Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 6
6 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
L A U G A V E G I 1 7 8
S í m i : 5 6 8 9 9 5 5
www.tk.is
Tækifærisgjafir í miklu úrvali
TILBOÐS
VERÐ
kr. 3.99
0.-
ERUM FLUTT ÚR KRINGLUNNI
Á LAUGAVEG 178
HÆTTU
að borga yfirvigt
GLÖSFISLÉTT
FERÐATÖSKUVIGT
Afsláttur
„Ég rotaðist ekki eins og haldið hef-
ur verið fram, ég fór ekki einu sinni
í jörðina,“ segir Ríkharð Ríkharðs-
son, leiðtogi mótorhjólasamtakanna
Black Pistons, sem afplánar nú eftir-
stöðvar dóms á Litla-Hrauni. Sögu-
sagnir voru á kreiki um að Ríkharð
hefði orðið fyrir árás á Litla-Hrauni
en hann segir þetta mál allt saman
vera blásið upp. „Þetta var bara „suc-
ker punch“, einn að reyna að sanna
sig,“ segir Ríkharð sem segir einn
fanganna hafa hlaupið að sér og sleg-
ið sig án þess að Ríkharð sæi hann.
„Hann var kominn í jörðina eft-
ir tvær sekúndur. Ég hélt honum
bara þangað til verðirnir komu,“ seg-
ir Ríkharð sem segist vera búinn að
leysa málið við manninn sem réðst á
hann. „Ég er búinn að tala við hann
eftir að hann losnaði úr einangrun og
fékk að vita ástæðuna og hann ætlaði
að bæta þetta upp og baðst fyrirgefn-
ingar.“
Ríkharð segir ekkert hæft í þeim
sögusögnum að árásin hafi verið
vegna peningadeilna. „Nei, nei. Ég
reyni að vera til fyrirmyndar hérna
inni. Ég er ekki að einhverju svoleið-
is.“
Ríkharð og Davíð Freyr Rúnars-
son voru handteknir í Hafnarfirði
í síðasta mánuði eftir að lögreglu
barst tilkynning um líkamsárás. Sá
sem fyrir henni varð er karl á þrítugs-
aldri en hann var með áverka víða á
líkamanum og er meðal annars nef-
brotinn. Talið er að honum hafi verið
haldið nauðugum í meira en hálfan
sólarhring og að barsmíðarnar hafi
farið fram á jafnvel fleiri en einum
stað. Á dvalarstað árásarmannanna
var lagt hald á bæði fíkniefni og ýmis
barefli.
Á Litla-Hrauni Ráðist var á Ríkharð
Ríkharðsson, leiðtoga Black Pistons, á
Litla-Hrauni.
Ráðist á leiðtoga Black Pistons á Litla-Hrauni:
„Einn að reyna að sanna sig“
Eignarhaldsfélagið sem Pálmi Har-
aldsson notaði til að halda utan um
hlutabréfaeign sína í olíufélaginu
Skeljungi fyrir íslenska efnahags-
hrunið hefur verið úrskurðað gjald-
þrota. Félagið hét Uppspretta ehf. þeg-
ar Pálmi átti Skeljung en nafni þess var
síðar breytt í NG1 eignarhaldsfélag.
Félagið var úrskurðað gjaldþrota í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í lok maí síðast-
liðinn.
Í ársreikningi félagsins fyrir árið
2009 kemur fram að félagið tapaði
rúmum milljarði króna á því ári. Eigið
fé félagsins var þá neikvætt um tæp-
lega 560 milljónir króna. Eignarhalds-
félagið hefur verið í eigu Glitnis, síðar
Íslandsbanka, frá því í lok árs 2007 eft-
ir að bankinn sölutryggði allt hlutafé í
Skeljungi fyrir Pálma fyrir 8,7 milljarða
króna í umdeildum viðskiptum. Glitn-
ir og Íslandsbanki töpuðu samtals um
sex milljörðum króna á þessum við-
skiptum þegar olíufélagið var selt í
tveimur hlutum til núverandi eigenda
þess á árunum 2008 og 2010. Félagið
BG Partners, sem er í eigu Guðmund-
ar Arnar Þórðarsonar, Birgis Þórs Bielt-
vedt og Svanhildar Nönnu Vigfúsdótt-
ur, á olíufélagið í dag. Sölutryggingin á
Skeljungi nam um þreföldu söluverði
þess á endanum.
Seldu félagið sín á milli
Saga eignarhaldsins á Skeljungi á síð-
ustu fjórum árunum fyrir hrun er með
nokkrum ólíkindum. Í febrúar 2004
keypti eignarhaldsfélag í eigu Pálma
Haraldssonar allt hlutafé í Skeljungi af
félaginu Steinhólum ehf. sem Kaup-
þing banki hafði stofnað. Í október
sama ár eignaðist Hagar, móðurfélag
Bónus og fleiri fyrirtækja, sem var í
eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
fjölskyldu, allt hlutafé í olíufélaginu.
Í lok febrúar 2006 keypti umrætt fé-
lag Pálma, Uppspretta ehf., Skeljung
aftur af Högum. Í tilefni af þeim kaup-
um sagði Pálmi í samtali við Vísi: „Ég
seldi Skeljung á sínum tíma til að fjár-
magna mín kaup í Iceland sem reynd-
ist vera mjög happadrjúg fjárfesting
og átti svo frumkvæði að því við Haga
að kaupa Skeljung til baka. Við fórum
í samningaviðræður og niðurstaðan
er þessi.“ Í ársreikningi NG1 eignar-
haldsfélags fyrir árið 2007 kemur fram
að félagið skuldaði Högum rúma tvo
milljarða króna þá og ótilgreindri lána-
stofnun svipaða upphæð. Ætla má að
kaupverðið á Skeljungi hafi því verið
í kringum fjóra milljarða króna og að
hluti af því hafi verið fjármagnaður
með seljendaláni frá Högum.
Fékk lán frá Högum
Í lok árs 2007 var svo gengið frá 8,7
milljarða króna sölutryggingunni á
Skeljungi og eignaðist Glitnir olíu-
félagið í kjölfarið. Pálmi eignaðist fé-
lagið ekki aftur eftir þetta. Tekið skal
fram að Jón Ásgeir Jóhannesson,
helsti eigandi Haga og Baugs, var
ráðandi aðili í Glitni á þessum tíma.
Í ársreikningi NG1 eignarhaldsfélags
fyrir árið 2007 eru hlutabréfin í Skelj-
ungi metin á tæpa 9 milljarða króna.
Rúmu hálfu ári síðar, í ágúst
2008, var 51 prósenta hlutur í Skelj-
ungi seldur til núverandi eigenda
félagsins fyrir 1,5 milljarð króna.
Þetta söluverð virðist benda til þess
að verðmatið á Skeljungi sem fram
kemur í ársreikningnum 2007 hafi
verið allt of hátt og að sölutrygging-
in á félaginu hafi því verið það sömu-
leiðis. Bókfært tap þessara viðskipta
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Pálma Haraldssonar og félaga þeirra
lenti því á endanum á Glitni og Ís-
landsbanka.
„Menn fóru fram úr sér“
Eins og oft hefur komið fram í fjöl-
miðlum eru Skeljungsviðskipti
Pálma Haraldssonar og Jóns Ásgeirs
enn eitt dæmið um viðskipti þar
sem íslenskir fjárfestar seldu fyrir-
tæki nokkrum sínum sín á milli á ár-
unum fyrir íslenska efnahagshrunið.
Frægasta dæmið um slíkt er Sterl-
ing-fléttan svokallað þar sem danska
flugfélagið Sterling var selt á milli
FL Group og Fons með ævintýraleg-
um hagnaði þar sem engar rökréttar
skýringar virtust vera fyrir auknu
verðmæti félagsins.
Í viðtali við DV í fyrra sagði Pálmi
að hann og margir aðrir þátttakendur
í íslensku atvinnulífi hefðu farið fram
úr sér í ýmsum viðskiptum og að
fyrirtæki hefðu verið verðmetin allt
of hátt þegar þau voru seld á mark-
aði, jafnvel á milli aðila sem stund-
uðu viðskipti saman. Þessi gagnrýni
Pálma á eigin viðskipti má heimfæra
upp á viðskiptin með Skeljung.
Orðrétt sagði Pálmi: „En eftir á að
hyggja er ég ekki í nokkrum vafa um
að menn fóru fram úr sér. Og ég held
að allir eigi þar hlut að máli sem voru
í viðskiptum hvort sem þeir voru
inni í bönkum eða annars staðar í
atvinnulífinu. Margföldunarstuðl-
arnir sem notaðir voru til að reikna
virði fyrirtækja á þessum árum, 2002
til 2008, þá skiptir engu máli hvort
það var sjoppa á Bústaðaveginum
eða Iceland Express, standast ekki
skoðun. Það var út úr kortinu hvern-
ig fyrirtækin voru verðmetin. [...] Ég
er þátttakandi í þessu, ég ber ekki
ábyrgð á hruninu, en ég tók þátt í því
að tjakka upp blöðruna sem íslenskt
viðskiptalíf var og axla mína ábyrgð
á því.“
Skeljungsfélag
Pálma gjaldþrota
n Félag Pálma Haraldssonar sem átti Skeljung er gjaldþrotan Skeljungur seldur á milli
Pálma og Jóns Ásgeirs n Glitnir sat uppi með tapið n Pálmi viðurkenndi mistök
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Félagið í þrot Félög í eigu Pálma Haraldssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar seldu Skeljung sín á milli nokkrum sinnum. Olíufélagið
endaði svo á borði Glitnis í árslok 2007 eftir að bankinn hafði sölutryggt félagið fyrir Pálma fyrir yfirverð.„Ég seldi Skeljung
á sínum tíma til
að fjármagna mín kaup
í Iceland sem reyndist
vera mjög happadrjúg
fjárfesting og átti svo
frumkvæði að því við
Haga að kaupa Skeljung
til baka.
Hundar gengu lausir:
Dýrbítar
drápu tugi
lamba
Tveir boxerhundar drápu tugi kinda
og lamba við Þórðarkot í Eyrar-
bakkahreppi á fimmtudag. Hund-
arnir höfðu hlaupið frjálsir í einn
eða tvo daga þegar fangar við girð-
ingarvinnu urðu varir við þá og létu
vita af þeim.Talið er að hundarnir
komi frá Tjarnarbyggð sem er stutt
frá Þórðarkoti. Eigandi kindanna
fór á staðinn ásamt fleiri mönnum
og gengu þeir í gær um svæðið og
smöluðu dýrum. Hundarnir voru
báðir aflífaðir í morgun. Bændum er
heimilt samkvæmt lögum, að fella
dýrbíta tafarlaust. Að sögn lögreglu
hefði hún séð um það hefði bóndinn
ekki verið búinn að grípa til ráðstaf-
ana. Heimamenn gengu um svæðið
í gær og mátu aðstæður. Nokkur
særð dýr þurfti að aflífa. Lögregla
taldi að um 23 kindur og lömb hefðu
drepist. Einhver dýranna höfðu legið
í einn eða tvo daga þegar uppvíst
varð um málið.
Ekki er ljóst hversu mikinn skaða
hundarnir hafa unnið, en líklegt er
að um tvöfalt fleiri dýr hafi drepist.
Lömbin höfðu verið bitin á háls og
hausar þeirra jafnvel mikið brotnir.
Í samtali við DV sagði Sigurður Nils-
sen, eigandi dýranna, að tjónið væri
töluvert, þótt enn væri óljóst hversu
mikið það væri. Enn ætti eftir að fara
yfir mikið svæði og klára smölun.
Sigurður sagði að málið hefði verið
kært til lögreglu og að bótakrafa yrði
lögð fram vegna skaðans. Heim-
ildarmaður DV segir að lausaganga
hunda hafi verið vandamál á svæð-
inu og að aðeins hafi verið tíma-
spursmál hvenær eitthvað þessu líkt
gerðist.
Útgáfa DV
DV kemur næst út miðvikudag-
inn 15. júní. Ekkert blað kemur út á
mánudag vegna þess að þá er annar
í hvítasunnu og almennur frídagur.
Fréttaþjónusta verður á DV.is alla
hvítasunnuhelgina.