Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 21
Fréttir | 21Helgarblað 10.–14. júní 2011 www.markisur.com Veðrið verður ekkert vandamál. Dalbraut 3, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar Viltu skjól á veröndina? Eigum við ekki að hætta þessari þrjósku. Mennirnir seM tæMdu sparisjóðinn Ber mikla ábyrgð Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Keflavík, ber stóra ábyrgð á falli sjóðsins. utan um hlut Gríms og annarra í fé­ laginu Suðurnesjamönnum en Út­ nesjamenn ehf. skuldaði sparisjóðn­ um tæpar 103 milljónir í september 2008. Umrætt lán var með verðlaust veð á bak við sig samkvæmt skýrslu FME en það var vegna þess að veðin voru í félaginu Suðurnesjamönnum sem á þessum tíma var einskis virði að mati FME. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kom fram að Bláa lón­ ið hf. skuldaði Icebank, seinna Sparisjóðabankanum, 334 milljón­ ir og Bakvörður 305 milljónir þegar hrunið skall á. 13 milljarða tap stofn­ fjáreigenda Stofnfjáraukning Sparisjóðs Kefla­ víkur fór fram í lok árs 2007. Stofn­ fjáreigendum var boðið að kaupa bréf á grundvelli eignar sinnar í sparisjóðnum. Mikill áhugi var á stofnfjáraukningunni og seldi spari­ sjóðurinn öll bréf sem í boði voru. Stofnfjáraukningin nam um milljarði króna en talið er að heildartap stofn­ fjáreigenda vegna falls sparisjóðsins nemi um 13 milljörðum króna. Þess ber að geta að á næsta rekstrarári eftir stofnfjáraukninguna skilaði sparisjóðurinn rúmlega 17 milljarða króna tapi. Breyttu reglum bankans Geirmundur Kristinsson var for­ maður bankaráðs Sparisjóðabank­ ans, síðar Icebank og að lokum aftur Sparisjóðabankainn, um langt skeið. Þeir Grímur Sæmundsen og Steinþór Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, komu inn í stjórn Sparisjóðabankans í lok árs 2007. Í skýrslu rannsóknar­ nefndar Alþingis kemur fram að stjórn bankans á haustdögum 2007 ákvað að breyta reglum bankans svo hægt væri að lána stjórnendum og starfsmönnum fyrir hlutabréfakaup­ um í bankanum. Fram kom í frétt DV í maí síðastliðnum að fimm eignar­ haldsfélög væru gjaldþrota sem hefðu verið notuð til að fjárfesta í bankanum af hálfu starfsmanna. Fé­ lögin höfðu skuldsett sig fyrir meira en fimm milljarða með lánum frá bankanum sjálfum og tengdum fé­ lögum. Í september 2008 var stærsta ein­ staka staða Sparisjóðs Keflavíkur í Icebank. Sparisjóðurinn átti þá 28 prósent af verðbréfaeign sinni í Ice­ bank. Þetta var eitt af því sem Fjár­ málaeftirlitið gerði athugasemd við á sínum tíma en aðeins 6 félög stóðu á bak við 67 prósent af allri verðbréfa­ eign Sparisjóðsins. Einnig var gerð athugasemd við að sparisjóðurinn þyrfti að kalla eftir auknum trygg­ ingum vegna lána til félaga með veði í hlutabréfum Icebank. Virðist sem það hafi ekki verið gert. Tók lán persónulega fyrir sparisjóðinn Bergið ehf. er eitt af þeim umdeild­ um eignarhaldsfélögum sem hafa vakið athygli á undanförnum mán­ uðum. Félagið fékk tveggja millj­ arða króna kúlulán frá Spron til að kaupa 9,5 prósenta hlut í Ice­ bank sem Spron átti og seldi Berg­ inu á þrjá milljarða. Einn þriðji var greiddur með eigin fé af hluthöf­ um Bergsins. Steinþór Jónsson var á meðal eigenda félagsins sem og Jónmundur Guðmarsson, fyrrver­ andi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og núverandi framkvæmdastjóri Sjálf­ stæðisflokksins. Í skýrslu Fjármála­ eftirlitsins kemur fram að Bergið skuldaði Sparisjóði Keflavíkur 370 milljónir, um er að ræða lán með engum veðum. Þegar DV bar þetta undir Steinþór kom fram að eng­ inn í Berginu hefði komið að þessu heldur væri um að ræða sambanka­ lán á milli Spron og Sparisjóðs Keflavíkur. Eftir stendur spurningin hvers vegna sparisjóðurinn tók yfir 370 milljóna króna lán frá Spron með engum veðum. Lán upp á 107 milljónir er á nafni Steinþórs sem var inni í Sparisjóði Keflavíkur í september 2008. Sam­ kvæmt Steinþóri tengist umrætt lán einnig Berginu en snýst um að­ komu Sparisjóðs Keflavíkur að fé­ laginu. „Það voru margir hluthafar í Berginu og einn af þeim stóð til að yrði Sparisjóðurinn í Keflavík,“ segir Steinþór sem segir að lánið hafi verið fyrir eigið fé sparisjóðsins en að það hafi verið skráð á hann tímabundið. „Það sem var skráð á mig var 8 pró­ sent af þessu eigin fé sem Bergið lagði fram sem sparisjóðurinn átti að leggja fram til þess að eignast hlut í Berginu. Það var gerður samningur um það sérstaklega. Þetta var bara sett á heimild til að byrja með til þess að klárast. Sparisjóðurinn ætlaði að eignast í Berginu, það var hugmynd­ in. Það var sett á mitt nafn til að klára þetta,“ segir Steinþór sem staðfestir með þessu að hafa virkað sem ein­ hvers konar milliliður á milli Spari­ sjóðs Keflavíkur og Bergsins. Virðist sem Sparisjóður Keflavíkur hafi tek­ ið yfir lánið sem var skráð á Steinþór ásamt bréfum í Icebank. Keypti eignir á undirverði Steinþór Jónsson og sparisjóður­ inn í Keflavík voru á meðal eigenda eignarhaldsfélagsins Base. Steinþór var stjórnarformaður félagsins en Geirmundur Kristinsson varamað­ ur í stjórn þess. Base keypti eignir á gamla varnarliðssvæðinu í Kefla­ vík fyrir um 600 milljónir króna árið 2007 sem voru taldar vera 1.200 milljóna króna virði á þeim tíma eftir því sem kom fram í 24 stundum. Við­ skipti Base með eignirnar voru gagn­ rýnd sínum tíma á þeim forsendum að þær hefðu verið seldar til framá­ manna í Reykjanesbæ, meðal annars Steinþórs og Sparisjóðs Keflavíkur. Base skuldaði Sparisjóði Keflavíkur í það minnsta 120 milljónir króna í september 2008. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við lánið þar sem engin veð voru að baki því. Í október 2010 var félagið að lokum úrskurðað gjaldþrota. Grímur Sæmundsen (t.h.) Forstjóri Bláa lónsins, stærstu áhættuskuldbindingar sjóðsins. Stór skuldari Steinþór Jónsson var milli- liður milli Bergsins og Sparisjóðsins þegar sjóðurinn ætlaði að fjárfesta í félaginu. Landsbankinn tók við sjóðnum Sjóðurinn starfaði í 103 ár. Núna er hann orðinn hluti af Landsbankanum. Ljóst er að eignasafn Sparisjóðs Keflavíkur var stórlega ofmetið af hálfu sparisjóðsins. Fjármálaeftir­ litið benti til að mynda sparisjóðn­ um á að eign þeirra í Kistu þyrfti að færa niður um rúmlega fimm hundruð milljónir í september 2008, en það var fjárfestingarfélag sem fjárfesti nær eingöngu í Ex­ ista. Auk þess þyrfti að færa til bók­ ar hlutdeild í tapi Kistu. Samtals var um ræða rétt rúmlega milljarð króna sem var ofmetinn í bókum sparisjóðsins. Sparisjóðurinn vanrækti að grípa til veðkalla og ofmat trygg­ ingar lána samkvæmt Fjármála­ eftirlinu. Þetta getur skýrt að hluta þá eignarýrnun sem átti sér stað í sparisjóðnum fyrir utan að eign­ irnar hafi verið ofmetnar að auki. Þegar sparisjóðurinn greip ekki til veðkalla eða kallaði eftir auknum tryggingum, þegar verðmæti bréfa lækkaði sem sjóðurinn hafði lán­ að fyrir kaupum á, er ljóst að spari­ sjóðurinn veðjaði á rangan hest. Þar sem bréfin lækkuðu í verði, lækkaði einnig eignasafn spari­ sjóðsins þar sem félögin á bak við lánin og bréfin gátu ekki greitt lán­ in tilbaka.Virðist sem sparisjóður­ inn hafi veðjað á að bréfin myndu hækka í verði á endanum. Á þetta til að mynda við í málum þeirra sem fengu lánað út á stofnfjárbréf í sparisjóðnum sjálfum. Sparisjóð­ urinn hafði lánað um 950 milljónir með veðum í sparisjóðnum í sept­ ember 2008 en tryggingar á bak við lánin voru einungis um 598 millj­ ónir á þeim tíma. Samt var ekki gripið til þeirra ráða að óska eftir frekari tryggingum eftir því sem DV kemst næst. Útlánastefna Sparisjóðs Keflavíkur: Ófullnægjandi tryggingar „Sparisjóðurinn í Keflavík heldur sjó í því ölduróti sem íslenska bankakerfið er í og engar meiriháttar breytingar eru fyrirhugaðar á starf- seminni. „Þegar kröfuhaf- ar sjóðsins náðu samkomulagi við slit- astjórnina í nóvember 2010 kom í ljós að kröfu- hafar myndu fá greiddar 300 milljónir í fullnaðar- uppgjöri vegna yfirtöku sjóðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.