Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Síða 17
Erlent | 17Miðvikudagur 8. júní 2011 Dominique Strauss-Kahn fékk óblíðar móttökur: „Skammastu þín“ Herbergisþernur sem starfa í New York fjölmenntu fyrir utan réttarsal á mánudag þegar Dominique Strauss- Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var látinn svara til saka. Honum er sem kunn- ugt er gefið að sök að hafa reynt að nauðga herbergisþernu, brotið á henni kynferðislega og haldið henni fanginni. Þernurnar fylltu heilu rút- urnar til að vera viðstaddar þeg- ar Strauss-Kahn gekk í réttarsalinn ásamt eiginkonu sinni, sjónvarps- konunni Anne Sinclair. Kölluðu þernurnar í kór: „Skammastu þín.“ Eftir að dómur var settur mátti enn heyra í þernunum í gegnum glugga réttarsalarins, þar sem þernurnar héldu áfram að kyrja ókvæðisorð að Strauss-Kahn. Lögfræðingar Strauss-Kahn fóru fram á við dómara að fá aðgang að ýmsum gögnum ákæruvaldsins sem þeir hafa enn ekki fengið. Þeir vildu enn fremur að ýmis skilaboð á far- síma Strauss-Kahn yrðu gerð ógild, þar sem trúnaðargildi þeirra væri þess eðlis. Strauss-Kahn sagðist sak- laus af öllum ákæruliðum en verði hann fundinn sekur gæti hann feng- ið 25 ára fangelsisdóm. Réttarhöldin munu hefjast 18. júlí næstkomandi. Sjúkras jóður E f l ingar-s té t tar fé lags Efling - stéttarfélag • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 510 7500 • Fax: 510 7501 • Netfang: efling@efling.is • www.efling.is Stendur með þér! Það er gott að eiga góða að! Slys eða veikindi gera ekki boð á undan sér. Þegar heilsan bilar þá er fyrsta hugsunin að ná bata á ný. Að takast á við veikindi eða afleiðingar slysa er nógu erfitt þó að fjárhagsáhyggjur bætist ekki við álagið á fjölskylduna. Markmið Sjúkrasjóðs Eflingar-stéttarfélags er að draga úr fjárhagsáhyggjum með því að greiða dagpeninga, en auk þess vinnur félagið að heilsueflingu og fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi og heilsufar. – Félagsmenn hafa verið mjög ánægðir með sjúkrasjóðinn og töldu 99% þeirra sjóðinn nauðsynlegan þátt í starfinu í könnun sem Gallup gerði fyrir félagið. E i n n t v e i r o g þ r í r 4 1 .1 0 6 Nýr kjarasamNiN u við reykjavíkurborg Póstatkvæðagreiðsla er hafin Hafin er póstatkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Eflingar-stéttarfélags, við reykjavíkurborg. atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn eflingar sem vinna eftir þessum samningi og greiddu félagsgjöld í mars/apríl 2011. Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá. Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar, Sætúni 1 og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í mars/apríl 2011. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00 miðvikudaginn 15. júní en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn. athugið. Til þess að tryggt sé að atkvæðið berist kjörstjórn fyrir lok tíma- frests þá er nauðsynlegt að póstleggja svarumslagið í síðasta lagi föstudaginn 10. júní. En þeir sem það vilja geta skilað svarumslaginu á skrifstofu félagsins til kl. 12.00 miðvikudaginn 15. júní. Reykjavík, 30. maí 2011. kjörstjórn eflingar-stéttarfélags Efling-stétt rfél g Þjóðverjar neyðast til að forðast grænmeti eins og heitan eldinn eitt- hvað áfram. Um síðustu helgi var til- kynnt að stökkbreytt afbrigði kólí- bakteríu (Escherichia coli O104:H4) mætti líklega rekja til baunaspíra sem ræktaðar eru í Neðra-Saxlandi í norðurhluta Þýskalands. Síðdeg- is á mánudag var hins vegar ljóst, að baunaspírunum er ekki um að kenna. Nú þegar hefur 21 látist af völdum kólísýkingarinnar og rúm- lega 2.200 hafa þurft að leggjast inn á spítala. Sýkingin veldur miklum óþægindum, uppköstum og niður- gangi – þar sem blóð fylgir oftast með. Bakterían getur valdið svo- kölluðu HUS-heilkenni (hemolytic- uremic syndrome), en það getur leitt til nýrnabilunar og einnig lamað hluta heilans. Fyrst agúrkur, svo tómatar, svo... Kólísýkingin hefur verið mikið milli tannanna á fólki í Þýskalandi sem og víðar, síðan fyrst var fjallað um að óeðlilega margir væru að veikjast af henni. Fyrst var talið að spænskum agúrkum væri um að kenna, en sá grunur reyndist ekki á rökum reist- ur. Því næst var fólki í norðurhluta Þýskalands ráðlagt að forðast tóm- ata sem ræktaðir voru á svæðinu og loks var það kálið sem var skotspónn sóttvarnarsérfræðinga. Eftir að þess- ar tegundir voru teknar til rannsókn- ar kom í ljós að þær voru lausar við kólíbakteríuna umræddu, og því óhætt að borða þær. Vart þarf þó að taka fram að það hafa Þjóðverjar ekki gert, og halda þeir að sér höndum við hvers kyns grænmetiskaup uns söku- dólgurinn finnst. Í síðustu viku seld- ist ekki ein einasta agúrka í norður- hluta Þýskalands. Spánverjar æfir Spænsk yfirvöld eru mjög óhress með framgöngu Þjóðverja, einkum með landbúnaðarráðherra Neðra- Saxlands, Gert Lindemann. Spænski heilbrigðismálaráðherrann, Leire Pajin, lýsti yfir óánægju sinni með að spænskum agúrkum hefði verið kennt um kólísýkinguna. Í kjölfarið hafi eftirspurn eftir agúrkum, sem og öðru spænsku grænmeti, snar- minnkað. Segir Pajin að spænskur landbúnaður hafi af þessum sökum orðið af gífurlegum tekjum, um 200 milljónum evra á viku. Pajin hitti fyrir landbúnaðarráðherra á neyð- arfundi ESB á mánudag, þar sem kólísýkingin var rædd. Fyrir fund- inn sagði hún að Spánverjar ætluðu sér að fara fram á skaðabætur vegna ásakana Þjóðverja. „Við lýsum yfir mikilli óánægju með framgönguna í þessu hættuástandi, þar sem þjóðar- hagsmunir okkar biðu mikinn skaða. Við munum fara fram á skaðabæt- ur fyrir alvarlegan og óbætanlegan skaða sem Spánn hefur orðið fyrir og jafnframt förum við fram á það við framkvæmdastjórn ESB að eftir- lit með matvælaöryggi verði styrkt.“ Eina í stöðunni Anette Widman-Mauz, sérfræðingur um matvælaöryggi í þýska heilbrigð- isráðuneytinu, vildi þó verja aðgerðir yfirvalda í Neðra-Saxlandi. Vegna al- varleika sýkingarinnar hefði einfald- lega ekki verið annað í stöðunni en að fylgja eftir öllum vísbendingum sem voru fyrir hendi. „Við erum ein- faldlega skuldbundin til að vara al- menning við. Þegar um slíka forvarn- arstarfsemi er að ræða þá verðum við einfaldlega að fylgja öllum vísbend- ingum,“ sagði Widman-Mauz. Standa saman Strauss-Kahn nýtur ekki vinsælda hjá herbergisþernum. Þjóðverjar óttast enn n Þjóðverjar leggja nótt við dag í leit sinni að uppruna kólígerils sem hefur valdið miklum skaða n Töldu baunaspírur vera sökudólginn en svo var ekki n Spánverjar fara fram á skaðabætur eftir ásakanir Þjóðverja um sýktar agúrkur „ ...förum við fram á það við fram­ kvæmdastjórn ESB að eftirlit með matvæla­ öryggi verði styrkt. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Voru ekki baunaspírurnar Heilbrigðisyfirvöld í Þýskalandi leita enn að skaðvaldinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.