Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 8. júní 2011 Miðvikudagur Safnið Víkingaheimar var opnað 17. júní 2009 í Reykjanesbæ og fékk 120 milljóna króna styrk frá ríkinu til sex ára til uppbyggingar. Safnið hefur einnig hlotið styrki frá ýmsum fyr- irtækjum og Smithsonian-safninu í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þetta skulda eignarhaldsfélögin tvö sem halda utan um húsnæði og rekstur safnsins tugum milljóna meira en þau eiga og er skuldastaða þeirra í skoðun hjá Landsbankanum. Gunnar Marel Eggertsson, frum- kvöðull safnsins, er hættur störfum hjá safninu og einnig tók nýr fram- kvæmdastjóri við haustið 2009 eftir að Steinþór Jónsson hætti störfum. Hann hafði þá verið virkur í upp- byggingu safnsins. „Eftir siglinguna þá sat ég svolít- ið eftir með sárt ennið. Töluverðar skuldir voru að hrynja á mig,“ segir Gunnar Marel Eggertsson um það þegar hann kom til landsins eftir byggingu víkingaskipsins Íslendings. Aðspurður um fjármögnun segir Gunnar að honum hafi verið tilkynnt að 18 til 20 milljónir væru eyrna- merktar Íslendingi frá landafunda- nefnd. Milljónirnar væru aftur á móti ekki á lausu nema að hann kæmi skipinu fyrir hjá einhverju bæjar- félagi. Gunnar segir að fimm aðilar hafi sýnt áhuga en þegar hann fór að banka á dyr með það að leiðarljósi að peningarnir myndu fylgja skipinu þá var lítill raunverulegur áhugi fyrir hendi. Þegar Gunnar er spurður um undanfara þess að skipið endaði í Reykjanesbæ segir Gunnar að hann hafi rætt við Árna Sigfússon núver- andi bæjarstjóra Reykjanesbæjar á sínum tíma. Árni sagði þvert nei við hugmyndum um að taka við skipinu til að byrja með. Í framhaldinu virðist Árni hafa endurskoðað afstöðu sína því hann bauð Gunnari fullklárað- an samning um hvernig Íslendingur kæmi til bæjarins þar sem Gunnar fengi 20 prósenta eignarhlut í fé- laginu utan um skipið. Gunnar segir að í framhald- inu hafi þeir sem stóðu að tökum á Bjólfskviðu leigt skipið fyrir sex millj- ónir og því hafi um 26 milljónir fylgt skipinu þegar það kom til bæjarins. Samkvæmt honum greiddi Reykja- nesbær því aldrei krónu fyrir að fá skipið og fékk Gunnar heldur aldrei greitt vegna komu skipsins. Frumkvöðullinn hætti störfum Samkvæmt heimildum DV sagði Gunnar upp störfum hjá Víkinga- heimum í september 2009 vegna óánægju með framgang mála í fé- laginu. Mikil skuldsetning félaganna í kringum Víkingaheima og rekstur- inn sjálfur voru í ójafnvægi að því er DV kemst næst og játar Gunnar að hann hafi haft það á tilfinningunni að mikil óráðsía hafi verið í kringum reksturinn. Skipið Íslendingur er staðsett að Víkingabraut í Reykjanesbæ en eignar haldsfélagið Útlendingur ehf. var stofnað utan um bygginguna sjálfa á meðan Íslendingur ehf. sér um rekstur safnsins Víkingaheima og á skipið sjálft. Bæði félögin skulda meira en þau eiga samkvæmt árs- reikningi fyrir árið 2009 en þar er eigið fé Útlendings neikvætt um rúmar 54 milljónir króna. Íslend- ingur skuldaði á sama tíma 12 millj- ónir umfram eignir. Reykjanesbær er stærsti eigandi Íslendings með 23 prósenta hlut, Gunnar Marel á 20 prósent, GLB Holding 10 prósent, Lykilráðgjöf ehf. 10 prósent, Sam- herji 8 prósent, Olís 6 prósent og svo er Íslendingur skráður með 23 pró- senta hlut í sjálfum sér. Styrkur frá ríkinu Víkingaheimar fengu árið 2005 styrk frá menntamálaráðuneytinu upp á 120 milljónir til sex ára. Heimildir DV herma að einhver hluti styrks- ins hafi runnið til annarra verkefna en Víkingaheima. Samkvæmt sömu heimildum féll kostnaður á Víkinga- heima í gegnum Íslending vegna byggingar Skessuhellis við smábáta- höfnina í Keflavík. Steinþór Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Ís- lendings segir þetta af og frá. Hann segir Íslending og Útlending ekki hafa komið nálægt Skessuhelli og að hann sjálfur hafi ekki greitt neitt vegna Skessuhellis þegar hann var í forsvari fyrir félögin. Steinþór var bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ eins og Árni Sigfússon bæjarstjóri sem er stjórnarformaður félaganna. Eftir því sem DV kemst næst voru nánast aldrei haldnir fundir í félög- unum nema lögboðnir aðalfund- ir einu sinni á ári til þess að skrifa undir samþykktir og fundargerðir. Þetta staðfestir Gunnar Marel við DV en hann sat lengi í stjórn félaganna. Hann segir að allar helstu ákvarð- anir í rekstri félaganna hafi verið teknar án samráðs við hann. Í dag er hann enn þá varamaður í stjórninni sem hann segir mestmegnis vera að nafninu til. Gæluverkefni Sjálfstæðis- flokksins Það þykir deginum ljósara að bæjar- fulltrúum Sjálfstæðisflokksins hef- ur þótt miklu muna um að halda safninu í eigu bæjarins enda hafa þeir verið áberandi við kynningar á safninu. Þegar Smithsonian-safnið í Bandaríkjunum undirritaði samning við Víkingaheima um smíð á safninu voru það Árni Sigfússon og Steinþór Jónsson sem undirrituðu samning- inn fyrir hönd Víkingaheima. Þegar DV innti Gunnar Marel, frumkvöðul Víkingaheima, eftir því hvort hann hefði aldrei leitað til annarra aðila til að koma í stað bæjarins sagðist hann hafa verið kominn með ákveðna menn í verkefnið. Menn sem hefðu verið með heilbrigt fjármagn í hönd- um og aldrei farið á haus- inn. Að sögn Gunnars þá hugnuðust þessar fyrirætlanir ekki stjórn- inni í bænum. Þrátt fyr- ir að félögin væru í bullandi skuld við bankann skipti það litlu svo fremi sem bærinn gæti haldið böndum á verk- efninu. Kostnaður greiddur af bænum Launakostnaður kemur hvergi fram í rekstrarreikningi Íslendings fyr- ir árið 2009. Aðspurður um hvaðan hann hafi þegið laun segir Gunnar að það hafi verið frá Reykjanesbæ. Fyrirkomulagið hafi verið með þeim hætti þó svo að hann hafi ekki verið sáttur við það. Hann segir að hann hafi mest fengið greiddar 300 þús- und krónur á mánuði í laun fyr- ir skatt. Samkvæmt heimildum DV hefur annar kostnaður á borð við viðhald einnig fallið á bæinn. Val- gerður Guðmundsdóttir núverandi framkvæmdastjóri félaganna seg- ir þann háttinn hafa verið á eftir að hún tók við stöðu framkvæmda- stjóra Íslendings að bærinn greiði laun og annan kostnað en að um- ræddur kostnaður sé síðan endur- greiddur af Íslendingi. Gríðarleg skuldsetning Félagið Útlendingur ehf. sem er stofnað utan um húsnæði Víkinga- heima er mikið skuldsett samkvæmt síðasta ársreikningi félagsins frá árinu 2009. Þar kemur fram að fé- lagið skuldi rúmar 466 milljónir en að eignir félagsins nemi tæpum 412 milljónum. Íslendingur er einnig með neikvætt eigið fé upp á 12 millj- ónir eins og áður hefur komið fram. Steinþór mótmælti því í samtali við DV að félögin væru tæknilega gjald- þrota þar sem eignir inni í félögun- um á borð við húsnæði Útlendings séu mun meira virði en komi fram í ársreikningunum. „Varðandi Íslend- ing þá er það rekstrarfélag sem er alls ekki tæknilega gjaldþrota og á með- al annars skipið sem er metið á ann- að hundrað milljónir,“ segir Steinþór Jónsson, fyrrverandi framkvæmda- stjóri félaganna. Að sögn Gunnars var það Stein- þór Jónsson sem stóð á bak við skuldsetninguna eftir að hann varð framkvæmdastjóri félagsins. „Það kom bara þannig til að Steinþór var gerður að framkvæmdastjóra Íslend- ings og hann gekk bara inn í Spari- sjóðinn og fékk vilyrði fyrir þessum lánum. Það var ekkert flókið,“ segir Gunnar. Blaðamaður: „Hann hefur átt greiðan aðgang þar að?“ Gunnar Marel: „Já, algjörlega.“ Gunnari, sem var frumkvöðull verkefnisins og smíðaði skipið Ís- lending, fannst sér ekki vera stætt á því að ganga fyrr frá verkefninu en þegar hann gerði það haustið 2009. „Mér fannst ég þurfa að vera þarna til að klára það að stilla skipinu upp og koma sýningunni fyrir og í gang,“ segir Gunnar aðspurður út í þá tíma- setningu sem hann valdi til að yfir- gefa verkefnið. Samkvæmt heimildum DV er stærsti hluti skulda Víkingaheima í eigu Landsbankans og verið að skoða mál eignarhaldsfélaganna tveggja sem halda utan um Víkinga- heima í bankanum. Samkvæmt árs- reikningi félaganna skuldaði Íslend- ingur Reykjanesbæ 58,3 milljónir og Útlendingur skuldaði bænum 15,8 milljónir. Það er því ljóst að Reykja- nesbær hefur mikið undir í félögun- um fyrir utan eignarhlut sinn. Val- gerður Guðmundsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri félaganna, segir að félagið hafi verið langt komið með að semja við Sparisjóðinn í Keflavík þegar sparisjóðurinn var tekinn yfir af Landsbankanum og því hafi ekki verið hægt að ganga frá endurfjár- mögnun á félaginu. Verið sé að leita allra leiða til að ganga frá því máli. VÍKINGAHEIMAR Í SKULDAVANDA n Gæluverkefni sjálfstæðismanna tæknilega gjaldþrota n Frumkvöðullinn hættur n Fékk 120 milljónir frá ríkinu Staða félaganna samkvæmt ársreikningi 2009 Skuldir Eignir Eigið fé Íslendingur ehf. 466,1 411,9 -54,2 Útlendingur ehf. 95,4 83,4 -12 Skuldir við Reykjanesbæ Íslendingur ehf. 58,3 Útlendingur ehf. 15,8 Guðni Rúnar Gíslason blaðamaður skrifar gudni@dv.is „Eftir siglinguna þá sat ég svolítið eftir með sárt ennið. Töluverð- ar skuldir voru að hrynja á mig. Árni Sigfússon Bæjarstjóri Reykjanes- bæjar og stjórnar- formaður eignarhalds- félaga Víkingaheima. Steinþór Jónsson Fyrrverandi bæjarfulltrúi Reykjanesbæjar og fram- kvæmda- stjóri eignarhalds- félaganna. Gunnar Marel Eggertsson Frum- kvöðull Víkingaheima hætti störfum vegna óánægju. Skessuhellir Samkvæmt heimildum DV voru framkvæmdir við Skessuhelli greiddar úr sjóðum Íslendings. Víkingaheimar Bæði eignarhaldsfélögin í kringum Víkingaheima skulda umfram eignir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.