Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Qupperneq 15
Fréttir | 15Helgarblað 10.–14. júní 2011
Samkomulag við fjármálaráðherra
Póstatkvæðagreiðsla er hafin
Hafin er póstatkvæðagreiðsla um nýtt Samkomulag
Starfsgreinasambands Íslands við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn aðildarfélaga SGS sem vinna eftir
þessum samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers aðildarfélaganna í
apríl/maí 2011.
Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá.
Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur
viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags, og fengið sig færðan á
kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem
sanni afdregin félagsgjöld í apríl/maí 2011.
Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00
miðvikudaginn 22. júní en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.
Reykjavík, 6. júní 2011.
Kjörstjórn
Starfsgreinasambands Íslands
Starfsgreinasamband Íslands
tvímælis hefði hann haft eitthvað
með lánið til Ökugerðis Íslands að
gera, en svo hafi ekki verið: „Ef ég
hefði tekið þátt í því að afgreiða þetta
lán þá hefði það orkað tvímælis en ég
kom hvergi nærri þeirri afgreiðslu.“
Ólafur Guðmundsson, varaformað-
ur Félags íslenskra bifreiðaeigenda,
hefur tekið við sem framkvæmda-
stjóri Ökugerðis Íslands, en Sturla er
ennþá stjórnarformaður félagsins.
Fjölbreytt starfsemi
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, segir í samtali við
DV að Sturla hafi ekki komið að með-
ferð lánasamninganna á milli Byggða-
stofnunar og Ökugerðis Íslands. Hann
bendir á reglur um störf stjórnar
Byggðastofnunar en í 3. grein þeirra
reglna kemur meðal annars fram að
stjórnarmaður skuli ekki taka þátt í
meðferð máls er varðar viðskipti hans
sjálfs, eða fyrirtækis sem hann er í for-
svari fyrir, eða telst að öðru leyti inn-
herji í. Almennt eru lán Byggðastofn-
unar ekki takmörkuð við sérstakar
atvinnugreinar en lánasvæði stofnun-
arinnar er allt landið utan höfuðborg-
arsvæðisins. Almennt er um fjárfest-
ingar í nýjum verkefnum að ræða. Í
núverandi árferði teljast lán stofnun-
arinnar almennt frekar hagstæð.
Á heimasíðu Ökugerðis Íslands
kemur fram að hægt verði að nýta þá
aðstöðu sem verið sé að byggja upp
við Grindavíkurveginn til ýmiss ann-
ars en kennslu nýnema. Þar megi
til að mynda fara fram endurhæfing
ökumanna sem nú þegar hafa öku-
réttindi, þá geti eldri borgarar fengið
þjálfun á svæðinu og þeir sem misst
hafa ökuréttindin. Enn fremur seg-
ir að hægt yrði að leigja svæðið til
erlendra aðila, bíla- og eða dekkja-
framleiðenda. Þá væri hægt að gera
samninga við bílaleigur um þjálfun
erlendra ökumanna á malarvegum
sem og þjálfa starfsmenn fyrirtækja
sem vinna við akstur. Því er ljóst að
ýmis starfsemi mun fara fram á svæð-
inu nái framkvæmdirnar fram að
ganga. Í samtali við DV segist Sturla
Böðvarsson hins vegar ekki hafa
neinna hagsmuna að gæta, enda eigi
hann ekki hlut í félaginu. „Ég er ekki
hluthafi, á ekkert í þessu og kem ein-
ungis að þessu sem áhugamaður, og
til að hjálpa til með þetta,“ segir Sturla.
Draumur Sturlu
Sturla Böðvarsson var á meðal þeirra
fyrstu sem reifuðu hugmyndir um að
sett yrði upp sérstakt ökugerði hér á
landi. Sem samgönguráðherra barð-
ist hann fyrir því að ökunemar gengj-
ust undir þjálfun í ökugerði. Sturla
skrifaði meðal annars grein um mál-
ið í Morgunblaðinu árið 2005. „Þetta
mál hefur lengi verið til umræðu,
ekki síst meðal ökukennara, en lengi
vel voru nokkuð misvísandi upplýs-
ingar um hver reynsla manna væri
af slíkum svæðum,“ sagði Sturla og
bætti við: „Nú segja ráðgjafar mínir
hins vegar að slík svæði séu af hinu
góða og því hef ég falið Umferðar-
stofu að hefja þennan undirbúning.
Við stefnum að því að reglugerð um
ökugerði verði tilbúin í haust.“
Frá upphafi árs 2010 hafa all-
ir ökunemar verið skyldaðir til þess
að gangast undir þjálfun í ökugerði.
En á vefsíðu Ökugerðis Íslands segir
meðal annars: „Þann 12. júní 2010
var fest í gildi reglugerð sem skyld-
ar alla ökunema til náms í þar til
gerðu ökugerði og var gildistaka
reglugerðarinnar miðuð við 1. janú-
ar 2010.“ Þegar blaðamaður ítrekaði
spurningu sína til Sturlu Böðvars-
sonar og spurði hvort honum þætti
ekki óheppilegt að vera beggja vegna
borðsins þegar kemur að lánveiting-
um Byggðastofnunar til Ökugerð-
is Íslands, sagði hann: „Nei, það er
nefnilega algjör misskilningur vegna
þess að það gilda mjög strangar regl-
ur hjá Byggðastofnun um það hve-
nær stjórnarmenn verða að víkja og
ég kom hvergi nærri þessu. Þannig
að fyrir alla muni, í þágu umferðar-
öryggis á landinu, ekki reyna að gera
þetta tortryggilegt.“
„Þannig að fyrir
alla muni, í þágu
umferðaröryggis á
landinu, ekki reyna að
gera þetta tortryggilegt.
Sturla beggja vegna borðS
„Útlendingarnir standa hérna og brosa
breiðum brosum og taka myndir af
þessum ósköpum. Þetta er góð aug-
lýsing fyrir miðborgina okkar,“ sagði
ónafngreindur aðili sem hafði sam-
band við DV vegna ruslahaugs sem
hefur safnast upp í porti á Smiðjustíg.
Mikinn fnyk leggur frá portinu en
Eldvarnareftirlitið hefur haft afskipti
af húsráðanda og gert honum að fjar-
lægja hauginn. „Hann lofar að taka
þetta. Hann lofaði því að þetta yrði far-
ið fyrir helgi. Ég gerði honum grein fyr-
ir hans ábyrgð ef eitthvað kemur upp á
þarna. Þetta eru hugsanlega hans ábú-
endur, en hann leigir einhver herbergi
eða íbúðir út þarna. Það er á hans
ábyrgð að þetta sé í lagi, sem fasteign-
areiganda,“ segir Guðmann Friðgeirs-
son hjá Eldvarnareftirliti Reykjavíkur.
Guðmanni barst tilkynning um
þetta rusl fyrir átta vikum. „Þá var
þetta ekki nándar eins mikið og er í
dag. Þá var þetta mikið til bara rusl
í kerru. Ég taldi þá að þetta heyrði
undir borgina eða heilbrigðiseftirlit.
Það er eðlilegast. Slökkviliðið er ekki
að eltast við einhverja ruslahauga
úti um alla borg. Nema það sé ein-
hver veruleg eldhætta af þeim, sam-
brunahætta, um slíkt gæti kannski
verið að ræða núna,“ segir Guð-
mann.
Fyrst um sinn voru þetta nokkrir
sorppokar að sögn Guðmanns. „Fyrst
safnast þarna eitthvert geymslurusl
en nú síðustu daga sýnist mér að það
sé meira um að fólk sé bara að henda
ruslinu sínu þangað og fer ekkert með
það í ruslatunnur. Þetta er bara klárt
heilbrigðiseftirlitsmál,“ sagði Guð-
mann.
Eiganda gerð grein fyrir ábyrgð sinni vegna sóðaskaps:
Sorphaugur á Smiðjustíg
Sorpið Portið á Smiðjustíg.
mynD Sigtryggur Ari JóHAnnSSon.