Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Miðvikudagur 8. júní 2011
Samkomulag við fjármálaráðherra
Póstatkvæðagreiðsla er hafin
Hafin er póstatkvæðagreiðsla um nýtt Samkomulag
Starfsgreinasambands Íslands við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn aðildarfélaga SGS sem vinna eftir
þessum samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers aðildarfélaganna í
apríl/maí 2011.
Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá.
Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur
viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags, og fengið sig færðan á
kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem
sanni afdregin félagsgjöld í apríl/maí 2011.
Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00
miðvikudaginn 22. júní en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.
Reykjavík, 6. júní 2011.
Kjörstjórn
Starfsgreinasambands Íslands
Starfsgreinasamband Íslands
Ísland verður í síðasta styrkleika-
flokki þegar dregið verður í riðla
í undankeppni fyrir Heimsmeist-
aramótið 2014. Drátturinn fer fram
þann 30. júlí. Liðum er raðað eftir
styrkleika í sex potta. Í fyrsta pott-
inum eru bestu landslið heims, auk
Noregs og Grikklands, einhverra
hluta vegna, en í öðrum potti eru lið-
in sem þykja koma þar á eftir, miðað
við árangur síðustu ára. Ísland er í
neðsta pottinum ásamt Lúxemborg,
Færeyjum, Kasakstan, Liechten-
stein, Möltu, Andorra og San Mar-
ínó. Þetta eru slökustu knattspyrnu-
þjóðir Evrópu. Þess má geta að þegar
stigasöfnun í síðustu tveimur und-
ankeppnum fyrir stórmót er skoð-
uð kemur í ljós að einungis Færeyj-
ar, Liechtenstein, Malta, Andorra og
San Marínó hafa safnað færri stigum
en íslenska landsliðið undir stjórn
Ólafs Jóhannessonar.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
hefur þrátt fyrir afleitan árangur liðs-
ins tekið af allan vafa um að Ólafur
muni stýra landsliðinu út þessa und-
ankeppni, eða þar til samningi hans
við sambandið lýkur. „Það eru auðvi-
tað allir óánægðir með að við skulum
bara vera með eitt stig,“ sagði hann í
samtali við Morgunblaðið. Hann sér
samt ekki ástæðu til að grípa til að-
gerða.
Næsti leikur landsliðsins er gegn
Ungverjalandi þann 10. ágúst næst-
komandi. Undankeppninni fyrir EM
lýkur svo í haust.
baldur@dv.is
Allir
óánægðir
Geir Þor-
steinsson
ætlar ekki að
reka Ólaf.
Mynd Sigtryggur Ari
Ísland kemst
ekki neðar
Hornamaðurinn knái Þórir Ólafsson
hefur samið við pólska liðið Kielce.
Þórir hefur verið fyrirliði þýska 1.
deildarliðsins Lübbecke og leikið
með því frá árinu 2005. Liðið leikur
undir stjórn pólska landsliðsþjálfar-
ans Bodgdans Wenta og varð pólskur
meistari í fyrra. Liðið er stjörnum prýtt,
með því leika meðal annarra Pólverj-
inn Mariusz Jurasik og Króatinn Mirza
Dzomba, sem leikur einmitt sömu
stöðu og Þórir. Fleiri þekkt nöfn eru á
leið til liðsins en þar ber helst að nefna
markvörðinn Slawomir Szmal.
Þórir til Póllands
Spilar kannski ekkert Óvíst er með þátttöku Arons í síðari leiknum.
eign væru skelfileg úrslit fyrir Ísland.
Það myndi þýða að Íslendingar verði
að vinna Austurríki með átta marka
mun í síðasta leiknum til að kom-
ast í lokakeppnina. Ef mið er tekið af
síðustu viðureignum Íslendinga við
Austurríkismenn gæti sá róður orðið
þungur. Ekki síst í ljósi þess að spila-
mennska Íslands í síðasta leik var af-
leit. Liðið tapaði þá með 11 marka
mun gegn Þjóðverjum í Þýskalandi
en nokkrum dögum áður hafði liðið
unnið með fimm mörkum.
Óskar Bjarni segir að liðið einbeiti
sér nú að því sem framundan sé.
Skellurinn gegn Þjóðverjum hafi ver-
ið krufinn strax að loknum þeim leik.
„Það var eiginlega allt sem klikkaði
þar og það er búið að vinna með alla
þessa þætti,“ segir hann um skellinn.
Hann segir að mestur tími fari í að
slípa saman vörnina enda sé tíminn
sem liðið hafi til undirbúnings afar
knappur. Lítill tími gefist til áherslu-
breytinga. Liðið nái fjórum æfingum
fyrir leikinn gegn Lettlandi en líklega
tveimur fyrir leikinn gegn Austurríki.
„Við erum þó búnir að fara vel yfir
leik Lettlands og Austurríkis og það
nýtist okkur vonandi vel.“
Hreinn úrslitaleikur
Ef verkefnið í Lettlandi gengur vel
verður leikurinn við Austurríki
hreinn úrslitaleikur um það hvort
liðið kemst á EM í Serbíu. Jafnt-
efli Þýskalands og Austurríkis væru
slæm úrslit fyrir Ísland. „Þá er þetta
orðin spurning um markatölu og
einhverja útreikninga. Við stöndum
illa þar eftir stórt tap fyrir Þýskalandi.
Þetta verður þá ansi erfitt,“ segir Ósk-
ar Bjarni sem vonast til þess að ann-
að liðið vinni. Þá nægi sigur gegn
Austurríki. „Við höfum átt í basli með
Austurríkismenn og þeir eru mjög
verðugur andstæðingar,“ segir hann.
Lið þeirra sé nánast óbreytt frá síð-
ustu árum og þeir séu með mjög
sterkt byrjunarlið. „En það er bara
gaman að verkefnin séu krefjandi,“
segir hann bjartsýnn. Hann vonar
að Laugardalshöll verði full á sunnu-
daginn. „Það er mjög mikilvægt að
fá fulla höll. Þó strákarnir séu vanir
að spila fyrir fleiri áhorfendur með
sínum félagsliðum hafa þessir leik-
ir í júní verið það skemmtilegasta
sem þeir gera undanfarin ár, sérstak-
lega þessi þjóðhátíðarstemning sem
myndast. Það getur hjálpað okkur
mikið.“
Sigur, töp og jafntefli
Síðustu leikir Íslands gegn Austurríki
18. janúar 2011
Ísland - Austurríki 26–23
20. október 2010
Ísland - Austurríki 23–28
21. janúar 2010
Ísland - Austurríki 37–37
9. júní 2009
Ísland - Austurríki 28–36
Staðan í riðlinum
-Öll lið eiga eftir að leika tvo leiki
Lið stig markatala
1. Austurríki 7 +18
2. Þýskaland 5 +24
3. Ísland 4 -9
4. Lettland 0 -33
„ Ef verkefnið í Lett-
landi gengur vel
verður leikurinn við Aust-
urríki hreinn úrslitaleikur
um það hvort liðið kemst
á EM í Serbíu.