Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Stríð Geirs
„Mig gat
ekki órað
fyrir því að vera
staddur í þeim
sporum sem ég
nú stend í. Það
er auðvitað pers-
ónulega þungbært
en þó ekki jafn-
þungbært og ætla
mætti því ég veit hvernig þetta mál er
tilkomið,“ sagði Geir Hilmar Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir
landsdómi á þriðjudag þegar ákæra
Alþingis gegn honum var þingfest.
DV leitaði til Andrésar Jónssonar al-
mannatengils sem þekkir þær aðferð-
ir sem Geir beitir í málsvörn sinni, en
Geir gagnrýndi meðal annars póli-
tíska andstæðinga Sjálfstæðisflokks-
ins. „Hluti af hans málsvörn er að
reka PR-stríð og setja þannig þrýsting
á dóminn,“ sagði Andrés.
„Hef ekkert með
hrunið að gera“
„Ég hef ekk-
ert með
þetta bless-
aða bankahrun
að gera,“ sagði
Hannes Smára-
son símleiðis
fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur á
föstudag. Hannes
hefur stefnt fjármálaráðuneytinu
vegna kyrrsetningarbeiðni sem toll-
stjóri setti fram gegn honum í fyrra
og fer fram á þrjár milljónir í bætur.
Hann telur kyrrsetningu eigna hafa
valdið sér fjárhagslegu tjóni.
Hannes sagðist fyrir dómi vera rang-
lega sakaður um að vera aðili að
bankahruninu. Hannes var á sínum
tíma forstjóri FL Group og stjórnar-
maður í Glitni.
Brynjar átti að
finna burðardýr
„Brynjar
hitti mann
sem bauð hon-
um vinnu, hann
spurði hvernig
vinnu og þá sagði
maðurinn að
vinnan fælist í því
að fara með pakka
með lyfjum til
Japan,“ sagði Amornrat Lapaanekn-
un í mánudagsblaði DV. Amornrat er
kærasta Brynjars Mettinissonar sem
var handtekinn fyrir fíkniefnamis-
ferli í Taílandi í síðustu viku. Amor-
nrat segir tvær grímur hafa runnið á
Brynjar þegar honum var tjáð í hverju
vinnan væri fólgin. Maðurinn bauð
honum 2.500 dollara fyrir að finna
einhvern sem væri til í að fara með
pakkann til Japan og Brynjar ákvað
að taka því tilboði.
Fréttir vikunnar í DV
GusGus flýr
hljóðkerfið
í hörpu
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Fréttir 10
8.–9. júní 2011 66. tbl. 101. árg. leiðb. verð 429 kr. miðvikudagur og fimmtudagur
sTríð
Geirs
Ákærður
„alvarleg v
anræksla“
n Hvað gerði hann?
n Hvað gerði hann ekki?
n Hvernig berst hann?
Fréttir 2–3
fÓLkið SEm StYður gEir sofa enn
í sama rúmi
n Sveinn og Kristrún skilin:
Eiginmaðurinn
reynir að
jafna sig
n Kom að
konunni
látinni
ÁrÓður
gaddafiS
BJÓ Í kommÚNu
Í gaNa og
kofa Í maLavÍ
n inga dóra hjá uN Women:
BÝr mEð tugum
HuNda
Í kEfLavÍk
n 17 þeirra réðust á konu
n Tilkynnt vegna vanrækslu
n Týndist í tvígang n Eigendurnir biðu
í þrjá daga n Hringsólaði á færibandinu
iCELaNd EXPrESS
gLEYmdi HuNdi
Fréttir 8Viðtal 22–23
Erlent 16
Fólk 26
Fréttir 6
Fréttir 4
Forsætisráðherra hrunsins rís upp:
6 | Fréttir 6. júní 2011 M
ánudagur
Karl M. Grönvold er búinn að afplána dóm sinn í Brasilíu:
Brasilíufanginn kominn heim
Brasilíufanginn Karl M. Grönvold er
kominn heim til Íslands eftir fjög-
urra ára dvöl í erlendum fangels-
um. Karl hlaut tæplega fjögurra ára
dóm í Brasilíu eftir að hafa reynt að
smygla tæpum sex kílóum af kóka-
íni úr landi. Hann sat af sér dóminn
í fangelsi fyrir útlendinga í San Paolo
í Brasilíu. Honum var sleppt í febrúar
á síðasta ári en var á skilorði fram í
september og undir ströngu eftirliti.
Síðan tók við löng bið þar sem Karl
beið þess að komast heim. Jóhannes
Kr. Kristjánsson skrifaði bók um dvöl
Karls í fangelsinu þar sem hann lýsti
þeim aðbúnaði sem hann bjó við í
fangelsinu og lífinu innan múranna.
Í viðtali við DV í nóvember á síð-
asta ári sagðist Karl ætla að vinna í
sjálfum sér þegar hann kæmi heim:
„Það fyrsta er að koma mér í stand.
Ég er búinn að vera á skelfilegum
stað í langan tíma og þegar ég kem
heim ætla ég að leita mér aðstoðar.
Ég er með mín plön um að bæta líf
mitt og ég ætla ekki að halda áfram
í þessum bransa. Það er algjörlega
hreinskilið svar,“ sagði Karl þá full-
ur af von um að komast heim. Þegar
hann var laus úr fangelsinu í Brasilíu
mátti hann ekki vinna fyrir sér og því
sá fjölskylda hans um að halda hon-
um uppi. Karl er nú laus ferða sinna
og kominn aftur til landsins. Hann
hefur sést á landinu undanfarið og
meðal annars í félagsskap Ásgeirs
Þórs Davíðssonar, eða Geira á Gold-
finger.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
„Brynjar hitti mann sem bauð hon-
um vinnu, hann spurði hvernig
vinnu og þá sagði maðurinn að vinn-
an fælist í því að fara með pakka með
lyfjum til Japan,“ segir Amornrat
Lapaaneknun kærasta Brynjars
Mettinissonar sem var handtekinn
fyrir fíkniefnamisferli í síðustu viku á
hóteli í miðborg Bangkok í Taílandi.
Amornrat, sem yfirleitt er kölluð
Jenny, segir tvær grímur hafa runn-
ið á Brynjar þegar honum var tjáð í
hverju vinnan væri fólgin. „Hann
sagðist ekki vilja gera neitt ólöglegt
en þá sagði maðurinn: „Nei, ekki
hafa áhyggjur, þetta eru ekki eitur-
lyf“.“ Brynjar var samt ekki tilbúinn
að gera þetta en þá bauð maðurinn
honum 2.500 dollara fyrir að finna
fyrir sig einhvern annan aðila sem
væri til í að fara með pakkann til Jap-
an og Brynjar ákvað að taka því til-
boði.
Kom ekki nálægt efnunum
„Brynjar margspurði hvort um ólög-
legt athæfi væri að ræða og hvort það
væru eiturlyf í pakkanum en mað-
urinn fullvissaði hann um að svo
væri ekki,“ segir Jenny. Samkvæmt
Jenny var Brynhar í sambandi við
umræddan mann í töluverðan tíma
áður en hann fann mann til verksins.
Sá sagðist vera tilbúinn að gera nán-
ast hvað sem er fyrir peninga og var
til í að taka að sér að fara með pakk-
ann til Japan. Á mánudaginn síðasta
mætti Brynjar svo á fund á hóteli
með tilvonandi burðardýri og þeim
aðila sem skipulagði verkið. Brynj-
ar sagði Jenny að burðardýrið hefði
að öllum líkindum haft samband við
lögregluna og látið vita af fundinum.
Þegar lögreglan kom á hótelið þá
kom í ljós að um eitt og hálf kíló af
amfetamíni var í pakkanum sem átti
að flytja til Japan. Jenny hefur þær
upplýsingar eftir Brynjari að hann
hafi aldrei komið nálægt pakkanum.
„Hann vissi ekki af þessu og sá aldrei
efnið,“ segir Jenny sem vissi þó ekki
hvað Brynjar hafði flækt sig í fyrr en
hún fékk símtal frá honum aðfara-
nótt þriðjudags þar sem hann tjáði
henni að hann hefði verið handtek-
inn.
Móðirin segir aðra sögu
Móðir Brynjars lýsti atburðarásinni
töluvert öðruvísi í samtali við DV í síð-
ustu viku. Hún sagðist hafa upplýsing-
arnar eftir kærustu Brynjars en mögu-
legt er að þær hafi ekki skilið hvor aðra
nógu vel. Móðir Brynjars sagði hann
aldrei hafa hitt manninn með fíkniefn-
in áður og að kærasta Brynjars hefði
verið með í för. Hvorugt stemmir við
það sem Jenny sagði í samtali við DV.
„Frábær strákur“
Brynjar var úrskurðaður í þriggja
mánaða gæsluvarðhald vegna máls-
ins en Jenny fékk að heimsækja hann
á miðvikudaginn í síðustu viku. Hún
mun líklega fá að heimsækja hann
einu sinni í viku á meðan hann situr
í varðhaldi. „Hann þarf bara að vera
sterkur í þrjá mánuði og ef lögmaður-
inn hans verður góður þá held ég að
þetta fari allt vel,“ segir Jenny sem er
miður sín. Hún er strax farin að sakna
Brynjars. „Við erum búin að vera sam-
an allan sólarhringinn síðastliðna þrjá
mánuði. Hann er frábær strákur, það
er ekkert slæmt til í honum og hann
myndi aldrei gera neitt ólöglegt.“
Kynntust á netinu
Jenny segir að hún og Brynjar hafi
kynnst á internetinu fyrir einhverj-
um mánuðum en hann kom til Taí-
lands til að hitta hana fyrir tæpum
þremur mánuðum. „Hann var alltaf
að senda mér skilaboð en ég svaraði
aldrei,“ segir Jenny hlæjandi þegar
hún rifjar upp hvernig þau kynntust.
„Svo sendi hann mér aftur og aftur
en mér fannst hann reyna of mikið.“
Jenny ákvað að lokum að gefa Brynj-
ari tækifæri og segist svo sannarlega
ekki sjá eftir því. Hún treystir á að
aðrir sjái það góða í Brynjari líka. „Ég
sagði honum bara að sýna í fangels-
inu hvað hann væri góður maður og
þá verður allt gott eftir þrjá mánuði,“
segir Jenny að lokum.
n Brynjar Mettinisson var handtekinn í Bangkok í síðustu viku n Kærastan se
gir
honum hafa verið boðin vinna við að finna burðardýr n Var talin trú um að um lö
g-
leg lyf væri að ræða n Kærastan saknar Brynjars og trúir að hann verði látinn lau
s
„Hann sagðist ekki
vilja gera neitt
ólöglegt en þá sagði
maðurinn: „Nei, ekki hafa
áhyggjur, þetta eru ekki
eiturlyf.“
Brynjar átti að
finna Burðardýr
Fann burðardýr Kærasta Brynjars segir hann hafa samþykkt að finna burðardýr til að fara
með lyf til Japan. Hann hélt að um lögleg efni væri að ræða.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Karl Grönvold
Landbúnaðarráðherra vill halda
höftum:
Össur snuprar
Jón Bjarnason
,,Eitt af meginatriðum varðandi inn-
göngu í Evrópusambandið er að
tollar falla niður í viðskiptum milli
ríkjanna,“ segir
Össur Skarphéð-
insson utanríkis-
ráðherra í sam-
tali við DV. Hann
segir að þingið
hafi talað skýrt
um að það gilti
líka um innfluttar
landbúnaðarvör-
ur. Ráðherrann segist ekki kippa sér
upp við fréttir um að Jón Bjarnason
landbúnaðarráðherra sé mótfallinn
afnámi tollverndar á landbúnaðar-
vörur við aðild.
,,Það vita allir að álitið, sem var
grunnurinn undir samþykkt þings-
ins um aðildarumsóknina, segir
berum orðum að augljósustu áhrifin
af inngöngu í sambandið séu að allir
tollar á vörum á milli Íslands og ann-
arra aðildarríkja myndu falla niður.
Það er meira að segja sérstaklega
tekið fram að það gildi líka um land-
búnaðarvörur. Svo við ráðherrarnir,
að ég nú tali ekki um þingið, vissum
nákvæmlega á hvaða forsendum
umsóknin var samþykkt hvað þetta
varðaði,” segir utanríkisráðherra.
Össur segir kjarna málsins vera
þann að hvorki hann né Jón né aðrir
ráðherrar geti stillt upp rauðum
strikum sem gangi lengra en álit
utanríkismálanefndar, enda sé búið
að leggja af ráðherraræði fyrri ríkis-
stjórna gagnvart Alþingi. Össur segir
að í álitinu hafi líka verið fjallað
um að finna leiðir til að afnám toll-
verndar hefði sem minnsta röskun í
för með sér fyrir bændur, sérstaklega
mjólkurbændur.
,,Það væri til dæmis hægt með
því að semja um heimildir til að
bæta bændum það upp með annars
konar beinum stuðningi. Það kæmi
í sama stað niður fyrir landbúnað-
inn í heild. Breytingin yrði sú að toll-
verndin kæmi fram sem sérstakur
stuðningur í fjárlögum, í stað þess
að mömmur og pabbar sem daglega
kaupa í matinn fyrir fjölskylduna
greiði tollverndina í smáskömmtum
í hvert sinn sem þau kaupa í matinn.
Þannig er það í reynd í dag.”
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Hannes smárason fyrir dómi:
„HEF EKKERT
MEÐ HRUNIÐ
AÐ GERA“
6.–7. júní 2011 65. tbl. 101. árg. leiðb. verð 395 kr. mánudagur og þriðjudagur
n Vill fá aflétt
kyrrsetningu eigna
n Eignafrystingin
hamlar viðskiptum
n Viðtal í Harma-
geddon lagt fram
n Telur Steingrím
j. vera á eftir sér
Brynjar áTTi
að finna
Burðardýr
n Kærasta fangans segir að hann
hafi haldið að efnin væru lögleg
Sumarið
kemur í
júlí n Segir Siggistormur
Fréttir 2–3
Fréttir 4
Fréttir 6
Kartöflustríð
í þykkvabæ
n Kartöflubóndi segist
hafa óttast um líf sitt
LANdsLIÐs-
þjáLFARI
á ENdAsTöÐ
n Með slakasta árangurinn
þingmenn
latir við að
hjóla
n Alþingi samt í öðru sæti
ELvIs ARoN
sKíRÐUR í
KópAvoGI
n Prestur með gítar
n „70 prósent af því sem veldur krabbameini í okkar höndum“
rétt grænmeti getur
fyrirbyggt krabbamein
Neytendur 14–15
Fréttir 32
Sport 24
Fréttir 12
Fólk 26
HANNEs
FLUTTUR
TIL Lúx
1
2 3
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Jafnvægispúði
• Þjálfar jafnvægi.
• Góður í stöðugleikaæfingar
• Spjald með æfingum fylgir
Verð: 7.980 kr.
„Mér finnst þetta bara vera minni-
máttarkennd í listamönnunum að
setja sig á svona háan hest og afneita
þannig annarri list. Mér finnst þeir
lítillækka sjálfa sig með svona hegð-
un,“ segir áhugalistamaðurinn Jó-
hann Dalberg Sverrisson sem kann-
aði það hjá nokkrum galleríum hvort
þau hefðu áhuga á taka verk hans inn
til sölu. Hann talaði meðal annars
við Gunnar Helgason, eiganda Gall-
erí Listar. „Hann sagði mér að hann
gæti ekki tekið inn frá mér af því ég
væri ekki lærður listamaður því þá
myndu listamennirnir hóta honum
því að taka út sína list.“
Listamennirnir stýra kaupand-
anum
Jóhann hefur gert listaverk úr steini,
aðallega graníti, og selur verkin
meðal annars í gegnum Facebook-
síðu sína, Steinlist. Honum finnst
mjög einkennilegt að kaupandinn
sjálfur megi ekki ákveða hvort hann
vilji kaupa list eftir áhugalistamenn
eða eftir listamenn með akademíska
menntun, heldur vilji listamenn-
irnir reyna að stýra því. Hann bend-
ir jafnframt á að ef þetta er raunin í
mörgum galleríum þá fái kaupand-
inn sjaldan tækifæri til að sjá list eftir
áhugalistamenn og geti því ekki met-
ið hvort hann hafi áhuga á að kaupa
slíka list.
„Þetta á bara illa heima
saman“
DV hafði samband við Gunnar
Helgason hjá Gallerí List sem stað-
festi að menntaðir listamenn hefðu
í sumum tilfellum verið ósáttir við
það ef hann tók verk eftir áhuga-
listamenn inn í galleríið. Hann segir
það vera eina af ástæðunum fyrir því
að hann geri það ekki lengur. „Þetta
bara á illa heima saman. Annaðhvort
er maður að einbeita sér að því að
vera með menntaða listamenn eða
ekki og það er erfitt að ætla að blanda
þessu saman,“ segir Gunnar í sam-
tali við DV. „Það er nú eiginlega bara
þannig að þegar fólk er að versla við
gallerí þá á það kröfu á því að það séu
verk menntaðra listamanna sem það
er að kaupa.“
Lærðir og ólærðir sýna saman
Birna Smith rekur ART67 gallerí
ásamt tólf öðrum konum. Sumar
þeirra eru listaháskólagengnar en
aðrar ekki. Ólíkt þeirri stefnu sem
Gallerí List fylgir segir Birna þær ekki
gera neinn greinarmun þar á milli.
Þær hafa hins vegar orðið varar við
það, líkt og Gunnar, að listamenn
vilji í sumum tilfellum ekki selja
eða sýna vörur sínar á sama stað og
áhugalistamenn. „Það er ákveðið
snobb í gangi á Íslandi og það er bara
hið besta mál,“ segir Birna í samtali
við DV. „En þetta snýst náttúrulega
bara um kaupandann. Okkar við-
skiptavinir hafa verið svo ánægðir,
hafa komið og hrósað verkum okkar
og margir sagt að þetta sé flottasta
galleríið í Reykjavík.“
Útlendingar spyrja aldrei um
menntun
„Það er nú einu sinni þannig með
listina að hún er meðfæddur eigin-
leiki og síðan fer það eftir því hvern-
ig viðkomandi þróar sína list,“ segir
Birna. Hún telur kennslu nauðsyn-
lega en leggur frekar metnað í kenn-
ara.
Galleríið er staðsett á besta stað á
Laugaveginum og Birna segir að
þar af leiðandi fái þær mikið af út-
lendingum inn til sín og selji mál-
verk út um allan heim. „Ég hef aldrei
heyrt að útlendingar hafi verið að
spyrja hvað við værum menntaðar.
Þeir hafa bara komið inn í galleríið
og orðið himinlifandi.“ Birna segir
þær heldur ekki hafa orðið varar við
snobb í íslenskum listkaupendum.
„Það eru frekar kannski listamenn-
irnir sjálfir sem maður hefur heyrt
gagnrýni frá,“ segir Birna að lokum.
n Gallerí List er eingöngu með verk eftir menntaða listamenn til sölu n Segir listamennina hafa
orðið ósátta þegar verk eftir áhugalistamenn voru tekin inn n „Ákveðið snobb í gangi á Íslandi“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Áhugalistamaður
Jóhann Dalberg kannaði
hvort gallerí hefðu áhuga
á að taka verk hans í sölu.
Hann fékk meðal annars
neitun frá Gallerí List á
þeim forsendum að hann
væri ekki menntaður.
Birna Smith Segir ákveðið snobb í gangi
á Íslandi, það sé þó aðallega hjá listamönn-
unum sjálfum en ekki hjá listkaupendum.
Fullmikið fjör á Spáni:
Kvartað
undan
útskriftar-
nemum
„Ég er ansi hræddur um að þegar
250 til 270 ungmenni fara saman til
útlanda að skemmta sér að þá gangi
alltaf eitthvað á,“ segir Ingi Ólafsson,
skólastjóri Verslunarskóla Íslands, í
samtali við DV.is. Útskriftarárgang-
ur skólans fór á dögunum í ferð til
Costa del Sol á Spáni til að fagna út-
skrift sinni frá skólanum. Greint var
frá því á fimmtudag að ákveðinn
hópur nemenda hafi fengið skamm-
ir vegna hegðunar á hótelinu Palma-
sol. Kvörtuðu óánægðir gestir hót-
elsins yfir slæmri hegðun nemenda,
að því er segir á vef hótelsins.
Tómas Gestsson, framkvæmda-
stjóri Heimsferða, sagði í sam-
tali við Pressuna á fimmtudag, að
umræddur útskriftarhópur hefði
verið einn sá besti sem sendur hefur
verið á vegum Heimsferða. „Þessir
hópar hafa verið verri,“ sagði Tómas.
Ingi hafði hins vegar ekkert heyrt
af slæmri hegðun og sagðist aðeins
þekkja til málsins í gegnum fjöl-
miðla. „Nemendur sem fara í þessar
útskriftarferðir eru ekki nemendur
Verslunarskólans lengur. Þeir eru út-
skrifaðir og við höfum þannig séð
ekkert af þeim að segja og fréttum
ekkert af þeim. Við fáum bara sög-
urnar frá krökkunum sjálfum seinna
eða við sjáum eitthvað svona í blöð-
unum,“ segir Ingi Ólafsson sem
segist ekki hafa heyrt svona sögur
af útskriftarnemendum Verslunar-
skólans.
Loksins fer
að hlýna
Íbúar á sunnan- og vestanverðu
landinu geta tekið gleði sína á ný, í
smátíma að minnsta kosti, því útlit
er fyrir ágætt veður um helgina. Sig-
urður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur
segir á veðurbloggi sínu á DV.is að
vindur verði skaplega hægur. Þá ætti
að verða ágætlega bjart á laugardag-
inn þó einhver óvissa sé hvað varðar
sunnudaginn. Hiti verður á bilinu
átta til sautján stig á laugardag, hlýj-
ast á vestanverðu landinu. Á sunnu-
dag verður hitinn sex til átján stig og
hlýjast í uppsveitum á Suðurlandi.
ólærðir listamenn
fá ekki að sýna „Það er ákveðið snobb í gangi á Íslandi.