Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 16
16 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Mikið úrval af
tjöldum.
Fjölskyldutjöld með
3000 mm vatnsheldni
Áfastur botn,
pöddufrí tjöld
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Faxafen i 8 / / 108 Reyk jav ík / / S ím i 534 2727 / / e -ma i l : a lpa rn i r@a lparn i r . i s / / www.a lparn i r . i s
FULLORÐINSPOKI
Kr. 10.995
KRAKKAPOKI 130 CM
Kr. 6.995
UNGLINGAPOKI 165CM
Kr. 9.995
TJALDASALUR - VERIÐ VELKOMIN
KÚLUTJÖLD - FJÖLSKYLDUTJÖLD - GÖNGUTJÖLD
BARNAPOKI 100 CM
Kr. 5.995
I I
Drífa BA-85 fær vilyrði fyrir byggða-
kvóta upp á 133 þorskígildistonn fyr-
ir þetta fiskveiðiár. Drífa er í eign Sæ-
fisks ehf. og er gerð út frá Bíldudal.
Sömu eigendur eiga Sæfisk ehf. og
Perlufisk ehf. sem rekur fiskvinnslu
á Bíldudal, samkvæmt hluthafaskrá
2009.
Samkvæmt reglum Bíldudals,
sem tilheyrir Vesturbyggð, fyrir út-
hlutun á byggðakvóta þá geta að-
eins þeir bátar sem lönduðu afla til
vinnslu á Bíldudal frá 1. september
til 31. desember árið 2010, átt mögu-
leika á að fá byggðakvóta.
Drífa BA-85 var eini báturinn sem
landaði á þessu tímabili. Löndunin
var ein þann 29. desember árið 2010
og hljóðaði upp á 58 kíló af þorski og
tíu kíló af ýsu.
„Sérsniðnar reglurnar“
„Það eru sérsniðnar reglurnar
fyrir þá. Bæjarstjórn Vesturbyggð-
ar ákvað að Perlufiskur, eða þeirra
skip, fengi loforð um byggðakvót-
ann. Það myndi nýtast Perlufiski af
því þeir settu upp þessa fiskvinnslu
á staðnum til atvinnusköpunnar og
bæjarstjórn hefur óskað eftir setn-
ingu reglanna á þann hátt að þær
nýtist þeim, Perlufiski. Þeir fá vil-
yrði fyrir þessum 133 tonnum. Það
var bara þessi eini bátur sem upp-
fyllti þau skilyrði sem sett voru, sem
óskað er eftir af bæjarstjórn Vestur-
byggðar, fyrir úthlutun byggðakvóta
á Bíldudal,“ segir Hinrik Greipsson
hjá sjávar útvegsráðuneytinu.
Uppsagnir vegna sumarstoppa
Perlufiskur sagði upp öllu starfsfólki
sínu vegna sumarstoppa um mán-
aðamótin apríl-maí. Í samtali við
mbl.is um þær uppsagnir sagði Har-
aldur Haraldsson hjá Perlufiski að
óvissan með byggðakvóta og frum-
vörp sjávarútvegsráðherra orsökuðu
vinnslustöðvunina.
„Það sér hver heilvita mað-
ur að ef við eigum að fara að leigja
byggðakvótann og kannski að leigja
kvóta til að uppfylla skilyrði um
byggðakvóta þá gengur það ekkert
upp,“ sagði Haraldur en vinnsla hjá
fyrirtækinu var þá sögð standa út
júní.
Hinrik segir að ef Drífa BA landi
ekki þessum byggðakvóta á þessu
fiskveiðiári þá fái útgerðin ekki
byggðakvóta. „Ef þeir klára það ekki
á þessu fiskveiðiári þá flyst það yfir
á næsta fiskveiðiár þar sem það er
óafhent, eða það sem þeir hafa ekki
geta uppfyllt skilyrðin fyrir. Það geta
þá verið sett einhver önnur skilyrði á
næsta fiskveiðiári, þá flyst það sem er
ónotað af þessum byggðakvóta á ein-
hverja aðra. Það fer eftir þeim úthlut-
unarreglum sem verða í gildi á næsta
fiskveiðiári.“
23 milljónir vegna
óútskýrðs munar
Fyrr á þessu ári komst úrskurðar-
nefnd að þeirri niðurstöðu að Perlu-
fiskur í Vesturbyggð skyldi greiða sér-
stakt gjald, vegna ólögmæts sjávarafla,
að fjárhæð 23,4 milljónir króna. Í lok
júní 2010 kvað Fiskistofa upp úrskurð í
kjölfar bakreikningsrannsóknar á fyr-
irtækinu Perlufiski ehf. Byggði Fiski-
stofa niðurstöðuna á því að fyrir hendi
væri mikill óútskýrður munur á lög-
lega vegnum og skráðum aðföngum
fyrirtækisins og hráefni sem afurðir
bakreiknaðar til hráefnismagns gáfu
til kynna á tímabilinu 1. janúar 2008
til 14. júlí 2009. Að teknu tilliti til skyn-
samlegs vafa varðandi nýtingarhlutföll
og þeirra áhrifa á þyngd sem íblönd-
unarefni kunna að hafa, þrátt fyrir að
vera kunni að notkun slíkra efna væri
ólögmæt, var niðurstaðan sú að líta
yrði svo á að óútskýrður mismunur
hráefniskaupa og seldra afurða á um-
ræddu tímabili næmi 55.242 kílóum af
þorski og 70.684 kílóum af steinbít.
Hinrik segir að það sé ekkert í lög-
unum um byggðakvóta sem meini
þeim sem hafa fengið sektir eða ver-
ið dæmdir fyrir brot við vinnslu á
afla að fá byggðakvóta. „Það er ekk-
ert slíkt í lögunum um byggðakvóta.
Það er bara sérmál og er meðhöndlað
sem sakamál í sérfarvegi. Það kemur
í sjálfu sér byggðakvótanum ekkert
við.
Ef einstaklingar uppfylla skil-
yrði sem sett eru til að fá loforð um
byggðakvóta og uppfylla skilyrði til
að fá hann afhentan þá er ekki beðið
um sakavottorð hjá mönnum,“ segir
Hinrik Greipsson.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Drífa BA-85 fékk allan byggðakvótann á Bíldudal fyrir þetta fiskveiðiár n Reglurnar sérsniðnar
að Perlusfiski til að skapa atvinnu n Gert að greiða 23 milljónir í sekt vegna ólögmæts sjávarafla
„Það eru sérsniðnar
reglurnar fyrir Þá“
„Bara þessi eini
bátur sem upp-
fyllti þau skilyrði sem sett
voru.
Bíldudalur Drífa BA-85 fékk allan
byggðakvótann á Bíldudal fyrir þetta fisk-
veiðiár.