ Emhild Kjærtrud Olsen Baldursbrekku 17, Húsavík 75 ára „ Haukur Þorkelsson Álfaskeiði 64, Hafnarfirði „ Kristján Þorkelsson Breiðuvík 31, Reykjavík „ Brynjólfur Samúelsson Framnesvegi 21, Reykjavík „ Sigurður Sigurþórsson Mánabraut 11, Þorláks- höfn „ Herdís Jónsdóttir Eyrarflöt 3, Akranesi 80 ára „ Jónatan Aðalsteinsson Kjarrmóa 21, Reykja- nesbæ „ Svanhildur Jóhannesdóttir Tjaldhólum 9, Selfossi „ Herdís Ingibjartsdóttir Laugarnesvegi 88, Reykjavík „ Karitas Ólafsdóttir Bogabraut 16, Skagaströnd „ Gríma Sveinbjörnsdóttir Austurströnd 10, Seltjarnarnesi „ Guðjón Guðmundsson Furugrund 26, Akranesi „ Anna Emilía Viggósdóttir Fífuhjalla 4, Kópavogi „ Sjöfn Jóhanna Haraldsdóttir Espigerði 4, Reykjavík „ Nanna Sigfríður Þorleifsdóttir Gullsmára 9, Kópavogi „ Sigurður J. Ágústsson Frostafold 6, Reykjavík „ Nanna L. Pedersen Fróðengi 9, Reykjavík „ Jón Skagfjörð Stefánsson Gauksstöðum, Sauðárkróki 85 ára „ Ingvar Sigurjónsson Hraunbúðum, Vest- mannaeyjum „ Ingibjörg Aðalsteinsdóttir Langholtsvegi 200, Reykjavík 90 ára „ Rafn Kristjánsson Árskógum 2, Reykjavík „ Sigrún G. Fjeldsted Austurströnd 4, Sel- tjarnarnesi Gestur fæddist að Hæli í Gnúp-verjahreppi og ólst þar upp í for-eldrahúsum. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1964 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1974. Gestur var lögfræðingur Sjóvá- tryggingarfélags Íslands 1974–76, varaskattstjóri í Reykjavík 1976–78 og skattstjóri í Reykjavík 1978–2009 þeg- ar embættið var lagt niður. Fjölskylda Gestur kvæntist 27.8. 1966 Drífu Páls- dóttur, f. 8.4. 1945, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu. Hún er dóttir Páls Hallgrímssonar, sýslumanns í Ár- nessýslu, og Áslaugar Símonardóttur, varðstjóra hjá Pósti og síma á Selfossi en þau eru bæði látin. Börn Gests og Drífu eru Páll Gests- son, f. 20.9. 1967, verkfræðingur hjá Ís- lenskri erfðagreiningu, kvæntur Dag- rúnu Árnadóttur og eiga þau þrjá syni; Steinunn Gestsdóttir, f. 17.6. 1971, doktor í sálfræði, gift Atla Frey Magn- ússyni og eiga þau þrjú börn; Steinþór Gestsson, f. 29.11. 1983, flugmaður. Systkini Gests eru Jóhanna Stein- þórsdóttir, f. 27.11. 1938, fyrrv. skóla- stjóri í Gnúpverjahreppi, nú búsett í Reykjavík og á hún þrjú börn; Aðal- steinn Steinþórsson, f. 6.7. 1943, bú- fræðingur og starfsmaður Landsvirkj- unar og á hann tvær dætur; Margrét Steinþórsdóttir, f. 18.4. 1946, bóndi í Háholti í Gnúpverjahreppi og á hún fimm börn; Sigurður Steinþórsson, f. 21.3. 1954, bóndi að Hæli og á hann þrjár dætur. Foreldrar Gests voru Steinþór Gestsson, f. 31.5. 1913, d. 4.9. 2005, bóndi og fyrrv. alþm. að Hæli, og k.h., Steinunn Matthíasdóttir, f. 8.10. 1912, d. 6.2. 1990, húsfreyja að Hæli. Ætt Steinþór var sonur Gests, b. á Hæli, bróður Ingigerðar, móðurömmu Ingi- mundar Sveinssonar arkitekts, Einars Sveinssonar, fyrrv. forstjóra Sjóvár- Almennra, og Benedikts Sveinsson- ar hrl., föður Bjarna, alþm. og for- manns Sjálfstæðisflokksins. Bróðir Gests var Eiríkur alþm. Gestur var sonur Einars, b. á Hæli Gestssonar, b. þar Gíslasonar, b. þar Gamalíelssonar. Móðir Einars var Ingveldur Einars- dóttir, b. í Laxárdal í Eystrihreppi og ættföður Laxárdalsættar Jónssonar. Móðir Gests Einarssonar var Stein- unn, systir Guðrúnar, móður Guð- nýjar, móður Brynjólfs Bjarnasonar, heimspekings og ráðherra, en systir Guðnýjar var Torfhildur, langamma Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgun- blaðsins. Steinunn var dóttir Vigfúsar, sýslumanns á Borðeyri Thorarensen, og Guðrúnar, systur Bjarna Thoraren- sen, skálds og amtmanns. Móðir Steinþórs alþm. var Mar- grét Gísladóttir, b. í Ásum í Eystri- hreppi Einarssonar, b. á Urriðafossi Einarssonar, ættföður Urriðafossætt- ar Magnússonar. Móðir Margrétar var Margrét, ljósmóðir Guðmunds- dóttir, b. í Ásum Þormóðssonar, og Margrétar Jónsdóttur, pr. á Klaustur- hólum Jónssonar, pr. í Hruna, bróður Hannesar biskups, ættföður Finsen- ættar Finnssonar biskups Jónssonar. Steinunn var systir Haralds, menntaskólakennara á Laugarvatni, föður Ólafs, fyrrv. alþm., föður Har- aldar Arnar, ferðagarps og pólfara. Steinunn var dóttir Matthíasar, b. á Fossi Jónssonar, b. á Skarði Jónssonar, b. á Skarði Gíslasonar, b. á Hæli, bróð- ur Gests, langafa Steinþórs. Móðir Matthíasar var Steinunn, systir Rósu, langömmu Alfreðs Flóka. Steinunn var dóttir Matthíasar, b. á Miðfelli Gíslasonar, b. á Sóleyjarbakka Jóns- sonar, b. á Spóastöðum Guðmunds- sonar, ættföður Kópsvatnsættar Þor- steinssonar. Móðir Matthíasar var Steinunn Jónsdóttir frá Hurðabaki. Móðir Steinunnar á Hæli var Jó- hanna Bjarnadóttir, b. í Glóru Jóns- sonar, b. í Háholti Árnasonar, b. í Há- holti Eiríkssonar. Móðir Jóhönnu var Guðlaug Loftsdóttir, b. í Austurhlíð Eiríkssonar, dbrm. á Reykjum og ætt- föður Reykjaættar Vigfússonar. Gestur Steinþórsson Fyrrv. skattstjóri í Reykjavík Hulda Hrönn M. Helgadóttir Sóknarprestur í Hrísey 70 ára á þriðjudag 50 ára á mánudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.