Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Side 8
8 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Góðir skór
Gott verð
St. 36-41
kr. 6.595
St. 36-41
kr. 5.895
St. 24-35
kr. .395
St. 41-46
kr. 6.795
„Ég hef ekkert komið að neinni
skoðun á því,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra að-
spurður hvort það sé til skoðunar af
hálfu fjármálaráðuneytisins að taka
upp kanadískan dollar hér á landi.
Fyrir stuttu birtust fréttir þess efn-
is að kanadískir embættismenn
hefðu fundað með hérlendum
kaupsýslumönnum og voru hin-
ir kanadísku jákvæðir í garð hug-
myndarinnar. Viðræðurnar voru
óformlegar en bæði hjá Bank of Ca-
nada, sem er kanadíski seðlabank-
inn, og fjármálaráðuneyti Kanada
ríkir jákvæðni gagnvart hugmynd-
inni miðað við það sem hefur áður
komið fram.
„Ég veit ekki hversu mikil alvara
er þarna á ferð,“ segir Steingrímur
og bætir því því við að eflaust væri
nærtækara að huga að eigin pen-
ingastefnu og ná góðum tökum á
málum hjá okkur sjálfum áður en
menn fara að velta því fyrir sér hvort
taka eigi upp annan gjaldmiðil. Það
skipti einnig máli að aðstæður séu
góðar og stöðugar ef menn ætli að
skipta um gjaldmiðil svo að hægt sé
að skipta á því gengi sem sé hæfi-
legt fyrir þjóðarbúið. Steingrímur
segir að ef það eigi að líta til ann-
arra gjaldmiðla þurfi að skoða mál-
ið vandlega og velja gjaldmiðil sem
okkur þyki vænlegur og helst þurfi
að ná samkomulagi við viðkom-
andi aðila um slíka aðgerð.
Steingrímur sér ekki upptöku
kanadíska dollarans gerast í nán-
ustu framtíð en hann er alls ekki
neikvæður í garð gjaldmiðilsins
sem hann telur einn af þeim álit-
legri um þessar mundir. „Kanada-
menn stóðu vel að málum og sigldu
í gegnum fjármálakrísuna tiltölu-
lega lygnum sjó og mér finnst mjög
skiljanlegt að menn beini sjónum
sínum þangað,“ segir Steingrímur
sem segir Kanadamenn það stóra
að það muni eflaust ekki neinu
þó svo að íslenska hagkerfið bæt-
ist við. Umræddar hugmyndir eru
frumlegar að sögn Steingríms en
þær liggja inni í framtíðinni því að
við höfum næg verk að vinna hér
heima við að ná betri tökum á mál-
um.
Steingrímur J. Sigfússon. Telur
Kanadadollar álitlegan gjaldmiðil.
Fjármálaráðherra um upptöku nýs gjaldmiðils:
Kanadadollar ekki í skoðun
„Hann var bara að príla bara svona
eins og gengur og gerist hjá börnum
og hann rann til og fékk teinana upp
í hálsinn á sér svo hann rifnaði upp,“
segir Kristín Ósk Kristinsdóttir, móð-
ir hins sex ára gamla Guðmundar
Skarphéðins Gíslasonar. Hann slas-
aðast alvarlega fyrir rúmum tveimur
árum þegar hann var að príla á girð-
ingu við leikskólann Vallarsel á Akra-
nesi og sauma þurfti 26 spor í hálsinn
á honum, fjögurra ára gömlum.
Þriðja alvarlega slysið
DV hefur fjallað um tvö önnur alvar-
leg slys sem hafa átt sér stað við sams
konar girðingar sem eru mjög al-
gengar við leikskóla, skóla og íþrótta-
velli. Ofan á girðingum af þessu tagi
eru nokkurra sentímetra langir tein-
ar sem vísa upp á við, en hægt er að
snúa þeim þannig að teinarnir séu
undir girðingunni og vísi niður. Það
hefur verið gert á mörgum stöðum
en alls ekki öllum. Aðalsteinn Svan
Hjelm, sem missti fingur fyrir ári
þegar trúlofunarhringur hans fest-
ist í slíkri girðingu við Áslandsskóla í
Hafnarfirði, hefur til að mynda barist
fyrir því að girðingunni við skólann
verði snúið við til að koma í veg fyrir
slys. Nú, ári eftir slysið, snýr girðingin
ennþá þannig að teinarnir vísa upp.
Þarf að fara í aðra aðgerð
Kristín, móðir Guðmundar litla, seg-
ir það kraftaverk að hann hafi lifað
slysið af og enginn varanlegur skaði
hefur komið í ljós enn sem komið
er. „Læknarnir sögðu að það hefði
greinilega einhver vakað yfir þessu
barni. Þetta var hrikalegt, þetta var
allt opið inn að öllu hjá honum,“
segir Kristín þegar hún reynir að
lýsa áverkum sonar síns. „Það eru
þarna allar taugar fyrir sjón og heyrn
til dæmis. Hann slapp náttúrulega
ótrúlega vel barnið en hann er með
varanlegt lýti.“ Guðmundur mun
koma til með að þurfa að fara í aðra
aðgerð þegar hann verður fullorð-
inn því vegna þess hve örið er stórt
kemur til með að myndast tog þegar
hann stækkar sem þarf að laga.
Teinarnir niður á öðrum stöðum
Í kjölfar slyss Guðmundar kannaði
Kristín hvernig girðingarnar voru
upp settar á öðrum leikskólum á
Akranesi og hún komst að því að
girðingin við Vallarsel var sú eina
sem snéri þannig að teinarnir vísuðu
upp. Kristín hringdi jafnframt í fleiri
leikskóla víðs vegar um landið og á
flestum stöðum voru eins girðingar,
en teinarnir á þeim vísuðu niður. „Ég
fékk þau svör hjá bæjarstjórninni hér
að girðingin væri rétt sett upp svona.
Mér fannst það voða skrýtið að þetta
væri eini leikskólinn með þetta rétt
en hinir allir með þetta vitlaust.“
Þrátt fyrir þau svör leið varla vika þar
til girðingin við Vallarsel var tekin
niður og henni snúið við.
Veit um fleiri slys
„Svo er stór fótboltavöllur hérna á
Akranesi þar sem mikið af börn-
um leikur sér og þar er svona girð-
ing meðfram öllu og teinarnir snúa
upp. Ég veit um barn sem var að
klifra hérna í kirkjugarði þar sem er
svona girðing líka með teinana upp
og barnið fékk teinana inn í olnbog-
ann og hlaut það mikla áverka. Mað-
ur hugsar: er verið að bíða eftir að
það verði hreinlega banaslys á svona
girðingum,“ segir Kristín. Að hennar
mati á það ekki að viðgangast á girð-
ingar sem þessar séu með teinana
upp. „Það má þakka fyrir að barnið
mitt er á lífi,“ segir Kristín að lokum.
Slasaðist illa Guðmundur Skarphéðinn slasaðist illa á hálsi fyrir tveimur árum þegar
hann var að príla á girðingu og rann til.
„Þakka fyrir að
barnið er á lífi“
n Slasaðist illa á hálsi við klifur á girðingu við leikskólann Vallarsel n Sauma
þurfti 26 spor í hálsinn á fjögurra ára gömlum drengnum n Ekki einsdæmi
„Læknarnir sögðu
að það hefði
greinilega einhver vakað
yfir þessu barni.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Þórður Antonsson, framkvæmdastjóri Öryggisgirðinga, fyrirtækis sem bæði selur
og setur upp gir ingar eins og fjallað hefur verið um, segir það fara eftir því í hvað
nota eigi girðingarnar, hvernig þeim er snúið. „Hún er upphaflega hönnuð og
hugsu með teinana upp, sem hindrun. En við erum búin að gera það í nokkur
ár að alls staðar þar sem eru skólar, krakkar eða venjuleg umgengni þá höfum
við snúið teinunum niður. Þetta eru menn bara búnir að læra, það er enginn sem
fyrirskipar þetta.“ Hann fullyrðir að í kringum leikskóla snúi þeir teinunum alltaf
niður, en að öðru leyti sé það verkkaupans að ákveða það hverju sinni hvernig
girðingin snýr. Þórður tekur þó fram að við íþróttavelli reyni þeir oftast að snúa
sléttu hliðinni upp.
Slétta hliðin upp við leikskóla
Slysagildra Slys Guðmundar er þriðja alvarlega slysið sem DV fjallar um sem
tengist girðingu eins og sýnd er hér á myndinni.
hefur að undanförnu fjallað
um svipuð mál. DV 1. og 3. júní 2011.
Stjórn VR ekki sátt:
Vilja ekki
skatt
á hreina eign
„Stjórn VR harmar þá fyrirætlun
ríkisstjórnar Íslands að leggja skatt á
hreina eign þeirra sjóða sem falið er
að ávaxta og varðveita lífeyrissparn-
að landsmanna,“ segir í ályktun
stjórnar VR frá því á fimmtudag.
Í ályktuninni segir einnig að með
skattlagningunni væri ríkisstjórn-
in að vega að rétti þeirra sem byggja
afkomu sína á greiðslum sjóðanna
og ganga þvert á þau fyrirheit sem
gefin voru í yfirlýsingu við undirrit-
un kjarasamninga 5. maí síðastlið-
inn. „Þar var því lofað að stefnt yrði
að jöfnun lífeyrisréttinda í landinu
en með framkominni tillögu er ríkis-
stjórnin að stíga í þveröfuga átt,“ seg-
ir í ályktuninni.
„Stjórn VR getur ekki sætt sig við
að vegið sé með þessum hætti að líf-
eyrissjóðum sem félagsmenn greiða
til, ekki síst í ljósi þeirra réttinda-
skerðinga sem nú þegar hafa fallið
á sjóðsfélaga hinna almennu sjóða,“
segir í niðurlagi ályktunarinnar.
„Stjórn VR skorar á ríkisstjórnina að
draga tillögu sína til baka án nokk-
urra undanbragða.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, hefur einnig
skrifað öllum þingmönnum á Al-
þingi bréf þar sem hann skorar á þá
að hafna slíkri skattlagningu.