Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, neitar enn að tjá
sig um hvort hann hafi borgað 25,5
milljóna króna lán sem hann fékk frá
einkahlutfélagi sínu Varnagla ehf. árið
2007. Lánið kemur ekki fram á veð-
bandayfirliti fasteignar hans í Sörla-
skjóli en Tryggvi Þór hefur sagst hafa
notað Varnaglalánið til að fjármagna
kaup á hluta hússins. Annaðhvort átti
Varnagli því ekki veð í húsi Tryggva
eða hann hefur greitt lánið upp líkt og
hann sagðist ætla að gera í fyrra. Sam-
kvæmt lögum um einkahlutafélög er
ekki heimilt að einkahlutafélög veiti
hluthöfum sínum lán.
DV hefur áður greint frá því að
Tryggvi segðist hafa notað lánið til
þess að kaupa kjallaraíbúð í hús-
inu sem hann býr í að Sörlaskjóli 16 í
Reykjavík. DV hefur undanfarið óskað
eftir svörum frá Tryggva hvort hann
hafi greitt lánið frá Varnagla til baka. Í
samtali við DV á fyrri hluta síðasta árs
sagðist hann ætla að endurgreiða lán-
ið árið 2010. „Eina sem ég vil segja er
að ég gaf ykkur upplýsingar á sínum
tíma en annars lít ég á þetta sem mitt
einkamál,“ sagði Tryggvi við DV í síð-
asta mánuði þegar hann var spurður
út í málið.
Vísar í fyrri svör
„Þið hringduð í mig um daginn. Ég
svaraði þá og viltu ekki bara lesa frétt-
ina sem þið eruð með af því,“ sagði
Tryggvi þegar haft var samband við
hann núna og hann spurður hvort
hann hafi greitt lánið. Lánið frá Var-
nagla kemur ekki fyrir á veðbandayfir-
liti þess húss sem Tryggvi segist hafa
notað lánið til að kaupa kjallaraíbúð
í en þegar Tryggvi er spurður hvers
vegna svo sé svarar hann: „Lestu bara
fréttina sem þið voruð með og þar eru
svörin sem þú þarft. Það er það sem
ég hef um þetta mál að segja.“ Þeg-
ar Tryggvi er spurður að því hvort að
hann hafi tekið lán hjá Arion banka og
greitt upp skuldina þannig segir hann:
„Viltu ekki bara kíkja á fréttina, og lesa
hana það er það sem ég hef um málið
að segja.“
Þegar DV talaði við Tryggva Þór
í síðasta mánuði sagðist hann líta á
málið sem sitt einkamál. „Ég held að
þetta hljóti nú að falla undir einkamál,
mín persónulega fjárhagslega staða,“
sagði Tryggvi Þór þá.
Veðsetning talsvert hærri en
fasteignamat
Fasteignamat á kjallaraíbúðinni er
18,6 milljónir króna en Tryggvi festi
kaup á henni árið 2007. Húsið skipt-
ist í þrjár íbúðir og er fasteignamat-
ið á stærstu íbúðinni 24 milljónir en
á þriðju íbúðinni 19 milljónir króna.
Heildarfasteignamat hússins, sem
Tryggvi á ásamt eiginkonu sinni Sig-
urveigu Maríu Ingvadóttur, er því 61,6
milljónir króna.
Samkvæmt veðbandayfirliti húss-
ins er það veðsett upp á 107,5 milljónir
króna. Þrjú veð hvíla á húsinu og á Ar-
ion banki þau öll. Fyrsta veðið er upp
á 25,5 milljónir króna, annað veðið er
upp á 18,2 milljónir króna og þriðja er
upp á 63,8 milljónir króna.
300 milljóna lán til Varnagla
Tryggvi Þór er fyrrverandi forstjóri fjár-
festingabankans Askar Capital en Var-
nagli ehf. var stofnað til að halda utan
um hlutabréf Tryggva Þórs í bankan-
um. Félagið fékk samtals 300 milljón-
ir króna að láni frá Öskum og Glitni til
hlutabréfakaupa í bankanum.
Lánið til Tryggva frá Varnagla,
sem var til þriggja ára, var greitt inn á
reikning Tryggva þann 12. júní 2007
en skrifað var undir lánasamninginn
þann 4. þess mánaðar. Lánið var að
mestu í erlendum myntum, jenum,
svissneskum frönkum og evrum en
þó voru tíu prósent þess í íslenskum
krónum. Peningarnir voru í raun end-
urlánaðir út úr Varnagla, eftir að hafa
verið teknir að láni annars staðar, og til
Tryggva og í staðinn eignaðist félagið
skuldabréf á hendur honum. Lánið var
til þriggja ára og var á gjalddaga í fyrra-
sumar.
Þögn Tryggva þýðir hins vegar að
ekki liggur enn ljóst fyrir hvort hann
greiddi lánið frá Varnagla á tilskild-
um tíma eða ekki.
Lánið ekki á veð-
yfirliti hjá Tryggva
Þögull um Varnaglalánið Tryggvi Þór segir það vera sitt einkamál hvort hann hafi greitt lán frá einkahlutafélagi sínu Varnagla ehf. til baka.
n Gefur ekki upp hvort hann hafi borgað lán frá einkahlutafélagi sínu til baka
n Segist hafa notað lánið til að kaupa kjallaraíbúð n Einkamál, segir Tryggvi Þór„Þið hringduð í mig
um daginn. Ég
svaraði þá og viltu ekki
bara lesa fréttina sem þið
eruð með af því.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
Engin lög-
gæsla á
nóttunni
Embætti lögreglustjórans í Vest-
mannaeyjum hefur ekki lengur
fjármagn til þess að tryggja íbúum
Vestmannaeyja löggæslu allan sólar-
hringinn. Lögreglustjórinn í Eyjum
hefur boðað breytingu á vaktafyrir-
komulagi lögreglunnar, þannig að
ekki verður lengur vakt á virkum
dögum að nóttu til og aðeins einn
lögreglumaður verður á vaktinni að
degi til um helgar. Þetta kemur fram
á fréttavefnum eyjafréttir.is. Bæjar-
ráð Vestmanneyja ályktaði um málið
á þriðjudaginn.
„Bæjarráð telur slíka skerðingu á
löggæslu í Vestmannaeyjum engan
veginn boðlega í jafn stóru og öflugu
samfélagi og Vestmannaeyjar eru.
Í bókun á fundi bæjarráðs þann 10.
janúar sl. gerði bæjarráð þá kröfu
á hendur innanríkis- og velferðar-
ráðuneytum að ráðuneytin tryggðu
gæði sjúkraflutninga og löggæslu
auk þess sem óskað var eftir upplýs-
ingum frá ráðuneytunum. Enn hafa
engin svör borist Vestmannaeyjabæ
og nú er svo komið að ekki er hægt
að bíða lengur eftir svari.“
Íslendingar leita út:
Ungt fólk
vill starfa
erlendis
Ný könnun á vegum framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins á við-
horfi ungmenna í Evrópu leiðir í ljós
að ungt fólk á Íslandi er áhugasam-
ast ungs fólks allra Evrópuríkja um að
starfa í öðru Evrópuríki til lengri eða
skemmri tíma. 84 prósent ungmenna
á Íslandi sýna því áhuga. Alls tók 31
ríki þátt í könnuninni. Að meðaltali
hafa ríflega 50 prósent ungmenna í
Evrópu áhuga á því að vinna í öðrum
Evrópuríkjum samkvæmt niðurstöð-
um könnunarinnar.
Könnunin var gerð í byrjun árs og
birtist á fimmtudag á vef sendinefnd-
ar ESB á Íslandi. Könnunin var fram-
kvæmd af Eurobarometer.
Í könnuninni var einnig farið yfir
lífsviðhorf ungs fólks til menntunar
og vinnu innan Evrópu og í niður-
stöðum hennar kemur einnig fram að
58 prósent íslenskra ungmenna vilja
stofna sitt eigið fyrirtæki. Hér skara
Íslendingar aftur fram úr, en meðaltal
annarra ungmenna er 43 prósent.