Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 4
4 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Stál og plast þakrennur Allir fylgihlutir fáanlegir Frábært verð! Skiptum á þrotabúi eignarhalds- félagsins Ísalindar lauk þann 29. apríl síðastliðinn. Um 270 milljón- ir króna fengust upp í nærri 1.250 milljóna króna kröfur þrotabús- ins eða um 20 prósent. Ísalind var í eigu bræðranna Ástgeirs og Péturs Más Finnssona sem yfirtóku máln- ingavöruverslunina Slippfélagið árið 2007 og fjármagnaði Landsbankinn yfirtökuna. Ísalind skuldaði Lands- bankanum rúmlega 1.250 milljónir króna samkvæmt ársreikningi félags- ins fyrir árið 2008. Landsbankinn tók yfir Slipp- félagið haustið 2010. Slippfélagið, sem var stofnað árið 1902, er einna þekktast fyrir að hafa verið umboðs- aðili Hempel-skipamálningar í ára- tugi. Stór hluti tekna Slippfélagsins kom af sölu á vörum frá Hempel. Eft- ir að Landsbankinn tók Slippfélagið yfir síðasta haust náðu nokkrir sölu- menn frá Slippfélaginu umboðinu fyrir Hempel til sín og réðu sig síðan til Flügger-málningavöruverslana- keðjunnar og tóku umboðið með sér þangað. Slippfélagið var í töluverðan tíma í söluferli hjá Landsbankanum sem þótti umdeilt þar sem ekki var um opið söluferli að ræða. Eftir að sölu- menn hjá Slippfélaginu höfðu tekið Hempel-umboðið út úr fyrirtækinu ákvað Landsbankinn að flýta sölu- ferlinu. Segja má að markaðsverð- mæti Slippfélagsins hafi rýrnað verulega við að missa Hempel-um- boðið. Sjö aðilar fengu að bjóða í fé- lagið sem endaði með því að félag á vegum eigenda Málningar hf. keypti Slippfélagið utan umboðsins fyrir Hempel. Líklegt má telja að kaupverðið hafi numið 270 milljónum króna. as@dv.is Skiptum lokið í félaginu Ísalind sem yfirtók Slippfélagið 2007: Milljarður afskrifaður Landsbankinn tapar milljarði Landsbankinn fjármagnaði yfirtöku félagsins Ísalindar á málningavöruverslun Slippfélagsins árið 2007. Nú er ljóst að Landsbankinn þarf að afskrifa um einn milljarð króna vegna gjaldþrots Ísalindar. Jóhannes Jónsson, gjarnan kenndur við Bónus, seldi rúmlega 600 fer- metra hús sem hann átti á Flórída fyrir tæplega 154 milljónir króna til bandarísks félags sem er í hans eigu. Þetta kemur fram í ársreikningi eign- arhaldsfélags Jóhannesar, Sunnu- björg ehf., fyrir árið 2009. Sunnu- björg hélt utan um eignarhaldið á húsinu á Flórída fyrir Jóhannes. „Húsið var fært inn í annað félag sem ég á,“ segir Jóhannes. Húsið stendur við Nona-vatn í Orlando í Bandaríkj- unum. Jóhannes keypti húsið á Flórída nokkrum vikum fyrir bankahrunið árið 2008 með láni frá Landsbankan- um upp á 1,5 milljónir Bandaríkja- dollara, um 150 milljónir. Lands- bankinn lánaði félagi Jóhannesar fyrir kaupunum samkvæmt ársreikn- ingi Sunnubjarga fyrir árið 2008. Morgunblaðið greindi frá því í febrúar í fyrra að í nóvember 2009 hefði húsið verið fært úr Sunnu- björgum og yfir í bandaríska félagið The Johannes Jonsson Trust. Í frétt Morgunblaðsins kom fram að eigna- tilfærslan á húsinu yfir í bandaríska félagið gerði það að verkum að ís- lenskir kröfuhafar Sunnubjarga, Landsbankinn, gætu ekki leyst húsið til sín upp í skuldir vegna tiltekinna ákvæða í bandarískum lögum. Helmingur skuldanna greiddur Í ársreikningi Sunnubjarga fyrir árið 2009 kemur fram að félagið hafi skuldað tæplega 244 milljónir króna í árslok 2008. Tæplega 186 millj- ónir króna voru skuldir við Lands- bankann út af kaupunum á hús- inu við Nona-vatn og 53 milljónir af skuldunum voru við Jóhannes sjálf- an. Á árinu 2009 er húsið svo selt út úr félaginu til umrædds bandarísks félags Jóhannesar fyrir tæplega 154 milljónir króna en verðmatið á hús- inu hafði verið tæplega 180 milljón- ir í lok árs 2008. Á árinu 2009 greiddi Sunnubjörg sömuleiðis upp skuldir sem námu rúmlega 148 milljónum króna, nokkurn veginn því sama og söluverð hússins. Afborganir lang- tímalána eru skráðar sem rúmlega 95 milljónir króna, væntanlega hluti skuldarinnar við Landsbankann, og lækkun skammtímaskulda er upp á rúmlega 53 milljónir króna, væntan- lega skuldin við Jóhannes sjálfan. Tæplega 100 milljóna króna mun- ur er því á heildarskuldum Sunnu- bjarga árið 2008 og þeirri upphæð sem félagið greiddi af skuldum sín- um á árinu 2009. Samt er Sunnu- björg nánast skuldlaust í árslok 2009 og skuldir við lánastofnanir fóru frá tæpum 185 milljónum árið 2008 og niður í 0 krónur árið 2009. Á sama tíma var hluthafaskuldin við Jó- hannes gerð upp samkvæmt árs- reikningnum. Ekkert í ársreikningi Sunnubjarga bendir hins vegar til þess að félagið hafi átt þessar um 240 milljónir króna tiltækar til að greiða skuldir sínar og var eiginfjárstaða félagsins neikvæð um 65 milljónir í lok árs 2008. Af þessu leiðir að svo virðist sem Sunnubjörg hafi fengið hluta af skuldum sínum við Landsbankann afskrifaðar. Jóhannes neitar afskriftum Aðspurður segir Jóhannes að Sunnu- björg hafi ekki fengið neitt afskrifað af sínum skuldum. Hann segir að „samið“ hafi verið um uppgjör á skuldum félagsins og að félagið hafi greitt honum það sem það skuldaði honum. Hann getur hins vegar ekki útskýrt misræmið á heildarskuldum félagsins og uppgreiðslu skulda þess en um 100 milljóna munur er þarna á milli. „Nei, þetta var bara greitt,“ segir Jóhannes. Aðspurður af hverju þetta komi ekki fram í ársreikningn- um segir Jóhannes að hann viti ekki af hverju svo sé. Hann neitar því sömuleiðis að Sunnubjörg hafi ein- ungis greitt hluta skuldarinnar við Landsbankann. „Nei, það var ekkert svoleiðis... Ég fékk enga afskrift; ég hef hvergi fengið afskrift... Þetta er að fullu uppgert.“ Aðspurður hvort það geti verið að hann hafi samið við Landsbank- ann um að greiða bankanum ein- ungis hluta af skuldinni þar sem það komi ekki fram í ársreikningnum að öll skuldin hafi verið greidd upp segir Jóhannes að aðalatriðið sé að hann eigi húsið í Bandaríkjunum skuld- laust. „Ég hef ekki pælt svona í þessu á nokkurn hátt. Ég veit bara að þetta er skuldlaus eign mín í Bandaríkjun- um, þetta hús.“ Sunnubjörgum slitið Jóhannes segir að staða Sunnubjarga sé þannig núna að félaginu hafi verið slitið. „Þetta félag er aflagt... Því var bara slitið.“ Sunnubjörgum, félaginu sem Jóhannes stofnaði til að taka lán fyrir húsinu á Flórída, verður því slit- ið. Ekki er annað að sjá en að afskrifa hafi þurft hluta að skuldum félagsins hjá Landsbankanum. Jóhannes virð- ist því hafa greitt kaupverð hússins með láni frá Landsbankanum árið 2008 en síðan fært húsið yfir í ann- að félag í Bandaríkjunum ári síðar og svo einungis greitt Landsbankanum til baka hluta af kaupverðinu fyrir húsið. Húsið verður hins vegar áfram í eigu Jóhannesar. „Þetta er skuld- laus eign mín í Bandaríkjunum“ n Jóhannes Jónsson færði hús sitt í Flórída yfir í annað félag í sinni eigu n Gerði upp hluta skuldanna við Landsbankann n Ársreikningur virðist sýna fram á tugmilljóna afskriftir n Segir félaginu hafa verið slitið Segir skuldirnar uppgerðar Jóhannes segir að skuldir Sunnubjarga hafi verið gerðar upp og að hann hafi ekki fengið neitt afskrifað. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Þetta félag er aflagt. Sparisjóður Svarfdæla: Gusi í þrot Eignarhaldsfélag í eigu tveggja spari- sjóðsstjóra hjá Sparisjóði Svarfdæla á Dalvík hefur verið tekið til gjald- þrotaskipta. Félagið, sem heitir Gusi, var í eigu þeirra Friðriks Friðriks- sonar og Jónasar Mikaels Jónssonar og eiginkvenna þeirra. Skiptastjóri er Hreinn Pálsson. Samkvæmt ársreikningi eignar- haldsfélagsins fyrir árið 2009 skuldaði Gusi Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis tæplega 340 milljónir króna í árslok 2009. Lánið var veitt til að kaupa hlutabréf í norðlenska fjárfestingarbankanum Saga Capi- tal. Gusi átti að endurgreiða lánið til sparisjóðsins í einu lagi í fyrra sam- kvæmt ársreikningnum. Ekkert í árs- reikningi Gusa benti til að félagið gæti staðið við skuldbindingar sínar enda var hinn verðlitli eignarhlut- ur í Saga Capital langstærsta eign sjóðsins. Líkt og DV hefur greint frá eru margir af stofnfjáreigendum í Spari- sjóði Svarfdæla ósáttir við að hafa tekið lán hjá Saga Capital til að fjár- magna stofnfjárbréfakaup sín í sjóðnum í lok árs 2007. Þá var ráðist í stofnfjáraukningu í sjóðnum sem Saga Capital fjármagnaði. Um 90 pró- sent af 150 stofnfjáreigendum í spari- sjóðnum tóku þátt í aukningunni. Gagnrýni stofnfjáreigendanna bein- ist meðal annars að því að óeðlileg tengsl hafi verið á milli sparisjóðsins og Saga Capital þar sem stjórnendur í sjóðnum hafi setið í stjórn fjárfest- ingarbankans. Sparisjóðurinn átti auk þess rúmlega 3 prósenta hlut í sparisjóðnum auk þess sem Gusi átti hlutabréf í fjárfestingarbankanum. inGi@dv.iS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.