Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 19
Umræða | 19Miðvikudagur 8. júní 2011 Tölum um eitthvað annað en gloss 1 Brasilíufanginn kominn heim Karl M. Grönvold er búinn að afplána dóminn. 2 Enn fleiri nektarmyndir af Lively Talsmaður leikkonunnar neitar að um myndir af Lively sé að ræða. 3 Bretar banna alfarið The Human Centipede II Fram- hald hryllingsmyndarinnar The Human Centipede mun aldrei líta dagsins ljós í Bretlandi. 4 Elvis Aron skírður í Kópavogi Kirkjugestir stóðu á öndinni. 5 Hannes frétti af aðgerðum gegn sér í fjölmiðlum Lúxusjeppar meðal þess sem kyrrsett var. 6 Þorvaldur Lúðvík vill stýra Norðurorku Þrjár konur og þrjátíu og þrír karlar sækja um forstjórastöðuna. 7 „Það þarf að vernda al-menning fyrir þér“ Tvítugur karlmaður viðurkenndi fyrir dómi að hafa nauðgað stúlkubarni á barnaheimili þar sem hann var starfsmaður. Þátturinn Sokkabandið er nýr þáttur á dagskrá Ríkisútvarpsins. Þátturinn er sagður suðupottur fyrir stelpuleg málefni og þær systur lofa því að í þættinum verði ekkert kerlingavæl! Umsjón er í höndum systranna Þóru og Kristínar Tómasdætra. Hver er konan? „Það er bara ég.“ Hvað er Sokkabandið? „Útvarpsþáttur á mánudagskvöldum á Rás 2. Gestir okkar verða uppátækjasamar og sniðugar stelpur úr öllum áttum.“ Hvers vegna heitir þátturinn Sokka- bandið? Er þetta vísun í rauðsokkur? „Nei, þetta er bara heiðarleg tilraun til að fylla það djúpa skarð sem Færiband Bubba Morthens skilur eftir sig. Guð hjálpi mér hvað það verður erfitt. Þetta verður þáttur með kvenlegra ,,tötsi“ en rétt eins og hjá Bubba koma til okkar eintómir snillingar.“ Eruð þið samrýndar systur? „Já, tvímælalaust. Á milli þess sem við reynum að drepa hvor aðra.“ Nú er stutt síðan þið skrifuðuð saman metsölubókina Stelpur, er þetta fram- hald af því verkefni? „Já, óbeint. Við erum að tala við frjóar stelpur sem veita okkur innblástur og von- andi fleirum.“ Þið lofið engu kerlingavæli, hvað eigið þið við? „Stundum er eins og fjölmiðlar haldi að kon- ur hafi bara áhuga á sorg eða dramatískum reynslusögum. Það er svo mikið framleitt af viðbjóði fyrir konur. Við reynum að tala við stelpur sem eru að gera spennandi hluti.“ Vantar umfjöllun um stelpur í fjöl- miðlum? „Ég myndi segja að það væri óhætt að gefa stelpum meira vægi í fjölmiðlum. Og tala við þær um eitthvað annað en gloss.“ „Já, klárlega. Þótt það væri ekki nema bara vegna framkomu Ólafs á blaðamannafund- inum eftir leikinn.“ Bjarni Lárus Hall 31 árs, söngvari „Já, það er kominn tími til.“ Jana Maren Óskarsdóttir 22 ára, verslunarstjóri „Já.“ Geirþrúður Einarsdóttir 21 árs, afgreiðsludama „Já, það þarf að gera eitthvað í málunum. Kominn tími til að sigra.“ Heiðrún Jónsdóttir 19 ára, afgreiðsludama „Já, þarf ekki að gera það reglulega.“ Heiða Björk Sturludóttir 44 ára, kennari Mest lesið á dv.is Maður dagsins Finnst þér að það ætti að skipta um þjálfara hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta? Brennó í blíðunni Þessar ungu stúlkur tóku vel á því á Ingólfstorgi á þriðjudag. Þá nutu starfsmenn markaðs- deildar Landsbankans og auglýsingastofunnar Jónsson og Le Mack’s veðurblíðunnar og spiluðu brennibolta. Myndin Dómstóll götunnar Ö ll þekkjum við einstaklinga og fjölskyldur sem um þess- ar mundir búa við skert lífs- gæði í kjölfar bankahruns- ins. Skuldir hækkuðu, stundum tvöfölduðust þær, kaupmáttur rýrn- aði vegna gjaldeyriskreppunnar og eignaverð féll, jafnvel um tugi pró- senta. Þúsundir fjölskyldna greiða þennan herkostnað með hluta af lífs- hlaupi sínu en bíða enn þolinmóðar á milli vonar og ótta um það hvort þær þurfi næstu árin að vinna fyr- ir bankana sem þó vissu að gengis- tryggð lán þeirra voru ólögleg. Margir standa með öðrum orðum í málaferlum líkt og Geir H. Haarde sem stóð vaktina fyrir þetta fólk sem forsætisráðherra þegar bankakerfið hrundi. Málaferlin sem Geir stendur í eru sérstök en byggjast á landslögum frá árinu 1963 um landsdóm og ráð- herraábyrgð. Málaferlin sem fórnarlömb bankahrunsins standa í, sum eigna- laus eða á leið í fjárnám, eru einnig sérstök. Réttarríki Jóns og séra Jóns Umfram allt verður að vona að Geir njóti sama réttaröryggis og þetta fólk. Að á réttlátan hátt verði greitt úr málum hans líkt og þeirra sem ekki hafa efni á að reka málsvörn í fjöl- miðlum líkt og hann. Því í réttarrík- inu ríkir jafnræði og allir eru jafnir fyrir lögunum. Nú er einboðið að almennir borg- arar í kröggum efni til samskota fyr- ir sig, líkt og vinir Geirs hafa gert, til þess að standa straum af dýrum málaferlum, til dæmis vegna ólög- legra gengistryggðra lána. Í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis var tólf embættismönnum og kjörnum fulltrúum almennings, þar á meðal Geir H. Haarde, forsætis- ráðherra hrunsins, gefin vanræksla að sök. Fleiri voru þar nefndir, eins og vinir hans Davíð Oddsson, Árni Mathiesen og Baldur Guðlaugsson. Nú er Geir gefið að sök að hafa að- eins haft samráð við þessa menn og helst enga aðra. Geir hefur lýst sig saklausan. Það gerðu líka Árni Mathiesen og Baldur Guðlaugsson fyrir rétti. Þeir hafa nú báðir verið dæmdir, Árni fyrir gróft stjórnsýslubrot við að koma syni Davíðs í dómarastöðu með kúbeini og járnkarli, en Baldur, ráðuneytis- stjóri hrunsins, fyrir innherjasvik. Er til orð yfir þennan hóp? Þetta eru staðreyndir málsins og hlutina á að nefna sínum réttu nöfnum. Það sagði að minnsta kosti William K. Black, mesti skelfir fjár- glæframanna í Bandaríkjunum, er hann flutti fyrirlestur hér á landi í fyrra: Fjársvik eru fjársvik. Hvaða orð á að hafa um þenn- an hóp sem hér er nefndur William Black? Þegar rúmlega tvö og hálft ár eru liðin frá bankahruninu hefur eng- inn hrunkvöðull verið dæmdur fyr- ir mesta tjón sem nokkru sinni hef- ur verið unnið á fjármálakerfinu íslenska. Ljóst er að tíu af þeim tólf embættis- og stjórnmálamönnum, sem nefndir voru í rannsóknarskýrsl- unni, sleppa með skrekkinn. Sérstak- ur saksóknari gefur að líkindum út ákærur í bunkum áður en yfir lýkur á eigendur og stjórnendur bankanna. Þar verður tekið á markaðsmisnotk- un, umboðssvikum og innherjasvik- um líkt og í máli Baldurs. Það getur vel verið að saksókn- ari Alþingis hefði mátt flýta sér ögn meira. Það getur vel verið að lögin um ráðherraábyrgð og landsdóm séu ekki fullkomin. Það getur vel verið að það vanti einhverja greinargerð með ákærunni eins og Geir hefur greint frá í breiðfyrirsögnum fjölmiðlanna. Það getur vel verið að málsvörnin hafi þegar kostað hann níu milljón- ir króna. Það getur vel verið að rangt hafi verið af Alþingi að undanskilja hrunráðherrana Björgvin G. Sigurðs- son, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- ur og Árna Mathiesen. Það getur vel verið að ekki sé heppilegt að Alþingi ákæri á grunni laga um ráðherra- ábyrgð frá 1963. Það getur vel verið að það sé ekki gott að dómarar víki allir sæti í landsdómi komi til þess af einhverjum ástæðum. En allt ork- ar tvímælis þá gert er og svona eru lögin. Svo má vel vera að réttarvörslu í máli Geirs sé ábótavant. En var ekki hagsmunavörslu Geirs í þágu almennings við að efla fjármálastöðugleika mánuðina fyr- ir hrun einnig ábótavant? Ráðfærði hann sig ekki aðeins við vini sína og aðra ekki? Fullvíst er að íslenska réttarrík- ið fer ekki verr með Geir en alþýðu- fólk sem bíður nauðungarsölu vegna tómlætis hans. Skjaldborg vinanna Kjallari Jóhann Hauksson „Hvaða orð á að hafa um þennan hóp sem hér er nefndur William Black? Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.