Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Síða 4
4 | Fréttir 8. júní 2011 Miðvikudagur
Viðskiptavinur Glitnis tapaði máli gegn bankanum:
Fer ekki fyrir Hæstarétt
Fyrrverandi viðskiptavinur eign
astýringar Glitnis, Þórður Sverrisson
læknir, ætlar ekki að áfrýja niður
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
dómsmáli sem hann höfðaði gegn
Glitni til Hæstaréttar Íslands. Þetta
segir lögmaður Þórðar í málinu,
Garðar Garðarsson. Dómurinn sem
féll í málinu um miðjan maí var
Glitni í hag. Garðar segir ástæðuna
fyrir þessari ákvörðun vera þá að
frekari gögn skorti til að halda mála
rekstrinum áfram.
Þórður höfðaði skaðabótamál
gegn Glitni vegna kaupa eignastýr
ingardeildar bankans á tveimur víxl
um eignarhaldsfélagsins Milestone
fyrir hans hönd upp á samtals tíu
milljónir króna í október 2007. 6,2
milljarðar króna söfnuðust í um
ræddu skuldabréfa og víxlaútboði
og kom hluti þeirra fjármuna frá við
skiptavinum eignastýringardeild
ar Glitnis. Eigendur Milestone, þeir
Karl og Steingrímur Wernerssynir,
voru á þessum tíma á meðal stærstu
hluthafa Glitnis. Þórður tapaði tíu
milljónum króna á viðskiptunum.
Mál Þórðar var þingfest í nóvem
ber í fyrra. Rök Þórðar í málinu sner
ust um það að starfsmenn eignastýr
ingardeildar Glitnis hefðu fjárfest
fyrir hans hönd í umræddum víxlum
gegn betri vitund stjórnenda Glitnis
þar sem Milestone hefði átt í erfið
leikum með að fjármagna sig þeg
ar útboðið fór fram. Með útboðinu
náði Milestone að endurfjármagna
félagið á erfiðum tíma, þegar félagið
gat ekki fengið lán annars staðar frá.
Ein helsta ástæðan fyrir niður
stöðu dómarans í málinu var sú að
hann taldi ekki sannað að stjórn
endur og starfsmenn Glitnis hefðu
vitað að fjárhagsleg staða Milestone
væri eins slæm og raun bar vitni þeg
ar víxlarnir voru keyptir fyrir hönd
Þórðar. Mál Þórðar hafði mikið for
dæmisgildi og biðu fleiri viðskipta
vinir Glitnis eftir niðurstöðu í því
með það fyrir augum að leita réttar
síns. ingi@dv
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst
Áfrýjar ekki Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðaði Glitni í hag í maí. Steinunn Guð-
bjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis,
sést hér á leið í dómsal þar sem dómurinn
var kveðinn upp í maí síðastliðnum.
Súkkulaði Jóa
Fel innkallað
Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur hefur stöðvað sölu og
innkallað af markaði þrjár tegundir
af súkkulaði kennt við bakarann Jóa
Fel. Ástæða þessa er að ekki kemur
fram á umbúðum súkkulaðisins að
vörurnar innihalda afurð úr soja,
sem er ofnæmis og óþolsvaldur.
Hjá Jóa Fel hefur, í samráði við
matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, verið ákveðið að inn
kalla af markaði „Jói Fel Belgískt
súkkulaði, 33% súkkulaði massi“, „Jói
Fel Belgískt súkkulaði, 52% súkkul
aði massi“ og „Jói Fel Hvítt súkkul
aði“ þar sem vörurnar innihalda
aukefnið lesitín en ekki kemur fram
á umbúðum þeirra að uppruni þess
er úr soja.
Súkkulaðið er selt í verslunum
Hagkaups.
Tekið skal fram að vörurnar eru
skaðlausar fyrir þá sem ekki eru við
kvæmir fyrir soja og
afurðum úr því.
Þeir neytend
ur sem
eiga um
ræddar
vörur og
eru við
kvæm
ir fyrir
soja og
afurðum
úr því eru
beðn
ir um að
farga þeim
eða skila til
Hjá Jóa Fel
gegn endur
greiðslu.
Afsökunarbeiðni
Vegna myndbirtinga í tölublaði DV
16. til 18. júlí 2010 af Björgu Mar
teinsdóttur og Ólafi Einarssyni biðst
DV afsökunar á því að ekki var feng
ið leyfi til að birta myndirnar sem
voru á sjonarholl.is.
DV hefur þegar greitt fyrir notk
un myndanna samkvæmt gjald
skrá Myndstefs. Greiðslan er innt af
hendi án viðurkenningar á frek
ari bótaskyldu. Var upphæðin lögð
inn á reikning lögmanns Bjargar og
Ólafs.
„Okkur þykir leiðinlegt að heyra af
þessari óánægju hjá ykkur og getum
ekki annað en beðist innilegrar vel
virðingar enn og aftur,“ segir í skrif
legu svari sem Sigfús Aðalsteinsson og
kona hans Mierla Radu fengu frá Ice
land Express á dögunum. Parið flaug
með félaginu frá Keflavík til Alicante
þann 26. maí síðastliðinn. Í för með
parinu var fjölskylduhundurinn Lubi
af gerðinni Pomeranian sem átti að
koma með til Spánar. Fyrir mistök
starfsmanns Iceland Express varð litli
hundurinn eftir á Keflavíkurflugvelli á
meðan Sigfús og Mierla flugu til Spán
ar og vissu ekki betur en hundurinn
væri um borð. Eftir mikið vesen komst
hundurinn svo loks til Alicante nokkr
um dögum síðar. Þar týndist hann aft
ur á flugvellinum þar sem hann fór
hring eftir hring á færibandinu.
„Konan mín gjörsamlega féll sam
an og hefur liðið herfilega í þessa tvo
daga,“ segir í kvörtunarbréfi Sigfúsar
til Iceland Express, en það fékk mikið
á þau að komast að því að þau höfðu
orðið viðskila við hundinn sem varð
eftir í Keflavík þegar þau voru komin
til Spánar.
„Hvað er í gangi? Hvernig er
þetta hægt?“
DV hefur undir höndum tölvupósts
samskipti á milli Sigfúsar og ónafn
greinds starfsmanns frá Farþega
þjónustu Iceland Express. Í fyrsta
bréfinu sem er dagsett þann 28. maí,
skrifar Sigfús félaginu og kvartar
vegna þeirra miklu óþæginda sem
þau urðu fyrir. Í bréfinu segir Sigfús:
„Undirritaður getur ekki orða bund
ist, fór með vél til Alicante 26. maí
ásamt stórum hóp alls sex manns og
einum hundi.“ Hann lýsir því svo að
við innritun hafi verið vesen vegna
þess að innritunarfulltrúinn hefði
haft áhyggjur af rúmensku vega
bréfi konu sinnar. Eftir nokkurt þref
tók konan sem starfaði í innritun við
hundinum. Hún hafi síðan farið með
hundinn að áhafnarhliði þar sem ör
yggisvörðum hafi verið tilkynnti að
hundurinn ætti að fara til Alicante.
Sigfús segist hafa margspurt flug
freyju hvort hundurinn væri ekki
örugglega með um borð. „Meira af
forvitni um líðan hans en að halda
að hann sé ekki um borð. Hún sagð
ist ætla að athuga það,“ skrifar hann í
kvörtunarbréfinu.
Sigfús segir að hann hafi feng
ið þau svör að ekki hafi verið hægt
að kanna hvort hundurinn væri um
borð og þá hafi runnið á hann tvær
grímur. „Ég vissi þá að eitthvað var
að.“ Við komuna til Alicante fengu
þau fréttir sem fengu mikið á þau:
„Hundurinn varð eftir í Keflavík.
Hvað er í gangi? Hvernig er þetta
hægt?“ skrifar hann og sparar hvorki
spurningarmerki né hástafi.
Hring eftir hring
Sigfús lýsir því að konan hans hafi
fallið saman og liðið herfilega eftir
að þau fréttu af raunum hundsins.
„Við auluðumst frá flugvellinum með
símann logandi í að fá upplýsingar
um hundinn.“ Hann lýsir því svo að
þau hafi þurft að fá samstarfsmann
hans til þess sækja hundinn aftur á
Keflavíkurflugvöll eftir að upp komst
um mistökin. Þau hafi þurft að finna
gistingu í þrjár nætur og hanga svo á
flugvellinum á Alicante í þeirri von
um að hundurinn kæmi.
Hann fékk svo svar frá Iceland Ex
press þar sem beðist er afsökunar á
klúðrinu. „Við skiljum vel að þetta at
vik hafi valdið ykkur mikilli vanlíðan
og þykir okkur það mjög svo miður
og ítrekum hversu leiðinlegt okkur
þykir þetta,“ eins og segir í nafnlausa
svarbréfinu.
Iceland Express bauðst síðan til
að endurgreiða 9.500 króna flutn
ingskostnað fyrir hundinn. Þau
brugðust ekki vel við því tilboði og
í öðrum tölvupósti skrifar Sigfús að
það tilboð sé algjört rugl. Raunir
hundsins voru aldeilis ekki búnar
því Sigfús lýsir því að þegar hund
urinn loksins komst til Alicante hafi
hann verið týndur í rúmlega klukku
tíma. „Sá sem þjónustar ykkur fann
hann ekki fyrr en eftir rúmlega
klukkutíma leit og þá hjá lögregl
unni. Hann hafði þá farið hring eftir
hring á færibandinu því enginn var
til að taka hann.“
Iceland Express hækkaði þá til
boð sitt. Auk þess að endurgreiða
9.500 króna flutningskostnað fyr
ir hundinn var Sigfúsi boðin 15.000
króna inneign hjá félaginu.
Hundurinn gleymdist
á KeflavíKurflugvelli
n Iceland Express gleymdi hundinum í Leifstöð n Eigendur hundsins
flugu grunlausir til Alicante n Fór í hringi á færibandinu í Alicante „Við skiljum vel að
þetta atvik hafi
valdið ykkur mikilli van-
líðan og þykir okkur það
mjög svo miður og ítrek-
um hversu leiðinlegt okk-
ur þykir þetta.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Miklar raunir Hundurinn
Lubi af gerðinni Pomeranian
varð eftir á Keflavíkurflugvelli.
Nokkrum dögum síðar komst
hann loksins til Alicante og þá
týndist hann aftur. Eigendur
hundsins eru miður sín.