Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–14 og sunnudaga kl. 14–16 Bragi Ásgeirsson Vefuppboð nr. 7 Listaverk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar eru á uppboðinu 11. – 27. júní Síðasta sýningarhelgi Samræður við lífið Karólína Lárusdóttir, olía, 106 × 77 cm Jósefína Þorbjörnsdóttir í Reykja- nesbæ var í mars með 24 hunda á heimili sínu. Þar af voru 17 ekki ör- merktir og að mati héraðsdýralæknis Gullbringu- og Kjósarumdæmis var ormahreinsun hundanna ábótavant. Þetta kemur fram í skýrslu sem Mat- vælastofnun, sem annast eftirlit með hundum, lét gera um hundahald Jósefínu. DV fjallaði á miðvikudag um hunda hennar og árás 17 þeirra á konu á Rockville-svæðinu. Í skýrsl- unni kemur einnig fram að hund- unum hafi fjölgað um tíu frá því að eftirlitsdýralæknir skoðaði hunda Jósefínu síðast, árið 2008. DV hafði samband við Jósefínu bæði vegna árásarinnar í síðustu viku og aftur vegna skýrslu Matvæla- stofnunar um dýrahald hennar. Hún vildi ekki tjá sig um málið en sagði: „Á ég ekki að koma með þessa hunda fyrst þeir eru svo grimmir og leyfa þeim að hitta þig?“ Jósefína gerði engar efnislegar athugasemdir við fréttir DV af hundahaldi hennar en sagði fréttaflutninginn engu að síður vera rangan. Telja dýrin alltof mörg Sjö athugasemdir voru gerðar við dýrahald Jósefínu í áðurnefndri skýrslu en þrjár þeirra snúa að fjórum köttum sem hún á auk hundanna. Það sem athugasemd var gerð við var að ormahreinsun bæði hunda og katta væri ábótavant, bólusetn- ing hunda og katta væri ábótavant, eftirliti með heilsufari bæði hunda og katta væri ábótavant og að aðbún- aði mjólkandi kvendýrs og ungviðis hennar væri ábótavant. Í skýrslunni kemur fram að Jósefína hafi ekki trú á bólusetningu og því hafi dýrin ekki verið bólusett. Einnig sagðist hún fara með dýrin í ormahreinsun ann- ars staðar en hjá dýralækni. „Á meðal þessara 24 hunda voru fimm 7 vikna hvolpar. Sagði Jósef- ína að einn stálpaður hvolpur færi væntanlega á nýtt heimili á næstu vikum og hugðist auglýsa hvolpana í Fréttablaðinu og á barnalandi.is. Sjö hundar voru örmerktir en 17 ekki ör- merktir. Tíkur voru 15 og allar í sam- bandi en ógeltir rakkar voru 6. Geltir rakkar voru 3,“ segir meðal annars í skýrslunni. Niðurstöður skýrslunnar eru mjög skýrar en þar segir að Jósef- ína verði að fækka hundum á heim- ilinu. „Undirrituð telja að hundarnir á [heimilisfang tekið út] séu allt of margir til þess að ein manneskja geti sinnt þeirra líkamlegu og andlegu þörfum sem skyldi.“ Vildu að hún losaði sig við tíu hunda Í skýrslunni kemur fram að eftirlits- dýralæknir og héraðsdýralæknir hafi talið það brýnt að Jósefína losaði sig við tíu hvolpa af heimilinu. Lýstu dýralæknarnir þó áhyggjum sínum af því að enn væru þá 14 hundar eftir á heimili Jósefínu og sögðu að ákvörðun yrði tekin um framhaldið eftir að hún hefði losað sig við hvolp- ana. Jósefína hefur annaðhvort ekki farið að þessum tilmælum dýralækn- anna eða hún hefur fjölgað hundun- um á heimilinu aftur eftir að hafa losað sig við hvolpana þar sem 17 hundar tóku þátt í fyrrnefndri árás á konuna á Rockville-svæðinu. Skýrslan snýr að kvörtun sem barst héraðsdýralækni í júní árið 2010. Í skýrslunni er talað um að „enn á ný“ hafi borist kvörtun vegna dýrahalds Jósefínu. Strax sama dag og kvörtunin barst gerði eftirlitsdýra- læknir tilraun til að heimsækja Jós- efínu til að athuga með hundana. Í skýrslunni eru taldar upp sjö tilraun- ir dýralækna til að heimsækja Jós- efínu og skoða aðstæður en ástæð- urnar sem hún gaf fyrir því að hún gæti ekki tekið á móti dýralæknun- um voru allt frá því að hún væri með flensu og að hún hefði læst sig úti. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Eftirlitsdýralæknir og héraðsdýralæknir gera alvarlegar athugasemdir við hundahald Jósefínu n Vilja að hún losi sig við minnst 10 hunda n 24 hundar og 4 kettir hið minnsta„Sagði Jósefína að einn stálpaður hvolpur færi væntanlega á nýtt heimili á næstu vikum. 8 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 Góðir skór Gott verð St. 36-41 kr. 6.595 St. 36-41 kr. 5.895 St. 24-35 kr. .395 St. 41-46 kr. 6.795 „Við bara breytum nafninu í Apó- tekið Björk og sækjum um námslán til að læra apótekarann. Ég hlýt að fá einhverja sporslu frá fyrirtækinu til þess að læra þetta,“ segir Arnór Indr- iðason, starfsmaður í Tóbaksversl- uninni Björk. Þverpólitískt frumvarp þar sem meðal annars er lagt til að almenn sala á tóbaki verði bönnuð í skrefum og færð yfir í apótek liggur nú fyrir þinginu. Apótekari átti Björk Um er að ræða tíu ára rammaáætlun sem þingmennirnir vilja að velferð- arráðherra vinni að og miði að því að takmarka sölu tóbaks við apótek. Á meðal flutningsmanna eru Ólína Þorvarðardóttir, Árni John sen, Álf- heiður Ingadóttir, Siv Friðleifsdótt- ir og Þór Saari. Gangi málið í gegn segja Bjarkarmenn að fátt annað sé til ráða en að breyta þessari 84 ára gömlu tóbaksverslun í apótek. „Þetta er auðvitað sagt meira í gríni en alvöru en þessi verslun var auðvitað í eigu eins frægasta apó- tekara landsins í gamla daga þann- ig að það er nú ekki langt að sækja nafnið. Hann hefur kannski verið svona framsýnn að eiga bæði apó- tek og tóbaksverslun, hann hefur kannski vitað að þetta ætti svona vel saman,“ segir Arnór og hlær. Tóbaks- verslunin Bristol við Bankastræti tók til starfa árið 1927 en húsnæðið sem hýst hefur verslunina síðan þá var byggt árið 1875. Við eigendaskipti árið 1985 var nafni hennar breytt í Tóbaksverslunina Björk. Afgreiða tóbak í sloppum Ólína Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar og einn flutn- ingsmanna fumvarpsins, sagð í samtali við DV í vikunni að hún teldi það vera skyldu ríkisins „að taka þetta eitur úr almennri umgengni með tímanum.“ Illugi Gunnars- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins gagnrýndi tillöguna hins vegar og sagði hana dæmi um það þegar stjórnlyndið bæri fólkið ofurliði. Arnór Indriðason segir starfs- menn Bjarkar hafa rennt í gegn- um frumvarpið á þriðjudaginn og að þeir viti í rauninni ekki hvort þeir eigi að hlæja eða gráta. „Ef við neyðumst til að breyta þessu í apó- tek verður þetta mjög fínt hjá okk- ur, við verðum bara hérna í hvítu sloppunum að afgreiða lyfseðils- skyld lyf.“ Arnór segist líta á mál- ið sem eins konar brandara enda muni apótekarar að hans mati varla hafa áhuga á því að selja tób- ak í sínum verslunum. „Hvað þá að þurfa að sjá um einhverja lyfseðils- skylda tóbaksfíkla, nóg er nú búið að ræða undanfarið um alvarlegri og sterkari lyf sem dælt er út í sam- félagið.“ Einelti og ofbeldi Meðmælendur tillögunar benda meðal annars á að reykingar séu mikið heilsufarsvandamál og dýrar fyrir heilbrigðiskerfið. Þá hafa bæði Siv Friðleifsdóttir og Ólína Þorvarð- ardóttir sagt að frumvarpið sé lagt fram til þess að vernda börnin. Í til- lögunni er gert ráð fyrir að takmark- anir verði settar á neyslu tóbaks á lóðum opinberra bygginga, á gang- stéttum, í almenningsgörðum, á bað- ströndum, á svölum fjölbýlishúsa og opinberra bygginga. Arnór telur ólík- legt að lögreglan muni hafa tíma til þess að sinna útköllum þar sem ein- hver hefur gerst sekur um að reykja úti á svölum. „Þarna er bara verið að flækja lagaumhverfið óheyrilega mik- ið vegna hluta sem eru ekkert vanda- mál fyrir,“ segir hann. Hann segist varla trúa því að til- lagan nái fram að ganga þar sem hún sé of ofstækisfull. „Þetta virð- ist hreinlega vera ofbeldi, einhvers konar einelti gagnvart reykingar- mönnum. Það er eins og þeim finnist bara mjög ófínt að reykja og ætli þess vegna að gera allt sem þau geta til þess að drepa kúlt- úr reykingamanna.“ Hann segir forvarnarstarf hafa skilað sér vel hingað til og að það sé rétta leiðin þegar kemur að aðgerðum vegna skaðlegra efna eins og tóbaks. Þá segir hann nærtækara að herða á reglum varðandi þá sem selja ung- lingum tóbak eða þeim sem kaupa tóbak fyrir unglinga. „Breytum nafninu í Apótekið Björk“ „Ef við neyðumst til að breyta þessu í apótek verður þetta mjög fínt hjá okkur, við verðum bara hérna í hvítu sloppunum að afgreiða lyfseðilsskyld lyf. n Kemur til greina að breyta tóbaksversluninni í apótek og klæð- ast hvítum sloppum n Segir reykingafólk sæta einelti og ofbeldi Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Apótekið Björk Starfsmenn og eigendur tóbaksverslunarinnar Bjarkar íhuga að snúa vörn í sókn og breyta versluninni í apótek. „Trúði ekki að þeir væru að bíta mig“ Guðrún Guðmundsdóttir var bitin af 17 hundum: Guðrún Guðmundsdóttir var á gangi við gamla Rockville á Suðurnesjum á þriðjudaginn þegar hún varð fyr- ir árás sautján hunda sem flöðruðu upp um hana og bitu. Hún var bitin fjórum sinnum aftan á lærin og fékk þar að auki sex djúp bitsár. Guðrún segir að hún hafi verið við eggja- tínslu þegar hún sá konu með marga hunda sem allir gengu lausir. Einn hundanna hafi þó verið á reiki í kringum Guðrúnu og fylgt henni eftir. Hún hafi því ákveðið að labba í átt að konunni til þess að leiða hann aftur inn í hópinn. „Þegar ég er að ganga í áttina að henni sé ég að einn af hundunum verður var við mig og tekur á rás í áttina að mér og á eftir honum fylgir allur hópurinn“. Guðrún segist vera alvön hundum og hafi því bara staðið kyrr og hundarnir hópast í kringum hana. „Ég kalla í konuna og bið hana að kalla á hundana því mér fannst eins og það væri verið að bíta mig í fæt- urna, en ég hreinlega trúði því ekki“. „Það heyrðist eiginlega ekk- ert, þeir voru geltandi og ég kallaði á hana og hún kallaði á þá en það heyrðist eiginlega ekkert fyrir lát- um,“ segir hún. „Svo kom hún nær og tókst að draga eitthvað af hund- unum í burtu, en svo komu þeir aftur og þá fann ég að þeir voru greinilega að bíta mig. Ég sagði þá við konuna: Þeir eru að bíta mig viltu koma þeim í burtu, en hún horfði bara á mig eins og hún tryði mér ekki“. Konunni tókst að draga hundana í burtu en Guðrún stóð eftir stjörf af hræðslu. „Ég fann ekkert fyrir sárs- auka, ég var svo ofboðslega hrædd. Ég var bara dofin af hræðslu.“ Guð- rún segist hafa litið niður og þá horft beint í stórt bitsár. Guðrún vill vekja athygli á því að engar reglugerðir eru um það hversu marga hunda einstaklingur má halda. „Það er mín samfélags- lega skylda að kæra málið. Það hef- ur enginn neitt með sautján hunda að gera.“ Guðrún Guðmundsdóttir Varð fyrir árás sautján hunda sem allir gengu lausir á Rock- ville-svæðinu á Suðurnesjum. Þyrla sótti hjartveikan Landhelgisgæslunni barst rétt fyrir klukkan fimm á fimmtudag aðstoð- arbeiðni í gegnum Neyðarlínuna vegna manns með hjartatruflanir um borð í hvalaskoðunarskipinu Hafsúlunni sem var staðsett um 1,5 sjómílu norður af Gróttu.Þyrla Landhelgisgæslunnar var sam- stundis kölluð út auk bráðatækna frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem fóru á staðinn með Höllu Jóns, harðbotna björgunarbáti Slysa- varnarfélagsins Landsbjargar. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 17:09 og var komin að bátnum um svipað leyti og Halla Jóns. Sigu stýrimaður og læknir niður í Haf- súluna og undirbjuggu sjúklinginn fyrir flutning. Var síðan flogið beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem var lent um kl. 17:30. Var viðbragð allra aðila sérstaklega gott í útkall- inu og liðu ekki nema 45 mínútur frá því að aðstoðarbeiðnin barst þar til sjúklingurinn var kominn á spítala. Einnig skipti miklu máli þrautþjálf- uð áhöfn Hafsúlunnar sem kunni vel til skyndihjálpar og undirbjó mann- inn fyrir komu björgunaraðila. 8 | Fréttir 8. júní 2011 Miðvikudagur Starfsmaður Sjálfstæðisflokksins rekinn úr starfi: Ólga eftir brottrekstur Ólga er í Sjálfstæðisflokknum á Norðurlandi eftir að Guðmundi Skarphéðinssyni, formanni kjör- dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og jafnframt starfsmanni flokksins var sagt upp störfum nýlega. Guðmundur var kallaður á fund Jónmundar Guð- marssonar, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins, og rekinn fyrirvara- laust úr starfi. Brottreksturinn lagðist illa í félaga Guðmundar í kjördæmis- ráðinu sem í kjölfarið skrifuðu bréf til Jónmundar og Bjarna Benedikts- sonar, formanns flokksins, þar sem brottrekstrinum var mótmælt harð- lega. Þingmenn flokksins í kjördæm- inu fengu einnig bréf um þetta efni. Guðmundur vildi lítið tjá sig um málið í samtali við DV en staðfesti að sér hefði verið sagt upp og að fé- lagar hans í flokknum í Norðaustur- kjördæmi hefðu sent mótmælabréf til Valhallar. „Við vorum ekki sátt við þetta og sérstaklega hérna á Norður- og Aust- urlandi þar sem hann hefur aðallega starfað,“ segir Baldvin Valdimars- son formaður fulltrúaráðsins á Akur- eyri. Spurður um viðbrögð frá forystu flokksins við kvörtunarbréfinu, segir Baldvin: „Þau komu hingað norður, formaður og varaformaður. Það var mjög góður fundur og það ríkir viss skilningur á sjónarmiðum beggja að- ila.“ St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 Góðir skór Gott verð St. 36-41 kr. 6.595 St. 36-41 kr. 5.895 St. 24-35 kr. .395 St. 41-46 kr. 6.795 Jósefína Þorbjörnsdóttir íbúi í Kefla- vík á tugi hunda sem hún virðist lít- ið ráða við. Í síðustu viku réðust 17 hundar í hennar eigu á Guðrúnu Guðmundsdóttur þegar hún var á gangi á Miðnesheiði á Reykjanes- skaganum. Konan hefur ítrekað gerst brotleg við reglur um hundahald og hefur eigandi íbúðarinnar sem hún býr í ítrekað reynt að losna við hana úr íbúðinni. Í samtali við DV fyrr á árinu sagði hún að maðurinn væri kærasti hennar sem reyndist ekki vera rétt. Samkvæmt heimildum DV hefur konan margsinnis verið tilkynnt til Dýraverndarsambands Íslands en lítið hefur verið aðhafst vegna kvart- ananna. Hefur hún nú verið kærð til lögreglunnar eftir árás hunda henn- ar, sem allir voru lausir, í síðustu viku. „Ég hef bara ekkert um þetta mál að ræða,“ sagði Jósefína þegar blaðamaður leitaði viðbragða henn- ar við málinu. Sögð eiga yfir 20 hunda Dýraverndarsambandi Íslands hafa borist að minnsta kosti þrjár tilkynn- ingar varðandi hundahald Jósefínu en hundaeigendur í nágrenni við hana segja hana fara illa með hundana. Athyglisvert þykir einnig að Jósefína hefur tugi hunda í 60 fer- metra íbúð sem hún býr í. Hundaeig- andi sem þekkir Jósefínu hafði sam- band við DV en sökum þess hversu málið þykir viðkvæmt kaus hún nafnleynd. Hún sagðist hafa þríveg- is kvartað til yfirvalda vegna hunda- halds Jósefínu og vita um minnst fjórar aðrar kvartanir. „Við vorum bara að bíða eftir því að eitthvað svona myndi gerast,“ segir hún um árásina í síðustu viku. Hundahald er almennt bannað í Reykjanesbæ líkt og í öðrum sveit- arfélögum hér á landi. Auðvelt þykir þó að fá undanþágu frá því banni en Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja getur veitt undanþágur frá bann- inu á nokkrum mismunandi for- sendum. Fyrir hvern hund þarf að greiða 13.146 krónur á ári samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Það þýðir að Jósefína þarf að greiða 223.482 krón- ur á hverju ári fyrir hundana sem réðust á Guðrúnu á Miðnesheiði. Var með 17 hunda í Subaru Guðrún Guðmundsdóttir sem varð fyrir árás hunda Jósefínu sagði við DV eftir árásina að allir hundarnir 17 sem Jósefína var með, og réðust á hana, hafi verið lausir. Það er skýrt brot á reglum um hundahald. Guð- rún var á gangi við gamla Rockville á Suðurnesjum síðastliðinn þriðjudag þegar hún varð fyrir árás hundanna sem flöðruðu upp um hana og bitu. Hún var bitin fjórum sinnum aftan á lærin og fékk þar að auki sex djúp bitsár. Áður en hundarnir réðust á Guð- rúnu reyndi hún að kalla á Jósef- ínu til að fá hana til að hafa stjórn á hundunum en þeir höfðu hópast í kringum hana. „Ég kallaði í konuna og bað hana að kalla í hundana því mér fannst eins og það væri verið að bíta mig í fæturna, en ég hrein- lega trúði því ekki,“ sagði hún í sam- tali við DV 2. júní. Eftir árásina kom svo Jósefína hundunum fyrir í Sub- aru-bifreið sinni áður en hún talaði við Guðrúnu. Guðrún segir að Jósef- ína hafi ekki trúað því að hundarn- ir hefðu bitið hana þar til hún sýndi henni sárin. Hundunum hefur snarfjölgað Í samtali við DV fyrr á árinu sagði Jósefína að hún hefði fulla stjórn á hundunum og að þeir væru að- eins 13 talsins. „Við förum alltaf út fyrir bæinn með þá og leyfum þeim að hlaupa í svona klukkutíma. Síð- an hleypi ég þeim í þremur hollum út í garð til að pissa og það fara allt- af sömu hundarnir saman. Það fara síðan alltaf sömu hundar saman inn í búr og aftur í skott og svona. Þeir kunna þetta allt saman og gegna mér í einu og öllu svo þetta er ekkert mál,“ sagði hún aðspurð um hundana. Á sama tíma hvatti hún fólk til að íhuga vandlega hvort það væri reiðubúið til að taka að sér hund áður en í það væri farið og að hún sjálf ætlaði ekki að fá sér fleiri hunda í bráð. Hún virð- ist hafa horfið frá þeirri hugmynd. „Ég ætla bara ekkert að tjá mig neitt um þetta mál, ég er búin að gera það nóg,“ sagði hún aðspurð hvort hún hafi gripið til aðgerða eða ráð- stafana eftir að árás hundanna í síð- ustu viku. n Kona með tugi hunda á heimili sínu n Hundarnir hafa oftar en einu sinni ráðist á fólk n Hefur verið tilkynnt til Dýraverndarsambands Íslands vegna vanrækslu n Ekkert virðist aðhafst í máli konunnar Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Ég hef bara ekkert um þetta mál að ræða. Með tugi brjálaðra hunda í lítilli íbúð Með tugi hunda Jósefína er sögð vera með yfir 20 hunda í 60 fermetra kjallaraíbúð sem hún leigir. MynD Sigtryggur Ari JóHAnnSSon Áverkarnir Guðrún Guðmundsdóttir, sem varð fyrir árás hunda Jósefínu, hlaut áberandi áverka. Framkvæmdastjóri Jónmundur Guð- marsson rak starfsmann flokksins í Norð- austurkjördæmi úr starfi í sparnaðarskyni. Áríðandi fundur á fimmtudag: Gróðinn „vellur“ upp úr pottum Norðuráls Verkalýðsfélag Akraness hefur boð- að til áríðandi fundar með starfs- mönnum Norðuráls næstkomandi fimmtudag þar sem, að sögn for- manns félagsins, verður rædd sú grafalvarlega staða sem komin er upp í kjaraviðræðum við Norðurál. Liðnir eru sex mánuðir frá því að launaliður samningsins rann út og segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, að ekki sé að finna nokkurn samningsvilja hjá forsvarsmönnum Norðuráls sem boðið hafa sömu kjör og samdist um á hinum almenna vinnumarkaði á dögunum, 11,4 prósent til þriggja ára. Þessu tilboði hefur Vilhjálmur hafnað algerlega enda barist fyrir því ötullega undanfarið að útflutnings- fyrirtæki á borð við Norðurál sem hagnast hafa gríðarlega á gengisfalli krónunnar og stórhækkuðu álverði greiði eftir getu. Í pistli á heimasíðu Verkalýðs- félags Akreaness segir hann að Norðurál hafi skilað gríðarlegum hagnaði frá því fyrirtækið hóf starf- semi árið 1998. „Það vellur gróði upp úr öllum pottum Norðuráls og því er sorglegt að fyrirtæki í áliðnaði séu ekki tilbú- in að deila þessum gríðarlega mikla ávinningi með starfsmönnum,“ segir Vilhjálmur. Þarf að ormahreins g bólusetja hunda jóse Fréttir DV DV hefur áður fjallað um dýrahald Jósefínu Fjöldi hunda í 60 fermetrum Íbúðin sem Jósefína leigir er 60 fermetrar að stærð en í henni hefur hún hátt í 30 dýr. MynD SigTryggur Ari JóHAnnSSon Samkvæmt nýrri skýrslu Samkeppn- iseftirlitsins á 120 stórum fyrirtækj- um á völdum samkeppnismörkuð- um er um helmingur þeirra í mjög slæmri fjárhagsstöðu. Stofnunin tel- ur að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja hafi tekið of langan tíma. Þau fyrirtæki sem hafi farið í gegnum endurskipulagningu séu of skuldsett og það hamli samkeppni. Á fimmtudag var ný skýrsla kynnt um stöðu samkeppnismála eftir bankahrun. Stofnunin telur að um helmingur þeirra 120 fyrirtækja sem skoðuð voru glími við mjög erfiða fjárhagsstöðu. Bankar ráða yfir tæp- lega helmingi eignarhluta fyrirtækja. Eftirlitið segir að tæplega þriðj- ungur hafi lokið fjárhagslegri endur- skipulagningu. Aðeins fimmtungur fyrirtækja er í góðri stöðu. Mikil tortryggni og óvissa ríkir á mörkuðum og nauðsynlegt er að bregðast við þessu. Staðan sé slæm en fer batnandi segir eftirlitið. Vandi atvinnulífsins felst í of hægu ferli fjár- hagslegrar endurskipulagningar fyr- irtækja, óánægju með framkvæmd hennar og skorti á trausti og gagnsæi. Þá er fjárhagsstaða um helmings fyr- irtækja sem lokið hafa fjárhagslegri endurskipulagningu engu að síður mjög slæm, samkvæmt greiningu Samkeppniseftirlitsins. Könnun á stöðu 120 stórra fyr tækj : Á von r öl Slæm staða fyrirtækja Gunnar Páll Páls- son er forstjóri Samkeppniseftir- litsins sem telur að fjárhagsleg endur- skipulagning fyrir- tækja hafi tekið of langan tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.