Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 22
22 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað GamaldaGs veitinGa- staður oG Gistihús við þjóðveG 1. veitinGaskálinn víðiGerði er gam aldags veitingastaður við þjóðveginn í Húnaþingi vestra. Hér g etur þú stoppað og teygt úr þér, fengið gott sveitakaffi og alvöru k affi latte, caphuchino og expresso baunakaffi sem sumir segja þ að besta á landinu…Við seljum pylsur og samlokur gos, sælgæti og fleira í þeim dúr. Alla daga vikunnar frá kl. 11 til 22 getur þú fe ngið Thailenskan mat og heimilismat. Við leggjum líka áherslu á m atarmiklar súpur, gúllas- súpu, kjúklingasúpu, kjötsúpu, mexicosú pu...Grillið er opið frá kl. 9 til 23 og þá er hægt að fá bestu hamborg ara við þjóðveg 1. (án allra aukaefna) steiktan fisk ásamt nauta -og f olaldasteik. VíðidAlur eHf. | 531 HVAmmsTAnGi | sími: 451 2592 | fAx: 451 2593 | neTfAnG: VidiGerdi@VidiGerdi.is | HeimAsíðA: www.VidiGerdi.is Thai maTurSKYNDimaTurhEimiLiSmaTurSamLOKur TruKKar Þetta er mjög slæmt fyrir velferð kýr- innar og þetta er slæmt fyrir ímynd af- urðarinnar í hugum neytenda. Fjórir bændur voru dæmdir til þess að greiða sekt vegna þess að þeir hleyptu nautgripum ekki – eða of lítið – út yfir sumartímann. Tvö mál voru afgreidd hjá lögreglunni á Akureyri og önnur tvö mál hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Alls voru níu mál rannsökuð og Mat- vælastofnun er nú í sérstöku átaks- verkefni vegna málsins. Bændur þurfa að greiða 50 þúsund króna sekt verði þeir uppvísir að því að hleypa kúm ekki út til útivistar á sumrin. Steinþór Arn- arson hjá Matvælastofnun segir mál- ið nú í góðum farvegi. „Þeir sem voru kærðir settu gripina ekki út, eða mjög lítið. Við höfum farið í átaksverkefni út af þessu og aukið eftirlit. Bændur átta sig nú á því að fylgst er með þessu og að lögreglan er komin í málið og tekur á þessu,“ segir Steinþór. DV fékk ekki nánari upplýsingar um hvaða bændur málið varðaði, þar sem það þykir við- kvæmt. „Málið er talið viðkvæmt og ég sé mér ekki fært að veita þær upplýs- ingar,“ segir Steinþór. Átta vikur á sumri Í reglugerð um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra segir í fimmtu grein að tryggja eigi átta vikna útivist nautgripa yfir sumartímann. Sú grein hefur verið í nefnd hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og hefur málið verið þar á annað ár. Nefndin hefur meðal annars fjallað um hvort breyta eigi orðinu útivist í reglugerðinni, en það hefur verið túlk- að mjög frjálslega. Sumir hafa túlkað það sem svo að nóg sé fyrir kýrnar að fara út í gerði meðan aðrir telja að þær eigi að fara á sumarbeit. Dýraverndar- ráðið á Íslandi ályktaði og skoraði á landbúnaðarráðuneytið að breyta orðinu tafarlaust í sumarbeit. Nor- ræna dýraverndunarráðið hefur skrif- að Norðurlandaráði vegna málsins, þar sem áhyggjum er lýst vegna þeirr- ar þróunar sem á sér stað á Norður- löndunum þar sem kýr fara minna út en áður. Minni velferð, meiri peningar Flestir hleypa kúm út til beitar á sumr- in en um 750 kúabændur eru hér á landi og halda þeir 25.000 kýr vegna mjólkurframleiðslu. Hættan felst í að með stærri búum verði þetta að venju frekar en undantekningu. Vel- ferð kúa tengist fæðuöryggi, en kröfur um meiri afköst hjá færri búum veldur því að bændur erlendis sjá hag sinn í því að láta kýr ekki njóta sumarbeitar. Neytendur kalla á lægra matvælaverð og því fylgir að bændur telji framleiðsl- una hagkvæmari ef ekki er kostað til velferðar dýranna. Kýr eru grasbítar og eðlilegt er að þær fái að bíta gras. Í eðli þeirra, eins og annarra dýra, er að njóta útivistar og nokkurrar hreyfing- ar. Með útivistinni verða þær gjarnan heilsuhraustari og frjósemi er venju- lega meiri hjá þeim og minni hætta er á fótaveiki. Því er velferð þeirra kúa sem fá að ganga til beitar á sumrin mun betri en þeirra sem standa inni allt árið. Mjólkin verður hollari Stærri bú og lægra verð þýða aukinn verksmiðjubúskap en þá mótmæla neytendur meðferð dýranna. Ekki er hægt að hafa þetta á báða bóga segir Ólafur Dýrmundsson, lands- ráðunautur hjá Bændasamtökun- um í lífrænum búskap og landnýt- ingu. Hann segir að rökin fyrir því að láta kýr ekki út séu fyrst og fremst þau að það sé þægilegra fyrir bónd- ann. Hvorki séu nein rök fyrir því að það sé ódýrara í framleiðslu né sé það betra. Þvert á móti verði mjólk- in og afurðir kúa sem fari á sumar- beit mun ríkari af omega-fitusýrum sem geri hana bæði betri og hollari. „Það liggja ekki fyrir neinar vísinda- legar sannanir fyrir því að það sé gott og blessað að halda þeim svona inni. Það eru fullyrðingar sem eru úr lausu lofti gripnar. Þetta er mjög slæmt fyr- ir velferð kýrinnar og þetta er slæmt fyrir ímynd afurðarinnar í hugum neytenda,“ segir Ólafur. Hann kallar eftir skýrari reglum til þess að stöðva núna þróun sem gæti orðið erfiðari að eiga við síðar meir. „Stórt mál í mínum huga“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi land- búnaðarráðherra, segir að nauð- synlegt sé að höggva á hnútinn sem myndast hefur um málið og gera reglurnar alveg skýrar. „Það er gríðarlega mikilvægt að blessaðar skepnurnar fái að fara út í guðsgræna náttúruna og lög lands- ins kveða á um það. Í því er fólgin dýravernd og þannig eru gæði vör- unnar tryggð,“ segir Guðni. Hann segir að gæði mjólkurafurða séu að miklu leyti tengd því að kýrnar fái að fara á sumarbeit. „Mér er illa við að bændur séu að hártoga um þetta, þetta þarf að vera skýrt og skepnurn- ar eiga að fá að fara út í haga. Þetta er neytendavænt og er stórt mál í huga mínum, þetta er sérstaða okkar hér og það er vitleysa að loka kýrnar inni.“ Hleypa kúm ekki út Meiri gæði mjólkurafurða Guðni segir mikilvægt að skepnurnar fái að fara út í haga þar sem gæði mjólkurafurða séu tengd því að kýrnar fái að fara á sumarbeit. n Bændur dæmdir fyrir að virða ekki reglur um útivist n „Vitleysa að loka skepnurnar inni,“ segir Guðni Ágústsson n „Hættuleg þróun ef ekki er haft eftirlit með málinu,“ segir Ólafur Dýrmundsson „Þetta er mjög slæmt fyrir velferð kýrinnar og þetta er slæmt fyrir ímynd afurðarinnar í hugum neytenda. Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is Lágmarksbeit Mikilvægt er að kýr fái að lágmarki 8 vikna sumarbeit. Reglugerð um málið er óljós og þarf að skýra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.