Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 8. júní 2011 Miðvikudagur Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun „Við vorum spenntir fyrir því að vera með tónleika í Hörpu en við vildum fara inn með annað hljóð- kerfi því hljóðkerfið er svo mikil- vægt fyrir flutning okkar. Við erum að halda útgáfutónleikana okkar og viljum gera það almennilega og vera með geðveikt sánd og þetta hljóðkerfi í Hörpu stenst ekki okk- ar kröfur,“ segir Birgir Þórarinsson í hljómsveitinni GusGus. Hann staðfestir þar með orð Ingólfs Arn- arsonar eiganda HljóðX, þjónustu- fyrirtækis sem býður meðal annars upp á ráðgjöf, leigu og uppsetn- ingu hljóðkerfa. Ingólfur vill meina að hljóðkerfið í Hörpu sé of lítið og ráði ekki við allar gerðir af tón- list. Hann er jafnframt ósáttur við hvernig staðið var að útboði vegna hljóðkerfisins í Hörpu, en hann segir að HljóðX hafi verið með lægra tilboð en Exton sem fékk verkefnið. DV hefur fengið fleiri ábendingar frá gestum á ýmsum tónleikum sem hafa kvartað undan hljómburðinum og hljóðkerfinu, meðal annars á tónleikum með tenórunum fjórum og á tónleikum með Ólöfu Arnalds. Veitti ráðgjöf og tók þátt í útboði Exton var ráðgefandi aðili Eignar- haldsfélagsins Portusar, sem sér um undirbúning, hönnun, byggingu, starfsemi og rekstur á Hörpu, á upp- hafsstigi framkvæmda við húsið. Það staðfestir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR, sem á Portus. Austurhöfn-TR er svo í eigu Reykjavíkurborgar og ríkisins. Stefán vill ekki meina að hagsmuna- árekstur hafi átt sér stað þrátt fyrir að Exton hafi bæði veitt ráðgjöf og tekið þátt í útboðinu, enda hafi ráðgjöfinni lokið löngu áður en útboðið átti sér stað. Þá hafi Austurhöfn haldið utan um útboðið en ekki Portus og fengið bandaríska fyrirtækið Artec til ráð- gjafar vegna hljóðkerfiskaupa og til að sjá um útboðslýsingu. Að sögn Stefáns var Exton með hagstæðasta tilboðið í útboðinu. Mæltu með öðrum búnaði Ingólfur hjá HljóðX vill meina að Ext- on hafi sniðið sína ráðgjöf að því kerfi sem það er með umboð fyrir og heitir Meyer. „Við vissum að það færi aldrei annað kerfi þangað inn en Meyer því það var á listanum. Við gengum því svo langt að bjóða Meyer-búnað sem við ætluðum að kaupa erlendis frá.“ Á seinni stigum útboðsferlisins lagði HljóðX þó til að notaður yrði annar búnaður sem þeir töldu henta hús- næðinu betur. „Við fengum þarna einn og hálfan fund og vildum gera ákveðna hluti og bentum á margt sem var ekki í lagi, en við komumst bara ekki lengra því Exton hafði ver- ið allt í kringum þetta borð.“ Ingólf- ur vill jafnframt meina að spara hefði mátt hundruð milljóna króna með stafrænum lausnum í köplum eins og þeir lögðu til. Mismunandi smekkur tónlistarmanna „Eftir að þetta fór allt saman í gang var búið að kaupa fullt af öðrum búnaði beint frá Exton. Búnað sem menn eru mjög ósáttir við og er alls ekki nægilega góður fyrir svona sali. Þar fyrir utan þá megum við ekki einu sinni fara inn í þetta hús með búnað frá okkur. Í öllum öðrum svona húsum í heiminum er mönn- um frjálst að koma með sinn eigin búnað því smekkur tónlistarmanna á því hvaða hljóðkerfi hentar því sem þeir eru að gera er svo mismunandi. Þetta er eins og að segja við Sinfón- íuhljómsveitina: „Þið megið ekki nota ykkar hljóðfæri, þið verðið að nota ríkishljóðfærin sem við sköffum ykkur í húsinu.“ Þetta er náttúrulega út í hött,“ segir Ingólfur og bætir við að aldrei hafi verið leitað upplýsinga um verð á einni einustu skrúfu hjá HljóðX. Fá ekki að koma með sitt eigið kerfi GusGus óskaði einmitt eftir því að fá að fara með sitt eigið hljóðkerfi inn í húsið til að geta mætt þeim kröfum sem sveitin gerir til hljóð- gæða þegar hún spilar tónlist sína, en fékk synjun frá forsvarsmönn- um Hörpu. GusGus tók því ákvörð- un um að halda útgáfutónleikana frekar á NASA við Austurvöll. Blaða- maður hafði samband við Hösk- uld Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Hörpu, og spurði hvers vegna tón- listarmenn fái ekki að koma með sinn eigin búnað í Hörpu. „Í fyrsta lagi þá snýst þetta um gæði og við höfum ákveðna gæðastandarda hér innandyra og ef menn sýna ekki fram á það með óyggjandi hætti að sá búnaður sem þeir eru með og vilja tengja hér inn sé betri en sá búnaður sem er í húsinu þá er svar- ið yfirleitt nei,“ sagði Höskuldur í samtali við DV. Hann vill ekki meina að það sé nóg að tónlistarmennirnir sjálfir meti hvort búnaðurinn henti þeim, enda séu þeir með sérmennt- aðan hljóðmeistara í húsinu með sérstaka þekkingu á slíkum málum, sem og tæknimenn sérmenntaða á þessu sviði. Hann segir að hingað til hafi engir listamenn komið með sitt eigið hljóðkerfi inn í húsið enda hafi flestir verið ánægðir með það kerfi sem í boði er. „Í flestum dóm- um sem við höfum séð um Hörpu þá hafa gagnrýnendur lofsamað hljómburðinn,“ segir Höskuldur að lokum. n Exton var ráðgefandi aðili í útboðsferli og tók þátt í útboðinu n Eigandi HljóðX segir Exton hafa sniðið ráðgjöfina að eigin vöru n Tónlistarmenn fá ekki að koma með eigið hljóðkerfi inn í Hörpu n GusGus þurfti frá að hverfa og heldur tónleika á NASA í staðinn Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Ingólfur Arnarson Segir hljóðkerfið í Hörpu of lítið og að það ráði ekki við allar gerðir tónlistar. Birgir Þórar- insson Segir hljóðkerfið í Hörpu ekki hafa staðist kröfur GusGus, sem fékk ekki að koma inn með sitt eigið kerfi og varð því frá að hverfa. Hljóðkerfið í Hörpu stenst ekki kröfur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.