Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 18
18 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Nokkuð hefur verið um það síðustu
daga að útvegsmenn hafi kvartað und-
an fyrirhuguðum breytingum á fisk-
veiðistjórnarkerfinu. Hafa þeir tekið
saman tölur yfir það hversu mikil áhrif
fyrirhugaðar breytingar muni hafa á
þann heildarafla sem veiddur er innan
tiltekinna bæjar- og sveitarfélaga.
Þannig héldu Útvegsbændafélag
Vestmannaeyja og Útvegsmanna-
félag Austurlands blaðamannafund á
fimmtudag í síðustu viku þar sem það
kom fram að ef fiskveiðistjórnarfrum-
vörp ríkisstjórnarinnar yrðu að lög-
um og kæmi að fullu til framkvæmda
myndu hátt í 15,5 þúsund þorskígildis-
tonn færast frá Vestmannaeyjum
og 13,3 þúsund þorskígildistonn frá
Fjarðabyggð og allt að 260 störf tapast.
Á sunnudaginn sendi Útvegsmanna-
félag Vestfjarða frá sér yfirlýsingu. Í
henni kom fram að ef Alþingi sam-
þykkti lög um breytingar á fiskveiði-
stjórnarkerfinu myndu aflaheimildir á
Vestfjörðum skerðast um 3.700 þorsk-
ígildistonn og um 100 störf tapast við
veiðar og vinnslu á Vestfjörðum. Þar
af 45–50 hálaunastörf til sjós og um 50
störf í fiskvinnslu.
25 þúsund tonn leigð frá
Fjarðabyggð
Yfirlýsingar um slæm áhrif fyrirhug-
aðra breytinga á fiskveiðistjórnar-
kerfinu eru athyglisverðar ef þær eru
skoðaðar í samhengi við hversu mik-
ið tiltekin bæjar- og sveitarfélög leigja
frá sér af aflaheimildum og senda ann-
að til vinnslu. Finnbogi Vikar Guð-
mundsson, laganemi á Bifröst, hefur
tekið saman tölur yfir það hversu mik-
ið útgerðir í Fjarðabyggð hafa leigt frá
sér af aflaheimildum undanfarin átta
ár. Í Fjarðabyggð hafa stórútgerðir eins
og Eskja á Eskifirði og Síldarvinnslan á
Neskaupstað leigt frá sér um 25 þús-
und þorskígildistonn á undanförnum
átta árum. Það er mun meira en þau
13,5 þúsund þorskígildistonn sem Út-
vegsmannafélag Austurlands telur að
Fjarðabyggð tapi komi fyrirhugaðar
breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu til
framkvæmda. Þess skal auk þess get-
ið að sá sem kynnti áhrifin á Fjarða-
byggð var Gunnþór Ingvason, formað-
ur Útvegsmannafélags Austurlands og
framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað en Síldarvinnslan er eitt
þeirra félaga sem hafa verið hvað dug-
legust við að leigja frá sér aflaheimildir.
„Fjarðabyggð ætti frekar að hugsa um
að leigja ekki frá sér kvóta í staðinn fyr-
ir að kvarta undan því að missa hann
frá sér,“ segir Þórður Már Jónsson lög-
fræðingur en hann og Finnbogi Vikar
sendu frá sér skýrslu árið 2009 þar sem
þeir gagnrýndu fyrirkomulag á flutn-
ingi aflaheimilda á milli útgerða og til
svokallaðra leiguliða.
Einnig má geta þess að líkt og
fram kemur í töflu með þessari um-
fjöllun fer ekki allur afli sem kemur í
land í Vestmannaeyjum til vinnslu þar.
Þannig voru um 84 prósent af þeim
7.526 tonnum af þorski sem komu til
Vestmannaeyja árið 2009 unnin þar
og einungis 61 prósent af þeim 1.284
tonnum af ýsu.
55 prósent af þorski
unnin á Vestfjörðum
Það eru ekki einungis Vestmannaey-
ingar sem senda hluta af afla sínum til
vinnslu annars staðar. Útvegsmanna-
félag Vestfirðinga telur að fjórðungur-
inn muni tapa um 3.700 þorskígildis-
tonnum og 100 störfum ef breytingar
á fiskveiðistjórnarkerfinu ná fram að
ganga. Í töflu með frétt má sjá að níu
bæjarfélög á Vestfjörðum vinna ein-
ungis um 55 prósent af þeim nærri
20 þúsund tonnum af þorski sem þar
kemur í land en um 45 prósent fara til
vinnslu annars staðar eins og á höfuð-
borgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
Hlutfallið er enn lægra í ýsu en ein-
ungis 36 prósent af þeim tæplega 9.500
tonnum af ýsu sem koma í land í níu
bæjarfélögum á Vestfjörðum fara þar
til vinnslu.
Mikið af afla til leiguliða
Líkt og kom fram hér að framan voru
útgerðarfélög í Fjarðabyggð dugleg
að leigja frá sér kvóta. Slíkt er ekki
einungis bundið við það sveitar-
félag. Eins og sést með töflum í frétt
er flutningur á aflaheimildum ansi
algengur. DV hefur áður fjallað um
það hversu vel er hægt að hagnast á
slíku framsali. Þórður Már Jónsson
lögfræðingur benti á það árið 2009
að félög tengd þingmanninum Ás-
birni Óttarssyni hefðu hagnast um
18,5 milljónir króna árið 2008 með
því að leigja frá sér aflaheimild-
ir frá bátunum Herdísi SH-145 og
Tryggva Eðvarðs.
Í skýrslu Þórðar Más og Finn-
boga Vikars sem þeir kynntu árið
2009 að núverandi handhafar afla-
heimilda gætu hagnast gríðarlega
á því að eiga aflaheimildir í van-
nýttum aflaheimildum í tegundum
eins og úthafsrækju undir höndum
til þess að geta leigt út aðrar og dýr-
ari tegundir í til dæmis þorski og ýsu
til kvótalítilla útgerða. Þannig voru,
sem dæmi, um tvö þúsund tonn af
úthafsrækju flutt til frystitogarans
Brimness sem Brim gerir út en skip-
ið veiddi þó einungis 9,5 tonn eða
0,5 prósent af heildarkvóta í úthafs-
rækju.
Kvótastýring ekki
náttúrulögmál
„Umræðan er á villigötum. Menn
eru farnir að líta þannig á að kvóta-
stýring á aflaheimildum sé orðin
eitthvert náttúrulögmál á meðan
almennt frjálsræði til veiða með
krókum, sem dæmi, er lítið rætt.
Frjálsar veiðar krókabáta ætti ekki
að takmarka þar sem veiðihæfni
með krókum er langt innan við eitt
prósent þannig að ómögulegt er
að ofveiða nokkurn fiskistofn með
krókaveiðum. Það er því óskiljan-
legt að fella eigi slíkar veiðar undir
kvótakerfið,“ segir Þórður Már Jóns-
son.
Hann segist ekki skilja af hverju
fólkið í sjávarþorpunum einblíni
ekki á það að það sé búið að taka
frá því lífsbjörgina og réttinn til að
veiða með ákveðnum aðferðum
með því að kvótasetja þær. Sam-
kvæmt stjórnarskránni megi ekki
takmarka atvinnufrelsi nema við
því liggi almannahagsmunir. „Tak-
mörkun atvinnufrelsis í sjávarút-
vegi er rökstudd með hættunni á of-
veiði en hvað þá með veiðiaðferðir
sem aldrei geta ógnað neinum fiski-
stofnum eins og krókaveiðar,“ spyr
Þórður Már.
BYGGÐALÖG SEM FLYTJA
KVÓTA OG FISK KVARTA
n Útvegsfélög í Vestmannaeyjum, Fjarðabyggð og Vestfjörðum vara við afleiðingum fyrirhugaðra breyt-
inga á fiskveiðistjórnarkerfinu n Leigja mikið af aflaheimildum frá sér og senda fisk annað til vinnslu
Lítil nýting á úthafsrækju Frystitogarinn Brimnes veiddi einungis 0,5 prósent af aflaheimildum sínum í úthafsrækju en slíkar heimildir er hægt að leigja út í formi dýrari
tegunda eins og þorski. Mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSon
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Unnin afli í Vestmannaeyjum og á
Vestfjörðum 2009:
Þorskur Ýsa
Vestmannaeyjar 84% 61%
Vestfirðir* 55% 36%
*9 bæjarfélög á Vestfjörðum
Unnin afli 2009
Flutningur aflahlutdeilda (%) milli
fiskiskipa 2009-2010:
Tegund %
Þorskur 11,2
Ýsa 14,9
Ufsi 20,0
Karfi/gullkarfi 10,6
Langa 17,3
Keila 11,6
Steinbítur 9,4
Skötuselur 24,1
Grálúða 23,7
Skarkoli 12,5
Þykkvalúra 9,2
Langlúra 7,4
Sandkoli 15,2
Skrápflúra 11,8
Síld 29,6
Humar 27,2
Loðna 10,5
Úthafsrækja 6,6
Mest flutt af síld
Milli skipa í Milli skipa í eigu Flutningur
eigu sama óskyldra samtals
aðila aðila
Þorskur 31.856 29.218 61.073
Ýsa 26.053 23.806 49.859
Ufsi 25.649 18.205 43.854
Karfi/gullkarfi 19.959 7.067 27.026
Langa 4.119 2.220 6.339
Keila 3.417 1.130 4.547
Steinbítur 6.507 7.506 14.014
Skötuselur 993 1.869 2.861
Grálúða 5.289 5.172 10.460
Skarkoli 2.548 3.344 5.892
Þykkvalúra 1.193 939 2.132
Langlúra 1.523 1.132 2.654
Sandkoli 543 386 929
Skrápflúra 1.238 501 1.739
Síld 67 27 94
Loðna 40 7 47
Kolmunni 23 8 31
Humar 476 239 715
Úthafsrækja 3.581 9.213 12.794
Flutningur aflamarks 2009/10
Undrast viðbrögð útvegsmanna Þórður Már Jónsson lögmaður segir undarlegt
að útvegsmenn í sveitarfélagi eins og Fjarðabyggð séu að kvarta undan fjárhags-
legum afleiðingum vegna fyrirhugaðra breytinga á fiskveiðistjórnarkerfinu á meðan á
sama tíma sé verið að leigja umtalsverðar aflaheimildir frá þeim.